Morgunblaðið - 24.10.1980, Síða 2

Morgunblaðið - 24.10.1980, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980 94% félagsmanna ASI fara í verkfall „LJÓST er nú, að verkfallið, sem hnðað hefur verið til 29. október, verður mjö>? viðáttumikið og þátt- taka í því almenn,“ segir í frétta- tilkynningu. sem Morgunbiaðinu barst í gær frá Alþýðusamhandi fslands. „Við talningu í morgun kom í Ijós, að tæp 94% þeirra félagsmanna Alþýðusamhands fs- lands, sem til stóð að legðu niður vinnu, munu fara i verkfall næst- komandi miðvikudag.“ Síðan segir í fréttatilkynningu ASÍ, að á þeim lista, sem Vinnuveit- endasamband Islands hefði sent frá sér með 82 félögum, séu tvö ekki í Alþýðusambandinu, Múrarafélagið og Veggfóðrarafélag Reykjavíkur, 11 félög hafi þegar boðað verkfall og 12 eru í Sjómannasambandi Islands, en ekki hafi staðið til að þau tækju þátt í verkfallinu. „Eftir standa því 57 félög og félagadeildir með innan við 7% félagsmanna Alþýðusam- bands íslands," segir í fréttatil- kynningu ASÍ: Prentaradeilan: Samkomulag náð- ist um tæknimálin Starfsmenn Búnaðarbankans við Hlemm við talninguna i gær. Jóhann Garðarsson yfirféhirðir hefur yfirumsjón með talningunni, en hann er lengst til hægri á myndinni. Ljósm. Mbi. Emiiia. SAMKOMULAG um 4. kafla í kjarasamningi Hins islenzka prentarafélags og Félags ís- lenzka prentiðnaðarins var und- irritað í gærkveldi og hefur þá náðst samkomulag milli aðila um tæknikröfur prentara, auk þess sem samkomulag hefur náðst um endurmenntun og endurskoðun námsefnis til sveinsprófs. Þessi atriði stóðu i vegi fyrir viðræðum ASÍ og VSÍ og strax að lokinni undirritun samkomulagsins i gær var boðað til sáttafundar 'O INNLENT með viðræðunefndum aðila vinnumarkaðarins. Nýja samkomulagið um tækn- ina er allt mun ítarlegra en hið gamla og hefur verið aukið til þess að koma í veg fyrir vafaatriði. Aður hafði náðst samkomulag um verksvið blaðamanna, eins og fram hefur komiö í Morgunblað- inu, en nú bætist við samkomulag- ið nánari skilgreining á verksviði prentara og starfsfólks auglýs- ingadeilda. Ólafur Emilsson, formaður HÍP sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi, að samkomulag hefði tekizt um 4. kafla samningsins með alls konar fyrirvörum um samþykki aðila, þannig að hann væri frá í bili. Um framhald viðræðna um kjarasamninginn kvað Ólafur undir sáttanefnd komið. Afríkuhjálpin 1980: Talið í tveimur prestskosningum ATKVÆÐI í tvennum prests- kosningum voru talin á bisk- upsstofu i gær. I Sauðárkróksprestakalli voru 1350 á kjörskrá; 841 greiddi atkvæði og fékk séra Hjálmar Jónsson, Bólstað, sem var eini umsækjandinn, 837 atkvæði, 3 seðlar voru auðir og 1 ógildur. Kosningin var lögmæt, en til þess að svo sé þarf helmingur atkvæðisbærra manna að neyta kosningarétt- arins. í Ásprestakalli voru 2653 á kjörskrá; atkvæði greiddu 1004. Séra Árni Bergur Sigurbjörns- son Ólafsvík var eini umsækj- andinn og fékk hann 990 at- kvæði, auðir seðlar voru 11 og ógildir 3. Talningu af höfuðborgar- svæðinu lýkur i næstu viku TALNINGU á söfnunarfé til Afríkuhjálparinnar 1980, sem safnaðist i fyrradag á höfuðborgarsvæðinu, verður líklega ekki lokið fyrr en um miðja næstu viku. Söfnunar- fötunum var ekið í Búnaðar- bankann við Hlemm, þar sem starfsmenn bankans munu vinna við talninguna. Fréttir bárust frá Pálma Hlöðvers- syni í gærmorgun, en hann er við matvæladreifingu í Kara- mojahéraði í Uganda. Jón Ásgeirsson, framkvæmda- stjóri söfnunarinnar, sagði í sam- tali við Mbl. í gær, að u.