Morgunblaðið - 03.12.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1980
19
Verktakasamband íslands:
Er íbúðabyggjend
um mismunað?
t KVÖLD mun Verktakasamband
íslands halda fund að Hótel
Loftleiðum undir yfirskriftinni
„Fjármögnun íbúða, er ibúða-
byííKjendum mismunað?“ Frum-
mælendur verða Ármann Örn
Ármannsson. formaður Verk-
takasambandsins, Friðrik Soph-
usson. alþinnismaður. Ólafur
Jónsson, formaður Húsnæðis-
málastofnunar rikisins, Sigurður
E. Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Húsnæðismálastofnunar og
Þórður Þorbjarnarson, borgar-
verkfræðingur.
Að sögn framkvæmdastjóra
Verktakasambandsins, Óttars
Arnar Petersen, hafa víða verið
uppi um það raddir að íbúðabyggj-
endum væri mismunað og stafaði
það helzt af mismunandi þungum
lánum. Um 30% íbúða í landinu
eru nú byggðar á félagslegum
grundvelli og til þeirra er lánað
allt að 90% byggingarkostnaðar
til langs tíma. Til annarra íbúða-
byggjenda eru lán miklu lægri og
erfiðari, eftir að vextir hækkuðu
og verðbólgan rauk upp úr öllu
valdi.
Fundurinn í kvöld hefst kl. 20.30
í Kristaisal Hótel Loftleiða og er
öllum opinn.
Tólf þyrlur hafa verið keyptar til landsins:
Níu þeirra hafa
skemmst eða eyði-
lagst í slysum
SAMTALS hafa verið skráðar 12
þyrlur hér á landi frá þvi að
fyrsta þyrlan var skráð hér i
júnimánuði árið 1949. Af þeim
eru fjórar enn á skrá, en aðeins
tvær eru i lofthæfu ástandi, þ.e.
T-ATH af gerðinni H-269, eign
Albinu Thordarson, skráð 25.
mai á þessu ári, og TF-RÁN, af
gerðinni S-76, eign Landhelgis-
gæziunnar, skráð 22. ágúst i ár.
Niu af þessum tólf þyrlum hafa
eyðilagst eða skemmst veruiega i
flugslysum og niu manns látið
lífið af þeim sökum.
Þessar upplýsingar komu fram
á Alþingi í gær, en Eiður Guðna-
son beindi nokkrum spurningum
til Steingríms Hermannssonar,
samgönguráðherra, um öryggis-
mál varðandi þyrlurekstur. Fyrsta
þyrlan var keypt hingað til lands-
ins árið 1949, en henni var skilað
Til Frakklands
ekki Luxemborgar
í Morgunblaðinu í gær var sagt
frá samningi flugfélagsins íscargo
við Kristinn Benediktsson í Lux-
emborg um flutning á ferskum
fiski frá íslandi. Sagt var að
fiskurinn færi til Luxemborgar, en
hið rétta er að fiskurinn fer til
Frakklands, en það er Kristinn
Benediktsson, sem hefur milli-
göngu um flutninginn.
aftur til Bandaríkjanna þremur
mánuðum síðar. Það var síðan
ekki fyrr en árið 1965 að Land-
helgisgæzlan og Slysavarnafélag
íslands keyptu þyrlu til landsins
og auk þeirrar þyrlu hefur Land-
helgisgæzlan átt fimm þyrlur.
Aðrir þyrlueigendur hérlendir
hafa verið Elding Trading Co,
Þyrluflug hf, Hitatæki hf, Albína
Thordarson og Andri Heiðberg
(2),
I svari ráðherra kom fram, að
enginn einn samnefnari virðist
fyrir orsökum slysa og óhappa í
þyrlurekstri hér á landi. Hvað
varðar þyrlur Landhelgisgæzlunn-
ar eða þyrlur, sem verið hafa á
hennar vegum, hefur ekkert komið
fram, sem bendir til að viðhaldi
þyrlanna hafi verið ábótavant,
enda hefur Landhelgisgæzlan lagt
þunga áherzlu á góða viðhalds-
þjónustu. Þjálfun þyrluflugmanna
hefur almennt verið í samræmi
við lög og reglugerðir hér á landi,
sem yfirleitt eru strangari á þessu
sviði en í öðrum löndum, segir í
svari ráðherrans.
