Morgunblaðið - 03.12.1980, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1980
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1980
17
fltotgttttlil&frft
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 7.000 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 350 kr.
eintakið.
Vofa ófrelsis
Flokksráðs- og formannaráðstefna Sjálfstæðisflokksins um
helgina lýsti fullum stuðningi við frjálshuga pólska
verkamenn. í stuðningsályktun ráðstefnunnar segir, að með
baráttu sinni fyrir frelsi og lýðréttindum hafi pólskir
verkamenn dregið athygli að þeirri kúgun, sem ríkir hjá
fjötruðum þjóðum kommúnistaríkjanna. Og síðan segir orðrétt:
„Ofurvald Sovétríkjanna er vofa ófrelsis í Evrópu." Réttmæti
þessarar fullyrðingar er ekki unnt að draga í efa. Dæmin um
beitingu þessa ofurvalds til að halda Evrópuþjóðum undir
kúgunarhæli Sovétríkjanna eru svo mörg og óhrekjanleg.
Nefnum Austur-Berlín 1953, Ungverjaland 1956 og Tékkó-
slóvakíu 1968, í öllum tilvikum var atburðarásin með svipuðum
hætti. Frjóangar frelsisins náðu að skjóta rótum, döfnuðu stutta
stund og voru síðan kæfðir með afli sovéskra skriðdreka.
Ummæli Stanislaw Kania, leiðtoga Kommúnistaflokks Pól-
lands, á fundi miðstjórnar hans í fyrradag, þegar hann sagði:
„Frekari kröfur ógna friðinum í Evrópu" um leið og hann
vegsamaði Sovétmenn fyrir „stillingu" vegna erfiðleika Pól-
verja, byggjast á vissu hans um hina sovésku vofu ófrelsisins.
Jafnvel þeir menn. sem telja íslandi hagkvæmast að vera
varnarlaust, eins og Hjalti Kristgeirsson, einn af hugmynda-
fræðingum marxista hér á landi, sitja fyrir framan sjónvarps-
áhorfendur og telja það Pólverjum helst til varnar, að öll þjóðin
muni rísa til virkrar andstöðu gegn sovéskum skriðdrekum og
leppum þeirra. Við slík ummæli hlýtur mönnum að hrjósa hugur
við baráttu þessara manna fyrir varnarleysi Islands. Halda þeir,
að vofa ófrelsisins láti sér nægja að halda því, sem hún hefur
þegar undir sig lágt? Allir frjálshuga menn hljóta að svara
þeirri spurningu neitandi. Sú krafa er gerð til þeirra í hópi
marxista, sem nú telja það helst Póllandi til varnar, að pólska
þjóðin sé vís til andspyrnu gegn sovésku heimsvaldasinnunum,
að þeir viðurkenni nauðsyn varnarviðbúnaðar gegn ófrelsisvof-
unni í sínu eigin landi. Að baráttu þessara manna gegn
eðlilegum ráðstöfunum íslendinga til að tryggja öryggi sitt og
sjálfstæði er vikið í Póllandsályktun sjálfstæðismanna, þegar
þeir segja: „Varar ráðstefnan við undirróðurstarfsemi þeirra
afla hér á landi, sem leynt og ljóst grafa undan frelsi
þjóðarinnar."
A nýafstöðnu Alþýðusambandsþingi komu fram tvær tillögur
um stuðning við pólska verkamenn. Önnur frá fulltrúa
undirróðursaflanna, sem vildi viðurkenna hið sovéska ofurvald
yfir Pólverjum með vísan til hins sósíalíska þjóðskipulags
þeirra. Sú ályktun var í anda Brezhnev-kenningarinnar um
beitingu Rauða hersins til að viðhalda sósíalísku þjóðskipulagi
— kenningarinnar, sem mótuð var til að „réttlæta" innrásina í
Tékkóslóvakíu 1968. Hin tillagan á Alþýðusambandsþinginu var
frá þeim Pétri Sigurðssyni og Guðmundi H. Garðarssyni og fól í
sér skilyrðislausan stuðning við frelsisbaráttu pólskra verka-
manna. Þingforseti, Eðvarð Sigurðsson, fyrrum þingmaður
Alþýðubandalagsins, greip til þess furðulega ráðs að stöðva
eðlilega meðferð þessara tillagna með fundarstjóravaldi. En í
þinglok tókst þó með lófataki og þrátt fyrir atbeina þingforseta
að fá samþykkta viðunandi stuðningsyfirlýsingu ASI við frjálsa
verkamenn í Póllandi. Vonandi fer yfirstjórn ASÍ ekki eins að
með þessa ályktun og í sumar, þegar hún vildi ekki koma
stuðningi íslenskrar alþýðu á framfæri við aðra í Póllandi en hið
formlega alþýðusamband landsins, sem starfar í þágu kommún-
istaflokksins, ritskoðunar og nýlenduherranna í Kreml.
