Morgunblaðið - 11.01.1981, Page 25

Morgunblaðið - 11.01.1981, Page 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1981 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1981 25 Pltrgmi Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Askriftargjald 70 kr. á mánuöi eintakiö. innanlands. I lausasölu 4 kr. Þingfararkaup ingmannsstarfið hefur verið að breytast hér á landi síðustu ár. Þróunin hefur orðið sú, að þingmenn helga sig einvörðungu lög- gjafarstarfinu. Þeir hafa ekki tök á að sinna öðrum störfum vegna mikilla anna í stjórnmálavafstrinu. Þetta er gjörbreyting frá því sem áður var, þegar almenna reglan var sú, að þingmennska væri hlut- astarf. Launakjör þing- manna voru á þeim tíma einnig miðuð við það. Þau voru ákveðin af þingmönn- um með tilliti til þess, að þeir hefðu einnig tækifæri til að afla sér tekna með öðrum hætti. Ýmislegt í störfum Alþingis minnir enn á þennan gamla tíma svo sem eins og langt sumarfrí og jólaleyfi. Ástæðan fyrir því, að þessi langi frítími hefur ekki ver- ið afnuminn er einkum sú, að ríkisstjórnum, sem styð- jast við meirihluta á þingi, finnst þægilegt að athafna sig án daglegra afskipta þingmanna eins og best sest núna, þegar gefin eru út bráðabirgðalög um almenn- ar aðgerðir í efnahagsmál- um í jólaleyfi þingsins, lög, sem auðvitað hefði átt að ræða og setja á þingtíma. Fráhvarf frá gömlu regl- unni um að þingmenn sinntu ekki stjórnmálum einvörðungu hefur eðlilega leitt til þess, að önnur sjónarmið ráða, þegar laun þingmanna eru ákvörðuð. Fram til 2. desember á síðasta ári ákváðu þing- menn sjálfir laun sín. Þeir byrjuðu sjálfir að brjóta á bak aftur gömlu sjónarmið- in um þingfararkaupið. Að- ferðirnar, sem þeir beittu, vöktu oft umræður og gagn- rýni. Segja má, að upp úr hafi sóðið á síðasta sumri, þegar með einhvers konar pukri átti að koma fram 20% launahækkun þing- manna frá 1. janúar 1980. Var þetta gagnrýnt harð- lega meðal annars hér í blaðinu. Strax eftir það var því lýst yfir, að þessi ákvörðun kæmi ekki til framkvæmda, hún yrði tek- in til athugunar, þegar þing kæmi saman að nýju. Þá var á það bent, að líklega væri heppilegast, að hlut- laus aðili en ekki þingmenn sjálfir úrskurðaði um þing- fararkaup. Hér í blaðinu hefur einnig verið að því fundið, hvernig fríðindum þingmanna hefur verið háttað. Með lögum frá 2. desem- ber 1980 var ákveðið, að Kjaradómur skyldi ákveða þingfararkaup og jafnframt samþykktu þingmenn, að laun þeirra skyldi dómurinn ákveða frá og með 1. maí 1980. Launahækkunin skyldi sem sé vera aftur- virk. Þetta samþykkti Al- þingi, þótt vitað væri, að sambærilegri kröfu hafði verið staðfastlega hafnað í nýgerðum kjarasamning- um. Úrskurður Kjaradóms liggur nú fyrir. í honum er að finna tvö meginatriði, sem ástæða er til að vekja athygli á miðað við fyrri gagnrýni: í stað 20% hækk- unarinnar, sem þingfarar- kaupsnefnd hafði ákveðið, úrskurðar Kjaradómur, að frá 1. maí skuli kaup þing- manna hækka um 16,45%. Kjaradómur skerðir fríð- indi, og er breyting á þeim greiðslum í heild óhagstæð þingmönnum. Ekkert bendir til þess, að aftur verði horfið til þeirra hátta, að þingmennskan verði hlutastarf. Þvert á móti virðist nauðsynlegt að stíga skrefið til fulls og stytta jólaleyfi þingmanna og einnig sumarfrí. Launa- kjörin eiga einnig að taka mið af þessu. Um það má deila, hvort æskilegt sé, að hér myndist stétt atvinnu- stjórnmálamanna. Að mönnum sé það kappsmál vegna lífsframfæris síns að helga sig