Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980
39
eftir þessum vinnubrögðum, segir
hann, að list sín miðist öll við
veruleikann á hverri stund og
veruleikinn sé breytilegur, ófull-
búinn og viðsjárverður. Hann seg-
ist líta svo á, að listin sé í raun og
veru ekki annað en liður í póli-
tísku starfi sínu, markmið hennar
sé einnig að koma ríkjandi þjóð-
skipulagi á kné og ryðja nýjum
samfélags og hugsunarháttum
braut. Leiksýningin fari fram inn-
an áhorfendahópsins, þeirra sé að
gefa hið endanlega svar.
Þessi afstaða Turkka skýrir
e.t.v. að nokkru leyti, hversu
bundinn hann er við allt sem lýtur
sérstaklega að Finnum og Finn-
landi. Á öllum leikstjórnarferli
sínum hefur hann sett upp aðeins
eitt erlent leikrit, Draugasónötu
Strindbergs og þegar ég spyr
hann, hvað hann, efnishyggjumað-
urinn, hafi séð í svo háandlegu
verki, virðist hann ekki skilja
spurninguna, en fer að tala um
finnska föðurkomplexinn, sem
Draugasónata hans hafi átt að
afhjúpa. Og þegar talið berst að
öðrum sýningum, verður svipað
uppi á teningnum. Allar sýningar
hans, sem ég hef séð eða haft
spurnir af, virðast vera uppgjör
við einhverjar þjóðlegar sálar-
flækjur og geðrænar truflanir,
sem ég útlendingurinn kann vita-
skuld lítil skil á. Glöggt dæmi er
leikgerð hans á skáldsögu Váinnö
Linna, Óþekkta hermanninum,
sem var frumsýnd á sviði Borgar-
leikhússins í fyrra og ég sá þar nú
í haust. Þessi skáldsaga, sem vakti
gífurlega athygli við útkomu sína
árið 1954, lýsir örlögum einnar
herdeildar í seinni heimsstyrjöld-
inni. í sýningu Turkka fór leikur-
inn fram á risastórum haug af
fósturmoldinni sjálfri, sem hafði
verið fluttur inn á sviðið ásamt
mosagróðri, trjástofnum og vatni.
Það var ekki ýkja þægilegt að sitja
undir þessari sýningu; öflugar
sprengingar og skothvellir dundu
látlaust yfir, leikhúspúðrið lagði í
þéttum mekki yfir áhorfendur og
gerviblóðið flæddi í stríðum
straumum útí finnska moldar-
binginn. í dramatískustu köflun-
um blönduðust svo hljómar úr
Finlandiu og öðrum ættjarðar-
sálmum stríðslátunum. Kvaðst
Turkka með þessu móti vilja sýna
fæðingu einnar þjóðar af mold og
blóði.
Menn geta af þessu séð, hversu
mikill Finni Jouko Turkka er og
að þekking á þjóðinni sjálfir er
óhjákvæmileg til þess að hafa
gagn af list hans. En það fer ekki
heldur hjá því, að maður geti
kynnst Finnlandi nokkuð í gegn-
um Turkka og leikhús hans. Og
sem ég ræði við Turkka og hann
segir mer frá fyrri sýningum
sínum, rek ég augun í eitt ein-
kenni, bæði á manninum sjálfum
og sýningum, sem ég hef fundið
svo oft með Finnum, að mér finnst
sem um þjóðareinkenni hljóti að
vera að ræða. Þetta er hin sér-
kennilega vangeta þessa fólks til
að finna einhvern meðalveg í
öllum málum og leiðast þess í stað
út í þær tröllauknustu öfgar, sem
hægt er að ímynda sér. Þessi
öfgasemi setur svip sinn á finnsk
trúmál, stjórnmál og bókmenntir
og hún á sannan fulltrúa í Jouko
Turkka. Hann virðist haldinn
ólæknandi þörf til að stilla upp
andstæðum, þær geta verið nautn
— hreinlífi, einræði, lýðræði — en
ætíð skal hann hafna annarri og
halda hinni á lofti. Kynni mín af
Turkka urðu ekki svo mikil, að ég
kæmist að því hvort hann vissi
sjálfur af þessari tilhneigingu, en
í leikhúsi hans fannst mér hún þó
fremur ósjálfráð en yfirlögð. Ög
ég hef sterklega á tilfinningunni
að öfgarnar þrengi ásamt ýmsu
öðru sjóndeildarhring þessa stór-
brotna leikhúss svo mjög, að það
fái aldrei brotist frá því sér-
finnska til hins sammannlega. En
Turkka myndi að sjálfsögðu svara
því til, að allar hugmyndir um
sammannleik í listum séu ekkert
annað en ímyndun og blekking. Og
í þessari Finnlandsskýrslu finnst
mér kurteislegast að láta hann
hafa síðasta orðið.