Ógjörningur er að segja fyrir um það hvað gerist, ef hervaldi
verður beitt gegn pólskum verkamönnum. Allar líkur eru á
blóðugum átökum í Póllandi. Spennan milli austurs og vesturs
verður að nýju eins og hún hefur áður mest orðið. Um allan
heim munu menn fyllast óhug. Grípi vestrænir aðilar til vopna
með pólskum frelsissveitum, gæti það orðið upphaf heimsátaka.
Eins og málum er komið er siðferðilegur stuðningur og viðleitni
til að forða pólska ríkinu frá gjaldþroti og hruni með
lánveitingum og viðskiptum hið eina, sem vestrænir menn geta
af mörkum lagt. Hitt er ljóst, að sovésk valdbeiting í Póllandi
mun ekki breyta neinu um skipbrot hins marxíska hagkerfis í
löndum Austur-Evrópu. Þess vegna mun líða eitt eða tvö og þó
þau yrðu fimm ár, þangað til frjóangar frelsisins leita að nýju
fram, í andstöðu við hina sovésku ófrelsisvofu. Við hin, sem
höfum hana við bæjardyrnar, hljótum að gera allt, sem í okkar
valdi stendur, til að varna henni inngöngu.
Mál Gervasonis:
Framsalslög í Danmörku heimila
ekki framsal fyrir herþjónustubrot
— segir í fréttatilkynningu dómsmálaráðuneytisins
MORGUNBLAÐINU barst eftir-
farandi fréttatilkynning frá
dómsmáiaráðuneytinu um klukk-
an 18 í gær. Tilkynningin var
tilbúin í gærmorgun og þá var
hún lögð fyrir rikisstjórnina.
Eftir að hafa rætt tilkynninguna
óskaði rikisstjórnin þess að til-
kynningin yrði stytt og var það
gert:
Fréttatilkynning frá dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu um mál-
efni Patricks Gervasonis, frakkn-
esks ríkisborgara, f. 1951.
Dómsmálaráðuneytinu barst í
marsbyrjun þ.á., um hendur utan-
ríkisráðuneytisins, beiðni Patricks
Gervasonis um landvistarleyfi á
íslandi, sem borin hafði verið upp
við sendiráðið í Kaupmannahöfn í
lok febrúar. Sendiráðið taldi ekki
æskilegt að verða við þessari
beiðni. Mun sú afstaða m.a. hafa
verið mótuð af lýsingu hans sjálfs
á ferli sínum, en hann lýsti sig
hafa frá 17 ára aldri, þ.e. 1968,
verið í algerri uppreisn gagnvart
ríkinu og neitað að hlýta kröfum
þess. Herþjónustukvaðningu hafn-
aði hann tvítugur þ.e. 1971. Beiðni
hans um landvistarleyfi var hafn-
að 11. mars með tilkynningu til
utanríkisráðuneytisins.
Með bréfi til dómsmálaráð-
herra, dags. 8. maí sl., fór Gerva-
soni siðan fram á að sér yrði veitt
pólitískt hæli á íslandi vegna
aðstæðna sinna. I tilefni af bréf-
inu var ákveðið að leitast við að
afla frekari upplýsinga um mál-
efni Gervasonis, bæði frá Frakk-
landi og Danmörku. Gekk það
treglega, enda var ljóst að yfirvöld
höfðu litlar upplýsingar um feril
hans síðustu árin.
