Morgunblaðið - 19.12.1980, Side 4

Morgunblaðið - 19.12.1980, Side 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 Agnar Guðnason: Verslunarráð og kjúklingamir í síðastliðinni viku efndi Versl- unarráð til blaðamannafundar, þar sem gerð var grein fyrir viðhorfum þess og nokkurra ali- fugla- og svínabænda til stefnu bændasamtakanna í framleiðslu- málum landbúnaðarins. Fjölmiðl- ar skýrðu frá því markverðasta, sem fram kom á fundinum, að ég hygg, en þar var deilt á landbún- aðarráðherra og Stéttarsamband bænda fyrir álagningu kjarnfóð- ursskattsins. Hann var talinn miðheppnað og óréttlátt hag- stjórnartæki. Spurning sem ýmsir hafa velt fyrir sér, eftir að boðskapur Versl- unarráðs var birtur, fyrir hverja er það að berjast? Er það neytend- ur, framleiðendur eða kaupmenn? Ef rétt er metið munu hagsmunir kaupmanna vega þyngst, því varla eru margir bændur aðilar að Verslunarráði. Þótt Stéttarsam- band bænda beri hag neytenda fyrir brjósti, þá er ekki óeðlilegt að hagsmunir bænda séu því nærtækari. Stéttarsambandið hef- ur ekki boðað til blaðamanna- fundar í þeim tilgangi að gagn- rýna aðgerðir annarra hagsmunasamtaka. Það hefur ver- ið talið heillavænlegra að ræða við forystumenn annarra stéttarfé- laga um sameiginleg vandamál. Kjarnafóðurgjald- ið og bændur Það hafa verið og eru skiptar skoðanir meðal bænda um rétt- mæti þess að leggja sérstakt gjald á innflutt kjarnfóður, sem bænda- samtökin hefur síðan til ráðstöf- unar. Umræður um kjarnfóður- gjaldið hafa farið fram á mörgum Búnaðarþingum og oft á aðalfund- um Stéttarsambands bænda. Niðurstaða af þeim umræðum var að yfirgnæfandi meirihuti fulltrúa á þessum fundum hafa verið meðmæltir gjaldinu. Rökin hafa verið, að með sérstöku gjaldi á kjarnfóður mætti hafa nokkra stjórn á framleiðslunni og enn- fremur jafna aðstöðumun bænda miðað við búsetu og til verðjöfn- unar. Það má að sjálfsögðu deila um aðgerðina við innheimtu gjaldsins, en gjaldtakan sjálf hef- ur ótvírætt verið samþykkt af rétt kjörnum fulltrúum bænda á aðal- fundum beggja heildarsamtaka þeirra. Þess vegna er gjaldið staðreynd í dag, en má vera að ekki verði talin ástæða til að hafa það óbreytt um langan tíma. Það er fulltrúafundur Stéttarsambands bænda, sem tekur ákvörðun um það. Það má jafnframt benda á, að samtímis og lagt er á kjarnfóð- urgjald er bændum í hefðbundn- um búgreinum þ.e. i sauðfjárrækt og nautgriparækt úthlutað fram- leiðslukvóta. Fyrir ákveðinn hluta framleiðslunnar fá þeir fullt verð, en það sem er umfram það fá þeir aðeins um !ó af skráðu framleið- andaverði. Þannig að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til bitna mun þyngra á sauðfjár- og kúa- bændum en öðrum bændum. Samtök bænda og afurðasalan Verslun með afurðir alifugla og svína er öðruvísi háttað en verslun með aðrar landbúnaðarafurðir. Fulltrúar neytenda og bænda hafa komið sér saman um verð- lagningu á nautgripa- og sauðfjár- afurðum og einnig verslunar- álagninguna. verð til framleið- enda á eggjum, kjúklingum og svínakjöti er ákveðið á vegum hagsmunasamtaka bænda í þess- um búgreinum. Kaupmenn hafa löngum deilt á þá, sem ákveða smásöluálagningu á sauðfjár- og nautgripaafurðir. Þeir telja hana of lága. Það hefur oft komið til tals að afurðir svína og alifugla yrðu verðlagðir á hliðstæðan hátt og aðrar landbúnaðarafurðir, enda ekki óeðlilegt, að því beri að stefna. Þá þarf gott samstarf við kaupmannasamtökin til að kom- ast að réttri niðurstöðu, sem flestir geti sætt sig við, þegar að því kemur. Bændur eiga að standa saman hvað svo, sem þeir framleiða, þeir eiga að gæta sinna hagsmuna innan stéttarsamtakanna. Önnur hagsmunasamtök eru ekki réttur vettvangur til að koma á leiðréttingum, ef þeir telja sig misrétti