Morgunblaðið - 24.10.1980, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980
Málverkauppboð Klausturhóla:
Allt f rá 10 þús.
upp í 2,8 millj.
Málverkauppboð Klausturhóla fór nýverið fram að
Hótel Sögu. Þar var 61 málverk boðið upp og voru öll
slegin. Söluverðið var allt frá 10 þúsund krónum og
uppí 2,8 milljónir. En Guðmundur Axelsson í
Klausturhólum var ánægður með þetta uppboð sem
önnur; heildin væri ævinlega viðunandi, en rokkandi
verð á einstökum verkum — Samt kom þetta uppboð
betur út, en við reiknuðum með, sagði hann.
Verk ungra manna fóru ódýrt gera stórgóð kaup á þessum
á þessu uppboði; á 10 þúsund, 15 uppboðum, sagði Guðmundur, en
þúsund, 17 þúsund, 25 þúsund fólk virðist ekki veita því næga
o.s.frv. — Það er iðulega hægt að athygli, heldur gengur það milli
Mynd Kristínar Jónsdóttur úr „(ir Eyjafirfti“ fór á 1,3 miiljónir.
Ljósm RAX.
Þessar myndir voru allar á uppboði Klausturhóla. „Eftir regnið“ Jóns Stefánssonar er fremst og fór á
2,6 milljónir.
sýninganna og kaupir verk oft
langt fyrir ofan raunverð. Á
uppboðinu síðasta fóru reyndar
myndir allt of ódýrt, svo sem
tússteikning ein eftir Flóka,
Spámaðurinn (22x12 cm) frá
1957, hún fór á 50 þúsund.
Tússteikning eftir Kjartan Guð-
jónsson, Á sjó (37x25 cm) frá
1955, fór á 25 þúsund. Þannig
gæti ég haldið áfram að telja
sagði Guðmundur. En hér er
uppboðsskráin, þið getið fengið
það helsta úr henni:
Tvær aðrar myndir voru eftir
Flóka; „Kain og Abel", túss
(22x31) frá ’57, fór á 115 þúsund,
og kolsvartkrítarmynd, Þræls-
lund (62x87) frá þessu ári, fór á
350 þús. Mosaik-mynd eftir
Erro, Firenze heitir hún og er
frá námsárum Errós á Ítalíu, þá
Ferró, (35x60) og fór á 380 þ.
Blýantsteikning eftir Sverri
Haraldsson, Rofabarð frá 1979
(68x39) fór á 220 þúsund, Litróf
eftir Sverri (41x28) þekjulitir,
ártal vantar, fór á 185 þ. Blek-
teikning eftir Guðmund frá Mið-
dal, Frá Aþenu, (23x15) frá 1925
fór á 105 þúsund. Og þarna voru
teikningar tvær eftir Tryggva
Magnússon, önnur fór á 65
þúsund (17x11), hin Ævintýra-
mynd (19x15), fór á 60 þúsund.
Platti Einars Jónssonar, Til
ljóssins 1911, gifs (31x35), fór á
420 þúsund, steinprent Jóns
Þorleifssonar, Tré í húsum
(52x70) frá 1929, eintak númer 2
af 15, fór á 230 þúsund. Sól í
borginni, þekjulitir eftir Jó-
hannes Jóhannesson frá 1949
(43x28) var slegin á 120 þúsund.
Pastelmynd Gunnlaugs Blöndal,
Bátar í kvöldsólinni (76x50) frá
1960 fór á 450 þ. og önnur mynd
eftir Blöndal, Model (82x59) fór
á 800 þúsund. „Tvær vatnslita-
myndir" voru eftir Jón Jónsson,
Þingvellir heitir önnur (46x34)
frá 1969 og fór á 140 þúsund, hin
Uppstilling (46x34) frá 1980 fór á
195 þ. Vatnslitamynd Sveins
Þórarinssonar, Frá París (18x27)
1928, fór á 100 þúsund. Jón
Þorleifsson, vatnslitir, Úr Húsa-
fellsskógi (47x31) fór á 300
þúsund. Vatnslitamynd Túbals
Við Eyjafjöll (26x20) fór á 120
þúsund.
Eftir regnið Jóns Stefánsson-
ar, ártal óvisst, olía á masonit
(64x46), var slegin á 2,6 milljón-
ir. Þrjár Kjarvalsmyndir voru á
uppboðinu, olíumyndir: Úr Bers-
erkjahrauni fór á 2,3 milijónir,
Stúlknaandlit (39x78) á 500 þús-
und, Úr Svínahrauni (145x90)
var dýrasta mynd uppboðsins,
fór á 2,8 milljónir fyrir utan
söluskatt (22,5%). Kristín Jóns-
dóttir átti tvö olíuverk, Frá
Þingvöllum (73x59) fór á 1,7
milljónir, og Siglt inn Eyjafjörð
(50x32) fór á 1,3 milljónir. Frá
Eyjafirði, olíumynd eftir Svein
Þórarinsson (150x100) frá árinu
var siegin á 650 þúsund.
— Hvað með mynd Péturs
Friðriks, sem blaðaskrif urðu
útaf, Guðmundur?
— Ég dró hana til baka og
setti aðra í staðinn. Það verður
gengið frá því máli á öðrum
vettvangi en í fjölmiðlum, sagði
Guðmundur Axelsson í Klaust-
urhólum.
Liðsforingjanum
berst aldrei bréf
AB gefur út skáldsögu Marques í þýðingu
Guðbergs Bergssonar
ALMENNA bókafélagið hefur gefið
út skáldsöguna „Liðsforingjanum
berst aldrei bréf“, eftir kólombíska
skáldið Gabriel Garcia Marques.
Þýðandi er Guðbergur Bergsson.
Bókin er gefin ut sem pappfrskilja.
í frétt frá AB segir, að þessi stutta
skáldsaga sé ein af ódauðlegum
perlum Marques og bent er á, að
höfundur sé einn þeirra sem komi
árlega til álita við veitingu Nóbels-
verðlauna í bókmenntum. Bókin er
kynnt þannig á kápu: „Liðsforinginn
hefur í 15 ár beðið eftirlaunanna
sem stjórnin hafði heitið honum, en
þau berast ekki og til stjórnarinnar
nær enginn, og alls staðar, þar sem
liðsforinginn knýr á, er múrveggur
fyrir. Vissulega sveltur hann, missir
flest sitt, þar á meðal einkasoninn.
Það þarf mikla staðfestu og þrjósku,
sterka trú á gimsteininn í mann-
sorpinu, til þess að halda við slíkar
aðstæður reisn sinni og von. En það
Mitsubishi
BÍLASÝNING
um helgina
gerir liðsforinginn. Suma fær ekkert
bugað. Við dauðann hverfa þeir
uppréttir út í myrkrið."