Er farþegaferjan „Smyrill" kom
til Seyðisfjarðar 2. september sl.
gerði maður grein fyrir sér sem
frönskum ríkisborgara, Domin-
ique Lucien Vanhoove, og lagði
fram hollenskt atvinnuskírteini
sem bar mynd af honum, en
kvaðst hafa glatað vegabréfi sínu
á sjóferðinni. Gaf viðkomandi
útlendingaeftirlitsmaður því
skýrslu um komu mannsins. Er
Patrick Gervasoni gaf sig fram við
útlendingaeftirlitið 5. september
sl., eftir að lögmaður hans, Ragn-
ar Aðalsteinsson, hafði með bréfi
4. september ítrekað beiðni hans
um að honum yrði veitt landvist
sem pólitískum flóttamanni, við-
urkenndi Gervasoni, eftir að hafa
fyrst neitað að hafa í höndum
skilríki, að hann væri með í
höndum framangreind skilríki
sem hann aflaði sér í Hollandi en
neitaði að gefa nánari skýringu á
öflun þeirra. Dómsmálaráðuneyt-
ið ákvað að herða á um öflun
upplýsinga um málefni Gervason-
is. Fengust ýmsar upplýsingar
varðandi réttarstöðu hans og var
ákveðið á þeim grundvelli að vísa
honum aftur til Danmerkur, þar
sem hann hafði komið ólöglega
inn í landið þaðan hinn 2. sept-
ember.
Eftir beiðni lögmanns Gerva-
sonis í bréfi dags. 24. september
sl., um að fallið yrði frá ákvörðun
um brottvísun Gervasonis, sem
honum hafði verið tilkynnt með
bréfi dags. 22. september, féllst
ráðuneytið með bréfi dags. 25.
september á að framlengja frest-
inn til brottfarar hans af landinu
til 2. desember. (Þá eru liðnir þrír
mánuðir frá komu hans) en jafn-
framt var skýrt frá því, að for-
sendur fyrir brottvísun hans væru
óbreyttar. í því bréfi var jafn-
framt staðfest samkomulag um að
lögmaðurinn tæki að sér umsjá
með skjólstæðingi sínum þann
tíma.
Niðurstöður við öflun upplýs-
inga um • réttarstöðu Patricks
Gervasonis í Frakklandi og Dan-
mörku, sem aflað hefur verið hjá
yfirvöldum í þeim löndum undan-
farna mánuði verða raktar hér á
eftir, en bæði hafa verið birtar og
gengið manna á milli frásagnir
um meðferð málefna hans, sem í
vændum séu, sem eru fjarri lagi.
í Frakklandi hafa fallið á hann
2 dómar herdómstóls fyrir ólög-
mæta höfnun á gegningu her-
þjónstu á friðartímum, 12 mánaða
fangelsi, skv. dómi uppkveðnum
18. október 1973, og 8 mánaða
fangelsi skv. dómi, uppkveðnum
25. mars 1976, vegna liðhlaups
innanlands á friðartímum. Eru
með því sakir tæmdar gegn hon-
um fyrir liðinn tíma og því fjarri
lagi að hans bíði 10 ára fangelsi
eða jafnvel meira. Strangari refs-
ingar eru fyrir liðhlaup úr virkri
herþjónstu en fyrir það var
Gervasoni ekki dæmdur. Þess má
vænta að slíkir dómar yrðu við
fullnustu þeirra styttir a.m.k. um
fjórðung að öllu eðlilegu. Ef hlut-
aðeigandi hinsvegar féllist á að
gegna herþjónstu má vænta þess
að dómar yrðu lækkaðir í eins til
tveggja mánaða fangelsi skilorðs-
bundið, sem í raun má vænta að
félli niður að fullu. Dómunum yrði
fullnægt í venjulegu almennu
fangelsi, því herfangelsi til af-
plánunar eru ekki til. Engar kvað-
ir hvíla á slíkum aðila eftir
afplánun, svo sem um skilríki,
ferðafrelsi eða annað, þar sem
málinu væri að fullu lokið. Engum
beiðnum hefur verið beint frá
Frakklandi um framsal Gervason-
is í neina átt og ekkert bendir til
þess að nokkurs slíks sé að vænta.
í Danmörku eru engar skuld-
bindingar fyrir hendi gagnvart
öðrum Efnahagsbandalagsríkjum,
NATO-ríkjum eða neinum öðrum
um framsal á herþjónstubrott-
hvarfsmönnum eða liðhlaupum.
