Morgunblaðið - 19.12.1980, Page 14

Morgunblaðið - 19.12.1980, Page 14
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 Fróðleg bók um þjálf un knapa og hesta ÚTGÁFUFÉLAGIÐ Eiðfaxi hef- ur nú haslað sér völl á nýju sviði ojí sent frá sér sina fyrstu bók. Er það bókin Á hesthaki. þjálfun knapa og hests eftir Eyjólf ís- ólfsson. Þetta er ekki stór bók að blaðsíðutali en einstaklega hnit- miðuð, ok þar er fróðleikur fal- inn í nánast hverri setningu. bá er b<)kin smekklejja uppsett oj? mikill fjöldi skýrinjfarmynda, jafnt Ijósmynda sem teikninga. eykur verulega á jfildi bókarinn- ar. Eins og undirtitill- bókarinnar gefur til kynna er í bókinni fjallað um þjálfun knapa og hests auk skyldra hluta eins og reiðtygi, og má raunar segja að efni bókarinn- ar taki við, þegar frumtamningu hestsins sleppir. Efninu skipar Eyjólfur í fimm meginkafla: Stjórnun hestsins, Reiðtygi, Hlýðniæfingar, Taumhringurinn og Gangtegundir og þjálfun þeirra. Bókin ,er alls nær 120 blaðsíður og í henni eru 111 skýringarmyndir. Teikningar í bókinni hefur Pétur Behrens unn- ið en stór hluti ljósmynda í bókinni var sérstaklega tekinn vegna útgáfu hennar og er Freyja Hilmarsdóttir knapi á þeim mynd- um. Eyjólfur ísólfsson hefur á síð- ustu árum getið sér góðs orðs meðal hestamanna sem laginn tamningamaður, knapi og reið- kennari. Strax er hann var við nám í Bændaskólanum að Hólum í Hjaltadal vakti hann athygli fyrir frammistöðu sína við tamningar og vann þar meðal annars Morg- unblaðsskeifuna. Upp frá því hef- ur Eyjólfur starfað við tamningar víða um land og sinnt þjálfun og keppni á sýningarhrossum. Flest munum við sjálfsagt eftir glæsi- legum árangri hans á klárhestin- um Hlyni frá Akureyri á Lands- mótinu á Þingvöllum 1978. Þá hefur í vaxandi mæli verið leitað til Eyjólfs varðandi reiðkennslu og þar hafa ekki bara íslenskir hesta- menn sóst eftir leiðsögn hans, heldur hafa eigendur íslenskra SEM kunnugt er gaf íslenska þjóðin Margréti Danadrottningu og manni hennar. Hinrik prins, tvær islenskar hryssur ásamt reiðtygjum í brúðargjöf árið 1967. Voru þetta jörp hryssa. Stjarna frá Sauðárkróki, og Ijós hryssa. Perla frá Markholti i Mosfellssveit. Af hryssunum er það að segja, að Perla var lengst af hjá Gunnari Jónssyni í Steinholti og átti þar nokkur folöld, en fyrir tveimur árum drapst hún úr lifrarsjúk- dómi. Perla var hins vegar í konungsgarði og var meðal annars notuð af sonum Margrétar og Hinriks. I sumar var Perla seld konu, sem býr skammt frá Kaup- mannahöfn og mun konan hafa áhuga fyrir að fá folald undan Perlu, en Perla hefur nokkrum sinnum verið leidd undir stóðhest ytra en ekki fengið fang. Perla er J EYJOLFUS ISOtFSSON AHEST- BAKI þjálfun knapaoghests hesta á Norðurlöndunum einnig fengið hann til kennslu þar. Eyjólfur hefur því verið virkur þátttakandi í þeirri miklu breyt- ingu, sem orðið hefur í hesta- mennskunni hér á landi á síðasta áratug. Aukin kynni okkar af erlendum hestamönnum og að- ferðum þeirra, hafa borið hingað nýjar hugmyndir, sem kallað hafa á breytingar. Breytingar, sem þurft hefur að aðlaga hinum sígilda íslenska reiðskóla, er bygg- ir á gamalli hefð um meðferð og þjálfun íslenska hestsins. Auðvit- að hafa „gömlu mennirnir" ekki alltaf verið tilbúnir til að kyngja