Morgunblaðið - 24.10.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980
31
r,
r,
Skrifa Sigurður og
Ragnar undir samning
í V-Þýskalandi?
ÍSLENSKIR knattspyrnumenn
eru heldur betur á faraldsfæti
þessa daganna. Abert Guðmunds-
son ný farinn til Kanada og þrir
íslenskir knattspyrnumenn dvelj-
ast nú í Vestur—Þýskalandi og
bendir allt til þess að þeir skrifi
allir undir atvinnumannasamn-
ing í knattspyrnu. þeir fé,agar
Sigurður Grétarsson Breiðablik
og Ragnar Margeirsson Keflavik
hafa dvalið nú síðustu viku hjá 2.
deildar liðinu FC Homburg Saar
við æfingar og leikið æfingaleiki
með liðinu. Hefur þeim félðgum
líkað vistin vel og hafa báðir
Sigurður Grétarsson Breiðablik.
staðið sig með prýði á æfingum
og i æfingaleikjum. Bendir allt
til þess að þeir félagar skrifi
undir starfssamning fram til 1
júni á næsta ári. FC Homburg
Saar leikur i suðurdeildinni og
varð i 12 sæti siðasta keppnis-
timabil. Skrifi þeir félagar undir
lita þeir á það sem nokkurs
konar stökkpall þar sem grannt
er fylgst með öllum nýjum leik-
mönnum i 2. deild. bá er Magnús
Bergs enn hjá Munster við æf-
ingar og ættu mál hans að
skýrast á næstunni.
— þr.
IR-ingar réðu ekki
við Danny Shouse
NJARÐVÍKINGAR hafa fengið
óskastart i íslandsmótinu i
körfuknattleik. í fyrsta leiknum
lögðu þeir KR—inga að velli á
heimavelli sinum og i gærkvöldi
unnu þeir ÍR—inga i Hagaskól-
anum nokkuð örugglega 108:81.
bað bendir þvi allt til þess að
Njarðvikingarnir verði i barátt-
unni um íslandsmeistaratitilinn
enn eitt árið. beir hafa fengið
góðan liðsauka i Danny Shouse,
sem fór á kostum þegar mest reið
á i leiknum í gærkvöldi og hann
lagði grunninn að sigri liðsins.
Alls skoraði Shouse 49 stig i
leiknum i gærkvöldi. Aftur á
móti er spurningarmerki yfir
ÍR —ingum. Eftir sigur yfir Vals-
mönnum i fyrsta leiknum mættu
þeir ofurefli i gærkvöldi og það
er enginn vafi að fjarvera Krist-
ins Jörundssonar veikir liðið
stórlega, en hann dvelur nú við
nám i Bandarikjunum.
En snúum okkur að leiknum.
Bæði liðin voru óstyrk í byrjun.
Njarðvikingarnir voru fyrri til að
átta sig og eftir nokkrar mínútur
var staðan orðin 18:5 UMFN í hag.
ÍR—ingarnir skoruðu sitt fyrsta
stig eftir rúmar fjórar mínútur og
sýnir það vel óstyrk liðsins á
fyrstu mínútunum. Mest komust
Njarðvíkingarnir í 15 stiga for-
ystu í fyrri hálfleiknum, 24:9. En
þegar hér var komið sögu misstu
þeir taktinn á sama tíma og
IR—ingar byrjuðu að ná sér á
strik og hélst 10—15 stiga munur
á liðunum allt fram í leikhlé, en þá
var staðan 52:39.
Lið Vals:
Torfi Magnússon 5
Rikharður Hrafnkelsson 7
Kristján Ágústsson 6
bórir Magnússon 4
Jón Steingrimsson 7
Gylfi borkelsson 5
Jóhannes Magnússon 6
Leifur Gústafsson 4
Lið ÍR:
Kolbeinn Kristinsson 6
Jón Jörundsson 6
Guðmundur Guðmundsson 5
Sigmar Karlsson 6
Jón Indriðason 4
Kristján Sigurðsson 4
Stefán Kristjánsson 4
í byrjun seinni hálfleiks tókst
ÍR—ingum enn að saxa á forskotið
og var munurinn minnstur 7 stig á
tímabili. Njarðvíkingarnir áttu í
hinu mesta basli um tíma en það
breyttist fljótlega þegar Danny
81:108
Danny Shouse skoraði 49 stig
móti IR og átti góðan leik.
