Morgunblaðið - 24.10.1980, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980
25
félk í
fréttum
Margrét drottning
er mætt þar
+ ÞÁ hefur Margrét Danadrottning tekið sæti meðal
jafningja í hinu heimskunna vaxmyndasafni
Madame Tussaud í London. — Hún er í grænleitum
kjól. Allir skartgripir sem drottningin ber, kórónan
svo og orður og heiðursmerki eru nákvæmar
eftirlíkingar af þeim sem drottningin á heima í
höllinni sinni. Það er breski myndhöggvarinn Judith
Craig sem sést hér leggja síðustu hönd á myndina af
drottningufini. Það voru saumakonurnar í brezku
konungshöllinni, sem saumuðu kjólinn.
Vasa-
sjónvarp
+ ÞÁ eru Japanarnir
farnir að þreifa sig áfram
í tilraunasmíðinni á
vasa-sjónvarpstæki. —■
Japanska stúlkan á mynd-
inni heidur á slíku tæki á
mikilli raftækjasýningu í
Tokýó fyrir skömmu.
Skjárinn er á stærð við
frímerki og samanstendur
af fljótandi krystal. —
Það segir í texta með
myndinni að framleiðend-
ur í Japan telji möguleika
á að almenningur geti
keypt vasa-sjónvarp eftir
svo sem tvö ár.
James
Bond í
vanda!
+ JAMES Bond er búinn að
hitta fyrir hörðustu andstæð-
inga sina fyrr og síðar —
hóp munka. sem tiiheyra
Grisku Róttrúnaðarkirkj-
unni og eru ákveðnir í að
banna kvikmyndun á nýj-
ustu sögunni um 007 i
klaustrum þeirra i Meteora í
Norður-Grikklandi. Mynd-
inni, sem nefnist „For your
eyes only“ var hafnað aí
íbúm Meteora á þeim for-
sendum að hún væri ,full-
komiega siðlaus“. Ábóti einn
á staðnum sagði: „Við getum
ekki látið atriði. sem ganga
út á kynlif og ofbeldi gerast
hérna.“ Talsmaður kvik-
myndaframieiðandans sagði:
„Munkarnir vilja ekki aðeins
að við höldum okkur írá
klaustrunum þcirra. þeir
vilja að við förum burt af
þessu landsvæði“. Óvíst er
um framgang myndarinnar.
Aðalhlutv;erkið í myndinni
verður sem fyrr i höndum
hins siunga Roger Moore.
Skáld, prestur og
byltingarmaður
+ FYRIR skömmu voru veitt í Frankfurt í Vestur-
Þýskalandi „Friðarverðlaun þýskra bókakaup-
manna". Þau féllu í skaut Ernesto Cardenal, sem er
skáld, prestur og byltingarmaður frá Nicaragua.
Cardenal hefur gengið vasklega fram í að boða frið
auk þess sem hann hefur barist ötullri baráttu gegn
ólæsi.
1 KVÖLD:
Félags'vist kl.9
<pcú*t£cc c6z*c4&st*ttn, kl. 1030-1
í TEmPLnRRHöLunni
5>(f) J Aðgóngumiðasala fró kl 830- s 20010 ^(6®
Föstudagur:
Sérréttur okkar í kvöld er
HEILSTEIKTUR
N AUT AHRYGGUR
skorinn við borð gestsins:
Einar Logi leikur Ijúf lög á píanóið. '
Verið velkomin í Naust.
Laugardagur:
FAGNIÐ VETRI í NAUSTI
í hádeginu bjóðum við saltfisk og skötu með hamsatólg.
Sérréttur okkar í kvöld er
FYLLTUR KALKÚN
með tilheyrandi.
Einnig bjóðum
við okkar fjöl-
breytta
sérréttamatseðil.
Guöni Þ. Guðmundsson leikur á
píanóið og Hrönn Geirlaugsdóttir
sér um fiðluna.
Verið velkomin í Naust.
Sunnudagur:
Nú fer fjölskyldan út að borða í hádeginu. Við
bjóðum: Spergilssúpu, London lamb og heima-
lagaðan ís með súkkulaðisósu fyrir 11.000.-.
Sérstakir réttir fyrir börnin og að sjálfsögðu er allt
frítt fyrir börn innan 12 ára.
PMagnús Kjartansson fer á kost-
um í kvöld og fær í heimsókn
EF ÞAÐ ER FRÉTT
NÆMT ÞÁERÞ At? *
MORGUNBLAÐIM