Morgunblaðið - 24.10.1980, Síða 16

Morgunblaðið - 24.10.1980, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980 Ríkisstjórnin hefur enn, einu sinni neitað að ræða við Vinnuveitendasamband íslands og Alþýðusamband íslands sameiginlega um kjaramálin. Fengu vinnuveitendur neikvætt svar forsætisráðherra á þriðjudaginn og jafnframt kom þá fram, að ríkisstjórnin ætlaði að taka upp sérviðræður við Alþýðusambandið. Veikt til orða tekið er furðulegt, að ríkisstjórnin skuli alfarið neita viðræðum við vinnuveitendur. Ekki hefur komið fram af hennar hálfu nein skýring á þessari afstöðu. Ein af meginkröfum vinnuveitenda í þríhliða viðræðum við fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar og ríkisvaldsins yrði, að gerð kjarasamninga yrði auðvelduð með skattalækkunum. Ríkisstjórnin má ekki heyra á neitt slíkt minnst. Hún vill ekki sleppa neinu af tekjum sínum til að flýta fyrir gerð kjarasamninga. Þessi fastheldni í skattamálum á rætur að rekja til þess, að afkoma ríkissjóðs stendur alveg í járnum og raunar ekki víst, að það jafnvægi náist á þessu ári, sem ráðherrarnir og stuðningsmenn þeirra guma sem mest af. í fjárlagafrumvarpi því, sem Ragnar Arnalds hefur lagt fram, stendur skýrum stöfum, að tekjur ríkissjóðs séu nú áætlaðar tæpum 25 milljörðum meiri á árinu en reiknað var með í fjárlögum ársins. Þrátt fyrir þessar auknu tekjur má ríkissjóður ekki af einni krónu missa. Skattaáhugi ráðherranna hefur ekki aðeins verið staðfestur í þessari viku með neikvæðu svari Gunnars Thoroddsens til vinnuveitenda. í umræðum um svonefndan barnaskatt á Alþingi hefur einnig komið fram, að fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds, má ekki til þess hugsa að fella þann hálfa milljarð niður, sem hann gefur í aðra hönd, þótt nettó-álagning tekjuskatts einstaklinga hafi á árinu numið 1,5 milljörðum króna umfram fjárlagaáætlun og álagning eignaskatta 2 milljörðum króna umfram áætlun. I umræðum á Alþingi á miðvikudaginn lagði Lárus Jónsson, þjngmaður Sjálfstæðisflokksins, til við fjár- málaráðherra að með lagaSreytingu yrði barnaskatturinn felldur niður. Ráðherra lýsti sig reiðubúinn til að athuga, hvort ekki væri unnt að veita greiðslufrest á skattinum fram yfir áramót en tók ekki undir niðurfellingu hans. Eyjólfur Konráð Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vakti þá réttilega máls á því, að slík frestun væri til lítils gagns fyrir tekjulausa skólanemendur. Löngum hefur tíðkast, að opinber gjöld væru lögð á aflafé unglinga og um þá grundvallarreglu hafa allir verið sammála. Með hinum nýju skattalögum, sem samþykkt voru 1978, var ráðgert að upp yrði tekin staðgreiðsla skatta, þar af leiddi að ekki yrði unnt að innheimta skatt af tekjum unglinga hjá foreldrum þeirra heldur yrði að taka hann af launum þeirra sjálfra, um leið og greiðsla þeirri færi fram. Því miður var ekki gengið þannig til verks, að lög um staðgreiðslukerfi skatta tækju gildi á sama tíma og nýju lögin um skattlagninguna. Þetta hefur meðal annars leitt það af sér, að nú er unglingum sendur í fyrsta sinn skattseðill og það eftir að þeir eru sestir á skólabekk. Það er til marks um pólitískt þróttleysi, þegar