Morgunblaðið - 24.10.1980, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.10.1980, Qupperneq 1
40 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI 236. tbl. 68. árg. FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. McHenry hvetur íraka að draga her sinn frá Iran Sameinuóu þjóAunum. Teheran. Hagdad. 23. október. AP. DONALD McHenry, hvatt' íraka til þess að hafa sig á brott af íranskri grund þegar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman í kvöld til fundar um deilu frana og íraka. Hann hvatti til friðsamlegrar lausnar deilunnar. I>á ítrekaði McHenry að Bandaríkin væru hlutlaus í stríði íraka og írana. Talsmaður íranska þingsins, Ayatollah Hasemi Rajsandjani sagði í dag í viðtali við franska blaðið Le Monde, að skilyrði þau, sem Khomeini, trúarleiðtogi Ir- ana, setti fyrir lausn gíslamálsins, séu ekki „endilega öll upptalin". Hann sagði að líklega mundu þingmenn setja ítarlegri skilyrði fyrir lausn gíslamálsins en Khom- eini en þó innan þessa ramma, sem tilkynntur var. Þessi yfirlýs- ing Rajsandjani, eins áhrifamesta manns í Iran, hefur minnkað vonir um skjóta lausn gíslamáls- ins. styrki nú varnir borgarinnar. Rauði hálfmáninn íranski til- kynnti í dag, að alls hefðu 1325 óbreyttir borgarar fallið í stríði þjóðanna, og yfir 6 þúsund hefðu særst. Mest hefði mannfall verið í Ahwaz, höfuðborg Khuzestans. Bandaríska utanríkisráðuneytið skýrði frá því í dag, að bandarísk- ur fréttamaður hefði verið hnepptur í varðhald í íran í síðastliðnum mánuði og að engar ákærur hefðu verið lagðar fram gegn honum. Sjá grein „Frelsun gíslanna kæmi Carter vel“ bls. 16. Rajsandjani sagði að meirihluti þingsins mundi taka afstöðu til gíslamálsins, sennilega á sunnu- dag. Ali Rajai, forsætisráðherra Irans, skýrði fyrir skömmu frá skilyrðum Khomeinis og voru þau í fjórum liðum. Til viðbótar þeim, sagði Rajsandjani, að þingið mundi hugsanlega gera að kröfu sinni, að bandarísku AWAC rat- sjárflugvélarnar verði á brott frá Saudi Arabíu. Bandarískir embættismenn voru varkárir í yfirlýsingum í dag en sögðu, að erfitt væri að ganga að þeim skilyrðum, sem Iranir virðast ætla að setja — en þó alls ekki ómögulegt að takist að semja. Embættismenn eru vongóðir um lausn deilunnar, en þó varkárir. Þeir telja sig sjá þess merki, að íranir vilji binda endi á gísladeil- una. Hins vegar gætu yfirlýsingar Rajsandjanis flækt málið eitthvað og embættismenn í Washington leggja á það áherslu, að mjög geti brugðið til beggja vona. íranska herstjórnin í Teheran tilkynnti í dag, að íranski flotinn hefði sökkt írösku herskipi í sjó- bardaga á Persaflóa í dag. írakar segjast sjálfir hafa sökkt írönsk- um tundurskeytabáti en minntust ekkert á missi herskips. írakar segjast stöðugt þrengja hringinn um Abadan. Hins vegar sagði íranska herstjórnin í dag, að íranskri herdeild hefði tekist að brjóta sér leið til Abadan og Faðir krýpur grátandi við lik sonar sins. Simamynd AP. Harmleikur í smábæ á Spáni: Tíunda hvert barn í Ortuella beið bana — þegar skólahús sprakk í loft upp Bilbao. 