Morgunblaðið - 30.01.1981, Síða 11

Morgunblaðið - 30.01.1981, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981 11 í Hampiðjunni: fram með ýmsar nýjungar að undanförnu og töluverður hluti vélakostsins hefur verið endur- nýjaður vegna þessa. Starfs- menn Hampiðjunnar gerðu grein fyrir nýjungunum á fundinum. Fyrst var nefndur nýr flotteinn, sem verksmiðjan hefur hafið framleiðslu á. Hann á að gera kleift að fækka flothringjum til muna á netun- um og af þeim sökum verður slit á garni minna. Einnig hefur verksmiðjan hafið framleiðslu á Krafttogi, sem hefur stórum meira nán- ingsþol en tóg af venjulegri gerð og þolir meira átak. „Að undanförnu hefur verk- smiðjan reynt að grenna garn- ið í netunum til þess að minnka viðnámið, þegar trollið er dreg- ið í sjónum, en halda jafnframt sama styrkleika. Þetta hefur skilað talsverðum árangri", sagði Guðmundur Gunnarsson, netagerðarmaður. „Grannir þræðir í garninu gera netið mýkra og jafnframt sterkara“. Einnig eru líkur á að þetta spari efni. Vélarnar sem fram- leiða þetta garn eru auk þess mun afkastameiri en þau eldri,“ sagði Guðmundur. „Framleiðsla á þessum nýju netum er enn á tilraunastigi, gera þó mögulegt að draga ýmsar ályktanir að hegðun trollsins í sjónum. „Áreiðanleiki niðurstaðanna fer eftir stærð módelsins og nákvæmnin minnkar eftir því sem módel af stærðinni 1 á móti 30 til 60 og það gefur u.þ.b. 85% nákvæmni og ég tel það nægjanlegt fyrir þau not sem höfð yrðu af tankn- um hérlendis," sagði Jónas. Guðni sagði að margir aðilar hefðu sýnt því áhuga, að settur yrði upp veiðarfæratankur hér- lendis. Nefndi hann í því sam- bandi netagerðarmenn, skip- stjóra, útgerðarfélög og ýmsar ríkisstofnanir, svo sem Rann- sóknarráð ríkisins og Haf- rannsóknarstofnun. Einnig væri mjög æskilegt að nemendur í Stýrimannaskólanum fengju af- not af tankinum, en þar gætu þeir séð hvernig netið bregst við þegar breytingar eru gerðar á samsetningu þess. „Það getur verið mjög erfitt fyrir skipstjóra að gera sér grein fyrir því hvernig trollið liggur í sjónum og það kemur oft ekki fyrr en eftir margra ára reynslu, sem getur verið dýrkeypt." Guðni sagði að menntun á þessu sviði hefði alla tíð verið vanrækt, en nú hefði kennsla um veiðarfæri verið tekin upp við Stýrimannaskólann og það kæmi eflaust að góðum notum við kennsluna ef nemendur hefðu aðgang að veiðarfæratanki. Kostnaður við uppsetningu veiðarfæratanka hérlendis getur verið allt frá hundrað milljónum að milljarði gamalla króna, eftir því hvaða stærð og gerð er valin. Voru menn almennt sammála um að ekki þyrfti að sjá í eitt til tvö hundruð milljónir til smíði á slíkum tanki, því að svo margir hefðu lýst áhuga sínum á því að tankurinn yrði smíðaður og kostnaðurinn myndi dreifast á marga aðila. Þó voru menn sammála um að líklega myndi það dragast að tekin yrði ákvörðun um smíði á veiðarfæratanki. Fyrir liggur á Alþingi síðan í haust tillaga um þingsályktun, þar sem lagt er til að athugað verði með kaup á veiðarfæratanki, en sú tillaga hefur ekki enn verið afgreidd. — og fyrsti búturinn kom út úr vélinni í dag. Við hyggjumst sníða prufutroll á næstunni og sjá hvernig þessar endurbætur reynast. Það verður forvitni- legt að sjá hvort olíueyðsla verður minni, en við gerum okkur talsverðar vonir um það,“ sagði Guðmundur. „Á síðasta ári hófum við gerð trolla með nýju sniði og nú báru menn saman bækur sínar um hvernig þau hefðu gefist. Netopið á þessum trollum er hærra og með því er reynt að ná til fisks sem er laus frá botni og sleppur yfirleitt þegar veitt er með troll af venjulegri gerð. Voru menn sammála um að það fiskaðist betur í þessi troll. Gömlu trollin koma þó til með að vera notuð áfram, því þau gefa sama fisk, þegar fiskurinn heldur sig við botn- inn,“ sagði Guðmundur. Loks minntist Guðmundur á nýbygginguna, sem hafin er á Bíldshöfða, en þar hefur Hampiðjan tryggt sér fram- tíðarrými til stækkunar og útþenslu starfseminnar. „Sá áfangi, sem nú hefur verið byggður er um 3600 ferm og verður framleiðsla þar hafin í mánuðinum," sagði Guðmund- ur. Mgk.. VlBöftP Starfsmaður Hampiðjunnar skoðar möskva úr netahnýtingarvél fyrir pokaefni. Ljósmynd Kristinn. Flvturöu inn vörur f rá SvíþjóÖ? „FOB VÁSTERVIK" Gæti það lækkað innkaupsverðið? HAFSKIP HF. hefur um sextán ára skeið haldið uppi reglubundnum siglingum til Svíþjóðar, nú vikulega til Gautaborgar og hálfsmánaðarlega til Halmstad. HAFSKIP HF. hefur nú bætt við nýjum viðkomustað, nú á austurströnd Svíþjóðar, VÁSTERVIK, og verður viðkoma þar á 25 daga fresti. Borgin er staðsett miðja vegu milli Stokkhólms og Helsingborgar, en á því svæði eru f jölmargar verksmið jur, sem selja þekktar vörutegundir til íslands. Tilgangur okkar með því að bæta VÁSTERVIK við aðra viðkomustaði HAFSKIPS í Svíþjóð, er að sjálfsögðu að bæta þjónustuna. Þannig geta nú innflytjendur, sem kaupa vörur frá VÁSTERVIK svæðinu gert samanburð á verði á innfluttri vöru frá Svíþjóð. Athugið hvort hagkvæmara sé að kaupa vöruna „EX FACTORY" eða „FOB VÁSTERVIK" Allar frekari upplýsingar eru fúslega veittar í Markaðsdeild Hafskips hf. í síma 21160. HAFSKIP HF. Hafnarhúsinu, v/Tryggvagötu, Sími 21160 M.S.LANGÁ 13. febrúar1981 13. mars 1981 Umboðsmaður í VÁSTERVIK: Knut Sjögren A/B S 59301 VÁSTERVIK P.O. Boxll, Telex: 3912 Sími: 0490-301 30

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.