Eftirlit með flugrekstri og þá
um ieið þyrlurekstri er í höndum
loftferðaeftirlits flugmálastjórn-
ar. í svari ráðherra segir, að til að
efla eftirlitið þurfi aukningu sér-
hæfðs starfsliðs og eðlilegt er
talið, að fram fari ítarleg könnun
á öllum þáttum þyrlurekstrar hér
á landi með það fyrir augum að
öryggi verði eflt.
Aðeins
þaðbesta
„lceland Review kemur alltaf eins og langþráður gestur
frá Islandi . (Úr bréfi f rá lesanda ritsins erlendis.)
Sendu vinum þínum í útlöndum gjafaáskrift - og fáðu
heilan árgang í kaupbæti.
Gjöf, sem berst aftur og aftur - löngu eftir að allar hinar
eru gleymdar, og segir meira frá landi og þjóð en margra
ára bréfaskriftir.
Iceland Review
Hverfisgötu 54, sími 27622,101 Reykjavík.
O
O
o
Nýrri áskrift 1981 fylgir allur
árgangur 1980 í kaupbæti, ef
óskað er. Gefandi greiðir
aðeins sendingarkostnað.
Útgáfan sendir viðtakanda
jólakveðju í nafni gefanda,
honum að kostnaðarlausu.
Fyrirhöfnin er engin og
kostnaðurinn lítill. Hvert nýtt
hefti af lceland Review styrkir
tengslin.
□ Undirritaður kaupir_______gjafaáskrift(ir) að lceland Review 1981
og greiðir áskriftargjald kr. 9.900 að viðbættum sendingarkostnaði
kr. 2.800 pr. áskrift. Samt. kr. 12.700.
□ Árgangur 1980 verði sendur ókeypis til viðtakanda(-enda) gegn
greiðslu sendingarkostnaðar, kr. 2.500 pr. áskrift.
Nafn áskrifanda
Sími Heimilisfang
Nafn móttakanda
Heimilisf.
Nöfn annarra móttakenda fylgja með á öðru blaði. Sendið til
lceland Review, pósthólf 93, Reykjavík, eða hringið í síma 27622.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
M UGLYSIR IM Al.LT I.AXD LKI.AR
Þl AlGt.YSIR I MORÖINBI.ADIXI
Ásgeir Jakobsson:
GRÍMS SAGA TROLLARASKÁLDS
LOKSINS SJÓMANNABÓK, SEM SELTUBRAGÐ ER AF.
Hér er það hásetinn, hinn óbreytti liðsmaður um borð í togara, sem segir sögu
sína. Sú saga er saga skáldsins, dárans og hausarans, þessara þriggja ólíku persóna,
sem í Grími bjuggu. En saga Gríms trollaraskálds er einnig saga stríðstogaranna
okkar, sem voru of gamlir, eins og „Kynbomban“, of hlaðnir, eins og „Dauðinn á
hnjánum“, of valtir, eins og „Tunnu-Jarpur“, • saga um atvinnuhórur,
hjáverkahórur og stríðsdrykkinn tunnuromm, • saga um einangraðan heim á hafi úti,
framandi jafnvel eigin þjóð, • saga horfinna manna, togarajaxlanna gömlu,
manngerðar, sem aldrei framar verður til á þessum hnetti, • saga horfinna skipa,
tuftugu og tveggja kolakyntra ryðkláfa, sem aldrei framar sjást á sjó.
Það skrifar enginn íslenzkur höfundur um sjómenn, skip eða hafið eins og Ásgeir
Jakobsson, og Gríms saga trollaraskálds er engri annarri bók lík.
SKUGGSJÁ
BÓKABÚD OL/VERS STEINS SE
HÉRERBÓKIN!