Morgunblaðið - 03.12.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.12.1980, Blaðsíða 1
270. tbl. 68. árg. MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Rauði herinn í viðbragðs- stöðu á landamærunum London. 2. desember. AP. SOVÉTMENN haía lokað þeim héruðum í Austur-Þýskalandi, sem liggja að Póllandi. íyrir eftirlitsmónnum vestrænna ríkja og Rauði herinn er í viðbragðsstöðu á landa- mærum Póllands og Sovétríkjanna. Þessar fréttir eru hafðar eftir áreiðanlegum heim- ildum og koma á sama tíma og miðstjórn pólska kommúnistaflokksins ræðir ástandið í landinu. sem er Sovétríkjunum og leppríkj- um þeirra mikill þyrnir í augum. Haft er eftir heimildum í Vestur-Berlín, að Sovétmenn hafi lokað austurhéruðum A-Þýskalands fyrir vestræn- um eftirlitsmönnum, sem þeir eiga að hafa aðgang að sam- kvæmt samningum hernáms- veldanna í lok síðasta stríðs, og að sömu sögu sé að segja um þau héruð í Sovétríkjunum sem liggja að Póllandi. Sagt er, að viðbúnaður sovéska hersins sé nú auðkenndur með tölunni sex, sem er sá mesti sem Rauði herinn viðhefur. Sovétmenn hafa nú 500.000 manna herlið í Austur-Þýska- landi, Póllandi og Tékkóslóv- akiu auk herliðsins handan landamæranna Sovétmegin. Mikil fundahöid eiga sér nú stað hjá ráðamönnum komm- únistaríkjanna. Willi Stoph, leiðtogi austur-þýskra kómm- únista, er nú staddur í Prag til viðræðna við stjórnvöld þar og er talið víst, að ástandið í Póllandi sé aðalumræðuefnið. Miðstjórn ungverska komm- únistaflokksins kom einnig saman til fundar í dag og þar er talið að þróun mála í Póllandi verði líka efst á baugi. í fréttum frá Washington segir, að Anatoly Dobrynin, sovéski sendiherrann, hafi verið kvaddur til fundar í bandaríska utanríkisráðu- neytinu til að kynna viðhorf Sovétmanna til ástandsins í Póllandi. Síðustu fréttir: Ríkis- stjórn Jimmy Carters Bandaríkjaforseta varaði Sovétmenn við því í dag að ráðast inn í Pólland og sagði, að slíkt myndi hafa „ákaflega alvarlegar afleið- ingar fyrir sambúð austurs og vesturs og einkurn fyrir samskipti Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.“ Þá segir í síðustu fréttum frá Pól- landi, að fjórum mönnum hafi verið vikið úr stjórnar- nefnd pólska kommúnista- flokksins á fundi mið- stjórnar flokksins. Miðstjórnarfundur pólska kommúnistaflokksins: „Pólitískir andstæðingar okkar eru í Samstöðu“ Varxjá. 2. dewmher. AP. MIECZYSLAV Rakowski. rit- stjóri vikuritsins Polytika og háttsettur meðiimur miðstjórnar pólska kommúnistaflokksins, sem nú situr á fundi i Varsjá, sagði i dag, að innan Samstöðu, hins óháða verkalýðssambands, væru menn, sem „eru pólitískir andstæðingar okkar“. Hann var- aði Samstöðu jafnframt við af- leiðingunum ef ekki tækist að hafa hemil á „róttækari“ armi verkalýðssambandsins. Rakowski sagði á fundi mið- stjórnarinnar, að þróun mála síð- ustu þrjá mánuði benti til, að þeir réðu mestu innan Samstöðu, sem „ekki vildu samvinnu við ríkið og flokkinn" og ynnu að því að „valda enn meiri ringulreið í landinu en orðið væri“. Stanislaw Kania, formaður pólska kommúnistaflokksins, hafði fyrr varað við öllum tilraun- um til að draga í efa forystuhlut- verk kommúnistaflokksins, en hét því jafnframt að vinna með þeim leiðtogum Samstöðu, sem vildu fara hægt í sakirnar. í ræðu, sem Josef Pinkowski, forsætisráð- herra, hélt og birt var í dag, hét hann umfangsmiklum aðgerðum til að ráða bót á hinum alvarlegu efnahagsvandamálum í Póllandi. Napdli. 