ÍR
Kolbeinn Kristinsson 7
Jón Indriðason 7
Jón Jörundsson 6
Guðmundur Guðmundsson 6
Sigmar Karlsson 6
Stefán Kristjánsson 4
UMFN
Guðsteinn Ingimarsson 7
Gunnar borvarðarson 7
Árni Lárusson 7
Jónas Jóhannesson 6
Valur Ingimundarson 6
borsteinn Bjarnason 5
Sturla Örlygsson 4
Július Valgeirsson 4
Shouse fór loksins í gang. Hann
skoraði 22 stig í fyrri hálfleik en
þrátt fyrir það var skotnýting
hans ekki góð. En um tíma í seinni
hálfleik geigaði ekki eitt einasta
skot hjá Danny, hann skoraði
hverja körfuna eftir aðra og
Njarðvíkingarnir náðu afgerandi
forystu, sem þeir héldu til loka
leiksins. ÍR—ingarnir áttu ekkert
svar við stórleik Shouse og það
bætti ekki úr skák að Kolbeinn
Kristinsson varð að fara útaf með
5 villur þegar 15 mínútur voru
eftir af leiknum, en hann stjórnaði
öllu spili liðsins.
Leikurinn var lengst af frekar
slakur en sprettir hjá báðum
liðum. Njarðvíkingarnir unnu
leikinn verðskuldað. Guðsteinn
Ingimarsson byrjaði mjög vel en
lenti í villuvandræðum fljótlega.
Engu að síður var hann lykilmað-
ur í spili liðsins ásamt Shouse. Sá
síðarnefndi hu,ti ekki vel í fyrri
hálfleik en seinni hálfleikurinn
var frábær hjá honum. Gunnar
Þorvarðarson var seinn í gang en
skoraði grimmt í seinni hálfleik.
Árni Lárusson kom vel frá leikn-
um.
Bandaríski leikmaðu inn hjá
IR, Andy Fleming sýndi góða
takta bæði í vörn og sókn og hann
á vafalaust eftir að verða dýrmæt-
ur fyrir lið sitt í vetur. Kolbeinn
Kristinsson stjórnaði spilinu en
skoraði ekki mikið. Þá er aðeins
ógetið Jóns Indriðasonar, sem
sýndi feikna tilþrif bæði í vörn og
sókn og skoraði 22 stig. Gerði Jón
mikla lukku hjá áhorfendum eins
og endranær.
Stig UMFN: Danny Shouse 49,
Gunnar Þorvarðarson 15, Guð-
steinn Ingimarsson 12, Valur Ingi-
mundarson 11, Árni Lárusson 10,
Jónas Jóhannesson 4, Þorsteinn
Bjarnason 4, Sturla Örlygsson 2
stig.
Stig IR: Jón Indriðason 22,
Andy Fleming 21, Jón Jörundsson
12, Guðmundur Guðmundsson 12,
Sigmar Karlsson 7 og Kolbeinn
Kristinsson 7 stig.
Dómararnir Jón Otti og Þráinn
Skúlason höfðu góð tök á leiknum.
Athygli vakti hve hart þeir tóku á
því þegar dómum var mótmælt,
nær undantekningarlaust var
tæknivíti dæmt á þann leikmann,
sem hlut átti að máli. Ef þessari
stefnu verður fylgt í vetur mun
stórlega draga úr nöldri og mót-
mælum. —SS.
Elnkunnagiöfln
Kolbeinn Kristinsson stjórnaði spili ÍR, en varð að yfirgefa völlinn
með fimm villur. Hér brýst Kolbeinn i gegn.
Bæjarins
bezta boltaúrval
■ „ Handboltar:
M,K a®a 1
fw HL 400 karlastærð . kr. 31.240.-
'ÍS41 O HL 409 kvennastærð . kr. 30.730,-
** "" Pakistan, mini stærð .... kr. 9.850.-
Blakboltar:
4 VL 200 ......... kr. 30.000.-
^ VWL 214 mini .... kr. 17.820,-
VWL 210 og 211 .... kr. 18.500.-
Sund, Póló-boltar . kr. 15.600 -
(l«&^,• Æ
Körfuboltar:
BL 100, leður . kr. 49.650-
- BWL110. leður . kr 40 320 -
BWL 110C, leður, 3ja lita kr. 40.800,-
■* 1110gúmmíhúö ..kr. 11.740.-
1220 gúmmí mini . kr. 10.745,-
1110C gúmmí, 3ja lita .... kr. 13.326.-
1220C gúmmí mini, 3ja lita kr. 12.000.-
MIKASA boltar hafa fengið viöurkenningar allra sérsambanda
og verið notaðir á Ólympíuleikunum '64—’68, 72 og '80.
SPORTVÖRUVERZLUN
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44, sími 11783.