Morgunblaðið - 19.12.1980, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 19.12.1980, Qupperneq 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 Björn Jóhannesson: I>að yrðu meinleg' um- hverfisspjöll ef moskító- fuga næði hér fótfestu I.Inngangur Moskítóflugan, eða moskítóan (Aedes), er bitvargur, nokkru grannvaxnari og minni en ís- lenska bitmýið (Culex). Moskítóan mun eitt útbreiddasta skordýr jarðar og spannar að kalla allt svæðið frá hinum syðstu til hinna nyrstu landa. í heitari löndum er þessi fluga víða smitberi mýra- köldu (malaríu), en þessu mun ekki lengur til að dreifa í kald- tempruðu beltunum. Hins vegar kemur þetta skordýr fyrir í því ríkara mæli og gerist þeim mun ágengari bitvargur sem nær dreg- ur heimskautunum, a.m.k. á norð- urhveli jarðar. Þessu mun valda einkum tvennt: í fyrsta lagi þekja freðmýrar og votlendi hlutfalls- lega stærri hluta þess lands, sem er ekki snævi þakið að sumarlagi, þeim mun norðar sem dregur á heimskringlunni, en votlendis- svæði eru kjörumhverfi moskít- óunnar. í annan stað má segja, að þessi fluga „drepi af sér“ hvers konar óvini í vaxandi mæli eftir því sem norðar dregur, hvort heldur um ræðir sjúkdómsvalda (sníkla, bakteríur, veirur) eða skordýr og fugla; flugan þrífst þeim mun betur sem norðar dreg- ur, gagnstætt því sem er um önnur lífsform. í nyrstu héruðum Al- aska, Kanada og Skandínavíu geta moskítóbitvargar orðið að plágum fyrir menn og skepnur. Eru þess dæmi, að hreindýr á þessum slóðum drepist vegna blóðtöku moskítóflugunnar. í fréttabréfi frá Alaska dags. í mars 1973 segir svo um aðgang þessara skorkvik- inda á North Slope (norðurhlíðar Brooks-fjallgarðarins nyrst í Al- aska, þar sem nú er unnin olía): „Flest moskítóbit sem talin voru á nöktum framhandlegg á 5 mín- útna tímabili reyndust á sl. sumri 435. Miðað við álíka bit-tíðni, myndi nakinn og óvarinn manns- líkami verða fyrir 172,260 bitum á klukkustund. Hver full-mett moskítóa tekur með sér a.m.k. 2,57 rúm-millimetra af blóði. Maður í umræddri aðstöðu myndi þannig tapa 7,4 millilítrum af blóði á mínútu. 25 hundraðshlutar af blóði hans myndu horfnir á 3 klukkustundum, enda myndi hann þá dauðvona". Moskítóur bíta í gegn um fatn- að, og komist þær í mannabústaði, eru þær jafn ágengar þar og utandyra. Hákon Bjarnason, fyrrv. skógræktarstjóri, hefur tjáð mér, að eitt sinn er hann lenti í moskítófaraldri í Alaska, hafi sér verið ráðlagt að vefja pappír um úlnliði og ökkla, en flugurnar sækja á þessa líkamshluta. En þá varð Hákon það bitinn í hnésbæt- ur í gegn um fatnað, að hann átti óhægt um gang næstu daga. Einstaklingar eru misjafnlega viðkvæmir fyrir moskítóbitum. Sumir bólgna mikið undan þeim, svo að augu geta t.d. að kalla sokkið. A aðra hafa bitin tiltölu- lega lítil áhrif, en þeim fylgir þó ætíð nokkur kláði. Margur íslend- ingurinn hefur að sjálfsögðu orðið fyrir barðinu á moskítóflugum í útlöndum, þá fyrst og fremst á norðlægum slóðum, svo sem í Finnmörk, Grænlandi, Alaska og Norður-Kanada. Þeirra gætir lítið eða ekkert inn í flestum stórborg- um, t.d. í New York, en í útborgum þessarar stórborgar eru þær oft ágengar, einkum að kvöldlagi. Þeirra gætir annars mest á stöðum, þar sem er opið vatn, stöðupollar, opnir skurðir eða lækjardrög. II. Moskítóur fyrir- finnast ekki á * Islandi Sem betur fer fyrirfinnst mosk- ítóflugan ekki á Islandi. Sérfræð- ingar á þessu sviði telja einsætt, að þetta sé einangrun landsins að þakka. Útilokað er talið, að flugan gæti borist hingað frá öðrum löndum með loftstraumum. Hverf- andi