beitta. Verðlag nokkurra afurða Þótt það sé ekki alveg nákvæmt þegar borið er saman verð á ýmsum matvælum hér á landi og í öðrum löndum, gefur það þó ákveðnar vísbendingar. Sérstak- lega getur verð í smásölu verið breytilegt milli verslana. Ég hefi fengið uppgefið smásöluverð á nokkrum búvörum í eftirtöldum löndum: Noregi, Frakklandi, Finnlandi, Hollandi, Svíþjóð, V-Þýskalandi og Danmörku. Verð- Agnar Guðnason ið miðast við 28. nóvember sl. og gengi íslensku krónunnar eins og það var þá. Meðalverð í þessum 7 löndum á nýmjólk var kr. 341, hér á landi var verðið 353 kr. Mjólkurverðið er niðurgreitt í þrem löndum svipað og hér hjá okkur. Munur á smásöluverði var 3,4%. Ostur 45% var að meðaltali 22% dýrari hér á landi en í hinum löndunum. Sambærileg nautasteik var aftur á móti 19,6% ódýrari hér en að meðaltali í löndunum sjö. Egg voru 118% dýrari hér á landi, en í hinum löndunum, ódýrust voru þau í V-Þýskalandi kr. 1242 hvert kg. en dýrust í Svíþjóð 2881 kr. hvert kg. Smásöluverð hér á landi var kr. 3250 á kg. Verð á holdakjúklingum var 93% hærra hér en í hinum löndunum, hæsta verð var 2881 á kg., það var í Svíþjóð en lægst í V-Þýskalandi 1951 kr. á kg. Skráð smásöluverð hér var kr. 4000. Smásöluverð á svínakótelettum var 146% hærra hér á landi, en að meðaltali í hinum löndunum. Lægsta verð var í Frakklandi kr. 3588 á kg., hæst var það í V-Þýskalandi 4849 kr. á kg. Meðalverðið var kr. 4185 á kg. en skráð smásöluverð hér á landi er kr. 10.304 á kg. Ef gerður er samanburður á verði til framleiðenda fyrir heilt svín 1. verðflokki og verði á kótelettum í smásölu er verð- mismunurinn á kg 282%. Aftur á móti mundu lambakótelettur kosta 121% meira en framleiðend- ur fá fyrir 1. flokks dilkakjöt, ef kindakjötið væri ekki niðurgreitt. Það er réttur samanburður á verði þessara kjöttegunda. Það má segja að þessi verðsam- anburður gæti gefið nokkra vís- bendingu um hver verðlagning yrði á afurðum svína og alifugla ef þar giltu sömu reglur og í verð- lagningu annarra búfjárafurða. Það mundi þjóna hagsmunum bænda í þessum búgreinum betur að taka upp nánara samstarf við Framleiðsluráð landbúnaðarins og Stéttarsamband bænda en verið hefur, í stað þess að halla sér að verslunarráði. Lausnin gæti orðið sú, að meira samræmi yrði í verslunarálagn- ingu allra búfjárafurða, til hags- bóta fyrir framleiðendur í svína- og alifuglarækt. Verðlagningu á kjúklingum Á blaðamannafundi Verslun- arráðs var því haldið fram að framleiðendur kjúklinga þyrftu að greiða 33,3% kjarnfóðursgjald á 60—70% aðfanga sinna. Hagsmunasamtök kjúklinga- bænda gefa út sinn eigin verðlags- grundvöll fyrir þessa framleiðslu- grein. I verðútreikningi þeirra frá 20. október sl. var verð til fram- leiðenda ákveðið kr. 2.773 á kg. Þar af var fóðurkostnaður 1139 kr. á kg. Kjarnfóðurgjaldið var inni- falið. Þarna gerði fóðurkostn- aðurinn þó ekki nema tæp 42% af framleiðslukostnaðinum. Oft hefur verið minnst á háan slátur- og heildsölukostnað á dilkakjöti. Þessi kostnaður var áætlaður síðastliðið haust kr. 720 á kg. Slátur- og heildsölukostnað- ur á hvert kg. holdakjúklinga er nokkru hærri, því í október sl. var þessi kostnaður áætlaður kr. 1341 á hvert kg. Þarna er verk að vinna fyrir alifuglabændur, ef þeir bera gæfu til að standa saman, mætti lækka þennan kostnað. Öll rök hníga að því að bændur hvað svo sem þeir framleiða eiga að standa saman og vinna sameig- inlega að lausn þeirra vandamála sem upp kunna að koma. Hvaða tilgangi þjónar 200 mílna f isk- veiðilögsaga, ef ekki á að gæta hennar? Stjórn Starfsmannafélags Landhelgisgæzlunnar hefur skrifað formönnum þingflokk- anna eftirfarandi bréf: Stjórn Starfsmannafélags Landhelgisgæzlunnar lýsir undr- un og vanþóknun á þeirri