2. des. AP. SAKSOKNARINN í Napólí hót- aði þvi í dag. að lögregluvaldi yrði beitt ti! að flytja á brott hundruð manna. sem misst hefðu heimili sin i jarðskjálftunum og hafa nú leitað skjóls fyrir vetr- arveðráttunni í auðum húsum i borginni og borgarstjórinn sagði, að lagt yrði hald á ibúðir, sem stæðu auðar, ef eigendurnir vildu ekki selja þær. Til nokkurra átaka kom í gær milli óeirðalögreglunnar og fólks, sem lét greipar sópa um stórversl- un, og atvinnuleysingjar og heim- ilislaust fólk hafði uppi mótmæli og reyndi að setjast upp í auðum húsum. Allt hefur verið með kyrrum kjörum í dag, að sögn lögreglunnar. Borgarstjórinn í Napólí sagði í dag á fréttamannafundi, að þó að borgin vildi greiða markaðsverð fyrir íbúðir, sem stæðu auðar, vildu eigendurnir ekki selja vegna „annarlegra gróðahugmynda". „Nú þegar þúsundir manna eru heimilislausar vegna jarðskjálft- anna er ástandið orðið með öllu óþolandi," sagði hann. í Napólí misstu 35.000 manns heimili sín í jarðskjálftunum og hafast nú hundruð manna við í vöruflutn- ingagámum á hafnarsvæðum borgarinnar. í héruðunum í kringum Napólí hafast um 200.000 manns við í köldum tjöldum og bráðabirgða- skýlum og hafa aðeins örfáir orðið við beiðni stjórnvalda um að setjast að í hótelum á ströndinni eins og þeim stendur til boða. Yfirmaður björgunarstarfsins sagði í dag, að fólkið gæti ekki lifað af veturinn ef það hefði ekki samstarf við stjórnvöld. Yfirvöld eru sögð treysta á, að fólkið láti sér segjast þegar veðráttan versn- ar. Óeirðir og ringulreið á jarðskjálftasvæðunum Hann sagði, að fyrirtækjum yrðu gefnar frjálsari hendur og verka- mönnum leyft að hafa áhrif á ákvarðanir þeirra. Ekkert var þó sagt um það hvernig þátttöku þeirra yrði háttað í framkvæmd. í leiðara Varsjárblaðsins, Zycie Warszawy er í dag sagt frá klofningi í kommúnistaflokknum og vitnað til „tveggja andstæðra viðhorfa". Annar hópurinn er sagður halda dauðahaldi í „for- réttindi og einstrengingshátt" en hinn sagður sýna „hræsnisfulla iðrun" og „yfirbjóða andstæðinga flokksins í viðræðum við verka- menn“. Tekið er þó fram, að yfirgnæfandi meirihluti flokks- manna hafi ekki misst sjónar á „nauðsyn sameiginlegrar afstöðu". „ÉG IIEITI ANGELO ROMANELLO — ég hef ekkert annað að segja." sagði þessi 13 ára gamli drengur þegar björgunarmenn grófu hann úr rústum heimilis hans 60 klukkustundum eftir að jarðskjálftarnir lögðu heimabæ hans í rúst. Al’simamvnd. Rússar alvarlega varaðir við íhlutun _ Luxemborg. 2. desember. AP. Á FUNDI æðstu manna Efna- hagsbandalagsins í Luxemborg í dag var ákveðið að bjóðast til að hjálpa Pólverjum í þeim efna- hagslegu þrengingum. sem þeir eiga nú við að stríða, og um leið voru Sovétmenn alvarlega varað- ir við því að hlutast til um málefni Pólverja. í lok yfirlýsingar, sem gefin var út við lok tveggja daga leiðtoga- fundar hinna níu Efnahagsbanda- lagslanda, segir, að „EBE sé reiðu- búið eftir því sem unnt er, að veita Pólverjum þá efnahagsaðstoð, sem þeir hafa farið fram á“. í yfirlýs- ingunni er bent á, að ríkin 35, sem undirritað hafi Helsinki-sáttmál- ann, hafi heitið því að hafa engin afskipti af málefnum annarra ríkja. „Við skorum því á öll aðildar- löndin að hafa þessar meginreglur í heiðri hvað viðkemur Póllandi og pólsku þjóðinni," segir í yfirlýs- ingu leiðtogafundarins. „Ef út af því verður brugðið mun það hafa ákaflega alvarlegar afleiðingar fyrir alþjóðleg samskipti jafnt í Evrópu sem um heim allan.“ Með ákvörðun sinni í dag hafa Efnahagsbandalagslöndin í fyrsta sinn tekið sameiginlega afstöðu til ástandsins í Póllandi. Talsmaður bandalagsins sagði í dag, að pólsk sendinefnd hefði átt fund með embættismönnum þess í síðustu viku og hefði þá verið rætt um, að Pólverjum yrðu seldar landbúnað- arafurðir á lágu verði. Einnig er talið að afborganir af skuldum Pólverja við EBE-ríkin verði tekn- ar til endurskoðunar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.