þ.b. 1.500 grunnskólabörn hefðu tekið þátt í söfnuninni og einnig 150—200 sjálfboðaliðar aðrir og sagði hann mjög ánægjulegt hversu vel og hratt söfnunin hefði gengið fyrir sig. Jón sagðist hafa talað við fulltrúa danska Rauða krossins í Kampala, Hans Arthur Nielsen, í gærmorgun og hefði hann sagt sér að Pálmi Hlöðversson væri nú staddur í Kaabong, sem er norð- arlega í Karamoja-héraðinu, en hann mun væntanlegur til Kamp- ala í næstu viku til að gefa skýrslu um starf sitt. „Hans Arthur sagði einnig að ástandið í Karamoja-héraðinu væri nú mun betra," sagði Jón. Ekki vildi Jón nefna neina tölu um áætlaðar söfnunarfjárupp- hæð af höfuðborgarsvæðinu, en sagðist hafa heyrt ágiskunartölur frá fólki og væru þær allt frá 20 millj. kr. og upp í 100 millj. Adidas vill lög- bann á Addo VESTUR-þýzka fyrirtækið Adidas, hcfur snúið sér til yfirborgarfóget- ans í Reykjavik og óskað eftir því að lögbann verði lagt við notkun vörumerkisins Addo á iþróttafatn- að, sem scldur er hér á landi. Það er fyrirtækið Austurbakki hf. sem flytur þennan fatnað inn frá Suður-Kóreu og selur undir vöru- merkinu Addo. Telur hið þýzka fyrirtæki, sem er stærsti íþrótta- vöruframleiðandi heimsins, að vöru- merkið líkist um of sínu eigin vörumerki, Adidas. Fatnaðurinn frá Adidas er auð- kenndur með þremur röndum en Addo fatnaðurinn er auðkenndur með tveimur röndum. Ólafur Sigurgeirsson, fulltrúi borgarfógetans, hefur úrskurðað að Matthías Á. Mathiesen fyrrv. f járínálaráðherra: Ríkisstjórnin hefur hækkað skatta ungmenna úr 5 i 11,5% „ÞAÐ ER LJÓST, þegar gerður er samanhurður á skattlagningu tekna ungmenna fyrir og eftir skattkerfisbreytinguna 1978, að skattar á tekjur ungmenna í heild vcrða lægri eftir breytinguna en fyrir hana og heimilin hafa meira ráðstöfunarfé en minna fer til ríkisins. f skattalogunum frá 1978 var samþykkt að leggja 5% skatt á tekjur ungmenna, en síðan hefur núverandi ríkisstjórn hækkað hann um 2% og bætt við 3% útsvari og 1,5% sjúkratryggingagjaldi. Þannig hefur núverandi ríkisstjórn staðið að skattahækkun á tekjur ungmenna úr 5% i 11,5%, sagði Matthias Á. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, í samtali við Mbl. í tilefni af þeim skrifum og umræðum sem orðið hafa um skattlagningu ungmenna. „Með skattalögunum 1978 var samþykkt að leggja 5% skatt á gerð sú breyting á skattlagningu tekna að horfið var frá skattlagn- ingu heimilanna, þar sem heimil- isföðurnum voru taldar allar tekj- ur hjóna og barna undir 16 ára aldri, í sérsköttun, það er að segja skattlagningu einstaklinga heim- ilisins án tillits til kynja eða aldurs," sagði Matthías. „Með skattalögunum var ekki ætlunin að skattar á tekjur ungmenna yrðu hækkaðir, fremur lækkaðir. í