Morgunblaðið - 19.12.1980, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980
45
Ógn og skelfing
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson:
GÁLGAFRESTUR
Ljóð. 80 bls. Fjölvi.
Sú var tíðin að allar ljóðabaekur
voru eins og skrifaðar úr gröfum
ungra gáfumenna. Þær voru fullar
af myrkri, dauða og annari ógn og
skelfing, sem ungir menn gátu
tæplega hafa kynnst annars stað-
ar. Ég hélt að þetta væri liðin tíð,
enda flest þau skáld sem ortu
svona hætt því og komin í tölu
lifenda á ný, reynslunni ríkari að
sjálfsögðu. En svo er ekki. Enn
liggja ungir menn í skáldlegum
líkkistum og krota ljóð í lokið.
Einu þeirra er Aðalsteinn Ásberg.
Gálgafrestur er þriðja ljóðabók
Aðalsteins á aðeins fjórum árum
og í fyrra sendi hann frá sér
skáldsöguna „Ferð undir fjögur
augu“. Það má því ljóst vera að
höfundi liggur mikið á hjarta. Það
er gott. Til eru þeir sem bara
skrifa og skrifa, að því er virðist
af gömlum vana, en eru löngu
búnir að tæma hug sinn, þótt
blekið haldi áfram að streyma. Því
er að mínu áliti alls ekki þannig
varið með Aðalstein Ásberg. Hann
á enn margt ósagt. Hins vegar
finnst mér hann nota allt of mörg
og myrk orð til að koma hugsun-
um sínum áleiðis.
Ég veit ekki hvað eru mörg ljóð
í þessari bók, en mér finnst þau of
mörg. Og einatt of löng. Ég nefni
sem dæmi ljóðið „Óbreytt ástand",
sem hefst svona:
Því erum við
ekki ein
undir sólinni?
Ekkert svar.
bví erum við
ekki tvö
undir NÓlinni?
Sama svar.
Þetta fannst mér bráðsnjallt, en
svo fletti ég yfir á næstu síðu og sá
þar framhald af ljóðinu, undar-
legar vangaveltur um samkennd,
undantekningu og reglu.
Eins fór fyrir mér við lestur
ýmissa annarra ljóða í bókinni.
Mér þóttu hlutar þeirra góðir, en
aðrir hlutar bara vera fyrir. Sums
staðar rakst ég á setningar sem ég
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Bókmenntir
eftir SVEINBJÖRN
I. BALDVINSSON
gat ómögulega fengið botn í. Það
er kannski sérviska, en mér þykja
slíkar setningar einungis til
óprýði á pappír sem og í tali
manna, og bera vott um ónóga
sjálfsgagnrýni.
t tvihverfum loga
ris timinn
i hring o* vegur
(hitund okkar
(„Hver veit?“)
Hvað þetta þýðir á íslensku er
mér hulin ráðgáta. Þar fyrir utan
er löngu búið að yrkja Tímann og
vatnið.
Að lokum langar mig að nefna
nokkur ljóð úr bókinni, sem mér
þóttu góð. Þau voru m.a.: Barnsvit,
Úr hörðustu átt, Draumur hins
einlæga byltingarmanns og Löng-
un.
Ég held að nú væri heillaráð hjá
Aðalsteini að hugsa ráð sitt um
hríð en rísa síðan upp að nýju
tvíefldur. Hérna megin hinnar
skáldlegu grafar.
Sígild ævintýri
Fimm Grimms ævintýri.
Teikningar eftir Sven Otto S.
Þorsteinn frá Ilamri íslenskaði.
IÐUNN Reykjavík 1980
Hér eru nokkur ævintýri hinna
þýsku prófessora og bræðra Jak-
obs og Wilhelms Grimms komin
út í nýrri þýðingu.
Hinar ævafornu sögur sem
skráðar eru meðal öndvegisverka
þýskra bókmennta fanga hugi
lesenda enn í dag víða um heim.
Fyrstu ævintýrin komu út í
Þýskalandi 1812—1814.
Bræðurnir Jakob (f. 1785) og
Wilhelm (f. 1786) námu báðir
lögfræði. Báðir urðu þeir málvís-
indamenn og bókaverðir um tíma í
Kassel. Seinna kenndu þeir við
háskólann í Berlín. Samvinna
þeirra bræðra í vísindalegum
rannsóknum á þjóðtrúar bók-
menntum var umfangsmikil og
alla tíð mjög náin.
Ævintýrasafn þeirra er þekkt
og þýtt um víða veröld. Og hinn
rauði þráður þessara þjóðsagna er
svo ekta að enn í dag er hann
jafnskír í hug lesandans.
Bókmenntlr
eftir JENNU
JENSDÓTTUR
Ævintýrin fimm, sem hér koma
út eru þessi: Mjallhvít, Úlfurinn
og kiðlingarnir sjö, Brimborgar-
söngvararnir, Stígvélaði kötturinn
og Þumalingur.
Þýðing Þorsteins frá Hamri er
snilldarlega gerð. Það eykur gildi
bókarinnar að ævintýri sem betur
má telja við hæfi yngri lesend-
anna eru með stærra letri.
Frábærar eru myndir Sven Otto
S. Enda hefur listamaðurinn hlot-
ið H.C. Andersen-verðlaunin
(1978) fyrir myndskreytingar sín-
ar. Þarna er um að ræða sígild
verk, unnin á hin vandaðasta hátt
í hvívetna. Og því eiguleg hverjum
ungum lesanda, sem vandur er að
vali bóka.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AúfiLVSINftA-
SIMINN ER:
22480
LETTREYKT LAMBAKJÖT
London lamb
Úrbeinað
lambahamborgarlæri
Úrbeinaður
lambahamborgarhryggur
Heill
lambahamborgarhryggur
SVINAKJÖT
Nýr úrbeinaður svinabógur
Reyktur úrbeinaður svínabógur
Nýr úrbeinaður svínahnakki
Reyktur úrbeinaður svínahnakki
Ný úrbeinuð svínalæri
Reykt úrbeinaö svínalæri
Svínakótilettur
Reyktur úrbeinaður svínahryggur
NYTT
LAMBAKJÖT
Úrbeinað lambalæri fyllt meö
ávöxtum
Úrbeinaður lambaframpartur fylltur
rneð ávöxtum
Úrbeinaður lambahryggur fylltur
meö ávöxtum
Urbeinaö lambalæri
Úrbeinaður lambahryggur
Úrbeinaður lambaframpartur
JÓLAHANGIKJÖTIÐ
Úrbeinuö hangilæri
Niöursöguö hangilæri
Úrbeinaöir hangiframpartar
Niöursagaöir hangiframpartar
Unghænur — Kjúklingar
Aligæsir
Vöruraarkaöurinn hf.
Armúla 1 A, sími 86111.