stjórnmálum. Það mál á ekki einungis að ræða í sömu andrá og fjallað er um laun þingmanna. Sífellt karp um kjör þingmanna og viðleitni til að sníða þeim fjárhagslega sem þrengstan stakk getur þó leitt til þess, að hæfir menn sækjast ekki eftir þingmennsku. Fyllsta ástæða er til að hafa þá staðreynd í huga. Hræsni Eftir að Kjaradómur hefur í fyrsta sinn úr- skurðað þingfararkaup, eru það þingmenn, sem hafa forgöngu um að gera úr- skurðinn tortryggilegan. Hæst láta þeir, sem telja dóminn hafa hækkað kaup- ið of mikið. Fjármálaráð- herra Ragnar Árnalds hef- ur látið að því liggja, að afnema beri úrskurðinn með bráðabirgðalögum. Slík ráðstöfun væri aðför að öllum stjórnskipulegum venjum. Enda yrði til henn- ar stofnað í blekkingar- skyni. Eins og við var að búast, þegar um blekkingar gagnvart láglaunamönnum er að ræða, hefur Guð- mundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasam- bands íslands og þingmaður Alþýðubandalagsins hvatt fjármálaráðherra til dáða í þessu máli. Hefur Guð- mundur J. einkum talið ámælisvert, að launahækk- un þingmanna sé afturvirk. Þó liggur fyrir, að á Alþingi lagði hann afturvirknina til skriflega í nefndaráliti. í áróðursleiknum í kring- um kaupránslögin, sem rík- isstjórnin hefur gefið út, finnst forkólfum Alþýðu- bandalagsins ágætt að beina athyglinni að launa- hækkun þingmanna. Þeir gera það í skjóli þess, að enginn þingmeirihluti er fyrir því, að úrskurður Kjaradóms verði afnuminn í því skyni að lækka þing- fararkaupið. Unglingar planta í Árbæjarsvæðið sumarið 1977, en þar hafa hirkiplönturnar dafnað vel siðan innan um villtan gróður. Skógræktarf élagið varar við að byggt verði á skógræktarsvæði við Árbæ BORGARRÁÐ Reykjavikur samþykkti á fundi með þremur atkvæðum meirihlutaflokkanna i borgarstjórn. að hafinn verði undirbúningur að deiliskipu- lagi vestan Árbæjarsafns, en þar hefur verið gert ráð fyrir útivistarsvæði og plantað 9 þús- und plöntum. Skógræktarfélag Reykjavikur hefur skrifað borgarstjórn af þessu tilefni og sent eftirfarandi álitsgerð. þar sem varað er við þvi að setja byggð í fyrirhugað útivistar- svæði og gengið á þau: „Vegna umræðna um þéttingu byggðar og sérstaklega þeirra tillagna, sem benda til þess að setja eigi byggð í fyrirhuguð útivistarsvæði borgarinnar, vilj- um við koma eftirfarandi álits- gerð á framfæri. Undanfarin ár hefur Borgar- sjóður Reykjavíkur veitt tals- verðu fjármagni til atvinnu unglinga. Hluta þessa fjár hefur verið varið til gróðursetningar trjáplantna í fyrirhuguð útivist- arsvæði borgarinnar, svo sem Breiðholtshvarfi, Ártúnshöfða, Elliðaárhólma og víðar. Hafa verið gróðursettar um 70 þúsund trjáplöntur á þessum svæðum undanfarin ár. Skógræktarfélagi Reykjavíkur var falin leiðbeining og umsjón með vinnu á nokkrum af þessum svæðum og hefir látið í té verkstjórn, trjáplöntur og um- sjón verksins og unglingarnir lært góð undirstöðuatriði verk- menntunar. Yfirleitt er þetta í fyrsta sinn sem þetta fólk kemur til vinnu og því mikils virði að vel takist til með fyrstu hand- tökin. Skemmdarverk hafa ekki ver- ið framin á þessum gróðri og má eflaust þakka því, hvernig að þessari vinnu er staðið. Holtin hér í grennd Reykjavíkur eru grýtt og lítt gróin, en þau henta vel fyrir trjágróður, það sýnir - trjágróðurinn í Öskjuhlíð nú þegar. Forsenda fyrir notkun þessara holta er að okkar mati, að þau verði þakin skjólgróðri. Skógræktarfélaginu þætti illt í efni ef nú ætti að eyði- leggja það verk sem hér er