Framsalslög í Danmörku (nr. 249
frá 1967) heimila ekki framsal
fyrir herþjónustubrot. Engin
ástæða er til að ætla að dönsk
yfirvöld hafni að veita Gervasoni
viðtöku á grundvelli ákvæða Norð-
urlandasamnings frá 1957, sem
ísland gerðist aðili að 1966, en
samkvæmt honum á það Norður-
landaríki, sem útlendingur kemur
ólöglega inn í, rétt á að endur-
senda hann til þess Norðurlanda-
ríkis er hann kom frá. Er því um
endursendingu að ræða en ekki
brottvísun í lagatæknilegum
skilningi. Eins og áður segir eru
Danir ekki skuldbundnir af nein-
um milliríkjasamningum til að
vísa honum úr landi til annars
lands og framsal fyrir þau laga-
brot, sem um ræðir, eins og áður
segir óheimilt að lögum.
Fyrir réttri viku síðan átti
dómsmálaráðherra íslands einka-
viðræður við dómsmálaráðherra
Danmerkur varðandi þetta mál-
efni. Fóru þær viðræður mjög
vinsamlega fram. Er ljóst að
dönsk yfirvöld munu ekki gefa á
þessu stigi neins konar yfirlýs-
ingar um niðurstöður á athugun-
um þeirra á málavöxtum um
framangreint efni, sem alls ekki
hafa getað farið fram þar í landi,
og að þær niðurstöður hljóta að
verða byggðar á þeirra eigin
könnun. Það er mat þessa ráðu-
neytis, að tekið verði við þá
könnun með skilningi á aðstæðum
Patricks Gervasonis, og að hann
eigi það mest undir sjálfum sér
komið, og afstöðu sinni til gæzlu
danskra lagareglna, hvort honum
verði tekið sem venjulegum borg-
ara annars Efnahagsbandalags-
ríkis, en þeir munu eiga með
eðlilegum hætti rétt á því sam-
kvæmt reglum Efnahagsbanda-
lagsins, að fá sér atvinnu í öðrum
löndum Efnahagsbandalagsins, og
starfa þar óáreittir.
í gær tilkynnti dómsmálaráðu-
neytið lögmanni Gervasonis,
Ragnari Aðalsteinssyni, hrl., að
það teldi að ekkert það hefði
Stuðningsmenn Gervasonis og mótmælendur brottvísunar hans úr landinu styttu sér stundir við spilamennsku.
Gangar stjórnarráðsins voru fullir af stuðningsmönnum Gervasonis.
komið fram, sem gæti breytt fyrri
ákvörðun um brottför hans, og að
lögreglustjóranum í Reykjavík f.h.
útlendingeftirlitsins yrði falið að
annast framkvæmd þess að venju.
Jafnframt var tekið fram, að
Gervasoni væri heimilt að ákveða
sjálfur hvenær hann kysi að
hverfa af landinu á næstu 1—2
vikum eftir nánara samráði hans
og lögmannsins við ráðuneytið,
með hæfilegum fyrirvara, enda
hlyti lögmaðurinn þá að taka að
sér umsjá skjólstæðings síns þann
tíma, svo sem verið hefur sam-
kvæmt samkomulagi frá 25. sept.
sl., en að öðrum kosti, ef hann og
lögmaðurinn óskuðu ekki að hafa
þennan hátt á, hlyti lögmaðurinn
að fylgja honum til skrifstofu
útlendingaeftirlitsins, en af því
hafði lögmaðurinn tekið við umsjá
hans hinn 25. september sl.
Geta má þess, að það getur haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar ef
látið er undan þrýstingi ofbeldis-
aðgerða, sbr. töku sendiráðs ís-
lands í París, þar sem krafist var
„pólitísks hælis" á Islandi fyrir
450 manna hóp andstæðinga
herskyldulaga þar í landi.
Rétt þykir að endingu að lýsa
höfuðrökum fyrir ákvörðun ráðu-
neytisins í fáum orðum:
1. íslensk lög hafa verið brotin
með ótvíræðum hætti við komu
Patricks Gervasonis til landsins
þvert ofan í fyrri neitun á erindi
hans og með fölsuðum skilríkjum
og með röngu nafni.
2. Engir milliríkjasamningar
eða alþjóðasamningar kveða á um,
að herþjónustuneitun veiti rétt til
pólitísks hælis.
