Morgunblaðið - 13.03.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.03.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981 15 Fréttir í stuttu máli EINNI HÆÐ OF- AUKIÐ - 23 FÓRUST Kairó, 12. mars. — AP. TVÆR íbúðarblokkir hrundu í gær til grunna í bænum Beni Suif í Egyptalandi með þeim afleiðingum að 23 fórust og 15 slösuðust. Eigandi annarrar byggingarinnar hafði bætt fimmtu hæðinni ofan á húsið án samráðs við byggingaryfir- völd og svo fór að húsið þoldi ekki ábótina, hrundi saman og tók með sér áfasta byggingu. FJÖLSKYLDA FERST í BRUNA Barcelona. 12. mars. — AP. FJÖGURRA manna fjölskylda frá Uruguay fórst í nótt sem leið í bruna, sem upp kom í sex hæða byggingu í miðborg Barcelona. Eldurinn kom upp í verslun á jarðhæð byggingar- innar og er talið líklegt að íkveikja hafi valdið. VATIKANIÐ MÓTMÆLIR FÓSTUREYÐINGUM Vatikaninu, 12. mars. — AP. PÁFASTÓLL fordæmdi í dag mjög harðlega fóstureyðingar, sem gerðar eru til þess að koma í veg fyrir fæðingu barna, sem talin eru vanheil að einhverju leyti. Sagði þar, að slíkt væri ekki aðeins brot á læknaeiðnum heldur einnig á frumburðarrétti hvers manns, réttinum til að lifa. „Fötluðu fólki ber sama virðing og öðrum mönnum," sagði í yfir- lýsingu páfastóls. HRYÐJUVERKA- MENN SKJÓTA Mílanó. 12. mars — AP. Hryðjuverkamenn úr Rauðu herdeildunum ítölsku réðust í dag inn í Alfa Romeo-bíla- verksmiðjurnar og skutu einn verkstjórann í fæturna. Lög- reglan umkringdi verksmiðj- urnar fljótlega en hryðju- verkamennirnir komust á braut. Rauðu herdeildirnar hafa mjög látið til sín taka í Alfa Romeo-bílaverksmiðjun- um og hafa sakað verkstjóra jafnt sem aðra yfirmenn um að vera „óvini verkamanna“. Veður víða um heim Akureyri 1 slydda Amaterdam 14 rigning Aþena vantar Berlín 3 skýjað Briiasel 15 skýjað Chicago 6 skýjað Feneyjar 10 þoka Frankfurt 18 rigning Fnreyjar 7 skýjað Genf 21 skýjað Helsinki -10 heiðakírt Jerúsalem 14 skýjaö Jóhannesarborg 22 heidskírt Kaupm.höfn 1 skýjað Las Palmaa 24 skýjað Lissabon 20 heiðskirt London 14 skýjað Loa Angeles 24 skýjað Madrid 21 skýjað Malaga 14 skýjað Mallorca 22 skýjað Miami 28 skýjað Moskva -4 skýjað New York 7 heiðskírt Osló 1 skýjað París 18 rigning Reykjavik 3 þokumóöa Rió de Janeiro 35 heiðskirt Rómaborg 15 skýjaö Stokkhólmur -2 heiöskírt Tel Aviv 20 skýjað Tókýó 12 heiöskírt Vancouver 12 heiðskirt Vinarborg 17 skýjað Kínverskir hermenn vinna stjórninni og kommúnistaflokknum hollustueiða, samkvæmt nýuppteknum venjum þar austurfrá. Spánn: Armada ákæröur fyrir uppreisn Madrid, 12. marz. AP. FYRRVERANDI hernaðarleið- beinandi Juan Carlosar Spánar- konungs og í eina tíð einkaritari konungsfjölskyldunnar. Alfonso Armada hershöfðingi. hefur ver- ið ákærður fyrir heruppreisn og tilraun til að steypa af stóli stjórn landsins. Þessar upplýs- ingar voru hafðar eftir varnar- málaráðuneytinu spænska i dag. Armada hershöfðingi var rek- inn úr starfi sem varaforseti herráðsins tveimur dögum eftir valdaránstilraunina 23. febrúar sl. og handtekinn