Morgunblaðið - 13.03.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.03.1981, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 60. tbl. 69. árg. FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Björgunarsveitarmenn frá Höfn í Hornafirði koma að flaki Piper I úr sjófylltri vélinni upp á þak hennar og hélt sér þar í nær tvær Navajo flugvélarinnar á miðjum Ilornafirði og sækja Benedikt klukkustundir, en niðdimm þoka var á firðinum eins og sjá má. — Snædal flugmann sem slapp nær ómeiddur úr flugslysinu og komst I Sjá baksíðu. Ljúwnynd sun w«id«rff. Samið við flugræningjana en óljóst hvenær gíslamir losna DamaskuK, 12. marz. AP. hvernig framsal á annað hundrað gisla um borð i pakistönsku farþegaþotunni á Damaskus-flugvelli skuli fara fram, en líkur benda til þess að fólkið verði að hirast þar sem það er komið, þar til hinir 55 fangar í Pakist- an hafa verið leystir úr haldi. Fulltrúi Pakistan- stjórnar lýsti því yfir i dag, að tekið gæti nokkra daga að skipuleggja framsal fanganna, en þar aí væru sex manns sem ekki væri vitað til að sætu í fangelsi i landinu. Það var ekki fyrr en þrem- ur mínútum áður en flugræningjarnir ætluðu að láta hótun sína um að skjóta þrjá bandaríska gísla í þot- unni koma til framkvæmda, að samkomulag tókst um frelsun allra gíslanna gegn því að 55 fangar í Pakistan yrðu látnir lausir. Gíslarnir í þotunni eru á annað hundrað að tölu. Hafa þeir verið um borð í henni í 11 daga. Kahn hershöfðingi, sendiherra Pakistans í Sýrlandi, samdi við flugræningjana fyrir hönd stjórnar sinnar og sagði hann í kvöld, að öllum gísl- unum liði vel og hefðu mikil fagnaðarlæti orðið um borð þegar tíðindin voru kunn- gjörð. Má með ólíkindum telja að fólkið leiki á als oddi eftir 11 daga þröngbýli og hita, en eftir að samningar tókust var því borinn kvöld- verður, — sami réttur og alla aðra daga, en það er kjúkl- ingur í karrísósu. Giscard og Mitterand jafnir? Paris. 12. marz. AP. NIÐURSTÖÐUR tveKKja skoöanakannana. sem birtar voru i París í daic. gefa til kynna að fylgi Giscard d'Estaings forseta og sósíal- istans Francois Mitterands sé hnifjafnt að kalla. Kannanirnar voru gerðar á vegum Le Figaro og Le Quoti- dien de Paris á tímabilinu 5.—10. marz, en frá því að síðustu niðurstöður kannana voru birtar í febrúar hefur vegur Giscard vaxið nokkuð, en þá hafði Mitterand 3% forskot. Forsetakosningarnar í Frakklandi hefjast 26. apríl nk. og verða endanleg úrslit kunn 10. maí. I kosningunum 1974 munaði ekki nema 1,6% á sigurvegaranum og Mitterand.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.