3. Engin haldbær rök eru fyrir
því að brottför Gervasonis frá
Islandi til Danmerkur leiði til
sendingar hans þaðan til Frakk-
lands.
Dóms- og kirkjumálaráðu-
neytið, 2. desember 1980.
Ungmennin í dómsmálaráðuneytinu:
„Leggium áherslu á kröf-
una um
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
stuðningsmönnum Patrick
Gervasoni:
Við sem erum hér saman komin,
viljum með því leggja áherslu á þá
kröfu, að Patrick Gervasoni verði
veitt hæli á ísiandi sem þólitísk-
um flóttamanni.
Patrick Gervasoni nýtur ekki
jafnréttis á við aðra flóttamenn,
er neitað hafa að gegna herþjón-
ustu. Gervasoni er í þeirri sér-
stöðu að vera vegabréfslaus og
pólitískt
getur þar af leiðandi hvorki dvalið
né farið að eigin vild. Vegna
aðildar Danmerkur að Efnahags-
bandalagi Evrópu mun Gervasoni
ekki fá hæli þar sem pólitískur
flóttamaður.
Við krefjumst þess að íslensk
stjórnvöld leyfi Patrick Gervasoni
að njóta jafnréttis á við aðra
' flóttamenn og útbúi hið snarasta
vegabréf honum til handa, þannig
að Gervasoni geti farið ferða
sinna frjáls maður.
hæli66
Ljóst er að endurskoði stjórn-
völd ekki afstöðu sína, dæma þau
óbeint Patrick Gervasoni til fang-
elsisvistar í frönsku herfangelsi,
hve lengi veit enginn.
Við skorum á Alþýðusamband
Islands og önnur félagasamtök og
einstaklinga, sem lýst hafa yfir
stuðningi við Gervasoni að sýna í
verki að alvara hafi legið á bak við
yfirlýsingarnar.
Dómsmálaráðuneytinu
2. desember 1980.
Stuðningsmenn Gervasoni.
Vopnafjörður:
Yeðurhæðin náði
17 vindstigum
Vopnafirði 2. des. 1980.
AFTAKAVEÐUR gekk hér yfir
aðfaranótt mánudags og á
mánudagsmorgun, en litlar
skemmdir urðu, og engin slys á
fólki svo vitað sé. Veðrið skall á
um nóttina, en á sunnudag hafði
hér verið hiti og afbragðs veður.
Veðurhæðin náði mest um 17
vindstigum, í hviðum, samkvæmt
mælingum á flugvellinum. Járn-
plötur fuku af tveimur þökum og
skemmdir urðu á Síldarverk-
smiðjunni, þá skemmdust fjárhús
í sveitinni eitthvað og heyvagnar
feyktust til, en búfénað sakaði
ekki.
Veðrið var á norðan, og fylgdi
því töluverð snjókoma. Vindinn
tók síðan að lægja um hádegisbil,
en síðar um daginn snjóaði nokk-
uð. í dag er hér stillt veður og
frost, ágætt veður. Símasam-
bands- og rafmagnslaust varð hér
um tíma í óveðrinu, en það er nú
komið í lag, þótt ekki heyrist vel
ef hringt er út fyrir Vopnafjörð.
— Katrín
Þórshöfn:
Brotnaði af haf nargarðinum
Uórshofn á Lanxanrsi 2. des, 1980.
MIKIÐ óveður gekk hér yfir
eins og víðar, aðfararnótt mánu-
dags og á mánudag. Veðrið
birtist okkur þó ekki fyrst og
fremst í hvassviðri eins og víða
varð, heldur kom hér mikið
brini, sem meðal annars olli
skemmdum á hafnargarðinum.
Það er hlaðinn grjótgarður, og
brotnaði framan af honum um
20 metra iangur kafli.
Ekki er enn vitað hvert hafrót-
ið hefur borið grjótið úr garðin-
um, en óttast er að það hafi
borist í innsiglingarrennuna í
höfninni. Gæti það þá orðið
stærri hafskipum skeinuhætt.
Ekki bar þó á því í morgun er
strandferðaskipið Hekla kom hér,
en síðar verður séð hvert grjótið
barst.
Veðrið var á norðan, og fvlgdi
því lítil úrkoma. Mikil ísing varð
á hinn bóginn til þess að síma- og
rafmagnslínur gáfu sig, og var
hér bæði símasambandslaust og
rafmagnslaust um hríð.