öllu, sem fengið hefur verið að láni erlendis frá. Stoltið hefur verið ríkt í hestamönnum og sumir jafnvel talið að hestamennskan væri mönnum annað hvort í blóð borin eða ekki. Það yrði ekki lært á skólabekk að sitja hest. Vissu- lega eru orð Theodórs Arnbjörns- sonar í bókinni Hestar, um að vilji menn verða góðir reiðmenn, þurfi þeir að kynnast mörgum og ólík- um hestum, enn í fullu gildi. Samt sem áður held ég að við getum öll verið sammála um að margvíslega leiðsögn megi í þessu efni sem öðru fá af bókum. En það eru ekki bara breyt- ingar, sem rekja má til erlendra nú 19 vetra. Það var tillaga Ásgeirs Ás- geirssonar, þáverandi forseta, að gefa brúðhjónunum tygjaða gæð- inga, þar sem það væri skemmti- legt og forn venja, að gefa erlend- um höfingjum íslenska gæðinga, þegar vel skyldi gefa. Gunnar Bjarnason, ráðunautur, annaðist um kaup á hryssunum og voru þær keyptar á 50 þúsund krónur hvor. Stjarna var keypt af Jóni Jónas- syni á Sauðárkróki en Perla af Pétri Hjálmssyni í Mosfellssveit. I sumar var Pétur á ferð í Dan- mörku og skoðaði Perlu þá hjá hinum nýja eiganda skammt fyrir ^utan Kaupmannahöfn. Ekki er vitað hvers vegna Dana- drottning og maður hennar brugðu á það ráð að selja brúðargjöfina og svo er að heyra á DÖnum að þeir vilji sem minnst um þessa sölu ræða. áhrifa, er gera kröfu um aukið fræðsluefni um hestamennsku. Það er liðin tíð að nánast hvert ungmenni alist upp að meira eða minna leyti á hestbaki og skynji því þegar í barnæsku eðli og eiginleika hestsins. Hraðinn er líka meiri og fólk gerir kröfu til þess að tamning og þjálfun skili sér fyrr en áður í kostum hest- anna. Allt sameinast þetta í kröf- unni um aukna tækni og skipu- lagningu, ef svo má að orði komast. Sú krafa hefur ekki síst sett mark sitt á þær breytingar, sem gerðar hafa verið á mótahaldi hestamanna á síðustu árum. Það hefur því verið verkefni þeirra manna, sem staðið hafa í forystu hvað varðar tamningar hrossa og reiðkennslu á síðustu árum að leita leiða til að mæta þessum nýju þörfum. Slíkt hefur einmitt verið verkefni Eyjólfs Isólfssonar og árangurinn af því fáum við nú að sjá í bók hans Á hestbaki. Eyjólfur tekur fram í inngangi bókarinnar, að hún sé byggð á reynslu hans við tamn- ingar og reiðkennslu og orðrétt segir hann: „Aðferðirnar, sem lýst er, eru þær sem best hafa reynst, margar þeirra eru byggðar á gamalli hefð innlendri og erlendri og sumar á persónulegu áliti. Marga hluti þarf að rannsaka betur og í sumum tilfellum er um ósannaðar kenningar að ræða, en sem þó hafa gefið jákvæða svörun við margendurteknar prófanir." Ekki verður hér kveðinn upp neinn endanlegur dómur um þær þjálfunaraðferðir, sem Eyjólfur mælir með en margt af þeim eru áður kunnir hlutir. En það má taka undir með Eyjólfi, þegar hann segir í inngangi bókarinnar, að ekki sé hægt að leggja nægilega áherslu á hvað hestarnir séu ólíkir og aðferðirnar margar. Og kannski eru tilbrigði aðferðanna jafn mörg og hestarnir. Ég held líka að það sé hollt fyrir alla þá sem lesa þessa bók að hafa þau orð Eyjólfs hugföst, að lesa hana með því hugarfari að reyna fyrst og fella síðan dóm. Hversu mikla hestamenn, sem menn kunna að telja sig, ættu allar leiðbeiningar að vera vel þegnar og lengi má gott bæta. í fyrsta