Morgunblaðið - 19.12.1980, Side 16

Morgunblaðið - 19.12.1980, Side 16
48 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 Séð yflr hluta Betlehem. Það var fimmtudagsmorguninn 4. sept. 1980, sem við lögðum af stað til að kynnast Landinu helga, sem við lærðum heima í sveitum Isiands að kalla Kanaanland, kennt við Kanaan Kamsson, son- arson Nóa. En fyrsta bölbæn biblíunnar eru einmitt orð, sem Nói þylur í drykkjuæði yfir þessum afadreng sínum. Þetta land átti nú samt að fljóta í mjólk og hunangi og verða eftirsótt af mörgum ættflokkum og þjóðum. En sökum einhverra leyndardómsfullra örlaga virðist öldum saman hafa ríkt þar ófriður og átök haturs og ástar, lífs og dauða. Samt hefur það verið elskað, dáð og þráð heitast allra landa og síðast í fyrra, árið 1979, söng allur heimurinn Milk and Honey og hugsaði til Israels, sem átti þar eitt af öllum sínum heimsmetum. Blessun og bölvun virðast sífellt heyja sín hjaðningavíg á Efra- imfjöllum og Saronsléttum, þar sem börn Israels, afkomendur Abrahams, hafa nú gert garðinn frægan í mörg þúsund ár. Og hvort sem þetta fólk átti þar aðsetur eða var Gyðingurinn gangandi, landflótta um allar álf- ur og lönd, var heimalandið bless- að og þráð að síðasta bænarhvísli deyjandi vara í fjöldamorðum fyrir hönd framandi þjóða í fræg- ustu ofsóknum og djöfulæði mannkynssögunnar. Nú skyldi lit- azt um í þessu landi og haldið fyrst til Hebron. En það er ein af elztu borgum heims og enn þá talin meðal hinna fegurstu, þótt ekki sé hún stór né fjölmenn á mælikvarða 20. aldar. Umkringd víngörðum og olívu- lundum á hún næstum eins merki- lega sögu og sjálf Jerúsalem, að minnsta kosti á mælikvarða biblí- unnar og trúarsögunnar. En heilög Ritning segir hana stofnaða af börnum Anaks, það er risans, sjö árum fyrr en Izoan í Egyptalandi eða um 1730 f. Kr. En fornminjafræðingar og jarðfræð- ingar hafa sýnt fram á að þarna var stunduð jarðrækt og lifað í skipulögðu samfélagi að minnsta kosti 1500 árum fyrr. Aldur Hebronborgar gæti því verið 4000-5000 ár. En saga hennar hefst með komu sérstakrar fjölskyldu, sem þangað barst austan frá Ur í Kaldeu, í suður frá Babylon, en kom samt ekki beint þaðan, heldur frá Eg- yptalandi til Hebron. - *uir vui u nin sögufrægu hjón Abraham og Sara, sem raun- ar voru systkini, hálfsystkini, og hafði Abraham lánað hana sem systur sína tveim mönnum, sem urðu ástfangnir af henni á leiðinni og bjargaði þar með sínu fólki úr bráðri hættu. En í Mamrelundi í Hebron gerðist sjálfur Jahve gestur hans ásamt tveim englum, svo að nú fór að birta til á brautum þessara hjóna, sem enn höfðu engin börn eignazt, en voru hnigin á efra aldur og örvæntu um niðja til að byggja landið. Samt hafði Sara leitt ambáttina Hagar, sem þau eignuðust í Eg- yptalandi, er þau höfðu verið í tíu ár í Kanaan, inn í tjald Abrahams eiginmanns síns og bróður, og skipað honum að samrekkja henni í von um son. Þetta áform heppn- aðist og Hagar eignaðist soninn Ismael. Það bætti samt lítt úr skák með samlyndið á heimilinu. En nú voru þau í Hebron og áttu að gesti Guð