Morgunblaðið - 19.12.1980, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.12.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 51 ísland á 18. öld er listaverkabók með gömlum Islandsmyndum. Þær eru allar úr tveimur vísinda- leiðöngrum sem hingað voru farnir frá Bretlandi á 18. öld — leiðangri Banks 1772 og leiðangri Stanleys 1789. Flestar þessara mynda eru nú í fyrsta sinn prentaðar beint eftir frummyndunum. Sumar hafa aldrei birzt áður í neinni bók. Þessar gömlu íslandsmyndir eru merkileg listaverk. En þær eru einnig ómetanlegar heimildir um löngu horfna tíð, sem rís ljóslifandi upp af síðum bókarinnar. kynntust honum gleymist hann aldrei, því að slíkur persónuleiki var hann. Við vinir hans minn- umst hans sem einlægs vinar sem við söknum. Þungbæran söknuð eiginkonu, dætra, tengdasonar, dóttursona og systkina getum við lítt létt, nema með því að tjá þeim samúð og virðingu okkar á Björgvini Torfa- syni og þakka honum vináttu og lífsstarf. Þorsteinn Einarsson. Þótt við vitum öll að kallið getur komið á hverri stundu, stöndum við jafnan ráðþrota við skyndilegt fráfall vina og vandamanna, jafn- vel þó að ungdómsárin séu að baki. Vissulega kom andlát Rjörgvins Torfasonar okkur vinum hans á óvart, enda þótt við vissum að hann hafði átt við alvarleg veik- indi að stríða síðustu mánuði, en mönnum er það gefið að halda í vonina og hún veitir okkur styrk þegar á bjátar. Björgvin veikist að áiiðnu sumri og andaðist í Land- spítalanum þ. 11. desember sl. Hann var fæddur þ. 7. ágúst 1925 í Vestmannaeyjum. Foreldr- ar hans voru hjónin Torfi Einars- son formaður og útgerðarmaður þar, ættaður frá Varmahlíð undir Eyjafjöllum, og kona hans Katrín Ólafsdóttir frá Lækjarbakka í Mýrdal. Auk Björgvins áttu þau hjón þrjú börn: Ásu starfandi hjá SIBS og Einar tollvörð, sem bæði eiga heima í Reykjavík, svo og Þórarin stýrimann, sem búsettur er í Vestmannaeyjum. Björgvin missti móður sína, þegar hann var fjögurra ára gamall og ólst hann upp hjá föður sínum og systkinum í Eyjum og bjó fjölskyldan lengst í húsinu Áshól við Faxastíg og var Björgvin jafnan kenndur við það hús. Þegar Björgvin stálpaðist dvaldi hann oft á sumrin í sveit á fastalandinu eins og algengt var í þá daga, en sat á skólabekk á veturna. Að loknu barnaskóla- námi fór hann í Verzlunarskóla Islands og lauk hann þaðan stúd- entsprófi vorið 1948. Fljótlega að loknu námi gerðist Björgvin starfsmaður hjá Olíufélaginu Skeljungi hf. og vann þar í 18 ár, en hóf þá störf hjá Síldarútvegs- nefnd og vann þar til dauðadags. Ennfremur var hann starfsmaður Loðnunefndar fyrstu árin eftir stofnun hennar og síðar í Loðnu- nefnd. Var þessi starfsvettvangur mjög við hæfi Björgvins, því að sjósókn og sjávarútvegur áttu hug hans allan. Hann var afar fróður um allt, sem að útvegsmálum laut og var ekki komið að tómum kofunum hjá honum, er þau mál bar á góma. Oft fór hann daglega niður að gleðjast með glöðum. Það geislaði frá honum lífsgleðin og góðvildin, enda sóttist fólk eftir návist hans. Hjálpsemi hans og greiðvikni var einstök og einlægur vilji til að verða öðrum til gleði. Hann hafði yndi af lestri góðra bóka og naut sín vel er hann sagði vinum sínum og viðmælendum frá því sem hann hafði heyrt eða lesið. Ólafur átti gott með að mynda sér skoðanir og þegar hann hafði gert upp við sig hvað væri rétt eða rangt, varð því ekki auðveldlega breytt, enda var hann alla tíð pólitískur í besta lagi. Vinum sínum verður hann minnisstæð- astur fyrir gleðina sem hann gaf þeim og góðvildina í sinn garð. Um árabil hef ég verið nær daglegur gestur í húsi Ólafs og Hrefnu á Hellu, og þegar ég er að skrifa þessar línur streyma fram í hugann ótaldar hugljúfar minn- ingar um þær mörgu samveru- stundir. Við þessi leiðarlok er mér þakklæti efst í huga. Hrefna og aðrir ástvinir Ólafs hafa mikið misst, en kærar minningar veita huggun í harmi. Eg sendi þeim öllum innilegar samúðarkveðjur frá mér og mínu fólki. Jón Þorgilsson. að höfn og mörg voru spor hans um bryggjurnar, bæði hér og í Eyjum, til þess að fylgjast með aflabrögðum og sjósókn, enda munu þeir fáir