Morgunblaðið - 24.10.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980
29
Magnús Jóhannesson skrifar:
„Eftir að núveranHj ríkissíjórn
var mynduð á sl. vetri var margt
skrifað og skrafað, ýmist í blöð
eða á öðrum vettvangi, af því
tilefni. Viðbrögð manna voru á
ýmsa lund og birtust í mörgum
myndum. Flestir voru nokkuð
jarðbundnir, ef undan er skiiin
kona ein á Austfjörðum, Regína
Thorarensen, fréttaritari Dag-
blaðsins á Eskifirði, er beindi
huganum hærra í umræðunni en
flestir aðrir, svo vitað sé. Hugar-
þel hennar birtist þjóðinni í
Dagblaðinu skömmu eftir að dr.
Gunnar Thoroddsen hafði sest í
stól forsætisráðherra. Glöggt
mátti greina, að Regína var ekki í
neinu grundvallarflugi eða lág-
flugi í andanum, og kom það fram
í eftirfarandi ummælum höfðum
eftir henni í Dagblaðinu um þess-
ar mundir, en þar sagði m.a.:
Gunnar Thor er kóngur klár,
kóngur stjórnmálanna um eilíft
ár.
ítrekaði frúin þetta svo í sama
blaði síðar. En margt er sér til
gaman gert, og af þessu tilefni
varð til.
Þessir hringdu . . .
Óóur Regínu
Regína kóng sinn kallar á,
klár ertu og sannur, þaó má sjá.
Hylli ég þig að helgum siö,
himneskt er Eskifjörðinn vió.
Blítt Ijómar skjár þá birtist þú,
björt er og hrein þín ásýnd nú.
Oröin þín ganga inn í mig,
ó, að ég mætti snerta þig.
Fellur nú skuggi á flest þau goð,
sem fólkinu áður sendu boð.
Mynd þína í hugann meitla skal,
megi það gleöja sprund og hal.
Kóng minn, Gunnar, ég kalia þig.
KrjÚDandi ambátt nefndn mín
. .. _____________"
þegar þú dýröardrengurinn
dregur í nýjan söfnuð þinn.
Dýrð valdanna og vonin stærst
veitist þér jafnan hvar til næst.
Svífi þinn andi í heiöi hátt,
himnarnir opnist smátt og smátt.“
J(cG
Reykvískar
konur voru
blekktar
Á. II. hringdi og kvaðst þakklát
Birgi ísleifi Gunnarssyni fyrir
skrif hans í sunnudagsblað Mbl.
19. þ.m. um Fæðingarheimili
Reykjavíkurborgar. — Ég hef
hvergi séð neitt um það í blöðum
eða öðrum fjölmiðlum, að fæð-
ingarrúmum fækkar úr 9 í 5, ef sú
breyting nær fram að ganga að
Fæðingarheimilið verði nýtt undir
konur sem búnar eru að fæða. Þar
með er verið að hverfa áratugi
aftur í tímann. Mér finnst reyk-
vískar konur hafa verið illa
blekktar i þessu máli með bak-
tjaldamanni ráðamanna. Þessir
menn rjúka af stað án þess að vita
nokkuð um þessi mál og ætla nú
að koma aftur á því ástandi sem
einu sinni var og þótti óþolandi, að
konur fæddu á göngum og í hverju
skoti sem tiltækt var. En mér er
spurn: Af hverju er hægt að borga
margfalt með rúmum á Borgar-
spítalanum, en ekkert unnt að
gera fyrir Fæðingarheimilið. í
lokin langar mig til að drepa á
framkomu yfirvalda við starfsfólk
stofnunarinnar, hún er forkast-
anleg. Ég skammast mín fyrir að
hafa kosið þessa stjórn og ég mun
ekki gera það aftur.
fyrir 50 árum
„SÚ STUND nálgast óðum að
útvarpsstöðin nýja taki til
starfa og hér hefjist reglulegar
útvarpssendingar. Er þvi tími
til kominn fyrir menn að fara
að huga að kaupum á viðtækj-
um. Vafalaust langar flesta til,
að eignast tæki. Én þeir verða
þó áreiðanlega margir sem
engin tæki fá vegna þess að
þeir hafa ekki ráð á að kaupa
þau.
