Morgunblaðið - 03.12.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1980
15
Irakar segjast tilbúnir
að taka þrjár borgir
Beirút, 2. desember. AP.
TALSMENN írakshers sögðu i
dag. að hersveitir hans væru
reiðubúnar til nlokaatlögu“ á
þrjár stórar borgir i Khuzistan í
Suðvestur-íran, Abadan. Ahvaz
og Dezful. Aftur á móti sögðu
íranir, að þeir hefðu hrundið
siðustu árásum traka og myndu
upp frá þessu verða i stöðugri
sókn meðfram allri viglinunni
sem er 450 km löng.
Utanríkisráðherra íraks, Saa-
doun Hammadi, sagði, að hægt
væri að binda endi á stríðið milli
landanna, sem hefur nú staðið í 72
daga, með því að gera samkomu--
lag um að leggja niður bardaga og
Kanínur gera usla á Orkneyjum:
Bændur í stríð
við kanínurnar
Rousay, 1. desember. AP.
BÆNDUR á Orkneyjum eru bún-
ir að fá sig fullsadda af yfirgangi
mýgrúts af kaninum. sem gera
usla á graslendi eyjanna, og hafa
nú seilzt til byssunnar og ákveðið
að snúa vörn i sókn.
Talið er, að um eitt hundrað
þúsund kanínur séu í eyjunum og
áætlað er, að þær bíti í sig um 40
smálestir af grasi á degi hverjum.
Hingað til hefur einn og einn
bóndi lagt til atlögu gegn kanínun-
um, en ekkert fengið við ráðið, þar
sem þær hafa fjölgað sér hraðar.
Nú hafa bændurnir hins vegar
bundizt samtökum og axlað vopnin
allir sem einn. Þá hafa þeir fengið
til liðs við sig meindýraeiða brezku
krúnunnar hvaðanæva úr landinu,
og flykktust þeir til eyjanna um
helgina, hlaðnir kanínusnörum,
netum og gasi.
„Kanínurnar eru hræðilegt
vandamál," sagði forsprakki bænd-
anna í dag, „tíu kanínur éta á við
eina á. „Hann sagði, að bændur
hefðu búið sig undir langt stríð við
kanínurnar. Hefðu þeir fengið um
40 milljóna króna styrk frá hinu
opinbera til að standa straum af
kostnaði við útrýminguna, en áætl-
að er, að þrjú ár taki að fækka
kanínunum það mikið að hafa megi
stjórn á stærð hjarðarinnar.
aðilar drægju liðssveitir sínar til
baka og síðan yrði samið um
framtíðarlandamæri. írak krefst
þess að fá í sinn hlut 320 ferkm.
lands og auk þess Shatt al Arab.
I fréttum frá Alsír í kvöld sagði,
að Warren Christopher, aðstoðar-
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
hefði rætt við alsírska embættis-
menn í dag til að koma til skila
síðasta svari Bandaríkjamanna
varðandi gíslana í Teheran. Als-
írska stjórnin hefur haft meðal-
göngu um viðræður eins og frá
hefur verið sagt. Ekkert bendir til
að neitt það komi fram í svari
Bandaríkjastjórnar, sem verði til
að gíslarnir verði látnir lausir.
Bandaríska blaðið Washington
Post sagði í dag, og kvaðst hafa
það eftir embættismönnum, að
Christopher hafi komið þeim boð-
um áleiðis að „svéigjanleika-
stefna" Bandaríkjastjórnar kunni
að renna út í næsta mánuði og að
staðan kunni að breytast þegar
Reagan hefur tekið við embætti
forseta Bandaríkjanna.
„Drikka á Flötti farin, 105 ára
gomul“
Elzta kona
Færeyja
látin, 105
ára gömul
NÚ FYRIR skömmu lézt elzti íbúi
Færeyja, Frederikka Sigvardsen
við Gjógv, 105 ára gömul. Drikka á
Flötti, eins og hún var oftast
kölluð, var ein af 6 elztu íbúum
Norðurlanda og varð elzt allra
Færeyinga. Hún giftist 1899 ein-
um af þekktustu skipstjórum Fær-
eyinga, en hann drukknaði við
ísland 1920.
Portúgal:
Frambjóðandi kommún-
ista dregur sig í hlé
Blaðamannaverkfalli
lokið i Finnlandi
HelHÍnki. 2. denember.
Frá Harry Granberg. (réttaritara Mbl.
Blaðamannaverkfallið sem hef-
ur staðið í Finnlandi í þrjár vikur,
er nú leyst og tókust samningar
um tíu prósent kauphækkun, og
auk þess fylgja laun síðan al-
mennum kauphækkunum með
ákveðnum viðbótum á samnings-
tímanum, sem er til ársins 1983.
Fengu blaðamenn því tvö prósent
meiri hækkun en þeim hafði verið
boðið, er þeir fóru í verkfallið.
