Morgunblaðið - 24.10.1980, Page 15

Morgunblaðið - 24.10.1980, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980 15 „Blómvöndur“ fyrir 1,2 milljarða Frá uppboðinu í New York þegar Van Gogh-mynd var seld fyrir 1,2 milljarða íslenzkra krona — hærra verð en nokkru sinni hefur verið greitt fyrir listaverk. Málverk Van Goghs er af blómvendi. KGB uppvis að mútum WashinKton. 23. okt. AP. SOVÉSKA leyniþjónustan KGB er orðin uppvís að þvi að hafa mútað fyrrvcrandi starfsmanni CIA til þess að sækja um starf hjá þremur bandariskum þing- nefndum, sem skipaðar voru til að hafa eftirlit með störfum bandarisku leyniþjónustunnar. Talið er að með þessu hafi Sovétmenn ætlað að tryggja sér lykilmann, sem gæti veitt þeim upplýsinRar um mjög mikilvæg atriði í starfsemi bandarísku leyniþjónustunnar. Mútuféð er talið hafa numið um 100.000 doll- Fylgst hefur verið með mannin- um, sem heitir D. Barnett, í eitt ár, og á því tímabili hefur hann unnið ýmis verk fyrir Sovétmenn. Ákæra gegn Barnett verður lögð fram á morgun og búist er við að lögfræðingurinn muni miða vörn-t ina við það að hann sé sekur. Þetta gerðist 35 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna ÞRJÁTÍU og fimm ára afmæli Sameinuðu þjóðanna er í dag. í skýrslu Kurt Waldheims, aðalrit- ara, segir að vonir manna um sterka stöðu Sameinuðu þjóð- anna i heiminum hefðu ekki ræst nema að litlu leyti og virðing fyrir ákvörðunum stofnunarinn- Veður víða um heim Akureyrí 1 alskýjaö Amsterdam 15 skýjaó Aþena 19 skýjaó Barcelona 19 þokumóða Berlín 12 heióskírt BrUasel 13 heióskirt Chicago 15 skýjaó Feneyjar 12 þokumóöa Frankfurt 12 heióskirt Færeyjar 7 skýjaó Ganf 14 heiðskirt Helsinki 5 heiðskírt Jerúsalem 29 heióskirt Jóhannesarborg vantar Kaupmannahöfn 6 rigning Laa Palmaa 23 lóttskýjaó Lisaabon 22 skýjaó London 15 heiöakírt Loa Angeles 27 heióskírt Madrid 19 heióskirt Malaga 26 rigning Mallorca 21 skýjaó Miami 29 skýjaó Moskva vantar New York 14 heiöskirt Oaló 3 heiðskírt París 14 skýjaó Reykjavík 4 léttskýjaó Ríó de Janeiro 35 skýjað Rómaborg 19 heióskirt Stokkhólmur 5 heióskírt Tel Aviv 29 heiðskírt Tókýó 19 heióskírt Vancouver 4 skýjaó ar væri ekki eins og til var ætlast. Ilann nefndi sem dæmi að ísraelsmenn hefðu i engu sinnt kröfu Sameinuðu þjóðanna um að draga herlið sitt til baka frá herteknu svæðunum frá striðinu 1967 og að Rússar létu sig það engu skipta þótt margoft hafi verið krafist að þeir hæfu sig á brott úr Afganistan. í gagnrýni á Sameinuðu þjóð- irnar hefur einnig verið bent á að skrifræðisbáknið þar sé með því stærsta í heiminum og kerfið þungt í vöfum. Margt hefur þó áunnist í 35 ára starfi og gildi og tilveruréttur þessara alþjóðasamtaka er ótví- ræður. í mörgum tilfellum hefur stofnunin getað stuðlað að friði og fátækar þjóðar heims hefðu oft verið studdar af samtökunum. Sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum sagði að á vettvangi Sameinuðu þjóðanna væri tryggt að sjónarmið smá- þjóðanna kæmu fram og þau veittu risaveldunum nauðsynlegt aðhald. Starfsmaður Sameinuðu þjóð- anna sagðist álíta, að best heppn- aða aðgerð Sameinuðu þjóðanna hefði verið að senda friðargæslu- sveitirnar til Sinaiskaga eftir stríðið 1973. Áætlun SÞ um eflingu atvinnu- þróunar í vanþróuðu löndunum er mjög gagnleg þó hún mætti vera miklu meiri. „Ekki eru ráðgerð mikil hátíða- höld í tilefni afmælisins, að miklu leyti vegna þess að mörgum finnst árangurinn sem Sameinuðu þjóð- irnar hafa náð ekki vera svo mikið fagnaðarefni," sagði starfsmaður Sameinuðu þjóðanna. (AP) 1975 — Sendiherra Tyrklands í París skotinn til Bana. 1968 — íran og Saudi-Arabía jafna ágreining um landakröfur við Persaflóa. 