- Óli
Málefni Launasjóðs rithöfimda verði
áfram í höndum rithöfunda sjálfra
segir í ályktun Rithöfundasambandsins og áskorun 126 rithöfunda
MORGUNBLAÐINU hefur borist
afrit af bréfi, sem Rithöfunda-
samband íslands hefur sent öll-
um alþingismönnum, en þar er
gerð grein fyrir ályktun sam-
bandsins um þingsályktunartil-
lögu er nú liggur fyrir Alþingi
um Launasjóð rithöfunda. Bréf
Rithöfundasambandsins er svo-
hljóðandi:
Háttvirti alþingismaður!
Á fundi sínum 26. nóvember sl.
ræddi stjórn Rithöfundasambands
íslands þingsályktunartillögu Sþ
69 um Launasjóð rithöfunda sem
nú liggur fyrir Alþingi og sam-
þykkti eftirfarandi ályktun ein-
róma:
Stjórn Rithöfundasambands ís-
lands lítur svo á að með tilkomu
Launasjóðs rithöfunda hafi Al-
þingi í raun viðurkennt að ríkis-
sjóður hefur miklu meiri tekjur af
störfum rithöfunda en nemur
styrkjum til bókmennta. í reglu-
gerð launasjóðsins er kveðið svo á
að stjórn Rithöfundasambandsins
tilnefni þrjá menn í stjórn sjóðs-
ins til þriggja ára í senn, og má
ekki tilnefna sömu menn aftur.
Með þessu er tryggt að sami
smekkur eða bókmenntastefna
ráði ekki ferðinni nema skamman
tíma í senn. Þegar litið er yfir
úthlutanir úr sjóðnum þau fimm
ár sem liðin eru frá því að
reglugerðin var gefin út, þá kemur
einmitt í ljós að ekki er unnt að
sjá að neins konar einsýni, listræn
eða pólitísk, hafi verið ríkjandi.
Þess vegna var yfirlýsing 43 fé-
laga í Rithöfundasambandi ís-
lands sl. vor, sem þingsályktun-
artillagan byggist á, úr lausu lofti
gripin. Núverandi stjórn launa-
sjóðsins nýtur fyllsta trausts
stjórnar Rithöfundasambands ís-
lands.
Stjórn Rithöfundasambandsins
lítur á þessa þingsályktunartil-
lögu sem beint tilræði við Launa-
sjóð rithöfunda, enda reynsla fyrir
því að fylgifiskur þingkjörinna
nefnda sem úthluta launum og
styrkjum til listamanna, sé póli-
tískt kvótakerfi fremur en list-
rænt mat. Yfirgnæfandi meiri-
hluti félagsmanna í Rithöfunda-
sambandi íslands er andvígur
slíkri tilhögun, og því til sönnunar
fylgir hér yfirlýsing 126 rithöf-
unda um andstöðu við þingkjörna
stjórn launasjóðsins. Einnig er
rétt að benda á að á síðasta
aðalfundi var samhljóða kosin
nefnd til að fara yfir reglugerð um
launasjóðinn og hugsanlega setja
fram tillögur um breytingar á
henni.
Stjórn Rithöfundasambands ís-
lands vill ekki trúa því að Alþingi
gangi gegn vilja meirihluta rithöf-
unda með því að samþykkja marg-
nefnda þingsályktunartillögu og
óskar eftir því að flutningsmenn
dragi hana til baka, en að öðrum
kosti að henni verði vísað frá eða
hún felld.
Reykjavík, 1. desember 1980,
f.h. stjórnar Rithöfundasambands
íslands,
Njörður P. Njarðvík, formaður.
Þá hefur Morgunblaðinu einnig
borist undirskriftalisti, þar sem
126 rithöfundar, félagar í Rithöf-
undasambandi íslands, lýsa því
yfir að þeir séu andvígir „því að
Alþingi breyti lögum um Launa-
sjóð rithöfunda þannig að þing-
kjörin nefnd úthluti úr sjóðnum.
Við teljum að val stjórnar Launa-
sjóðs rithöfunda eigi að vera í
höndum samtaka rithöfunda
sjálfra eins og verið hefur," segir í
undirskriftaskjalinu.