forsaötisráðherra og fjármálaráðherra kyrja þann söng, að barnaskattarnir komi þeim ekkert við, þeir séu hinum vondu sjálfstæðismönnum að kenna. Auðvitað ber núverandi fjármálaráðherra ábyrgð á framkvæmd skattheimtunnar, á meðan hann situr í embætti sínu, hvort sem sú ábyrgð skapar honum óþægindi eða ekki. Á vorþinginu lögðu sjálfstæðismenn til, að skattabyrði unglinga yrði létt frá því, sem ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens vildi og stuðningsmenn hennar samþykktu. Sómakær fjármálaráðherra hefði séð til þess, að skattlagningu á unglinga yrði flýtt sem kostur væri, svo að „glaðningurinn" bærist þeim, áður en þéir settust á skólabekk. Óljóst tilboð fjármálaráðherra um greiðslufrest staðfestir það eitt, að hann telur sig ekki geta séð af þeim hálfa milljarði, sem lagður hefur verið á unglingana. Einstakir alþingismenn verða að gera það upp við sig, hvort þeir flytja frumvarp til laga um niðurfellingu barnaskattsins á þessu ári vegna þess hve illa hefur verið að öllu málinu staðið af hálfu ríkisstjórnarinnar. Ekki er neins frumkvæðis að vænta frá ríkisstjórninni í þessu máli. Lagafrumvarp um niðurfellingu barnaskattsins kæmi sér ekki aðeins vel fyrir hina ungu skattgreiðendur, það myndi einnig beina athygli manna að því, hve tæpt ríkissjóður stendur í raun og veru þrátt fyrir sjálfshól ráðherra og mun meiri tekjur hans á árinu en reiknað hafði verið með. Ummæli Gunnars Thorodd- sens um Morgunblaðið og sam- starf við Alþýðubandalagið í ÚTVARPSÞÆTTINUM Bein lína í fyrrakvöld vék Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, nokkrum orðum að Morgunblaðinu í tilefni af tveimur fyrirspurnum, sem beint var til hans. Morgunblaðinu þykir því ástæða til að birta þessar spurningar og svör ásamt athuga- semdum af blaðsins hálfu við ummæli forsætisráðherra, enda að blaðinu vegið. Forsætisráðherra var spurð- ur, hvað hann vildi segja um stjórnarandstöðuskrif Morg- unblaðsins. Svar hans var á þessa leið: „Ég vil nú helzt ekki fara að tala um það blað hér í útvarpið. En hinu er náttúr- lega ekki að neita, að manni hefur oft blöskrað þessi skrif. Hvernig reynt hefur verið að hvetja menn til krafna og lýsa svo óánægju yfir því, að ríkis- stjórnin hefur reynt að beita einhverju aðhaldi og krefjast þess að veittar yrðu meiri hækkanir heldur en hún gerði, samtímis því að ríkisstjórnin er skömmuð fyrir of mikla verðbólgu. Ég skal ekki fara um það fleiri orðum.“ Þá var eftirfarandi spurn- ingu beint til forsætisráð- herra: „Er ekki óhæfa, að varaformaður þess stjórn- málaflokks, sem fremstur á að standa vörð um lýðræði og frelsi á íslandi, skuli stuðla að völdum kommúnista á flestum sviðum þjóðlífs í dag?“ Svar forsætisráðherra var þetta: „Ég býst við, að þér eigið við Alþýðubandalagið hér. En ég vil nú segja yður það, að Alþýðubandalagið hefur nú oft áður verið í stjórn á íslandi og meðal annars þá hefur nú ekki aðeins varaformaður Sjálf- stæðisflokksins heldur for- maður Sjálfstæðisflokksins um langan aldur, Ólafur Thors, myndað samstjórn, nýsköpunarstjórnina, með Sósíalistaflokknum, eins og hann hét þá, sem var fyrir- rennari Alþýðubandalagsins. Og ég held, að það mætti líka spyrja núverandi