skattalögunum frá 1978 var tekjur ungmenna, en barnabætur og frádráttur vegna barna reikn- aðist foreldrum. Ég man ekki til þess að nokkur alþingismaður gerði athugasemd vegna þessarar greinar, þegar lögin voru sam- þykkt. Á síðasta þingi lagði núverandi ríkisstjórn til að skattprósentan yrði hækkuð úr 5% í 7% og stjórnarliðar felldu tillögu sjálf-J stæðismanna um að prósentan skyldi standa óbreytt, það er 5%. Á síðasta þingi lagði núverandi ríkisstjórn fram frumvarp og fékk samþykkt, þar sem lagt er 3% útsvar á tekjur ungmenna og 1,5% sjúkratryggingagjald. Auk þessar- ar skattahækkunar er svo fram- kvæmd ríkisstjórnarinnar á skatt- heimtunni til mjög mikils baga fyrir viðkomandi ungmenni. í útvarpsþætti síðastliöinn mið- vikudag vék dr. Gunnar Thorodd- sen forsætisráðherra að skatt- lagningu ungmenna og taldi hana, eins og hún er í dag, vera verk ríkisstjórnar Geirs Hallgrímsson- ar með Matthías Á. Mathiesen sem fjármálaráðherra. Hér er farið rangt með. Fimm prósent tekjuskatts má rekja til laganna 1978, en 2% hækkun á skattpró- sentunni, 3% útsvarið og 1,5% sjúkratryggingagjald eru frá rík- isstjórn dr. Gunnars Thoroddsens með Ragnar Arnalds sem fjár- málaráðherra, eða samtals 6,5% af 11,5%, sem lögð eru á í dag. Mig rekur ekki minni til þess, að þegar skattalögin voru til umræðu 1978, hafi dr. Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, þáverandi iðn- aðarráðherra, nokkurn tíma haft í frammi athugasemdir varðandi þetta ákvæði, né heidur lýst óánægju sinni með það. Hafi hann verið það í raun og veru, fékk hann gullið tækifæri á síðastliðnum vetri til að standa með flokks- bræðrum sínum og halda skatt- prósentunni óbreyttri í 5% og vera á móti frekari hækkun skatta á tekjur ungmenna svo ekki sé nú talað um að standa við stefnu sjálfstæðismanna frá síðustu kosningum og afnema vinstri stjórnar skattana alla saman. Það gerði hann ekki, heldur stóð að meira en tvöföldun skattlagningar á tekjur ungmenna, úr 5% í 11,5%. Það er sannleikur málsins." lögbannið nái fram að ganga gegn 10 milljón króna tryggingu. Þegar Mbl. hafði síðast fréttir var ekki búið að leggja fram tryggingarféð og hafði lögbannið því ekki verið sett. Skuldin við Seðla- bankann fór yfir 40 milljarða FRIÐRIK Sophusson, al- þingismaður, sagði í út- varpsumræðum á Alþingi í gærkvöidi, að vinstri skatt- arnir í ár væru 50—60 milljarðar króna og á næsta ári yrðu þeir 75 milljarðar króna. Benti Friðrik á, að þrátt fyrir alla þessa skattheimtu hefði Ragnar Arnalds, fjár- máiaráðherra, ekki eina krónu afgangs til að endur- greiða skuldir ríkissjóðs við Seðlabankann, heldur hefði skuldin hækkað og komizt yfir 40 milljarða króna í þessum mánuði. Atkvæðagreiðslu lýkur í kvöld hjá Grafiska sveinafélaginu ATKVÆÐAGREIÐSLA í Graf- iska sveinafélaginu um það, hvort félagið eigi að boða til verkfalls frá og með 5. nóvember næstkom- andi stendur yfir á vinnustöðum félaganna. Kjörfundur hófst í gær og lýkur í kvöld. Búizt er við því, að niðurstaða atkvæðagreiðslunn- ar muni liggja fyrir eftir lokun kjörfundar í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.