Undir það skrifa eftirtalin:
AöalNteinn InffólÍ88on. Andrés IndriöaNon.
Andrés KristjánsNon, Anton Helrl JónsNon.
Árni Lanwon. Ása Sólveig. Asi í Ba*.
Ásthildur Effilsson. Haldur Raftnarsson,
Birfdr SiffurÓNNon. Birfdr Svan Simonarson,
Bjórn Th. Bjórnsson, Björn Þorsteinsson,
Briet Héöinsdóttir, Böðvar Guömundsson.
Dafcur SÍKurösNon. Egill Bjarnason, Egill
EgilHNon. Einar Bragi. Einar Logi Einars-
son, Einar Kristjánsson írá Hermundaríelli,
Einar Olafsson. Elias Mar, Elisabet Þor-
geirsdóttir, Erlingur E. Halldórsson, Ey-
vindur Eiriksson, Flosi ólafsson, Geir
KristjánsNon, Gestur Guöfinnsson. Gils GuA-
mundsNon, Gisli ÁgÚNt GunnlaugHHon, GuA-
bergur Bergsaon. GuAjón Sveinsson. GuA-
laugur Arason. GuAmundur L. FriAfinnsson.
GuAmundur Gislason Hagalin, GuAmundur
Halldórsson frá BergsstöAum. GuAmundur
Steinsson, GuAmundur ÞórAarson, GuArún
Helgadóttir, Gunnar Benediktsson. Gunnar
Gunnarsson. Gunnar M. Magnúss, Gylfi
Gröndal. HafliAi Vilhelmsson. Halldór Lax-
ness, Hannes Pétursson. Hannes Sigfússon,
Haukur ÁgÚHtsson. HeiArekur GuAmunds-
son. Helgi SamundsNon. Hjörtur Pálsson.
Hrafn Gunnlaugsson, Inga Birna Jónsdóttir,
Ingibjörg Haraldsdóttir. Jakob Jónsson.
Jakobina SigurAardóttir, Jóhann Hjálmars-
son. Jóhannes Steinsson. Jón Danielsson,
Jón Helgason. Jón Kr. tsfeld. Jónas Árna-
son, Karl GuAmundsson, Kári Tryggvason,
Kristinn Einarsson. Kristinn Reyr. Kristján
Árnason, Kristján Eldjárn. Kristján frá
Djúpalæk. Kristján Jóhannsson, Kristján
RöAuls, Liney Jóhannesdóttir. LúAvík Krist-
jánsson. Magnea Magnúsdóttir frá Kleifum,
Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi, Mál-
friAur Einarsdóttir, Nina Björk Árnadóttir,
Njörður P. NjarAvik. Oddur Björnsson. Olga
GuArún Árnadóttir. ólafur Gunnarsson,
ólafur Jóhann SigurAsson, ólafur Haukur
Simonarson, Páll H. Jónsson, Pétur Gunn-
arsson, Ragnar Ingi AAalsteinsson. Rósberg
G. Snædal. Rúna Gisladóttir. Sigmundur
örn Arngrimsson. Sigrún Björnsdóttir, Sig-
urður A. Magnússon. SigurAur Pálsson,
SigurAur Róbertsson. SigurAur Þórarinsson,
Sigurjón Birgir SigurAsson, Snorri Hjartar-
son, Stefán Baldursson, Stefán HörAur
Grimsson. Stefán Jónsson. Stefán Júliusson.
Steinunn SigurAardóttir, Steinþór Jóhanns-
son, Svava Jakobsdóttir, Sveinn Einarsson.
Sverrir Hólmarsson. Thor Yilhjálmsson.
Tómas GuAmundsson. Tryggvi Emilsson.
Úlfar ÞórmóAsson. Úlfur Hjörvar. Valdis
Óskarsdóttir, Vésteinn LúAviksson. Vilborg
Dagbjartsdóttir, Þorgeir Þorgeirsson. Þor
steinn Antonsson. Þorsteinn frá Hamri.
Þorsteinn Þorsteinsson, Þorvarður Helga-
son, Þórarinn Eldjárn, Þórir S. GuAbergs-
son, Þórleifur Bjarnason. Þórunn Magnea
Magnúsdóttir. Þráinn Bertelsson. örn
Bjarnason, örnólfur Árnason.