formann flokksins og Morgunblaðið, hvers vegna tekin var upp þessi mikla barátta í desem- ber-janúar, fyrir hinum sögu- legu sáttum og formaður flokksins, hann beitti sér þá mjög fyrir því, að reyna að mynda stjórn með Álþýðu- bandalaginu." Athugasemdir Morgunblaðsms Aths. ritstj.: 1. Morgunblaðið vísar á bug rakalausum fullyrðingum Gunnars Thoroddsens um að blaðið hafi „reynt að hvetja menn til krafna". Forsætisráð- herra getur ekki fundið orðum sínum stað í skrifum blaðsins. Forsætisráðherra segir, að Morgunblaðið hafi lýst óánægju með það að ríkis- stjórnin hafi „reynt að beita einhverju aðhaldi". Morgun- blaðið hefur ekki haft tæki- færi til þess að lýsa ánægju eða óánægju með aðhaldsað- gerðir af hálfu ríkisstjórnar- innar, einfaldlega vegna þess, að þær hafa engar verið. Forsætisráðherra segir, að Morgunblaðið hafi krafizt þess „að veittar yrðu meiri hækk- anir“, heldur en ríkisstjórnin hafi gert. Það er rétt, að í einu tilviki, sérstaklega, hefur Morgunblaðið gagnrýnt ríkis- stjórnina fyrir að leyfa ekki meiri verðhækkun en sam- þykkt var. Þar var um að ræða hækkun á hitaveitugjöldum. Tilraunir ríkisstjórnarinnar til þess að halda vísitölunni niðri með því að eyðileggja fjárhag Hitaveitu Reykjavíkur og gera henni ókleift að sinna hlutverki sínu með eðlilegum hætti, er einhver heimskuleg- asta aðgerð, sem nokkur ríkis- stjórn hefur gert sig seka um. Um það þarf ekki að hafa fleiri orð en því skal bætt við, að Morgunhlaðið mun halda áfram gagnrýni á ríkisstjórn- ina af þessum sökum. Morgunblaðið hefur einnig gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir að vinna markvisst að því að eyðileggja fjárhag Landsvirkj- unar með því að leyfa ekki nauðsynlegar hækkanir á gjaldskrá hennar. Það er líka heimskuleg ráðstöfun af hálfu ríkisstjórnarinnar og dregur úr möguleikum okkar til að fjármagna með eigin fé virkj- unarframkvæmdir. Morgun- blaðið mun halda áfram gagn- rýni á ríkisstjórnina á þeim vettvangi. Morgunblaðið hefur líka gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir það að halda uppi þeim hætti vinstri stjórna að halda að það sé barátta gegn verðbólgu að halda niðri eðlilegum leiðrétt- ingum á verði, skapa þannig taprekstur í atvinnurekstr- inum, sem kallar á meiri ásókn í lán, sem leiðir svo til skulda- söfnunar viðskiptabankanna hjá Seðlabanka, sem hefur verðbólguhvetjandi áhrif. „Að- hald“ af þessu tagi er ekki barátta gegn verðbólgu og kemur niður á neytendum með því meiri þunga, sem slíkar gervilausnir standa lengur yf- ir, eins og dæmin sýna, t.d. þegar vinstristjórnin hrökkl- aðist frá 1974, þegar Gunnar Thoroddsen þurfti að moka þann flór ásamt öðrum ráð- herrum í ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar. Morgunblaðið hefur gagn- rýnt ríkisstjórnina fyrir of mikla verðbólgu. Ríkisstjórnin lofaði miklu, þegar hún tók við. Hún lofaði niðurtalningu verðbólgu á þriggja mánaða fresti. Þessi niðurtalning hefur aldrei hafizt og efnahags- stefna ríkisstjórnarinnar þar mej> komin í þrot. 2. Gunnar Thoroddsen, for- sætisráðherra, ver þær aðgerð- ir sínar að leiða kommúnista til mestu áhrifa í sögu þeirra í íslenzkum þjóðmálum með því að vísa á