líkur eru og taldar fyrir því, að hún gæti borist með skipum. Eins er talið ólíklegt, að moskító- egg gætu borist með fuglum. Fremur væri hugsanlegt, að egg flugunnar bærust með jarðvegi sem oft fylgir grænmeti og blóm- jurtum. Miklu mestar er líkurnar fyrir því, að flugan bærist hingað með flugvélum, og koma þá staðir eins og Scoresbysund og Nars- sarssuaq í Grænlandi væntanlega fyrst til greina. III. Því ekki að halda vöku sinni? Á árunum 1962 til 1975 var höfundur þessarar greinar starfs- maður Þróunarstofnunar Samein- uðu þjóðanna í New York. Á ferðum mínum þessi ár til all- margra landa rakst ég að sjálf- sögðu oft á moskítóur, og sú spurning sótt á mig, hvers vegna þær fyrirfinndust ekki á íslandi. Sem starfsmanni Þróunarstofnun- arinnar var mér kunnugt um það, að íslendingar gætu, án nokkurs kostnaðar, fengið einhvern af fær- ustu starfandi moskítósérfræðing- um til að heimsækja ísland og kanna þetta mál. Af þessu tilefni skrifaði ég heilbrigðismálaráð- herra persónulegt bréf í árslok 1972. Þessu bréfi var vísað til Náttúrufræðistofnunar íslands og annarra sérfræðinga og segir í svarbréfi heilbrigðismálaráðu- neytisins við tillögu minni, að umræddir sérfræðingar telji „ein- dregið, að lífsskilyrði séu ekki fyrir moskítófluguna hér á landi" og að „skordýr af þessu tagi berist miklu fremur með loftstraumum en flugförum". Því taldi ráðuneyt- ið ekki ástæðu til að taka að svo stöddu afstöðu til tillögu minnar um erlenda tækniaðstoð i því skyni að kanna þessi mál. Álit það sem fólst í ofangreindu bréfi ráðuneytisins virtist mér orka tvímælis, og því leitaði ég umsagna sérfræðinga í Kanada og Alaska um tvö atriði: (1) Hvers vegna fyrirfinnst moskítóflugan ekki á Islandi? og (2) Eru ein- hverjar augljósar ástæður fyrir því, að þetta skordýr geti ekki þrifist á íslandi, berist það þang- að? Svör við fyrri spurningunni voru ótvíræð: Einangrun landsins myndi án efa vera skýring þess, að moskítóur hefðu enn ekki borist til landsins. Varðandi seinni spurninguna yrði ekki komið auga á neina augljósa ástæðu fyrir því, að þetta skordýr geti ekki þrifist á íslandi. Jafnframt töldu umrædd- ir vísindamenn æskilegt að ráða sérfræðing til að kanna þessi mál nánar, sérstaklega með hliðsjón af Björn Jóhannesson aðgerðum til varnar því að flugan bærist til landsins. Umsagnir hinna erlendu sérfræðinga sendi ég að sjálfsögðu til heilbrigðis- málaráðuneytisins. Með skírskotun til framan- greindra umsagna kanadískra og bandarískra sérfræðinga, varð framhaldið það, að fyrir milli- göngu og með aðstoð dr. Gunnars G. Schram, sem þá var sendiráðs- ritari fastanefndar Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, var útbúið í New York formlegt umsóknarskjal til Þróunarstofn- unarinnar, þar sem þess var farið á leit, að stofnunin kostaði og útvegaði moskítósérfræðing til að heimsækja ísland og kanna um- rædd viðfangsefni. Þetta skjal var síðan undirritað í utanríkisráðu- neytinu í Reykjavík og sent Þróunarstofnuninni. Hún útveg- aði svo skordýrafræðinginn Dr. R.A. Ellis, starfsmann Winnipeg- borgar, til íslandsferðar, og dvald- ist hann hérlendis um tveggja vikna skeið í júlí 1974. Geta má þess, að Winnipeg borg krafðist ekki launa fyrir störf Dr. Ellis í þágu íslands, og varð því kostnað- ur vegna rannsókna hans tiltölu- Iega lítill fyrir Þróunarstofnunina og enginn fyrir Island. Skýrsla Dr. Ellis um ferð hans, rannsóknir og tillögur er dagsett 21. ágúst 1974. Án þess að rekja efni hennar, sýnist ástæða til að vekja athygli á tveim atriðum: (1) Sumarveðr- átta hériendis ætti ekki að vera óhagstæð fyrir moskítóur, enda þrífast slíkar flugur í Kanada á stöðum, þar sem hitastig er lægra og stormar striðari en á íslandi. (2) Dr. Ellis gengur út frá því, að með tíðum flugsamgöngum milli Islands og annarra landa síðustu 20 árin, hafi moskítóur oftlega borist til landsins og að einhverjar þeirra hafi væntanlega orpið eggj- um í vatnspolla nálægt flugvöllum (Reykjav. flugvelli). Því þurfti að leita ástæðu fyrir því, að þetta skordýr hefur enn ekki náð fót- festu hérlendis. Sennilegustu skýringuna telur hann þessa: Á vetrum koma hér oft slík hlýviðra- skeið, að frost hverfur að mestu úr jörðu og jarðvatnshitastig verður nægilega hátt til þess að egg moskítóunnar klekjast út. Síðan drepast lirfurnar þegar frystir a ný- Við þessa skýringu er það að athuga, að annars staðar, m.a. á Suður-Grænlandi, má finna ámóta hliðstæður' um hlýinda- skeið að vetrarlagi, en eigi að síður þrífast þar moskítóur. Þessi skýring getur því ekki talist ein- hlít. I þessu sambandi mætti néfna, að á Akureyri er aðstaða fyrir moskítóklak sérlega hagstæð að sumrinu til og þar er einnig að mun staðviðrasamara og minna um hlýviðraskeið að vetrarlagi en á Suðvesturlandi. Og á Akureyri lenda stundum flugvélar frá Grænlandi. IV. Hvað gera önnur eylönd? Það eru að sjálfsögðu mörg önnur óþurftarskordýr í henni veröld en moskítóur. Sum valda sjúkdómum, önnur fjárhagslegu tjóni með því að leggjast á nytja- jurtir og búpening, og enn önnur hrjá menn og skepnur, eins og moskítóur á norðurslóðum. Það eru því eðlilega ýmis eylönd eða landsvæði sem gera ráðstafanir til að bægja frá vágestum af þessu tagi, sem enn hafa ekki tekið bólfestu á umræddum landsvæð- um. Og hér eru flugvélar með jafn-loftþrýstingi á farrýmum „hentugustu flutningatækin" fyrir hvers konar skordýr. En svo vel vill. til að auðvelt er að eyða flugum í farrýmum flugvéla með úðun eða dreifingu efna sem eru óskaðleg mönnum en banvæn fyrir flugur. Nú mun „úðun“ slíkra efna oftast framkvæmd með því að láta þau berast með loftræstikerfum flugvélanna, og verða þá farþeg- arnir ekki varir við „úðunina". En sama árangri má ná með því að fara eftir tröð vélanna með opinn þrýstibauk er dreifir eyðingarefn- inu. Veldur þetta óverulegum óþægindum fyrir farþegana rétt á meðan úðunin fer fram, eins og höfundur þessara lína hefur reynt nokkrum sinnum. í þessu sam- bandi mætti nefna sem dæmi, að engin flugvél lendir í Bandaríkj- unum frá Mið- eða Suður-Amer- íku nema að úðun eigi sér stað, og hið sama hefur, sl. 30 ár a.m.k., átt við um allar flugvélar sem lenda í Ástralíu og Nýja Sjálandi frá öðrum löndum. Úðun flugvéla kostar lítið. Árið 1976 aflaði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, þeirra upplýs- inga fyrir mig, að efnið sem færi í að úða DC 8-þotu einu sinni kostaði um $1.50. Einnig er úðunin fljótleg og einföld. V. Hvað hafa íslensk stjórnvöld aðhafst? Eftir að skýrsla Dr. Ellis barst heilbrigðismálaráðuneytinu sumarið 1974 munu íslensk stjórn- völd hafa tekið til athugunar að úða gegn moskítóum flugvélar er til landsins koma. Flugmálastjóri hefur sýnt þessu máli sérstakan áhuga og er þess búinn að hafa yfirumsjón með úðunarfram- kvæmdum, ef ákveðnar yrðu. Mér skilst og að Flugráð hafi sýnt jákvæða afstöðu í þessu sambandi. Þá má geta þess, að eftir að nefnd skýrsla kom út hefi ég safnað gögnum, eða mér hafa borist gögn, m.a. varðandi ástralskar rann- sóknir um eyðingu moskítóflugna í flugvélum svo og reglugerð Nýja Sjálands um moskító-hreinsanir