hafið. til þess að leysa stundar- vanda i skipulagningu ibúða- byggðar á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess teljum við um alvar- legt mál að ræða vegna uppeldis- legs gildis unglingavinnunnar og almennt varðandi trú manna á gildi plöntunar á grænum svæð- um borgarinnar. Rétt þykir einnig að benda á að plöntuð græn svæði miðsvæðis í vaxandi byggð Stór-Reykjavíkur eru ómetanlegir möguleikar kom- andi kynslóðum. Ymiss konar starfsemi og stofnanir sem við ekki þekkjum í dag geta nýtt gróðursvæði í framtíðarbyggð. Slíkar óþekktar stofnanir framtíðarinnar má fella inn í þessi grónu svæði. Með góðum árangri eins og t.d. Kjarvalsstaðir á Miklatúni. Þau lungu sem grænu svæði borgarinnar eru í dag og verða vaxandi byggð, í framtíðinni, eru svo ómetanleg að við viljum eindregið vara við að gengið sé á þau nú. Rey kj aví kurbréf Laugardagur 10. janúar 1981.* Þjód í vexti Þegar tuttugasta öldin gekk í garð Islendinga voru þeir innan við 80.000. Þegar ísland varð fullvalda ríki, 1918, var íbúatalan nálægt 92.000. Er lýðveldið var endurreist, 1944, voru landsmenn um 128.000. Og í dag eru íslend- ingar taldir um 226.700 einstakl- ingar. Þannig hefur þjóðin nær þrefaldast að höfðatölu það sem af er öldinni. Þessi öri þjóðarvöxtur er at- hyglisverður í ljósi sögunnar. Tal- ið er að landsmenn hafi verið allt að 70—80 þúsund frá landnámi og fram á 17. öld, þó erfitt sé að færa sönnur á þá ágizkun. Fyrsta manntal á íslandi var tekið 1703 og voru landsmenn þá aðeins 50.300. 1785 kemst íbúatalan niður í 40.600 manns. Landsmönnum fækkaði þannig á tímabilinu 1783—1785 um nær 10 þúsund manns. Frá þeim tíma og fram til aldamótanna 1800 fjölgaði lands- mönnum um tæplega 1% á ári. Frá 1800 fram til 1850 var fjölgun- in aðeins 0,4 til 0,5% á ári en þá voru landsmenn 59.157. Á tímabil- inu 1850—1860 er fjölgunin aðeins 0,4%, en fækkun 0,2% 1880—1890 en þá fluttu um 10—15 þúsund manns til Ameríku. Næstu þrjá áratugina er fjölgunin um 1% á ári, 1,4% 1920-1930, 1,2% á kreppuáratugnum 1930—1940 og 1,7% 1940—1950. Hámarki náði aukning mannfjöldans 1950—1960 eða 2,1% meðalaukning á ári. Síðan hefur dregið úr hlutfalls- legri fólksfjölgun. Hinn öri vöxtur þjóðarinnar á 20. öldinni er eftirtektarverður þegar þess er gætt að um aldamót- in síðustu voru landsmenn litlu fleiri en áætlað er að þeir hafi verið á fyrstu öldum íslands- byggðar. Orsakir mannfjölda- þróunar hér á landi á 20. öídinni eru ýmsar. Höfuðorsökin eru breyttir þjóðlífshættir, sem komu í kjölfar betri lífskjara, sem byggðu á aukinni verðmætasköp- un í íslenzkum þjóðarbúskap. Aukin verðmætasköpun grund- vallaðist hinsvegar á tvennu fyrst og fremst: annarsvegar aukinni menntun þjóðarinnar og þekk- ingu, hinsvegar á vél- og tækni- væðingu atvinnuveganna, ekki sízt í sjávarútvegi. Þessi aukna verð- mætasköpun leiddi til betri að- búnaðar hverskonar: á vinnustað, í húsnæði, í fatnaði, í fæðusam- setningu og síðast en ekki sízt í heilsugæzlu, í dag skera íslend- ingar sig úr með minnstan ung- barnadauða og lengsta meðalævi í gjörvallri heimsbyggðinni. Grundvöllur lífskjara og velmegunar Verðmætasköpunin í þjóðar- búskapnum, þjóðartekjurnar, setja okkur lífskjaramörk. Kjara- samningar geta aðeins orðið innan þessara marka. Það sem samið hefur verið um út fyrir þann ramma varð að verðbólgu, rýrðum kaupmætti gjaldmiðilsins. Það er semsé verðmætasköpunin og viðskiptakjörin sem eru grund- völlur Iífskjara okkar og ráða ferðinni í