1964 — Zambia, áður Norður- Rhodesía, fær sjálfstæði. 1%2 — Bandaríkjamenn setja' hafnbann á Kúbu. 1961 — Mótmæli á vettvangi SÞ eftir sprengingu risasprengju Rússa. 1954 — Neyðarástandi lýst yfir í Pakistan. 1945 — Stofnskrá SÞ gengur í gildi. 1929 — Verðhrun í kauphöllinni í New York. 1922 — írska þingið samþykkir stjórnarskrá írska friríkisins. 1917 — Annar her ítala gersigr-l aður í orrustunni við Caporetto. 1909 — Rússar og ítalir undir- rita samninginn í Racconigi. 1861 — Lagningu ritsíma- strengs til Bandaríkjanna lýkur. 1860 — Kínverjar staðfesta samninga við Breta og Frakka. 1795 — Póllandi skipt milli Rússa, Austurríkismanna og Prússa. 1688 — Franskur her tekur Heidelberg. 1648 — Vestfalsfriður bindur enda á Þrjátíu ára striðið — Evrópuríki viðurkenna sjálf- stæði Niðurlanda. Afmæli — Jacques Lafitte, franskur bankastjóri og stjóm- málaleiðtogi (1767—1844). Andlát — 1375 d. Valdimar Atterdag, Danakonungur — 1537 d. Jane Seymour, Breta- drottning af barnsförum — 1601 d. Tycho Brahe, stjörnu- fræðingur — 1958 d. Franz Lehár, óperettutónskáld. Innlent — ,1869 f. Guðmundur Friðjónsson frá Sandi — 1913 Samið við Gufuskipafélag Björgvinjar um gufuskipaferðir — 1938 Sameiningarflokkur al- þýðu-Sósíalistaflokkurinn stofn- aður — 1972 „Vigri", fyrsti skuttogarinn, sérstaklega smíð- aður fyrir íslendinga, kemur — 1975 Kvennafrídagur — 1900 f. Karl O. Runólfsson, tónskáld. Orð dagsins — Blessaður sé sá sem hefur ekkert að segja og lætur hjá líða að fara um það mörgum orðum — George Elliot, enskur rithöfundur (1819— 1880). Gengið að kröf- um írskra lýð- veldissinna London, 23. október. AP. BRESKA stjórnin tilkynnti i dag að fangar á Norður-írlandi megi klæðast venjulegum fötum í stað fangabúnings ef þeir óska þess, en um 340 fangar hafa hótað að fara i hungurverkfall nema þeir verði viðurkenndir sem pólitiskir fangar. Ekki er vitað hvort þessi ráð- stöfun stjórnarinnar muni koma í veg fyrir að fangarnir hefji hung- urverkfall, en það átti að hefjast á mánudag. Fangarnir voru dæmdir fyrir starfsemi í skæruliðahreyfingum og hafa krafist þess að litið verði á þá sem pólitíska fanga og að þeir þurfi ekki að vinna í fangelsunum. Reyndur leiðtogi leystur af hólmi ALEXEI Kosygin, sem hefur sagt af sér embætti forsætisráðherra Rússa, gegndi áður mikilvægu hlutverki í utanrikismálum. en hvarf meir os meir í skugga Leonid Brezhnevs forseta og einheitti sér að yfirstjórh efnahagsmála, enda hafði hann að baki langa reynslu á því sviði. Vestrænir sérfræðingar eru þeirrar skoðunar, að Kosygin hafi verið sá af valdamönnum Rússa, sem hvað staðfastlegast hafi beitt sér fyrir aukinni valddreifingu í efnahagsmálum. ráðstöfunum til að auka hagnaðarvon og aukinni fjárfestingu til að auka framboð á neyzluvörum. Kosygin kom til valda ásamt Brezhnev og Nikolai Podgorny eftir fall Nikita Krúsjeffs 1964, en Brezhnev tók sér stöðugt meiri völd og varð forseti í stað Pod- gorny 1977. Vitað er að Kosygin hefur minnst tvívegis fengið hjartaáfall og viljað segja af sér í nokkur ár. í orðsendingu frá Kosygin, sem Brezhnev vitnaði í þegar hann tilkynnti að Kosygin hefði beðizt lausnar þar sem heilsu hans hefði hrakað og hann þyrfti hvíld, kvaðst hann viss um að sovézka þjóðin mundi „ná miklum árangri í nafni sigurs kommúnismans og í nafni hamingju og réttlætis á jörðinni". Þar sem Tikhonov, eftirmaður- inn, er 75 ára er talið að hann gegni starfinu aðeins til bráða- birgða unz einhver af yngri kyn- slóðinni kemur fram í dagsljósið. Meðalaldur fulltrúanna í stjórn- málaráðinu er nú 69 ár og var 70 ár áður en Mikhail Gorbachev var valinn í það á þriðjudaginn. Brezhnev er 73 ára, Gromyko 71 árs, Suslov 77 ára og Kirilenko 74 ára. Skipun Tikhonovs mun ekki hafa mikil áhrif á utanríkisstefnu Rússa, sem virðist vera í höndum Brezhnevs og Andrei Gromykos utanríkisráðherra. Meginvið- fangsefni Tikhonovs verður stjórn bágborins efnahags Rússa. Tikhonov fór til Vestur-Þýzka- lands fyrr í ár í viðskiptaerindum, heimsótti Bandaríki.. 