ábyrgð- arlausu og handahófskenndu ráðstöfun stjórnvalda að selja aðra FOKKER F-27 flugvél Land- hejgisgæzlunnar. í fyrsta lagi skal á það bent, að söluandvirði flugvélarinnar, 675 milljónir, er aðeins 1/5 hluti andvirðis nýrrar flugvélar, og getur því varla orðið stór þáttur í að bjarga vanda ríkissjóðs. í öðru lagi er stjórn Starfs- mannafélags Landhelgisgæzlunn- ar ekki kunnugt um nokkra stefnu eða áætlun stjórnvalda í landhelg- is- og gæzlumálum. Og þar sem ekki hefur verið mótuð stefna eða áætlun með tilliti til þarfanna, hljóta núverandi ákvarðanir að skoðast sem tómt handahóf. Bent skal á, að skoðanir á þeirri vél, sem eftir er, geta varað frá 4 til 14 dögum. Spyrja má, hvort það 3é ætiunin að leggja niður fluggæzlu á því tímabili. Er ef til vill stefna stjórnvalda sú sama og skoðun formanns fjárveitinganefndar, að litlu skipti þótt dregið verði úr eftirliti með útlendingum við fisk- veiðimörkin, og bezt væri málum komið með því að bjóða rekstur Landhelgisgæzlunnar út til einka- aðila. Þá hlýtur að vakna sú spurning, hvort eigi að hafa sama hátt á er varðar almenna lög- og tollgæzlu. í þriðja lagi vill stjórn Starfs- mannafélags Landhelgisgæzlunn- ar geta þeirrar óhugnanlegu stað- reyndar, að öryggi sjófarenda inn- an lögsagnarumdæmis okkar mun stórlega rýrna og er óþarfi að fara um þann þátt mörgum orðum, svo augljós sem hann er. Enginn innlendur flugvélakostur er fyrir hendi að fylla það tómarúm, sem mun skapast við skoðanir á TF- SYN, svo sem bent hefur verið á hér að framan. Stjórn Starfsmannafélags Landhelgisgæzlunnar telur lítinn vafa leika á því, að stéttarfélög sjómanna muni líta þessa þróun alvarlegum augum, ehda vandséð- ur sá ávinningur, sem fólst í félagsmálapakkanum er varðaði öryggismál, ef aðrir þættir örygg- ismála verða þess í stað fyrir borð bornir. Sú ákvörðun fjárveitingavalds- ins að selja bæði ÁRVAKUR og ÞÓR verður að teljast í hæsta máta vafasöm, þar sem hvorki þessi ríkisstjórn né nokkur af þeim fjórum stjórnmálaflokkum, sem eiga fulltrúa á Alþingi, hafa markað sér stefnu í landhelgis- málum til framtíðar. Þessir landfeður ættu að hafa í huga skoðanir fyrirrennara sinna sem aldrei efuðust um að öflug landhelgisgæzla væri einn af hornsteinum þjóðfélagsins. Við það öryggisleysi sem sjófar- endum við ísland er skapað við ákvörðun ríkisvaldsins um að draga úr rekstri Landhelgisgæzi- unnar, þykir rétt að vísa til margítrekaðra ályktana bæði Far- manna- og fiskimannasambands íslands og Sjómannasambands ís- lands um öryggismál og um rekst- ur Landhelgisgæzlunnar. í þeim ályktunum koma fram álit sjó- manna, að öflug landhelgisgæzla sé einn höfuðþáttur í öryggismál- um sjófarenda. Það hefur kornið í ljós á síðast- liðnum tveim árum, að brotalöm er á milli samspils skipa og flugvéla Landhelgisgæzlunnar, því í nokkrum tilvikum hafa flugvélar Landhelgisgæzlunnar komið að erlendum veiðiþjófum innan 200 sjómílna markanna, en þessi skip hafa ekki verið færð til hafnar vegna skorts á varðskipum. Vegna fjárskorts hefur úthaldi þeirra verið haldið í algjöru lágmarki og dæmi um fjarlægð varðskips frá staðarákvörðun flugvélar hefur verið allt að sólarhrings sigling. Það verður stjórnvöldum að vera ljóst, að raunhæf landhelgis- gæzla við ísland verður ekki rekin af nokkurri mynd, nema með öflugu samspili fluggæzlu og skipa. Þótt flugvél standi erlendan veiðiþjóf að broti, verður hann ekki færður dómsvöldum nema varðskip komi til. Að lokum vill stjórn Starfs- mannafélags Landhelgisgæzlunn- ar spyrja hvaða tilgangi það hafi þjónað, að íslendingar tóku sér 200 sjómílna fiskveiðilögsögu, ef ekki er ætlun þeirra að gæta hennar? Stjórn Starfsmannafélags Landhelgisgæzlunnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.