23. október. AP. „ÞAÐ VAR sem jörðin gleypti húsið, eins og jarðskjálfti hcfði lagt það i rúst. Ég sá lik barna falla tii jarðar af efri hæðunum. Þetta var hræðilegt,“ sagði kona nokkur. sem varð sjónarvottur að þvi þegar fjögurra hæða barna- skóli i bænum Ortuella, skammt frá Bilbao á Spáni. sprakk i loft upp. Að minnsta kosti 51 barn beið bana. 30 voru flutt á sjúkra- hús. Þar af er 6 ekki hugað líf. Börnin voru á aldrinum 6 til 10 ára. f fyrstu var talið að a.m.k. 64 börn hefðu látist og var sú tala höfð eftir björgunarmönnum og frá sjúkrahúsi staðarins. Hins vegar var tilkynnt á bæjarskrif- stofunum að a.m.k. 51 barn hefði beðið bana. Lik barna eftir sprenginguna i skólanum. Símamynd AP. 46 ►f* Kosygin dregur sig í hlé vegna heusubrests Tikhonov — hinn nýi forsætis- ráðherra Sovétrikjanna. Simamynd AP. Moskvu, 23. október. AP ALEXEI Kosygin, íorsætisráð- herra Sovétríkjanna, hefur látið af störfum vegna heilsubrests. Við starfi hans tekur aðstoðarfor- sætisráðherra landsins, Nikolai Tikhonov. Leonid Brezhnev, for- seti landsins, tilkvnnti Æðsta ráðinu. sem nú þingar i Moskvu. afsögn Kosygins. Þó almennt sé álitið, að ástæða afsagnar Kosygins sé heilsubrest- ur en ekki afleiðing valdabaráttu, þá vakti það athygli, að sovéska sjónvarpið skýrði frá nokkrum þingfréttum áður en skýrt var frá afsögn Kosygins. „Alexei Kosygin hefur skýrt frá því, að hann þarfnist hvíldar og biðst undan störfum vegna heilsubrests, sem hefur ágerst upp á síðkastið. Afsögn hans hefur því verið tekin gild,“ sagði Leonid Brezhnev, þeg- ar hann tilkynnti Æðsta ráðinu afsögn Kosygins. Það vakti og athygli, að Brezhnev bar ekkert lof á starf Kosygins í þágu lands og flokks. Kosygin liggur nú á sjúkrahúsi. Hann er 76 ára gamall og hefur gegnt störfum síðan 1964 þegar hann, ásamt Brezhnev og Nikolai Podgorny, vék Krúsjeff frá völd- um. Almennt er álitið, að afsögn Kosygins muni ekki hafa í för með sér neina stefnubreytingu. Hann hafði einkum með efnahagsmál að gera, en síðustu mánuðina hefur hann lítt getað gegnt störfum vegna heilsubrests. Tikhonov hef- ur fyllt skarð hans. Tikhonov er 75 ára gamall — ári yngri en fyrir- rennari hans. Sjá frétt „Reyndur leiðtogi leystur af hólmi“ bls. 15. Orsakir sprengingarinnar eru ekki að fullu íjósar ennþá. En þó er ljóst, að gufuketill sprakk í loft upp, þegar neistar komust í gasleiöslur hans. Pípulagningarmaður var að vinna að viðgerð gufuketilsins og beið hann samstundis bana. Aðkoman var skelfileg. Foreldrar þustu að, leitandi að börnum sínum. Þeir voru skelfingu gripnir og kom til átaka þegar björgunarmenn urðu að fjarlægja skelfingu lostna for- eldra frá, þar sem þeir hindruðu björgunarstarf. Ortuella er 5 þús- und manna bær, skammt frá Bilbao. Tíunda hvert barn í þorpinu beið bana í sprengingunni. Sumir for- eldrar misstu allt að þrjú börn í harmleiknum. Sprengingin átti sér stað um hádegisbil, klukkustund fyrir matarhlé. I skólanum voru um 500 börn. Börnin sem létust voru í einni álmu skólans. Tvær aðrar álmur urðu fyrir skemmdum en ekki miklum og þar slasaðist enginn eða beið bana. Sprengingin heyrðist í 15 kílómetra fjarlægð, svo öflug var hún. Enn er talið að mörg lík séu grafin í rústum skólans. Insúlíndæla linar þrautir sykursjúkra bundúnum. 23. októbor. AP. BRETI nokkur. Robert Channon, sem þjáist af svkursýki. hefur hannað sérstaka dælu. sem sykur- sjúkir geta borið um mitti sér. Þessi dæla ætti að gera sykursjúk- um lífið léttbærara, því hún dælir insúlíni í blóðið eftir sykurmagni og í samræmi við fæðu hverju sinni. Channon hefur undanfarna sex mánuði borið dæluna um mitti sér. Hann sagöi, að hann gæti fyrir vikið neytt fjölbreyttari fæðu, án þess að hafa áhyggjur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.