1959 ásamt Krúsjeff og hefur farið í nokkrar aðrar utanlandsferðir. Hann var vélfræðingur og málmvinnslu- fræðingur að mennt, komst til stöðugt meiri áhrifa í yfirstjórn atvinnumála og varð varaformað- ur ríkisráðsins 1965. Hann er talinn náinn skjólstæðingur Brezhnevs og starfaði lengi í heimahéraði hans, Dnepropetr- ovsk í Úkraínu, eins og nokkrir aðrir valdamenn. Brezhnev kvað Kosygin einnig hafa óskað að verða leystur frá störfum í stjórnmálaráðinu þann- ig að Kosygin virðist hafa alger- lega dregið sig í hlé, þótt hann haldi sæti sínu í Æðsta ráðinu. Kosygin mun hafa lítið unnið á síðustu mánuðum og mun lítinn þátt hafa átt í gerð nýlegrar fjárhagsáætlunar fyrir 1981, nema í aðalatriðum. Anastas Mikoyan forseti sagði af sér undir svipuðum kringum- stæðum þegar hann vék fyrir Podgorny sjötugur að aldri, báðir virtust vera í náð þegar þeir hættu. Síðasta meiriháttar breyt- ingin á æðstu forystunni var gerð í nóvember 1978 þegar Kirill Mazuroov vék úr stjórnmálaráð- inu. Andrei Grechko landvarna- ráðherra andaðist 1976 og núver- andi landvarnaráðherra, Dmitri Ustinov, tók við. Tikhonov sagði í ræðu í Æðsta ráðinu að hann teldi skyldu sína þá að vinna markvisst að því að framfylgja þeirri stefnu sem var mótuð á 24. og 25. flokksþinginu og auk þess „stefnu Brezhnevs sem flokkurinn og þjóðin færu með til 26. flokksþingsins" (í febrúar). Hann kvað það stefnu flokksins að „auka velferð alþýðunnar, efla efnahagsmátt landsins, tryggja öryggi þess og koma á friði". Kosygin var 13 ára þegar bylt- ing bolsévíka var gerð 1917 og gekk í Rauða herinn 15 ára gamall. Hann var verkfræðingur og verksmiðjustjóri og varð borg- arstjóri Leníngrad 1938 þegar hreinsanirnar stóðu sem hæst. Þrjátíu og niu ára gamall varð hann forsætisráðherra rússneska sovétlýðveldisins, stærsta lýðveld- isins, og þremur árum síðar, 1943, var hann skipaður í stjórnmála- ráðið. Hann missti stöðu sína í stjórn- málaráðinu 1952 rétt fyrir andlát Stalíns, og á því hefur aldrei fengizt skýring. Krúsjeff gerði hann aftur að fullgildum fulltrúa 1960. Klavdia kona hans dó úr krabbameini 1967. Þær fréttir bárust 1976 að Kosygin hefði fengið hjartaáfall. Kosygin gegndi mikilvægu hlut- verki í utanríkismálum sem for- sætisráðherra, áður en Brezhnev Alexei Kosygin tók við því hlutverki. Arið 1%5 fór hann til Peking til að reyna að jafna vaxandi ágreining við Kín- verja. Hann var í Hanoi þegar Bandaríkjamenn hófu loftárásir á Norður-Víetnam, átti þátt í að koma á friði í stríði Indverja og Pakistana 1966 og sat hinn fræga leiðtogafund í Glassboro, New Jersey með Lyndon B. Johnson forseta 1%7, fyrsta leiðtogafund Rússa og Bandaríkjamanna síðan í Vín 1960. Hann fór til Prag fyrir og eftir innrásina 1%8 og mun hafa beitt sér gegn henni. Hann fór aftur til Peking 1968 eftir bardaga á landamærunum. Kosygin hvarf meir og meir í skuggann eftir því sem völd Brezhnevs jukust á árunum eftir 1970. Venjulegir Rússar sáu hann aðeins í sjónvarpi og við opinber tækifæri og í augum þeirra var hann ráðgáta eins og aðrir sovézk- ir leiðtogar. Andófsmaðurinn Andrei Sakharov kallaði hann eitt sinn „gáfaðsta og harðskeyttasta“ leiðtoga Rússa. Því má bæta við, að hann var heppinn. (AP)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.