sjálfan. Og hann var einmitt að hvisla því svo hátt að Abraham, eftir góðar viðtökur þar sem Sara bar úrvalskökur á borð, að hún mundi eignast son að ári. Söru fannst nú spádómurinn ekki trúlegri en það. að hAn með sjálfri sér. En auðvitað lét Guð ekki að sér hæða. Hún eignaðist son á næsta ári. Og lét hann heita ísak, sem ku þýða hlátur eða gleði í Guði. Þarna voru þá fæddir bræðurn- ir, sem urðu að dómi sögunnar ættfeður þeirra, sem enn byggja landið. Ismael, ambáttarsonurinn, ættfaðir Araba. Isak, sonur eigin- konu og systur, ættfaðir ísraels, líklega frægustu þjóðar heims fram á þennan dag. Ekki bætti samt fæðing Isaks um samlyndið á heimiii Söru og Abrahams. Hagar var hrakin út í eyðimörkina með sinn son, meira að segja gegn vilja föðurins, Abra- hams. Og svo furðulegt sem það má þykja er þessi forna saga upphafs- ins enn í fullu gildi um sambúð þjóðanna, sem þó telja feðurna sem eiga grafreit og helgistað í Hebron: Arabanna afkomendur Ismaels og Israelsmanna niðja Isaks. Þar virðast þúsund ár sem einn dagur og einn dagur sem þúsund ár. Það er eins og fortíð og nútíð fallist þarna í faðma og verði vart aðgreindar, hvað sem framtíðin kann að færa. I moskunni fögru, sem nú stend- ur yfir Makpelahelli, sem Abra- ham keypti af Efron Hetíta fyrir 400 sikla silfurs til grafreits handa Söru, ásamt eigninni þar umhverfis gegnt lundinum Mamre og öllum trjánum, er nú helgidóm- ur Araba. Einmitt þannig eignað- ist ísrael fyrst jarðnæði í þessu landi. Gröf Söru varð hornsteinn landnámsins í upphafi. Þar hlutu þau öll legstað, sem fyrst settust að í landinu: Sara og Abraham, ísak og Rebekka, Jakob og Lea. Og svo bætir moslemsk arfsögn því við að Nói sé einnig þar grafinn. Ég held við höfum einmitt öll fundið, hve tími og eilífð verða eitt innan musterisveggja í Hebron, þar sem við áttum að sýna lotningu gagn- vart aldanna föður, með því að byrgja höfuð og ásjónu á tákn- legan hátt, með því að breiða að minnsta kosti vasaklút yfir höfuð- ið, og virðingu gagnvart helgidómi feðranna með því að draga öll skó af fótum áður en inn var gengið. Hebron er einnig helgistaður gestrisninnar, sem einkennir Arabaþjóðir að sögn og er frum- þáttur hins heilaga altarissakra- mentis, þir sém bræðralagshug- sjón og friður helga hvern bita og sopa til sameiningar, þakklætis og kærleika. Á þessum stað, hinum heilaga Mamrelundi og Makpelahellinum leyndardómsfuila, hafa kynslóð- irnar dýrkað Guð sinn um þúsund- ir ára. Þar mætast hin miklu trúarbrögð þrenn á hinn helgasta hátt. Hjartastaður Hebron er hinn frægi helgidómur: Haram al Khaleel — helgiskrín friðarins, sem á að vera nákvæmlega yfir Makpelahelli. Það er tignarleg bygging, sem setur svip á allt umhverfið. Grunnur núverandi húss er lagður af sjálfum Herodesi mikla, sem einmitt lét gera í Hebron þennan helgidóm á sama tíma og í svipuðum stíl og musterið mikla í Jerúsalem. Bygging þessi var gjörð úr stórum ferköntuðum steinum, sem nefndust ashlars. Á þessum sama grunni var síðar reist moska á sjöundu öld. En henni var breytt í kirkju á kross- ferðatímabilinu. Henni