framsókn þjóðarinnar til betri tíma. Svokallaðir félags- legir þættir í þjóðlífi okkar: heil- brigðisþjónusta, fræðslukerfi, tryggingar, samgöngur o.fl. sækja umfang sitt til þessarar verð- mætasköpunar ekkert síður en einkaneyzlan, og það á við bæði um rekstrarkostnað og fjárfest- ingu í tækjakosti og húsnæði. Listir, vísindi, rannsóknir og hverskonar menningarstarf þarf fjármagn, eins og öll mannanna viðfangsefni, og það verður ekki sótt nema til okkar sjálfra — til verðmætasköpunar í þjóðarbú- skapnum. Framreiknaður mannfjöldi á ís- landi árið 2000 er talinn munu verða á bilinu frá 283.000 til 303.000, þar af vinnandi einstakl- ingar 131 til 133 þúsund. Það er því ljóst að skapa verður ný atvinnutækifæri fyrir allt að 25 til 30 þúsund einstaklinga fram til aldamóta, eða á næstu 20 árum, umfram þá er vinnandi eru í landinu í dag ef tryggja á framtíð- aratvinnuöryggi. Þar að auki verð- ur að auka verðmætasköpun á hvern einstakling í landinu, ef ná á því marki, sem nást verður, að búa íslendingum sambærileg lífs- kjör og bezt gerast með ná- grannaþjóðum. Ella helzt þjóðinni ekki á framsæknum einstakling- um, sem sízt má missa. Stofnstærð nytjafiska leyfir ekki veiðisókn umfram þá sem nú er, a.m.k. ekki næstu árin. Þeim möguleikum, sem aukin stofn- stærð nytjafiska kann að gefa í fyrirsjáanlegri framtíð, verður alit eins mætt með aukinni tækni í veiðum og vinnslu og auknum mannafla. Sama máli gegnir um landbúnað. Móðurmoldin hefur sín nýtingarmörk og sölumögu- leikar búvöru eru þeir, að landbúnaður tekur ekki við um- talsverðu viðbótarvinnuafli fram til aldamóta. Sjávarútvegur og landbúnaður verða áfram hornsteinar í íslenzk- um þjóðarbúskap. Bróðurpartur af því viðbótarvinnuafli, sem bætist þjóðinni á næstu tveimur áratug- um, verður þó að leita til iðju og iðnaðar- og þjónustustarfa. Þang- að verður einnig að sækja þann verðmætaauka, sem tryggja á sambærileg framtíðarlífskjör á ís- landi og nágrannar búa við. Orkan í fallvötnum og jarð- varma felur í sér margs konar möguleika sem nýta verður. Af stórhug var ráðizt í Búrfells-, Sigöldu- og Hrauneyjafossvirkj- anir. Ef vel hefði verið átti þegar fyrir nokkru að liggja fyrir ákvörðun um næstu stórvirkjun. Svo er ekki. Síðast liðin tvö ár hefur þröngsýni og hik ráðið ríkjum í orku- og iðnaðarráðu- neyti. Þessi tvö ár úrtöluafla í mikilvægasta málaflokki þjóðar- innar á líðandi stund hafa reynzt henni dýr. Reynslan af álverinu í Straums- vík og járnblendiverksmiðju á Grundartanga hefur gert allar hrakspár úrtölumanna að engu. Sjálfsagt er að ganga með gát og fyrirhyggju að öllum stóriðjuvið- fangsefnum. En við komumst ekki hjá að nýta þá möguleika, sem forsjónin hefur lagt okkur upp í hendur, ef við viljum skapa þjóð- inni framtíðaröryggi, atvinnulega og efnahagslega. Álverið og járn- blendiverksmiðjan veita rúmlega 1000 manns atvinnu og leggja til 15—20% af útflutningsverðmæt- um okkar. Hver vildi vera án þessara stórtæku atvinnufyrir- tækja í dag? Og hver vill ekki nýta þá möguleika, sem næstir hendi virðast vera til að styrkja verð- mætasköpun í þjóðarbúskapnum, undirstöðu lífskjara okkar og at- vinnuöryggis? Island og umheimurinn Fáar þjóðir eru jafn háðar milliríkjaverzlun, út- og innflutn- ingi, og Islendingar. Þar af leiðir að viðskiptakjör hafa djúptækari áhrif á þjóðarkjör hér en víðast annarsstaðar. Ef grannt er gáð sjást þessa víða dæmi. Gleggsta dæmið er e.t.v. sú viðvarandi staðreynd í íslenzkum þjóðarbú- skap