Einsöngsperlur
Mörg af fallegustu og vlnsælustu ein-
sönglögum sem gefin hafa veriö út á
íslandi flutt af mörgum bestu söngvurum
sem þjóðin hefur aliö. Verð kr. 10.400.
KVÓLDVfl
Kvöldvísa
Á þessari gullfallegu hljómplötu flytja
margir af bestu tónlistarmönnum yngri
kynslóðarinnar lög Torfa Ólafssonar vlö
Ijóð Steins Steinarrs. Verö kr. 12.900.
IlslniUt Ðíoöiög
Guðrún Tómasdóttir, sópran og Ólafur
V. Albertsson píanólelkari.
Islensk þjóölög í einstökum flutnlngi
Guðrúnar Tómasdóttur og Ólafs Vignis
Albertssonar. í vönduðu umslagi fylgja
textar á fslensku og ensku. Verð kr.
9.500.
FALKINN
Suðurtandsbraut 8 — sími 84670
Laugavegi 24 — sími 18670
Austurveri — sími 33360
Manuela Viesler flautuleikari og Helga
Ingólfsdóttir semballleikari.
Sumartónleikar f Skálholtskirkju. Þessi
frábæra hljómplata sem kom út fyrir einu
ári hefur hlotiö einstaklega góða dóma.
Þær Helga og Manuela eru tvímælalaust
meðal fremstu listamanna þjóðarinnar.
Verö kr. 12.800.
Hjálmtýr E. Hjálmtýsson, tenór og Gfsli
Magnússon píanó.
Hinn vinsæll tenór Hjálmtýr E. Hjálm-
týsson syngur þekkt sönglög og vinsælar
arfur við undirleik Gísla Magnússonar
píanóleikara. Eiginkona Hjálmtýs, Mar-
grét Matthfasdóttir, syngur með honum í
nokkrum laganna. Verö kr. 12.800.
Islenskar
hljómplötur
við allra hœfi
Pónik — Útvarp
Útvarp er fyrsta L.P. plata Pónik, sem
hefur starfaö í tvo áratugl. Á plötunni eru
8 ný lög eftir marga bestu lagahöfunda
þjóöarlnnar og 3 erlenda. Utvarp er
einstaklega vönduö og fjölbreytt dæg-
urplata. Verð kr. 12.000.
Þursaflokkurinn á hljómleikum
Upptaka frá hlnum eftirminnilegu tónleik-
um Þursaflokksins í Þjóöleikhúsinu í vor.
Þursaflokkurinn telst örugglega efn
merkasta hljómsveit sem upp hefur
komið í íslenskri rokktónlist. Verð kr.
12.800.
tí
X*
/tEvintýralandið
Sigild barnaplata með 4 vinsælustu
ævintýrum Grímmsbræðra, Hans og
Grétu, Mjallhvft, Rauöhettu og Ösku-
busku. Flytjendur margir af vlnsælustu
lelkurum þjóðarinnar, þar á meöal Bessi
Bjarnason og Gísli Alfreösson. Tvær
plötur í albúml. Verð kr. 11.500.
Fræbbbtarnir — Viitu nammi vana?
Fræbbblarnir hafa sérstöðu meðal ís-
lenskra hljómsveita. Engir eru eins og
Fræbbblarnir, því Fræbbbiamir eru einstak-
ir.
• »*
TlURJ
BESSI
segir bómunum sogur
Það vex eitt blóm
Ný tveggja laga hljómplata með lögum
Guðmundar Ámasonar. Annað laaiö er
samlð við Ijóð Steins Steinarrs, Þaö vex
eitt blóm fyrir vestan. Verð kr. 3.500.
Beaai segir börnunum sögur
Þetta er sú barnaplata sem náð hefur
mestum vinsældum á þessu árl enda hafa
fáir lesiö þessar sivinsælu barnasögur á
jafnskemmtilegan hátt og Bessi. Verð kr.
9.500