kafla bókarinnar er fjallað um stjórnun hestsins og er þar hver þáttur tekinn fyrir sér- staklega, svo sem áseta, fætur, hendur, röddin og samhæfing allra þessara þátta og skyldir hlutir. Reiðtygi eru viðfangsefni næsta kafla og er ekki að efa að ýmsar ábendingar Eyjólfs þar verða mönnum tilefni til þess að yfirfara reiðtygi sín og gæta að hvort réttir hlutir séu notaðir hverju sinni. Þá er þarna fróðleg- ur þáttur um tungubasl, sem oft veldur hestamönnum erfiðleikum. Sérstakur kafli er um hlýðniæf- ingar en Eyjólfur bendir þar í upphafi á að nafngiftin hlýðniæf- ingargefi ekki að fullu rétta mynd af því hvað um sé að ræða. Með þessum æfingum sé jafnframt hlýðniæfingum unnið að skipu- legri uppbyggingu á vöðvakerfi og jafnvægi hestsins. Bendir Eyjólfur á að orðið fimiþjálfun sé á margan hátt heppilegra. Víst er að fyrir sumum hestamönnum hafa þessar hlýðniæfingar verið sem nokkurs konar „jass-ballett“ og jafnvel verið talað um þær sem tískufyrir- brigði. En við lestur á bók Eyjólfs kemur glögglega í ljós að með skipulegri æfingu og ákveðnu kerfi eins og hlýðniæfingarnar byggja á, má í mörgu ná góðum árangri við þjálfun hrossa. Eyjólf- ur bendir gjarnan á í hvaða tilvikum notkun á tamningagerði geti hjálpað mönnum. Við verðum þó auðvitað að hafa það hugfast að stærstur hluti af þjálfun hrossa hjá hinum almenna hestamanni fer fram í venjulegum útreiðartúr- um. Það verður líka ekki sagt um Eyjólf, að í þessari bók ástundi hann eingöngu „gerðisreið". Stuttur kafli er um það sem Þessi mynd var tekin af Perlu í sumar. Sonur Péturs Iljálmssonar. Hjálmur. situr hryssuna en Ómar Sverrisson heldur i hana. Danadrottning seldi brúðargjöf ina Eyjólfur ísólfsson LjÓ8m. Mbl. Kriatján. nefnt er taumhringurinn. Er þá hesturinn látinn hlaupa í löngum taum umhverfis þjálfarann. Þjálf- un í taumhring mætti örugglega vera meiri heldur en nú tíðkast og Eyjólfur bendir einmitt á hvar hún geti komið að gagni. Síðasti kafli bókarinnar ber heitið Gangtegundir og þjálfun þeirra. Þar er hver gangtegund tekin fyrir og afbrigði hennar, og sérstaklega er fjallað um þjálfun og notkun hennar. Þessi kafli á það sammerkt með þeim fyrsta um stjórnun hestsins, að þarna er kominn saman mikill fróðleikur, sem ekki verður numinn við einn yfirlestur. Hér þarf hver að þreifa sig áfram minnugur orða Eyjólfs um, að kannski séu tilbrigði að- ferðanna jafn mörg og hestarnir. En hversu breytilegir, sem knapar og hestar kunna að vera, gefa leiðbeiningar Eyjólfs hverjum knapa gott vegarnesti, og það er ótrúlega mörgum spurningum svarað, sé grannt skoðað. í lok síðasta kaflans fjallar Hestar Umsjóni Tryggvi Gunnarsson Eyjólfur um jafnvægisjárningar, ágrip og notkun hlífa. Á síðustu árum hafa jafnvægisjárningar og notkun hófhlífa mjög rutt sér til rúms en því miður hefur notkun þeirra of oft verið í öðrum tilgangi en að bæta og hlífa hestinum. Mörg dæmi hafa sést, einkum á mótum, um að knapar neiti allra ráða til að þyngja fætur hesta sinna til að kalla fram ýktan fótaburð. Auðvitað getur búnaður sem þessi átt fullan rétt á sér, en Eyjólfur leggur réttilega áherslu á að menn verði að fara að með gát í þessu efni. Þær leiðbeiningar, sem fram koma hjá Eyjólfi ættu líka að auðvelda mönnum að nota þessa hluti rétt, sé