skömmu síðar. Jaime Milans Del Bosch hershöfð- ingi og yfirmaður hersins í Val- encia var formlega ákærður fyrr í þessari viku fyrir vopnaða upp- reisn og tveir aðrir hershöfðingjar eru í haldi en hafa ekki verið ákærðir enn. 23 hermenn, þar á meðal Anton- io Tejero Molina, foringi í þjóð- varðliðinu, sem stjórnaði valda- ránstilrauninni, hafa verið ákærð- ir og munu verða dregnir fyrir Mannréttindabrot í Uruguay könnuð Genl, 12. m»rs. AP. Mannréttindanefnd Samein- uðu þjóðanna samþykkti i dag með miklum meirihluta að senda sérstaka nefnd til Uruguay til að kanna mannréttindahrot þar i iandi. Nefndin á að skýra frá niðurstöðum sinum á fundi mannréttindanefndarinnar á næsta ári. Kanadamenn og Hollendingar höfðu frumkvæði að nefndarskip- uninni og var tillaga þeirra sam- þykkt með 29 atkvæðum gegn atkvæðum fulltrúa Argentínu, Brasilíu og Uruguay. Fulltrúi Bandaríkjanna sat hjá ásamt sjö öðrum. Herinn í Uruguay tók völdin í sínar hendur í júlí í fyrra og síðan hafa verið að berast þaðan fréttir um pyndingar og ótrúlegar mis- þyrmingar á föngum, sem sakaðir eru um andstöðu við herstjórnina. I skýrslu, sem Halima Embarek Warzazi, marokkanskur lögfræð- ingur, vann fyrir mannréttinda- nefndina, kemur fram að mann- réttindi megi sín einskis í Uru- guay, fólk sé handtekið og haldið í fangelsi langtímum saman án formlegrar ákæru og oft beitt grimmilegum pyndingum. herrétt. 222 þjóðvarðliðum af 288, sem voru með í þinghústökunni, hefur verið sleppt úr haldi, en mega þó búast við að vera kallaðir fyrir síðar. 18 hershöfðingjar, sem sæti eiga í herráðinu, sóru í gær konungi, stjórnarskránni og lýðræðislegum stjórnarháttum hollustu sína. Þeirra á meðal voru allir 11 yfirmenn herstjórnarsvæðanna á Spáni. V-þýskt fyrirtæki sagt selja Líbýu flugskeyti — sem borið geta kjarnorkusprengjur Rahat. Marokkó. 12. mars. AP. STJÓRN Moammars Khadafy i Libýu hefur samið um það við vestur-þýskt fyrirtæki. að það selji henni meðaldrægar eldflaug- ar, sem borið geta kjarnorku- sprengjur. og á afhending þeirra að fara fram 1986. Þessar upplýs- ingar eru hafðar eftir heimildum i Marokkó, sem taldar eru mjög áreiðaniegar. Hermt er að nú nýlega hafi vestur-þýska fyrirtækið Otrag gert tilraunir með flugskeytin í líbýsku eyðimörkinni en þetta sama fyrirtæki olli nokkurri spennu í samskiptum austurs og vesturs þegar það var með slíkar tilraunir í Zaire árið 1978. Flugskeytin geta borið kjarn- orkusprengjur til skotmarka í Austurlöndum nær og í Suður- Evrópu og að því er heimildirnar herma er nú unnið að smíði slíkra vopna í Líbýu. Að sögn marokk- önsku fréttastofunnar hefur Khadafy Líbýuleiðtogi hrundið af stað fimm ára áætlun, sem á að færa honum upp í hendurnar kjarnorkuvopn ekki seinna en 1986. Formælendur þýska fyrirtækis- ins hafa borið þessar fregnir til baka og segja, að gerðar hafi verið tilraunir með flugskeyti, sem ætl- að er að koma á loft fjarskipta- hnöttum. 15 mánaða fangelsi fyrir 15 ára morð Perth. Skotlandi. 