Leikarar hafa verið í verkfalli í
Finnlandi síðan í október, þ.e. við
útvarp og sjónvarp. Lausn virðist
nú einnig í sjónmáli í þeirri
kjaradeilu, því náðst hefur sam-
komulag um nýjan launaramma.
Felldu stjórn-
arskrána
Montevideo. 1. desember. AP.
KJÓSENDUR í Uruguay höfnuðu
nýrri stjórnarskrá í þjóðarat-
kvæðagreiðslu um helgina, en hún
hefði tryggt herr.um varanleg ítök
í landsstjórninni ásamt þjóðkjörn-
um forseta. Þegar 86 af hundraði
atkvæða höfðu verið talin, voru
58% á móti nýju stjórnarskránni,
en 42% með. Herstjórnin situr því
áfram ein að völdum, en stjórn-
málaleiðtogar lýstu útkomunni í
dag sem sigri fyrir lýðræðishug-
myndir almennings í landinu.
Lissabon. 2. desember. AP.
CARLOS Brito, frambjóðandi
portúgalska kommúnista-
flokksins, PCP, við forseta-
kosningarnar þar á sunnudag-
inn, lýsti því yfir í dag, að
hann hefði ákveðið að hætta
við framboð sitt og hvatti
stuðningsmenn sína til að sam-
einast um Ramahlo Eanes, nú-
verandi forseta.
Við þessu hafði verið búizt
um hríð, en ekki var vitað hvort
Brito myndi gefa út jafn af-
dráttarlausa traustsyfirlýsingu
við Eanes og raunin varð á.
Fréttaskýrendur telja, að það
geti orðið umdeilanlegur ávinn-
ingur fyrir Eanes, hversu skor-
inortur Brito var.
Brito sagði, að Eanes væri
bezti kosturinn, ella myndi
frambjóðandi „hægri- og endur-
skoðunarsinna“, Soares Carn-
eiro, hugsanlega ná kjöri. Aðal-
baráttan hefur staðið milli
þessara aðila tveggja, en fjórir
aðrir eru nú auk þeirra í
framboði, en búizt við að þeir
fái sáralítið af atkvæðum.
Umferðarslys-
um stórfækk-
aði í Noregi
ObIó, 2. desember. AP.
AÐEINS sextán manns létust
i umferðarslysum í Noregi í
síðasta mánuði samanborið
við 45 i nóvember í fyrra.
Undanfarin ár hafa að með-
altali 44 látist í umferðarslys-
um í þeim mánuði og þykja
þetta því góð tíðindi. í AP-frétt
um málið segir, að meiri notk-
un bílbelta eigi vafalaust
drjúgan þátt í þessu.
UTSÖLUSTAÐIR Karnabær Laugavegi 66 - Karnabær Glæsibæ
Eyjabær Vestmannaeyjum - Hornabær Hornafirði -Eplið Akranesi - Eplið ísafirði -Cesar Akureyri
Veður
víða um heim
Akureyri -6 háifskýjaö
Amsterdam 5 rigning
Aþena 19 heiðskírt
Barcelona 4 heióskírt
Berlin -2 snjókoma
BrUasel 0 skýjaö
Chicago 8 snjókoma
Denpasar, Bali 24 skýjað
Dublin 5 heiöskírt
Feneyjar 2 heiðskírt
Frankfurt -1 heíðskírt
Færeyjar 2 skýjsö
Genf -2 skýjaö
Helsinki S rigning
Hong Kong 26 heiöskírf
Jerúsalem 20 sólakin
Kaupmannahófn 2 skýjaó
Kairó 25 heióskírt
Las Paimas 20 láftskýjaó
Lissabon 11 heióskírt
London 8 skýjaó
Los Angeles 19 skýjað
Madrid 7 sólskin
Malaga 11 heióskírt
Mallorca 9 skýjaö
Mexicoborg 22 heiöskírt
Miami 26 skýjað
Moskva -8 skýjaó
Nýja Delhi 25 skýjaó
New York 14 eigning
Osló -1 skýjað
Psrfs 0 snjókoma
Perth 22 heióskírt
Reykjavik -4 hálfskýjað
Ríó de Janeiro 29 skýjaö
Rómaborg 6 heiöskírt
San Francisco 12 rigning
Stokkhólmur 5 skýjað
Sydney 26 rigning
Pomponent Car Stereo , ■
kiiometrum a undan
Þegar kemur að hljómgæðum
hafa PIONEER bíltækin þá yfirburði,
að við getum fullyrt að þau eru mörgum
kílómetrum á undan öðrum bíltækjum.
rm
y »*
W12B
f r- -----1
.
HLJÓMTÆKJADEILD
KARNABÆR
LAUGAVEG 66 SÍMI 25999
Ö&PIO IVEER
t'mnimiKMil t ur Slerrn
flð