Morgunblaðið - 30.01.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981
35
Garðar Jóhannsson (lenjfst til hægri) átti stórleik fyrir KR gegn ÍS i gærkvöldi. Hér sést hann í viðureign
gegn UMFN fyrr í vetur.
ÍS-menn sterkari
á endasprettinum
— og KR tapaði fjórða leiknum í röð
ÍS átti sterkari endasprett, er
liðið atti kappi við KR i úrvals-
deildinni i körfuknattleik i gær-
kvöldi. ÍS skoraði tvær siðustu
körfurnar á spennandi lokamín-
útum ög tryggði sér sigur, 73—
69. Þetta var jafn leikur og
sigurinn gat hafnað hvoru megin
sem var. KR-ingarnir töpuðu
þarna fjórða leik sinum i röð og
án Jóns Sigurðssonar, sem er
meiddur, var liðið ekki sannfær-
andi. Og þetta er annar leikurinn
i röð, sem iiðið nær ekki að skora
70 stig. Staðan í hálfleik i gær-
kvöldi var 40—34, KR i hag. KR
skoraði þvi aðeins 29 stig i siðari
hálfleik.
Sem fyrr segir var leikurinn
alltaf jafn, en KR hafði lengst af
forystu í fyrri hálfleik. Þegar 7
mínútur voru eftir af leiknum
komst ÍS í 59—58 og skiptust liðin
á um forystuna síðustu mínúturp-
ar, síðast leiddi ÍS.
Bjarni Gunnar var drjúgur i liði
ÍS.
Eini maðurinn sem eitthvað
kvað að að ráði hjá KR var Garðar
Jóhannsson. Átti hann stórleik.
Keith Yow var sterkur í vörn og
drjúgur á köflum í sókn, en hann
hefur oft verið betri. Þá gerði
Ásgeir Hallgrímsson eitt og annað
laglegt, eins Kolbeinn Pálsson.
Hjá IS bar mest á Jóni Oddssyni
og réðu KR-ingar lítið við hann.
Hins vegar var Jóni skipt út af á
furðulegustu augnablikum og
vakti það furðu sumra. Bjarni
Gunnar var mjög drjúgur í leikn-
um, einnig Gísli Gíslason, sem
barðist að venju eins og innikróað-
ur minkur. Coleman var sterkur í
fráköstum, en hittir oftast betur
en í gær.
Stig ÍS: Bjarni Gunnar Sveins-
son 19, Mark Coleman 18, Jón
Oddsson 17, Gísli Gíslason 11, Ingi
Stefánsson 5 og Árni Guðmunds-
son 2 stig.
Stig KR: Garðar Jóhannsson 26,
Keith Yow 15, Ásgeir Hallgríms-
son 10, Ágúst Líndal 8, Kolbeinn
Pálsson og Eiríkur Jóhannesson 4
hvor, Gunnar Jóakimsson 2 stig.
-gg-
Afturelding fær
myndarlega gjöf
frá Álafossi
AFTURELDING, íþróttafélagið í
Mosfellssveit, hefur verið vel
stutt af fyrirtækjunum stóru,
Álafossi og Reykjalundi, siðustu
árin. Álafoss afhenti félaginu
geysiiega myndarlega gjöf i gær
og tók Ingólfur Árnason formað-
ur UMFA við gjöfinni fyrir hönd
félagsins. Gjöf Álafoss hljóðaði
upp á 40.000 nýkrónur, eða 4
milljónir ef hugsað er i gömlu
góðu krónunni.
Er Ingólfur tók við gjöfinni, var
hann spurður hvað félagið hefði í
hyggju að gera við peningana.
Kom Ingólfur þá víða við, UMFA
hafði lengi ætlað að stofna blak-
deild og sunddeild. Þá væri gífur-
legur kostnaður samfara því að
halda úti yngri flokkum í knatt-
spyrnu o.s.frv. Gjöf þessi létti því
gífurlega á félaginu.
Haildór Björnsson, KR-ingurinn
ódrepandi, þjálfar og leikur með
UMFA i sumar.
UMFA
3. deildar lið UMFA í knatt-
spyrnu. hefur endurráðið Hall-
dór Björnsson sem þjálfara fyrir
komandi keppnistímahil. Halldór
þjáifaði liðið einnig i fyrra og var
UMFA þá I baráttusæ'i um eitt af
efstu sætunum i deildn.ni án þess
þó að komast i 2. deild. Ilalldór,
sem er kunnur baráttuforkur úr
KR, mun einnig leika með liðinu.
Ungmennafélagið Einherji
Vopnafiröi, auglýsir
eftir knattspyrnuþjálfara fyrir næsta keppnistíma-
bil.
Uppl. í síma 91-78019, milli kl. 18—21 næstu
daga.
Firmakeppni
Próttar 1981
í innanhússknattspyrnu hefst í Vogaskóla 15.
febrúar. Þátttökutilkynningar þurfa aö berast til
Guöjóns Oddssonar í Litnum, Síöamúla 15, sími
33070 fyrir 1. febrúar. Þátttökugjald er kr. 400.
• 1 frosti og þurrum snjó er nauösynlegt aö bera á.
• Vax fyrir þurran snjó er auðvelt að bera á. Setjið vax á skiðin með stuttum ákveðnum tökum. Dreifið úr með korki eða botninum á
áburðarstautnum.
I