12. mars. AP. MAÐUR nokkur, John Traynor að nafni, 39 ára gamall, var i dag dæmdur i 15 mánaða fang- elsi fyrir að hafa ráðið konu sinni bana fyrir 15 árum. Allan þennan tíma hafði hann geymt lik konu sinnar innan i gólf- teppi og flutt það með sér þegar hann fór búferium. Við réttarhöldin sagði Trayn- or sögu sína, sem var á þá leið, að þegar hann kom heim drukk- inn af öldurhúsinu eitt kvöld hafi kona hans tekið á móti honum með skömmum og látið að því liggja, að barnið, sem hún bar undir belti, væri ekki hans barn. Traynor missti þá alla stjórn á sér og sló til konu sinnar með þeim afleiðingum, að hún féll á arinhilluna og lést samstundis. „Ég varð skelfingu lostinn þegar ég sá að hún var dáin,“ sagði Traynor. „Ég vafði gólf- teppi um líkið og faldi það í klæðaskápnum í svefnherberg- inu þar sem það var í fimm ár.“ Þegar John Traynor fluttist í annað hús í sömu götu hafði hann líkamsleifarnar með sér og kom þeim fyrir í kjallaranum. Þar fundust þær þegar frændi John Traynors var að gramsa í gömlu dóti, sem þar var geymt. „Ég hef haft erfiða byrði að bera í öll þessi ár og samviskan hefur aldrei látið mig í friði,“ sagði Traynor við réttarhöldin og dómarinn sagðist leggja trún- að á orð hans og kvað því upp þennan væga dóm. i ,til . Islands ferma skipin sem hér segir: . AMERIKA o < Q PORTSMOUTH Hofsjökull 13. mars ^ Bakkafoss 16. mars H Berglind 30. mars ^ Goöafoss 1. apríl S Bakkafoss 6. apríl NEWYORK N—d Bakkafoss 18. mars Berglind 1 apnl Bakkafoss 8. apríl ^ HALIFAX n-3 Hofsjökull 16. mars *“] Goöafoss 5. apríl. ^ BRETLAND/ es Ö Éaí MEGINLAND % ROTTERDAM Eyrarfoss 16. mars m*! Álafoss 23. mars H Eyrarfoss 30. mars Álafoss 6. apríl w FELIXSTOWE Eyrarfoss 17. mars Álafoss 24. mars Eyrarfoss 31. mars Álafoss Z.apnl H ANTWERPEN Eyrarfoss 18. mars 25. mars S 1. apríl Álafoss Eyrarfoss Álafoss 8. apríl n—' HAMBORG Eyrarfoss 19. mars ^ Álafoss 26 mars ^ Eyrarfoss 2. apríl 9. apríl Ph Álafoss WESTON POINT Öh Urriöafoss 18. mars J 1 aprf sS 15. apríl w Urriöafoss Urriöafoss Urriöafoss 29. apríl ^ Q Q NORÐURLÖND/ § EYSTRASALT ~ BERGEN Dettifoss 23. mars j Dettifoss 6. apríl Dettifoss 20. apríl KRISTIANSAND Mánafoss 16. mars 0h Mánafoss 30. mars Q Mánafoss 13. apríl MOSS Mánafoss 17. mars ^ Dettifoss 24. mars ^ Mánafoss 31. mars ^"5 Dettifoss 7. apríl GAUTABORG Mánafoss 18. mars U Dettifoss 25. mars ££ Mánafoss -l.aprí! Dettifoss 8 apríl w KAUPMANNAHÖFN C Mánafoss 19. mars pj Dettifoss 26. mars 2. apríl 9. apríl Mánafoss Dettifoss HELSINGBORG T Mánafoss 20. mars ^ 27. mars ® Dettifoss Mánafoss 3. apríl ^ Dettifoss 10. april HELSINKI < Múlafoss 17. mars Múlafoss 7. apríl JZJ írafoss 15. apríl VALKOM Þ—4 Múlafoss 18. mars Múlafoss 8. apríl Qf* írafoss 16. apríl n-n RIGA Múlafoss 20. mars ^ Múlafoss 10. apríl Cfl írafoss 18. apríl GDYNIA Múlafoss 21. mars d Múlafoss 11.apríl íi* írafoss 20. apríl •. ÞÓRSHÖFN H Skip frá Rvík 26. mars ^ Frá REYKJAVÍK: Z á mánudögumtil AKUREYRAR ÍSAFJARÐAR EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.