Morgunblaðið og segja, að það hafi hvatt til samstarfs við Alþýðubanda- lagið í desember og janúar. Hið rétta er að tveir nafn- greindir starfsmenn á rit- stjórn Morgunblaðsins, hvöttu í greinum til þess að komið yrði á sáttum milli sjálfstæð- ismanna og alþýðubandalags- manna, en það var gert á allt öðrum forsendum en raunin varð á hjá Gunnari Thorodd- sen. í þeim skrifum var hvatt til könnunar á myndun svo- nefndrar „nýsköpunarstjórn- ar“, þ.e. samstjórnar Sjálf- stæðisflokks, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags eða hugsan- lega tveggja flokka stjórnar Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- bandalags. Að baki þessum hugmyndum lá vilji til þess að sætta þessi ólíku þjóðfélagsöfl um það tímabundna verkefni að ráða niðurlögum verðbólg- unnar. Það var skoðun greina- höfunda, að styrkur Sjálfstæð- isflokksins í slíku samstarfi væri slíkur, að honum myndi takast að hemja kommúnista og sjá til þess að áhrif þeirra að öðru leyti yrðu innan þeirra takmarka sem þau voru, t.d. í nýsköpunarstjórninni. í þessum skrifum var ekki hvatt til samstjórnar Sjálf- stæðisflokks, Framsóknar- flokks og Alþýðubandalags. Ástæðan var sú, að greinahöf- undar töldu slíkt samstarf útilokað af hálfu Sjálfstæðis- flokksins. Þá mundi hann vera í samstarfi við þá tvo stjórn- málaflokka, sem sjálfstæðis- menn hafa jafnan verið í mestri andstöðu við og slíkt samstarf væri ekki vænlegt til árangurs. Gunnar Thoroddsen eyði- lagði þessa hugmynd með stjórnarmyndun sinni. Hann myndaði ríkisstjórn með þeim tveimur flokkum, sem sjálf- stæðismenn hafa jafnan verið í mestri andstöðu við og hann leiddi kommúnista til öndveg- is, ekki með allan styrk Sjálf- stæðisflokksins á bak við sig, heldur með lítið af flokknum með sér. í þessu samstarfi hefur Gunnar Thoroddsen engan þann styrk sem þarf til að halda áhrifum kommúnista í skefjum. Þvert á móti hefur hann gerzt bandingi þeirra eins og Ragnar Arnalds spáði og rekur erindi þeirra í ríkis- stjórninni. Þegar ágreiningur hefur komið upp milli Alþýðu- bandalags og Framsóknar- flokks tekur Gunnar Thorodd- sen afstöðu með kommúnist- um, sem hann hefur kallað „dugandi menn“ og „drengi góða“. Afleiðing þessarar stöðu er sú, að ríkisstjórn hans hefur engum árangri náð í baráttu gegn verðbólgunni, en hann hefur gert Alþýðubanda- lagið að áhrifamesta stjórnar- flokknum. Gunnar Thoroddsen getur ekki skýlt sér á bak við Morgunblaðið vegna þessa verknaðar eins og hann gerði í tilvitnuðu svari í Beinni línu og hann getur ekki heldur leitað skjóls hjá formanni Sjálfstæðisflokksins, eins og hann hefur reyndar stundum gert, einfaldlega vegna þess, að Geir Hallgrímsson hafnaði hugmyndum framsóknar- manna og kommúnista um samstjórn þessara þriggja flokka, eins og Gunnar Thor- oddsen sjálfur sagði í útvarps- þættinum. Þá tóku forystu- menn þessara tveggja flokka upp samstarf við Gunnar Thoroddsen eins og Gunnar staðfesti og notuðu persónu- legan metnað hans til þess að reyna að kljúfa Sjálfstæðis- flokkinn. PlnrgiM Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280 kr. eintakiö. Barnaskattar og skattaást stjórnarinnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.