var svo breytt af Mamel- úkkum, sem voru herveldi í lönd- um Múslima, og þeir reistu þarna það musteri, sem nú gnæfir í Hebron og takmörkuðu Gyðingum aðgang að þessum helgistað, sem þeir höfðu átt síðan á dögum Abrahams. Þeir máttu nú aðeins ganga fimm skref inn í hellinn, þar sem gröf Abrahams er ginn- helgust. Samt munu fáir eða enginn helgistaður í heimi, sem telst sameiginlegri helgidómur Gyðing- um, kristnum og múslimum en þessi hugsjónareitur hins himn- eska friðar í Hebron. Þangað hópast ennþá pílagrím- ar úr öllum heiminum, og hygg ég flestum farast líkt og okkur, að finna þar uppsprettulindir þess krafts og í þögn og helgi, sem tengja fortíð og nútíð framtíðar- hugsjónum bræðralags á jörðu. Vonandi eiga margir þá bæn heitasta í Mamrelundi og Makpelahelli nútímans í Hebron, að loks megi verða heimilisfriður í fjölskyldu Abrahams og börn ambáttarinnar og eiginkonunnar taki höndum saman. Þessi bæn fær uppfyllingu fet fyrir fet. Og árið 1967 voru afnumin lögin. sem takmörkuðu Gyðingum aðgang að gröf Abrahams í Haram al Khal- eel og þar og aðeins þar má nú sjá Israel og múhameðstrúarmenn krjúpa saman í tilbeiðslu, þar sem forfaðir þeirra Abraham var lagð- ur til hinstu hvílu. Frægasti konungur Isráels átti Hebron að konungssetri fyrstu sjö ár ríkisstjórnar sinnar. Það var Davíð ísaisson ættaður frá Betlehem og fæddur þar. En þar fæddist einmitt sjálfur meist- arinn Jesús Kristur, eins og flestir munu vita í hinum svokölluðu kristnu löndum fram á þennan dag. Það var því einmitt til Betle- hem, sem ferð okkar var heitið frá helgidómum hins eilífa friðar og gestrisni, þar sem Sara og Abra- ham höfðu átt sjálfan Guð við sitt veizluborð. En við veginn þangað er Rakel kona Jakobs greftruð. En til Betlehem átti móðir Jesú, María frá Nazaret, einmitt að fara til skrásetningar í manntalinu fræga, sem Ágústus keisari Róm- verja lét gera á ríkisstjórnarárum Herodesar mikla í Gyðingalandi. En hann var þar konungur, þegar Kristur fæddist og ríkti í 32 ár. Frægur fyrir fagrar byggingar, barnamorð og manndráp yfirleitt, jafnvel banamaður barna sinna og ástvina. Á leiðinni til Betlehem var hann sérstaklega á dagskrá. Þess vegna var gengið á fjall eitt eða hæð, Herodion, en það hafði hann látið útbúa sem óvinnandi virki sér til handa og jafnvel grafstæði. Hvernig hægt var að útbúa slíkt aðsetur með múrum og mann- virkjum. meira að segjo sur^jl-ug, uppi á fjallstindi á þeim dögum áður en vélarnar fæddust, er gjörsamlega óskiljanlegt fyrir nútimafólk. Þessi Herodes mikli var ekki Gyðingur, heldur Edomíti, kominn af Esaú, tvíburabróður Jakobs ættföður ísraels, en virðist að öllu leyti hafa tileinkað sér Gyð- ingatrú, spádóma þeirra og hug- sjónir, sem bezt sýndi sig við musterisbygginguna í Jerúsalem. en þar og jafnvel í Hebron og víðar virðist hann beinlínis hafa Israel í samkeppnisaðstöðu við sjálfa Rómverja og sjálfan sig aðalkeppinaut keisarans þar um áratugi. Samt verður saga hans fyrst og fremst tengd musterisbyggingu,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.