ódýrari tegund tækja, sem
almennt verða notuð, kosta
150—300 krónur eftir gæðum.
Dýrari tegundir kosta hinsveg-
ar frá 360 kr. til 550 kr. Það
verður að visu ekki sagt að hér
sé um stóra fjárhæð að ræða.
Vðtækjaverslun rikisins gæti
mjög hjálpað mönnum tií að
eignast viðtæki, ef hún sæi sér
fært að selja þau með afborgun-
arskilmálum. Þessi söluaðferð
tiðkast orðið talsvert ér á
landi, einkum við kaup á dýr-
ari munum svo sem hljóðfærum
Frímiðar Flug-
leiðastarfsfólks
Kristin Sigurðardóttir hringdi
og kvað forvitnilegt að fá svar við
þvi hversu háum upphæðum frí-
miðar til Flugleiðastarfsfólks og
skyjduiiðs þess næmu á ári hverju.
— Ég er hluthafi í fyrirtækinu og
vil taka það fram ao við hluthaf-
arnir njótum í þessu efni engra
hlunninda. Ég heyrði einn ræðu-
manna minnast á þetta mál á
síðasta hluthafafundi, en þar voru
engar tölur nefndar. Mig langar
til að það verði lagt á borðið, um
hversu háar upphæðir er þarna að
tefla.
Naglaspýtur
við Borgarspítalann
Kagnhildur Konráðsson hafði
samband við Velvakanda og sagð-
ist vilja vara við naglaspýtum á
bílastæðun, við Borgarspítalann.
— Ég var að heimsækja sjúkling á
mánudaginn og lagði bílnum á
stæðinu fyrir framan spítalann.
Ég fann að ég hafði ekið upp á
eitthvað og gætti að hvað það
hefði verið. Þegar ég hafði bakkað
út úr stæðinu, kor í ljós tré-
klumpur einn mikill og út úr
honum stóðu endarnir á 4—5
tommu nöglum. Ég fjarlægði spýt-
una af stæðinu.en þegar ég kom út
aftur, var allur vindur úr dekkinu,
sem farið hafði yfir spýtuna. Ég
leitaði eftir aðstoð á spítalanum
við að skipta um dekk, en þá gaf
sig fram elskulegur strætisvagna-
stjóri, sem tók málið að sér. Ég
sendi honum þakklæti mitt fyrir
hjálpina. Svo vil ég hvetja rétta
aðila til að sjá svo um að bílastæð-
in þarna verði laus við naglaspýt-
ur í framtíðinni, þótt verið sé að
vinna við spítalann.
SIGSA V/öGA g ÁlLVE^AW
Vó LO'fAK mUA
VAQ WK/ V/Q YÍWN ‘öm mfcö,
BW ‘bföAU VÍANÁ/ WeOiM)
'f!« mtriTÍvmf viAvA Af;J
<51'&ZJRCxA AOtltfs
AMtsubishi
BlLASÝNING
um helgina
HEKLAHF
Laugavecji 170 • 172 Sími 21240
superia
» reidhjól nútímans «
Glæsileg og vönduð belgísk reiðhjól í ýmsum stærðum
og gerðum. Lífstíðarábyrgð á hjólastelli. Sérstaklega létt
og meðfærileg. Fáanleg bæði 3 gíra, 4 gíra og 10 gíra.
Komið og skoðið hjólin í björtum og þægilegum
220m2 sýningarsal, eða fáið senda bæklinga.
Missið ekki af þessu einstæða tækifæri.
HJÓL & VAGNAR
Háteigsvegi 3 -105 Reykjavík @21511
m í6
\VÍ4WAl >/(?0/ Yl(W
AV Wí W tflXM \ ftiú «Awyu ,
^IVS <& \<cBim \ltwi AO tmihiA /
06 AW \ AT/9 Áti ^ N