Morgunblaðið - 11.01.1981, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.01.1981, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1981 radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar kennsla Bókleg kennsla fyrir einkaflug hefst miövikudaginn 14. jan. Væntanlegir nemendur hafið samband við skólann sem fyrst. Flugskóli Helga Jónssonar, sími 10880. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐÍNU Aðalfundur fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi verður haldinn mánudaginn 12. janúar nk. kl. 20.30 í sjálfstæðishúsinu að Hamraborg 1, 3. hæð, Kópavogi. Dagtkrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf 2. Styrmir Gunnarsson, ritstjóri, rœðir um: Forystu og framtíö Sjálfstæöis- flokksins. Frjálsar umræöur. Sf/'órn fulltrúaráðsins Kópavogur — Kópavogur Spilakvöld Sjálfstæöistélag Kópavogs auglýsir. Spilakvöldin hefjast aftur þriöjudaginn 13. janúar í Sjálfstæöishúsinu, Hamraborg 1, Kópavogi kl. 21.00 stundvíslega. Fjölmennum og verum meö frá byrjun. Allir velkomnir. Stjórnin. Kópavogur — Kópavogur Spilakvöld Sjálfstæöisfélag Kópavogs auglýsir. Spilakvöldin hefjast aftur þriöjudaginn 13. janúar kl. 21.00 stund- víslega Fjölmennum og verum meö frá byrjun. Allir velkomnir. Stjórnln. Arinbjörn Þorkelsson arkitekt - Áttræður Arinbjörn er fæddur í Bú- landsseli í Skaftártungu 11. janú- ar 1901, sonur þeirra ágætu hjóna Signýjar Báröardóttur frá Ljótar- stöðum og Þorkels Arnasonar frá Snæbýli í sömu sveit. Þorkell var talinn góður fjármaður og ágætur búmaður. Búnaðist þeim hjónum því vel hvar sem þau bjuggu. Þau eignuðust fjögur börn: þrjár dæt- ur og einn son. Árið 1904 fluttist Arinbjörn með foreldrum sínum að Skálmarbæjarhrauni í Álfta- veri og dvaldi hjá þeim þar til 13 ára aldurs. Vorið 1913 dó faðir hans, og ári síðar hætti móðir hans búskap og dvaldi þá að mestu leyti hjá dóttur sinni á Herjólfs- stöðum í sömu sveit með soninn. Fljótt var Arinbjörn liðtækur við sveitastörfin, og var talinn harð- duglegur að hvaða verki sem hann gekk. Vorið 1920 flytur hann með móður sinni til Reykjavíkur. Ekki naut Arinbjörn neinnar menntunar í æsku nema lítils háttar í farskóla, og þegar til Reykjavíkur kom fannst honum hann ekki vera vel undir lífið búinn. Þar sem hann var með móður sinni, sem þá var komin á efri ár, hann alveg efnalaus og ekki árennilegt að ætla sér að lifa á verkamannakaupi, fór hann fljótt í húsasmiðanám til vel þekkts borgara hér í bæ, Árna Erasmussonar og lærði hjá honum húsasmíði. Fljótlega eftir það fékk hann meistararéttindi, og fyrsta stórverk, sem hann tók að sér, var b.vgging Laugarvatnsskóla og þar næst Mjólkurbú Flóamanna. Þetta sýnir dugnað og áræði þessa unga manns, og hvað honum var vel treyst. Nokkrum árum síðar fór hann í arkitektsnám til Þorleifs Eyjólfssonar og lærði hjá honum. Eftir það vann hann í teiknistofu hjá þeim fræga manni Sigmundi Halldórssyni, á annað ár. Síðan stundaði hann alfarið húsateikn- ingar og var mikið eftirsóttur. Var því oft langur vinnudagur hjá honum, það hafa sagt mér húsa- smíðameistarar, að það hafi verið sérstaklega gott að vinna eftir teikningum hans. Þessa atvinnu stundaði hann þar til fyrir fáum árum að hann hætti störfum. Árið 1927 giftist hann sinni ágætu konu, Agústu Guðríði Ág- ústsdóttur, dóttur Ágústs Jósefs- sonar heilbrigðisfulltrúa, og var það hans mesta gæfuspor. Þau bjuggu á ýmsum stöðum hér í borg á fyrstu búskaparárum sín- um, en lengst bjuggu þau á Baldursgötu 29. Þau eignuðust tvö börn: Pálínu Ágústu, sem nú er ekkja hér í borg, og Þóri Sigurð, skurðlækni í Svíþjóð. Fljótt var heimili þeirra orðlagt fyrir gest- risni og greiðasemi. Þar var alltaf opið hús fyrir þá sem þangað leituðu. Ég veit að margir Vestur- Skaftfellingar minnast þeirra hjóna fyrir sérstaka gestrisni og greiðasemi. Árið 1967 missti hann sína góðu konu, og varð það honum mikið áfall. Síðan hefur hann átt heimili hjá Pálínu dóttur sinni. Um nióður sína annaðist hann með ágætum, og átti hún góða elli hjá þeim hjónum. Oftast hefur Arinbjörn gefið sér tíma til að heimsækja æskubyggð- ina árlega, þó oftast hafi hann ekki haft tíma til að dvelja þar nema stuttan tíma meðan hann var við störf, en síðan hann hætti að vinna hefur hann lengt dvalar- tíma sína þar, og eru það honum miklar ánægjustundir, því að allt- af eru honum æskubyggðir sínar kærar. Og nú þegar ég lít yfir æviferil vinar míns og frænda, tel ég að hann megi vel við una. Óska ég honum þess, að hann fái að halda sinni góðu heilsu og að ellin verði honum mild. Vigfús Gestsson Söngsveitin Filharmonía Söngkraftar óskast til þátttöku í flutningi á óperunum: Fidelio og Othello. Nánari uppl. í símum 27787 og 74135. 5 skemmtileg sumarhús Eitt mun örugglega henta yður. Þetta 22 ferm. hús gefur 6 möguleika á innanhússkipulagi. Svefnloft í risinu. Stæröir: 49 ferm., 43 ferm., 37 ferm., 31 ferm. og 22 ferm. WUlTURMLICi TILLXQA. 3L ÍSUMNtHfc CERfi A4 TIILAOA __________________ ÍSUtltfHlS G£KD AA Sumarhúsasmíói Jóns, Auöbrekku 44—46. Upplýsingar í síma 45810.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.