í flugvélum. Þessi gögn hefi ég að sjálfsögðu sent heilbrigðismála- ráðuneytinu jafnóðum og þau bár- ust. í möppu minni sem geymir bréf og skjöl varðandi þessi mál eru nú um 90 lesmálssíður. En lokaákvörðun mun ekki hafa verið tekin um varnir gegn því að moskítóflugan berist til Íslands. A.m.k. hefur reglugerð um þetta atriði ekki séð dagsins ljós, og á meðan svo er, verður bersýnilega ekkert aðhafst í málinu. I þessu sambandi vil ég geta þess, að í bréfi til mín dags. 17. apríl 1973 lýsir Dr. Oliver, yfirmaður skor- dýrarannsóknastofnunar kanad- íska ríkisins í Ottawa, þeirri skoðun sinni, að tvímælalaust ætti að úða flugvélar er koma til íslands, ekki aðeins fra Græn- landi, heldur einnig frá Evrópu, nema að örugglega hafi verið sýnt fram á, að moskítóur geti ekki þrifist hérlendis. Að vísu hefur ekki verið skorið úr um þetta atriði, og víst væri gott til þess að vita, að moskítóur gætu ekki þrifist hér á landi. En því miður er slíku ekki til að dreifa. Hitt er jafn líklegt, að moskítóan gæti orðið að meinlegri plágu í landi opinna skurða og votra, víðáttu- mikilla heiðalanda. Og þá er spurn: Er ekki rétt og skylt, á meðan slík óvissa ríkir, að gera þær varúðarráðstafanir sem til- tækar eru til að bægja frá landinu hugsanlegri plágu af þessu tagi, ekki síst ef þetta mætti fram- kvæma án umtalsverðs kostnað- ar? Er ekki rétt að byrgja brunn- inn áður en barnið fellur í hann? Og byrgja hann, jafnvel þó að drukknunarhætta reyndist síðar meir ekki hafa verið fyrir hendi. VI. Og hvað um geitunginn? Úr því ég sting niður penna í sambandi við moskítóplágur, er ekki úr vegi að geta hins illræmda bitvargs geitungsins, sem ætla má að sé að taka sér bólfestu á íslandi. í fróðlegri grein Erlings Ólafssonar i 1. hefti Nátturufræð- ingsins 1979, getur hann þess, að í einu geitungabúi í Reykjavík hafi hann fundið um 330 flugur haustið 1978. Sumarið áður, 1977, var einnig mikið um geitunga á þess- um stað. Þar sem þessi bitkvikindi eru ágeng og hvimleið og valda stundum dauðsföllum með eitruð- um stungum, vaknar sú spurning, hvort ekki myndi tiltækilegt að útrýma geitungum í Reykjavík, á meðan útbreiðsla þeirra er mjög takmörkuð, og hvort nokkuð muni hafa verið aðhafst með skipulögð- um hætti í þessu skyni. Grunur minn er raunar sá, að um þetta atriði sér framtakssemin ámóta burðug, eða óburðug, og varðandi varnir gegn moskítóum. Þá ber að hafa það sem rétt kann að reynast í þessu sambandi. Við íslendingar kunnum lítt að meta það, hve mikils virði er að búa í landi, þar sem að kalla fyrirfinnast ekki neinir bitvargar eða eitruð skorkvikindi. Bitmýið er eina „plágan“ í þessu sambandi, að vísu alloft hvimleitt mönnum og skepnum, en sem betur fer á tiltöluiega takmörkuðum svæðum í nánd við straumvötn. Ég hefi oft nefnt það við útlendinga, þar sem moskítóur eru ásæknar, að þessi kvikindi fyrirfinnist ekki á ís- landi, og viðbragðið er ætíð hið sama: „Mikið eigið þið gott.“ Gegnir það raunar nokkurri furðu, að þess mun sárasjaldan getið í sambandi við ísland sem ferða- mannaland, að þar fyrirfinnist nánast enginn bitvargur, svo sem moskítóur og geitungar. Það er ekki lítils virði frir íbúa landsins og framtíðarkynslóðir þess, svo og fyrir þá gesti sem sækja landið heim, að því verði haldið „hreinu" í þessu tilliti. Með sofandahætti og aðgerðarleysi um varnaðarráð- stafanir gegn innflutningi hvers konar bitvargs, bregðast heil- brigðisyfirvöld landsins þeirri al- mennu skyldu að vaka á verðinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.