Morgunblaðið - 24.10.1980, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 24.10.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980 5 fyrri þáttur fjallar um landið yfirleitt, hið nýja landnám Israela, sem mér finnst að nálgist það að mega kallast undur, að þetta skuli hafa tekist hjá ósamstæðu flótta- fólki frá mörgum löndum. Það er stórkostlegt. Eg segi þarna frá því hvað fyrir augu mín bar í ferðinni og er raunar sönnun þess sem ég sagði áðan. Síðari þátturinn sem útvarpað verður föstudaginn 31. október fjallar hins vegar um Jerúsalem-borg. Þar var ég einn og gekk um í gömlu borginni og sá þar allt annan heim en ég hélt að væri svona vestarlega á hnettinum, því að þar voru betlarar víða og mér liggur við að segja alls konar furður, þrátt fyrir að þar ríkir mikil siðavendni og hvergi sjáist t.d. drukkinn maður og aldrei neitt áfengi, að minnsta kosti aldrei hjá þarlendu fólki. Og í rauninni sá ég engan heldur við vinnu nema að selja og kaupa á götunum og biðja beininga. Gamla borgin er þannig að þar er í rauninni ekki hægt að ferðast um á bíl, þótt ótrúlegt megi virðast. Eftir að komið er inn fyrir borgarhliðin, þá er það miklu líkara göngum, jafnvel eins og lágu út í útihús í gamla daga á íslandi, reyndar var gatan dálítið breiðari en minnir samt talsvert á bæjar- göngin gömlu. Umhverfis götuna voru eiginlega ekki hús, heldur múrar. I þeim voru göt eða bil og þar inni eru stallar og hillur og á þeim býr fólkið enn þann dag í dag. 15.30 Tónleikar. Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. Tónleikar 16.30 Norðurlandamótið i handknattleik i Noregi. Ilermann Gunnarsson lýsir frá Hamri siðari hálfleik i keppni íslendinga og Finna (beint útvarp). Tónleikar. 17.20 Litli harnatíminn Börn á Akureyri velja og flytja efni með aðstoð stjórn- andans. Grétu Ólafsdóttur. 17.40 Lesin dagskrá næstu viku. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDID 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.40 Á vettvangi. Stjórnandi þáttarins: Sig- mar B. Ilauksson. Samstarfs- maður: Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir. 20.05 Nýtt undir nálinni. Gunnar Salvarsson kynnir nýjustu popplögin. 21.30 Kvöldskammtur. Endurtekin nokkur atriði úr morgunpósti vikunnar. 21.00 Frá tónlistarhátíð i Du- brovnik i Júgóslaviu i fyrra. James Tocco frá Bandarikj- unum leikur píanóverk eftir Fréderic Chopin: a. Berceuse op. 57. b. Barcarolle op. 60. c. Þrír mazúrkar op. 63. d. Andante spianato et Grande polonaise brillante op. 22. 21.45 Þættir úr Jórsalaför. Séra Árelius Nielsson fór ferðina siðsumars og greinr frá ýmsu, sem vakti athygli hans. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 Kvöldsagan: „Hetjur á dauðastund" eftir Dagfinn Hauge. Ástráður Sigursteindórsson les þýðingu sina (J). 23.00 Djassþáttur í umsjá Jóns Múla Árnasonar. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Fjölskyldu- bókin seld á Lækjartorgi LANDSSAMBAND sjálfstæð- iskvenna og Hvöt, félag sjálf- stæðiskvenna í Reykjavík, haía gefið út bók er nefnist „Fjöl- skyldan i frjálsu samfélagi“. í bókina rita 24 sjálfstæðismenn greinar um málefni fjölskyld- unnar. Gunnar Thoroddsen um kommúnista: „Engin ástæða að tor- tryggja þeirra störf“ — hafa á marga lund staðið sig vel ATHYGLI vakti í útvarpsþætt- inum Bein lina á miðvikudags- kvöldið, hve margir hlustenda spurðu Gunnar Thoroddsen um samstarf hans og kommúnista i rikisstjórnini. Hér á eftir fara spurningar tveggja hlustenda og svör ráðherrans. Iljörleifur Hallgríms: Var það alveg kinnroðalaust sem forsætis- ráðherra stofnaði til þessa stjórn- arsamstarfs með kommúnistum og stuðlaði þar með beint og óbeint að viðgangi og uppgangi þeirra í íslensku þjóðlífi? Gunnar Thoroddsen: Ég vil bara segja það, að ég held, að ég hafi ekkert roðnað við þessa stjórnarmyndun. Hjörleifur Hallgrims: Telur forsætisráðherra að það sé alveg óttalaust eða ástæðulaust til ótta að veita kommúnistum eins mikil völd í íslensku þjóðlífi, litlu lýð- ræðisríki, og raun ber vitni? Gunnar Thoroddsen: Ég tel að alþýðubandalagsmenn, sem þú munt eiga við þarna, hafi gegnt störfpm