Morgunblaðið - 24.10.1980, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980
HÖGNI HREKKVÍSI
9-30 1980
Mc.Naught Synd.. I»c.
,£eru nó tov\wm
kAFAgAVe'lKlHA 7/l'
*
Ast er...
... að láta ekki
sólina skemma í
henni sjón-
ina...
TM Reg U.S P«t Ott -aJl rights rmarvad
• 1978 Los Angafs Ttmm Syndicate
Með
morgimkaffinu
COSPER
Einn bláan fyrir kaffibolla?
Afnota-
gjöld síst
hærri
hér
Hafsteinn Þorsteinsson, símstjóri
í Reykjavík, skrifar:
„í Morgunblaðinu 19. þ.m.
kvartar símnotandi við Velvak-
anda um dýra og lélega þjónustu
símans. Ég leyfi mér hér með að
leiðrétta misskilning sem kemur
fram hjá viðkomandi, og bið
Velvakanda að birta eftirfarandi
upplýsingar:
1. Það mætti ætla að afnotagjald
af síma hér á landi væri
verulega hærra en í nágranna-
löndunum, þar sem aðflutn-
ingsgjöld af öllu símaefni, sem
keypt er til landsins, nemur um
130% af fob-verði vörunnar.
Þrátt fyrir þessa háu tolla er
afnotagjald síst hærra hér, eins
og sést á eftirfarandi saman-
burði, sem er gerður samkvæmt
gjaldskrám viðkomandi landa
og sölugengi frá 17. þ.m.
I þessum samanburði er miðað
við talsímagjöld í höfuðborgum
landanna af heimilissíma,
hæsta símtalakostnað (dag-
gjöld virka daga), eingöngu
sjálfvirk símtöl, og söluskatti
eða virðisaukaskatti er bætt við
hjá þeim löndum, sem leggja
skattinn á.
Samanburðurinn er miðaður
við sama skrefafjölda eins og
hér 1200 skref innifalin í árs-
afnotagjaldinu.
Árlegt afnotagjald:
Bretland
ísland
Svíþjóða
Danmörk
Noregur
V-Þýskaland
2. Simnotandi kvartar um lélega
og hrakandi þjónustu, einkum
vegna þess að hafa ekki fengið
vitneskju um númeraskipti
þegar hann hringdi í eldra
númer kunningja síns. Það skal
tekið fram að samskonar
hringitákn heyrist hvort heldur
þegar hringt er í símanúmer
sem er tengt hjá notanda og í
ótengt númer, eða númer sem
eru sambandslaus vegna bilun-
ar.
kr. 75.668
kr. 65.208
kr. 68.297
kr. 110.696
kr. 165.257
kr. 173.6%
Símsvari tcngdur
við eldra númeriö
Símnotendum er bent á, í slík-
um tilvikum, að hringja í 03 og 05
sem gefa nauðsynlegar upplýs-
ingar um númeraskipti eða sam-
bandsleysi númera.
Börnin ábyrgðarfyllstu
söfnunaraðilarnir
Fríða Proppé, skrifar:
Ég vil þakka „móður utan af
landi" sem skrifar í Velvakanda
í gær fyrir hvatningarorð til
okkar um að leggja bágstöddum
Afríkubúum lið í söfnun Rauða
krossins. „Móðirin" segir einnig í
þessari sömu grein, að hún telji
ranga ákvörðun að senda börn
með söfnunarföturnar, heldur
ætti að senda fullorðið fólk,
ábyrgt gerða sinna.
Þar sem ég hefi fylgst grannt
með undirbúningi og fram-
kvæmd söfnunarinnar finnst
mér nauðsynlegt að eftirfarandi
komi fram: Þegar sú ákvörðun
var tekin að leita hjálpar skóla-
barna hafði framkvæmdanefnd
söfnunarinnar tvennt í huga.
Annars vegar hið uppeldislega
gildi, sem við töldum að kynning
þessa vandamáls hefði fyrir
börnin, því vandamálið er ekki
aðeins íbúa A-Afríku, heldur alls
heimsins — og börnin okkar eiga
jú að erfa þessa veröld. Þá var
einnig haft í huga, að með aðstoð
barnanna er hægt að komast að
hvers manns dyrum á tiltölulega
skömmum tíma, en hjálpin þarf
að berast hið fyrsta, eins og
alþjóð er kunnugt.
Staðið sig bezt
Þá vil ég ítreka, sem ég tel þó
að hafi komið glögglega fram í
dagblöðum, a.m.k. nokkrum
sinnum í Mbl. Skólabörn um allt
land hafa frá fyrsta degi, að
öðrum ólöstuðum, staðið sig bezt
við söfnunina. í þeirra hópi hefi
ég séð áhugasömustu og ábyrgð-
arfyllstu fulltrúa okkar í þessari
skyndiaðstoð. Þau hafa varið
ótöldum stundum í skólum sín-
um við að tjá hug sinn til
blakkra meðbræðra með teikn-
ingum. Þau hafa sjálf búið til
söfnunarbauka, sem staðið hafa
ólæstir á göngum og í skólastof-
um, og ekki höfum við heyrt af
einu einasta tilviki um að barn
hafi reynt að hagnast á kostnað
jafnaldra, sem eru að deyja úr
hungri. Þau hafa síðustu daga
komið í hópum á aðalskrifstofu
R.K.Í. og átt í brösum með að
lofta þungum byrðum afraksturs
eigin framlaga. Þá eru mörg
dæmi þess að börn hafi hvatt
foreldra sína til að leggja ríflega
af mörkum.
Minnst spillti
hópurinn
Ég er „móður" fyllilega sam-
mála um afleiðingar verðbólgu-
þjóðfélagsins, en ég er jafnfull-
viss um að börnin okkar eru sem
betur fer minnst spillti hópurinn
í þjóðfélaginu að þessu leyti.
I lokin langar mig að benda á,
að allar söfnunarföturnar sem
sendar hafa verið út, hvort sem
börn fá þær í hendur eða full-
orðnir, eru rækilega lokaðar,
númeraðar og merktar R.K.Í.
Ekki er hægt að ná innihaldi
þeirra úr þeim, án þess að það
sjáist á fötunum. Nöfn og heim-
ilisföng handhafa eru skráð og
þeir sem safna í þær fá nafn-
spjöld og merki R.K.Í. í barminn.
Ég vil að lokum nota tækifær-
ið, og ég veit að ég get hér einnig
mælt fyrir aðra fulltrúa fram-
kvæmdanefndar söfnunarinnar,
til að senda þessum stóra hópi
íslenzkra barna þakklæti fyrir
þeirra mikla og óeigingjarna
starf.
Á Reykjavikursvæðinu hafa
orðið 1360 númerabreytingar á
tímabilinu janúar—september eða
að meðaltali 150 á mánuði. Flestar
númerabreytingar eru vegna
flutninga símnotenda milli
stöðvasvæða. I mörgum tilfellum
er símsvari tengdur um stundar-
sakir við eldra númerið með upp-
lýsingum um nýtt númer, sé þess
óskað. Þjónusta símans hvað þetta
snertir hefur ekki tekið neinum
breytingum.
Milliheyrsla stafar
af línubilunum
Að lokum kvartar símnotandi
um að truflanir komi inná símtöl
hans og mun þá sennilega eiga við
s.k. milliheyrslu sem stafar af
línubilunum. Það er mjög áríðandi
að símnotendur, sem verða varir
við truflanir í símakerfinu til-
kynni það strax til 05 og aðstoða
þannig stofnunina við að staðsetja
bilanir og flýta fyrir nauðsyn-
legum úrbótum."
I