Morgunblaðið - 19.12.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980
63
Nokkrir forráðamanna hjálparstofnunar norsku kirkjunnar i Súdan
verkefninu, frá vinstri: Per Westborg, Jon Kristian öiestad og Halv&r
Skogmo.
Lagt á ráðin um ferðaáætlunina, Sigurjón Heiðarsson, Jon Kristian
öiestad og Guðmundur Einarsson,
í aðalbækistöðvum hjálparstarfs Norðmanna eru rekin ýmis verk-
stæði og hér er svipmynd úr trésmiðjunni.
þann hátt er hægt að hjálpa fólki
mun betur og varanlegri árangur
næst, fólkinu er hjálpað til að
hjálpa sér sjálft eins og oft er
sagt. En starfið í Suður-Súdan
markast mjög af því að í 17 ár var
háð borgarastyrjöld milli suður-
og norðurhluta landsins. Má nán-
ast telja landið tvö lönd, tvenns
konar menning ríkir, annars vegar
kristin og hins vegar múhameðsk.
Árið 1972 lauk borgarastyrjöld-
inni og þá hófust miklir flutningar
um landið. Fólk, sem hafði flúið
heimkynni sín, flutti til baka eftir
að hafa þvælst víða um og þá hóf
KN aðstoð sína. Fyrstu tvö árin
mörkuðust því af hjálparstarfinu
eftir stríðið, en síðan voru skipu-
lögð 4 ára tímabil og hófst hið
fyrra 1974. Næsta 4 ára tímabil
hefur nú staðið í 2 ár og við gerum
jafnvel ráð fyrir að halda áfram
eitt eða tvö tímabil enn, því
þróunarhjálp tekur langan tíma
og ekki er ennþá hægt að segja til
um hvenær innfæddir treysta sér
til að halda verki okkar áfram.
Flutningar gegnum
Kenya
Ýmsir erfiðleikar hafa mætt
Norðmönnum í starfi þeirra í
Súdan og í apríl á Jæssu ári var
landamærum við Uganda lokað
eftir að stríð hafði geisað þar um
slóðir. Eru landamærin enn lokuð
og hefur þessi lokun í för með sér
að allar birgðir verður að flytja
inn í landið gegnum Kenya. Hefur
KN skrifstofu í Nairobf og þaðan
er stjórnað öllum aðdrætti og
segja má að þar í gegn fari allt
samband Norðmanna í Suður-
Súdan við umheiminn. í fyrstunni
urðu Norðmenn að flytja þunga-
vöru með Herkúles flugvélum, en
síðan hefur verið reynt að nota
vörubíla og eru þeir allt upp í þrjá
sólarhringa að aka frá Nairobi til
Súdan, enda vegirnir ekki uppá
marga fiska.
Ferð íslendinganna til Súdan lá
því einnig í gegnum Nairobi eftir 8
stunda flug frá Amsterdam með
júmbóþotu frá KLM. í Nairobi var
síðan farið með okkur frá Jomo
Kenyatta flugvelli til Wilson
flugvallar, sem einkum þjónar
smáflugvélum. Þaðan var haldið
með 9 manna Cessna Conquest til
þorpsins Juba í Súdan. Leigja
Norðmenn vélina til reglubund-
inna ferða milli Súdan og Kenya
og flýgur hún bæði með fólk og
varning eina til tvær ferðir í viku.
Var vélin því hlaðin vistum og
varningi ýmsum auk okkar ferða-
langanna, sem sífellt svitnuðu
meira í hitanum, (nema það hafi
verið flughræðslan), en hann var
nú orðinn um 30 stigum hærri en
hitinn við frostmark í Osló, þaðan
sem lagt var upp.
jt.
„Viðhorf í æskulýðsmálum44
LAUGARDAGINN 6. des. sl.
efndi Æskulýðsráð rikisins til
ráðstefnu i Melaskóla, Reykjavik
og nefndist hún “Viðhorf í æsku-
lýðsmálum“. Ráðstefnuna sóttu
98 fulltrúar sveitarstjórna, fé-
lagasamtaka og skóla.
Við upphaf ráðstefnunnar söng
kór Melaskólans nokkur lög við
góðar undirtektir. Formaður æsk-
ulýðsráðs Jónas Sigurðsson setti
ráðstefnuna og menntamálaráð-
herra Ingvar Gíslason flutti ávarp.
í ávarpi menntamálaráðherra
kom m.a. fram að hann hefði í
hyggju að skipa sérstaka nefnd er
gera ætti úttekt á ákveðnum þátt-
um æskulýðsmála. Myndi nefnd
þessi síðan leggja niðurstöður sín-
ar og tillögur fyrir ráðherrann.
Á ráðstefnunni voru flutt fimm
inngangserindi. Reynir G. Karls-
son ræddi um ýmis viðhorf í
æskulýðsmálum, gömul og ný.
Ómar Einarsson fjallaði um æsku-
lýðsmál í þéttbýli og Arnaldur
Bjarnason úm æskulýðsmál í dreif-
býli. Þá ræddi prófessor Þórólfur
Þórlindsson um skoðanakannanir
varðandi málefni ungmenna og
menntaskólanemarnir Hafliði
Helgason og Kjartan Stefánsson
gerðu grein fyrir félaga- og
skemmtanalífi ungmenna í dag.
Inngangserindin hafa verið fjölrit-
uð og geta þeir sem áhuga hafa
fengið þau hjá Æskulýðsráði ríkis-
ins, menntamálaráðuneytinu.
Að inngangserindunum loknum
störfuðu umræðuhópar.
Að lokum má geta þess að
ráðstefnan lýsti ánægju sinni með
þá ákvörðun menntamálaráðherra
að skipa nefnd er fengi það hlut-
verk að gera úttekt á ákveðnum
þáttum æskulýðsmála. Taldi ráð-
stefnan að tímabært væri einmitt
nú að gera slíka úttekt þar sem
þjóðfélagið hefði á síðustu árum og
áratugum tekið ótrúlega hraðfara
breytingum og umræða og umfjöll-
un æskulýðsmála verið í lágmarki í
þjóðfélaginu.
Úr fréttatilkynningu.