sínum af samviskusemi og dugnaði í þessari ríkisstjórn og engin ástæða til þess að tortryggja þar þeirra störf. Eftir þessi orðaskipti ræddu fréttamennirnir, sem þættinum stjórnuðu, samstarfið innan ríkis- stjórnarinnar nánar við forsætis- ráðherra og kom þar fram, að hann telur samstarfsandann góð- an í stjórninni. Sagði hann það hlutverk manna í stjórnmálum að kynna sér öndverð sjónarmið og reyna að ná sáttum og hefði það tekist innan stjórnarinnar. Pétur Óskarsson á Neskaup- stað: Er það almenn skoðun eða þín persónuleg, að alþýðubanda- lagsmenn séu drengir góðir? Og erut sammála mér í því sem sjálfstæðismaður, að eina leiðin til þess að ná árangri í þjóðmálum sé sú, að einangra kommúnista en ekki að mynda fyrir þá stjórn? Gunnar Thoroddsen: Náttúr- lega get ég ekki sagt, hver er almenn skoðun landsmanna, en ég lýsti um daginn, það var víst -í morgunpósti, yfir þeirri persónu- legu skoðun minni, að samstarfs- mennirnir í ríkisstjórninni væru allir dugandi menn og drengir góðir og það stend ég við. Hins vegar hvort það sé eina leiðin að leiða þá til áhrifa. Þegar stjórnin var mynduð, þá bara lágu málin þannig fyrir, að það var ekki möguieiki að mynda þingræð- isstjórn eða meirihlutastjórn á íslandi á annan veg en þann sem varð. Og ég tel fyrir mitt leyti, að reynslan sé sú af þessu samstarfi, að það hafi tekist vel og alþýðu- bandalagsmenn, þeir hafi á marga lund staðið sig þar vel í þessari stjórn. Sala bókarinnar hefst kl. 16 í dag á Lækjartorgi og þar verða einnig til sölu veggspjald Lands- sambands sjáifstæðiskvenna og bókarmerki Hvatar, sem prent- uð eru í tilefni þess að 5 ár eru liðin frá kvennafrídeginum 1975. Vilmundur Gylfason: Athugasemd við Staksteinaskrif MORGUNBLAÐIÐ gerir sér far um að velta sér upp úr því formannskjöri, sem stendur fyrir dyrum í Alþýðuflokknum. Slíkur er háttur flokksblaða, og ekkert við því að segja. En ef Morgunblaðið heldur, að með slíkri umfjöllun sé það að skaða Alþýðuflokkinn eða koma þeirri skoðun að hjá almenningi að Alþýðuflokkurinn sé rótklof- inn, þá held ég að það sé mikill misskilningur hjá Morgunblað- inu. Alþýðuflokkurinn er ekki klofinn. Þar eru einungis að fara fram eins heilbrigð skoðana- skipti og frekast verður á kosið. Að vísu er flokksþing okkar fámennt, á það er valið sam- kvæmt gamaldags reglum. Flokkskerfi okkar er gamaldags og í því felst okkar stærsti vandi. Sú kosning, sem stendur fyrir dyrum, er eðlileg og heilbrigð. Það eru skiptar skoðanir, og þá greiða menn atkvæði. Morgun- blaðið reynir auðvitað að úða salti — en það eru óvart engin sár. Pólitíkin hefur breytzt þó svo Morgunblaðið skilji það ekki. Nafnlaus Staksteinahöfundur Morgunblaðsins hefur haft smekk til þess að fara að draga nafn mitt inn í þá kosningu, sem stendur fyrir dyrum í Alþýðu- flokknum. Þar er, upp á gamla mátann, dylgjað um hvatir og heilindi — eins og á tímum Hriflu-Jónasar. Vísað er til við- tals sem blaðamaður Dagblaðs- ins átti við mig um þetta for- mannskjör, þar sem ég hélt fram þeirri skoðun, að þar sem væru skiptar skoðanir væri eðlilegasti hlutur í heimi að fram færi kosning. Reynt er að snúa út úr þeirri setningu að „þarna kunni að vegast á persónulegir hags- munir og langtímahagsmunir flokks og lands". Ég vildi sagt hafa að þarna kynnu að takast á persónuleg „hollusta" annars vegar, og hins vegar langtímahagsmunir flokks og lands. Þar er hins vegar við sjálfan mig að sakast og ekki blaðamenn Dagblaðsins. En Morgunblaðið krefst skýr- inga á þessum ummælum — og dylgjar þá auðvitað um það að hér fylgi undirmál. Ég skulda Morgunblaðinu engar skýringar á einu eða neinu. Þessi mál ræði ég við nána amherja mína — og ekki Morgunblaóið. Vilmundur Gylfason Með þeim ummælum, sem Morgunblaðið fjallar um, þykist ég vera að lýsa vanda margra Alþýðuflokksmanna. Þannig er pólitík. Og það er heilbrigt. Alþýðuflokkurinn stefnir fram á við og vonandi verður útkoma þessa flokksþings bæði flokki og landi til heilla. Dylgjur Morgunblaðsins um annað tilheyra liðnum tíma — okkar viðmiðun er hins vegar framtíðin. M

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.