að víxlhækkanir kaups og verðlags hafa valdið hækkunum framleiðslukostnaðar í sjávarút- vegi langt umfram þróun sölu- verðs á mörkuðum okkar erlendis, þar sem verðlag er stöðugra og jafnvægi í efnahagsþróun. Þetta hefur veikt samkeppnisstöðu okkar, leitt af sér sífellt gengissig til að jafna metin fyrir útflutn- ingsframleiðsluna. Nú á hinsvegar að greiða niður halla fiskfram- leiðslunnar til þess að hægt sé að „festa gengið" þriðjung úr ári, þó ekki liggi á lausu hvar þeir fjármunir verði teknir sem til þarf. Annað dæmi varðar marg- földun á innflutningsverði olíu, sem hefur komið mjög illa við íslenzkan þjóðarbúskap og við- skiptajöfnuð út á við, þó orðið hafi mjólkurkýr ríkissjóðs í hlutfalls- hækkun benzínskatta. Jafnvel rýrnun viðskiptakjara verður rík- issjóði þannig að féþúfu! Helztu viðskiptalönd okkar eru EBE- og EFTA-ríkin, sem kaupa samtals 52% útflutnings okkar og leggja til 69% innflutnings okkar. Bandaríkin eru hagstæðasta markaðssvæði okkar og raunar það eina, sem skilar umtalsverð- um hagstæðum viðskiptajöfnuði. Þau kaupa 28% útflutnings okkar en leggja til 7% innflutnings okkar (árið 1979). Viðskipti okkar við Bandaríkin færa okkur þann veg verulegan gjaldeyri til frjálsr- ar ráðstöfunar. Það er eftirtekt- arvert að þessi þrjú markaðs- svæði, EBE, EFTA og N-Ameríka kaupa yfir 80% af útflutningi okkar — og þaöan koma rúmlega 75% af innflutningi okkar (1979). Aðild okkar að EFTA, viðskipta- samningar við EBE (og tollfríð- indi í þeim ríkjum) og síðast en ekki sízt söluaðstaða okkar á fiskafurðum í Bandaríkjunum ráða meiru um þjóðarkjör en menn gera sér í fljótu bragði grein fyrir. Það er mjög mikilvægt að varðveita viðskiptahagsmuni okkar út á við, því viðskiptakjörin, ásamt verðmætasköpuninni í þjóðarbúskapnum, eru afgerandi um þau lífskjör, sem hér bjóðast. Þau hérlend stjórnmálaöfl sem vinna að því baki brotnu að skera á tengsl okkar við lýðræðisríki V-Evrópu og N-Ameríku geta ver- ið hættuleg hagsmunum íslend- inga, bæði sem þjóðar og einstakl- inga. Það er meira en vafasöm stjórnkænska að leiða þau inn í íslenzkt stjórnarráð. Samanburd- ur á þjóðfé- lagsgerðum Sósíalisminn hefur þegar fengið 60 ára reynslupróf í Sovétríkjun- um, 35 ára reynslupróf í ríkjum A-Evrópu og skemmri reynslu í tugum ríkja Asíu og Afríku. Hvarvetna sem þessi þjóðfélags- gerð (hagkerfi) hefur verið reynd hefur niðurstaðan orðið sú sama. Verðmætasköpun í þessum ríkjum á hvern einstakling er hvergi nema u.þ.b. helft af því sem gengur og gerist í ríkjum V-Evr- ópu og N-Ameríku — og almenn lífskjör eru að sama skapi lakari. Markaðsbúskapur vestrænna ríkja hefur svo augljósan vinning fram yfir sósíalistaríkin að þar komast engar efasemdir að. Sama máli gegnir um frelsi einstaklinga til félagastarfs, at- hafna, skoðana og tjáningar. Frelsi eða réttur hvers einstakl- ings til að velja sér lífsform er allt annar og meiri í borgaralegum þjóðfélögum en þeim, sem lúta sósíalisma. Samanburður á sjálf- stæði launþegafélaga í V-Evrópu og A-Evrópu er dæmigerður fyrir þann mun, sem hér er á, að ekki sé minnzt á skoðana-, tjáningar- og ferðafrelsi. Sósíalistar hvarvetna í veröld- inni tala um „öðruvísi sósíalisma“. Enginn vill viðurkenna þann sósí- alisma sem reynslan hefur dregið upp, hvarvetna þar sem þessi þjóðfélagsgerð hefur verið reynd. Allt talið um „öðruvísi sósíalisma" er í raun alþjóðlegt dómsorð um það að þessa 19. aldar kenningu hafi dagað uppi í þróun 20. aldarinnar. Vestræn