trillukarlarnir, sem ekki þekktu hann. Þann 22. apríl 1950 kvæntist Björgvin skólasystur sinni, Dag- björtu Guðbrandsdóttur, og eign- uðust þau tvær dætur, Kristínu, bókasafnsfræðing, sem gift er Kára Kaaber sölumanni, en þau eiga tvo drengi, og Katrínu nem- anda í Háskóla Islands, sem enn dvelur í föðurhúsum. Reyndist Dagbjört honum ávallt traustur lífsförunautur og vinur og ekki síst núna síðustu mánuðina í veikindum hans. Björgvin var mikill heiðursmaður og sat fjöl- skyldan alltaf i fyrirrúmi. Björgvin átti mörg áhugamál. Hann hafði yndi af ferðalögum og hafði víða farið bæði utanlands og innan. Félagsmál áttu mikil ítök í honum eins og síðar verður vikið að. Hann hafði góða söngrödd og tók oft lagið í vinahópi. Þá var hann víðlesinn og kunni frá mörgu að segja og lögðu menn jafnan við hlustir þegar hann lagði orð í belg. Hann var jafnan hrókur alls fagnaðar og aldrei ríkti nein lognmolla í kringum hann. Þegar við nú kveðjum Björgvin hinstu kveðju reikar hugurinn til æskuáranna í Vestmannaeyjum. Þótt tilveran þar sem annars staðar við sjávarsíðuna hafi mann fram af manni fyrst og fremst snúist um fisk, hefur löngum dafnað þar öflug félagsstarfsemi. Iþróttafélögin Þór og Týr verið þar í fararbroddi. Á þessum árum var mikill rígur milli þessara félaga og lá við að þeir væru ekki litnir réttu auga, sem ekki voru samherjar. Bræðurnir í Áshól urðu snemma traustir Þórarar og fastir liðsmenn í knattspyrnulið- inu. Á knattspyrnuvellinum bar fundum okkar Björgvins fyrst saman, hann í kappliðinu en ég snáði í klappliðinu. Upphófust þar þau kynni sem staðið hafa í meira en 40 ár. Björgvin starfaði mikið fyrir íþróttafélagið Þór allt þar til hann flutti til Reykjavíkur, en er þangað kom gerðist hann félagi í knattspyrnufélaginu Val og var mikill stuðningsmaður félagsins alla tíð síðan. Þegar skátafélagið Faxi var stofnað í Vestmannaeyjum árið 1938 var ekkert eðlilegra en að jafn félagslyndur maður og Björgvin gerðist þar félagi. í þessu félagi urðu kynni mín af Björgvini ennþá nánari en áður. Þarna hittum við báðir þá félaga, sem við síðar bundumst þeim vináttu- böndum að fátítt mun vera meðal vandalausra og varað hafa til þessa dags. Á þessari stundu leita á hugann minningar áhyggju- lausra æskuára við leik og störf. Við félagarnir minnumst varðeld- anna í Lyngfellisdal, róðraferða kringum Eyjar eða þotlausrar vinnu við skátaskálann Hraun- prýði, að ógleymdum skrúðgöng- unum 1. desember og 17. júní, þegar allur hópurinn gekk í skruð- göngu gegnum bæinn eftir takt- föstum skipunum Björgvins, sem stjórnaði göngunni. Eins og alkunnugt er, hófust miklir uppgangstímar hér á landi á árum seinni heimsstyrjaldarinn- ar, sem m.a. leiddu til margvís- legra þjóðfélagsbreytinga. Allir vegir lágu þá til Reykjavíkur. Þangað flutti frá Vestmannaeyj- um margt ungt fólk ýmist í atvinnuleit eða til framhalds- náms. Margir þeirra sem starfað höfðu í skátafélaginu Faxa voru í þessum hópi. Árið 1942 stofnuðu þeir sinn eigin skátaflokk í Reykjavík og kölluðu Útlaga og má vera að dulin heimþrá hafi ráðið þeirri nafngift. Björgvin var einn af stofnendunum og hefur starfað með okkur síðan. Hann er sá fyrsti okkar sem heldur yfir móðuna miklu, en þó að sæti hans sé nú autt, vitum við, að hann mun trur lífsskoðun sinni, áfram fylgj- ast með okkur. Björgvin var mjög trúaður og hafði öðrum fremur mikið hugleitt eilífðarmálin. Það var bjargföst trú hans, að er fortjaldið mikla væri dregið fyrir við brottför okkar héðan, táknaði það ekki leikslok heldur upphaf annarrár og æðri tilveru. Þessi sannfæring hans hefur óefað veitt honum aukinn styrk í veikindum hans og öruggt er að hann fór héðan ekki óviðbúinn. Að lokum kveðjum við Björgvin, gömlu félagarnir og þökkum hon- um samfylgdina með þessum orð- um: „Farðu í Guðs friði." Theódór S. Georgsson. ^—- listfræðingur hefur haft allan veg og vanda af bókinni og ritar formála um þessa tvo íslandsleiðangra og þá lista- menn, sem myndirnar gerðu. Almenna bókafélagið Austurstræti 18 — Sími 25544 Skemmuvegi 38, Kóp. simi 73055.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.