það á annað borð vilji þeirra. Bókin Á hestbaki er ekki skemmtibók heldur vandað fræðslu- og leiðbeiningarrit. Höf- undinum hefur tekist að koma efninu frá sér á skýran og skorin- orðan hátt. Orðfæri er frekar þurrt en gott, þó á stöku stað megi gera athugasemdir við val á hug- taksheitum. Slík heiti þurfa ekki að vera röng eða gefa villandi mynd af því sem við er átt, heldur hitt að ástæða getur verið til að staldra við, þegar valin eru hugtök af þessu tagi, sem kannski eiga eftir að festast í málinu. Ég nefni hér aðeins hujjtök eins og „höml- un“, „styttingur" og „flandur". Sá háttur að skipta efni bókarinnar niður í marga smærri þætti með millifyrirsögnum ásamt góðu efn- isyfirliti skapar bókinni aukið gildi, þar sem fletta má upp í henni með skjótum hætti sé verið að leita að upplýsingum um ein- stök atriði. Fyrr var minnst á gildi skýringarmyndanna. Það er sannarlega ástæða til að óska Eyjólfi Isólfssyni og þeim Eiðfaxamönnum til hamingju með þessa bók. Hér hefur þarft og gott verk verið unnið og er vonandi að framhald verði á bókaútgáfu af þessu tagi. Bók Theodórs Arn- björnssonar, Hestar, hefur löng- um verið „biblía“ hestamanna og verður það sjálfsagt áfram, þó ýmislegt sé nú breytt. Á síðustu árum hafa komið út fræðslurit um hestamennsku eins og Hesturinn minn og Sprett úr spori. Hesta- menn hafa því aðgang að tölu- verðu fræðsluefni í bókum en með bókinni Á hestbaki hefur verið farið út á nýja braut. Þarna hefur ákveðnu sviði verið gerð ítarleg skil og sjálfsagt verður haldið áfram á þeirri braut, og vonandi fáum við brátt að sjá bækur t.d. um frumtamningu, fóðrun, hirð- ingu og járningar. — t.g. Annað bindi af Ætt- bók og sögu íslenska hestsins að koma út í DESEMBER kemur út hjá Bókaforlagi Odds Bjornssonar hf. á Akureyri annað bindi af riti Gunnars Bjarnasonar, fyrrver- andi hrossaræktarráðunauts „Ættbók og saga islenska hests- ins á 20. öld“. Alls er ráðgert að bindin verði þrjú og kemur það þriðja út á næsta ári. öll verða bindin í sama broti en annað bindið er um 400 blaðsiður og i þvi eru 400 myndir. Gert er ráð fyrir að annað bindið kosti með söluskatti rúmar 54.000 kr. Annað bindið hefur að geyma ættbók fyrir hryssur frá aldamót- um til 1970 á svæðinu frá og með Borgarfirði vestur og norðurum og endað er á eyfirsku hryssunum. Þá heldur Gunnar áfram að rekja þætti úr starfssögu sinni sem hrossaræktarráðunautur og öðr- um störfum sínum í þágu íslenska hestsins. . I þriðja bindinu verður síðari hluti ættbókarinnar fyrir hryssur á svæðinu frá Þingeyjar- sýslu suðurum til Kjósarsýslu. Kappreiðar: Lágmarksaldur knapa 13 ár ÁRSÞING Landssambands hesta- mannafélaga. scm haldið var um mánaðamótin október — nóv- embcr á Húsavik. samþykkti að knapar kappreiðahrossa þurfi framvegis að vera orðnir 13 ára eða verði það á því ári, sem þeir keppa. Sem kunnugt er höfðu ársþing áður samþykkt að fella niður ákvæði um lágmarksþyngd, sem hafði í för með sér að mjög ungir knapar voru farnir að sitja hross á kappreiðum. Jafnframt mega unglingar innan 16 ára aldurs ekki sitja hest á kappreiðum nema fyrir liggi sam- þykki foreldra eða forráðamanna þeirra á þar til gerðum eyðublöð- um, sem skrifstofa L.H. lætur í té.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.