lýðræðisríki eru að vísu langt frá því að vera galla- laus. En þau þróast smám saman frá göllum sínum til meiri fuIL komnunar fyrir meirihlutaáhrif almennings í frjálsum leynilegum kosningum. Þessvegna er vestræn- um þjóðum annt um þá þjóðfé- lagsgerð, sem þær búa við, og vilja fá að þróa hana hver að sínum heimaaðstæðum. Sósíalisma hefur hvergi verið komið á fyrir stuðning meirihluta í frjálsum kosningum; hvarvetna í skjóli vopnavalds. Innrásin í Tékkóslóvakíu, innrásin í Afgan- istan, innlimun Eystrasaltsríkja og tugir álíkra dæma eru hættu- boðar, sem knúið hafa vestrænar þjóðir til varnarbandalags, er tryggt hefur frið í okkar heims- hluta frá lokum síðari heimsstyrj- aldarinnar. Þrátt fyrir yfirlýst hlutleysi voru þrjú Norðurlanda hernumin í þeirri styrjöld. Það er því engin tilviljun að þessi þrjú ríki eru öll aðilar að Atlantshafs- bandalaginu í dag. I ljósi framansagðs má ljóst vera að ísland á menningarlega, stjórnmálalega og viðskiptalega samleið með þjóðum V-Evrópu og N-Ameríku. Hnattstaða landsins, á hernaðarlega mikilvægu haf- svæði, miðsvegar milli hins nýja og gamla heims, veldur því og, að vera þess í NATO er sjálfgefin. Sú skoðun á mikinn meirihluta með íslenzkri þjóð og stuðning lýðræð- isflokkanna þriggja. Aðeins Al- þýðubandalagið, sem áður hét Sósíalistaflokkur og þar áður Kommúnistaflokkur, bergmálar upphaf sitt í afstöðu sinni gegn Atlantshafsbandalaginu. Neikvæd þversum af- stada Uttekt á Alþýðubandalaginu verður ekki gerð nema í ljósi fortíðar þess, rótarinnar er jarð- veg á í Kommúnistaflokki íslands, sem stofnaður var árið 1930 sem deild í Komintern, alþjóðasam- bandi kommúnista. Þá ortu menn án undanbragða: „Sovét-ísland. óskalandið, hvenær kemur þú?“ Engu að síður eru ýmis teikn á lofti dagsins í dag, sem valda því að enn er það ljóst hvað þeir vilja. Alþýðubandalagið rær að því öllum árum (a.m.k. þegar það er utan ríkisstjórnar) að Island segi skilið við varnarsamtök vest- rænna ríkja, Atlantshafsbanda- lagið. Alþýðubandalagið rær að þvi öllum árum að skera á önnur tengsl okkar við vestrænar þjóðir. Hver man ekki afstöðu þess til aðildar okkar að EFTA og við- skiptasamnings okkar við EBE? Enginn efast um það í dag að Oslóarsamkomulagið við Breta hafi endanlega fært okkur viður- kenningu á 200 mílna fiskveiði- landhelgi. Hver var afstaða Al- þýðubandalagsins til þess sam- komulags? Taldi það ekki sigur- samninginn til landráða? Hver var afstaða Alþýðubanda- lagsins til Búrfellsvirkjunar, Sig- ölduvirkjunar og Hrauneyjafoss- virkjunar? Hvaða flokkur vildi i öllum þessum tilfellum mun smærri virkjanir og dýrari á orkueiningu? Og hversvegna? Hver var afstaða Alþýðubanda- lagsins til álvers í Straumsvík og járnblendiverksmiðju á Grundar- tanga, sem nú veita 1000 manns atvinnu og leggja til drjúgan hlut af útflutningsverðmætum þjóðar- búsins? Hver vill í dag vera án þessara atvinnutækja? Hversvegna hefur ekki verið tekin ákvörðun um næstu stór- virkjun í landinu á tveggja ára valdasetu Alþýðubandalags í rík- isstjórn og orkuráðuneyti? Þannig mætti lengi spyrja. Hvarvetna blasir við neikvæð af- staða flokks sem verið hefur þversum í flestum hagsmunamál- um þjóðarinnar, einkum og sérí- lagi þeim, er lúta að tengslum okkar við þær þjóðir, sem skyld- astar eru okkur að menningararf- leifð og þjóðfélagsgerð. Það getur reynzt dýrt „spaug“ að leiða slíkan flokk til vaxandi áhrifa í íslenzku þjóðfélagi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.