Morgunblaðið - 13.03.1981, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.03.1981, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981 t Moskvu. nokkru áður en Aksel Larsen var útskúfað. Yzt til vinstri er Einar Olgeirsson. Ný bók um uppljóstranir Aksels Larsens til nazista Danskir kommúnistar svipta geisla- baugnum af fyrrverandi foringja sínum „Ég var tekinn til íanga af Þjóðverjum 5. júní 1944 og þeir upplýstu að flokksformaður minn, Aksel Larsen, hefði skýrt þeim frá ólöglegri andspyrnustarfsemi minni á árunum 1941—1942. Mér brá illilega í brún enda þótt mér væri fullkunnugt um að danska lögreglan hefði einnig safnað upplýsingum um mig. Síðan hitti ég Aksel Larsen þegar við vorum báðir á heimleið úr þýzkum fangabúðum árið 1945. Þá sagði hann við mig að hann væri nú „dauður maður í danskri pólitíku eftir allt sem hann hefði ljóstrað upp um við Gestapo.44 Þetta segir David Hejgaard, blaðamaður, en hann er einn margra sem „ber vitni“ í bók sem er að koma út hjá Zacs-forlagi í Danmörku þessa daga og heitir „Et studie i rodt, hvidt og blát“ og það sem mesta athygli vekur að þar er frá því skýrt og stutt rökum að Aksel Larsen, sem var á stríðsárunum formaður danska kommúnista- flokksins - sem var að vísu bannaður þá - hafi í stríðinu ljóstrað upp um ótal marga flokksfélaga sína í yfirheyrslu hjá Gestapo, án þess að hann væri á nokkurn hátt beittur pyndingum eða þvingunum. Aksel Larsen. Myndin er tekin íáeinum árum fyrir andlát hans. Höfundur þessarar bókar er Tage Revsgaard Anderson, dyggur flokksmaður, og illar tungur halda því fram að kommúnistaflokkur Danmerkur geri með bókinni end- anlega upp sakirnar við Aksel Larsen og tíni af honum geisla- bauginn. Mikill hluti bókarinnar eru skjöl, sem fram til þessa hafa aldrei verið birt. Þar á meðal er útskrift á yfirheyrslu yfir Aksel Larsen eftir að Gestapo hafði handsamað hann. Þar kemur fram að án þess að Aksel Larsen virðist hafa verið beittur neinum þrýst- ingi, skýri hann fúslega frá allri starfsemi flokksins, gefi upp nöfn á flokksfélögum og öðrum sem honum var kunnugt um að ynnu með andspyrnuhreyfingunni, og hann tjáir sig — eftir þessum gögnum að dæma — einnig um starfsemi flokksins á fyrstu árum hernáms Þjóðverja í Danmörku. Samkvæmt yfirheyrslugögnum þessum byrjaði Aksel Larsen gætilega, en við hverja yfirheyrslu leysti hann æ meira frá skjóðunni. ,.Ég skal gefa sannferðuga frá- sögn af öllu sem viðkemur starfi flokks míns þar sem mér finnst það réttast — og það eina sem er forsvaranlegt gagnvart þeim kommúnistum sem bæði sitja í fangelsi og þeim sem ganga laus- ir,“ sagði Aksel Larsen í einni af fyrstu yfirheyrslunum, sem fram fór í nóvember 1942, eða löngu áður en andspyrnuhreyfingin í Danmörku tók verulega að láta að sér kveða. Aksel Larsen gerði sér sjálfur grein fyrir því að hreinskilni hans gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir hann og sagði við stjórnanda yfirheyrslunnar, nazistann Her- mann Span: „Éftir þetta er ég búinn að vera sem stjórnmálafor- ingi. Ég er sannfærður um að ógætni mín varðandi skipulag starfs míns hefur getað létt yður störfin og það er óafsakanlegt fyrir stjórnmálaforingja. Ef ein- hverjum öðrum leiðtoga komm- únistaflokksins hefði orðið á eitt- hvað ámóta hefði hann hlotið kröftuglega fordæmingu, ég get ekki hjá því komizt að fella yfir sjálfum mér viðlíka dóm.“ Og síðan byrjar Aksel Larsen fyrirstöðulaust að romsa. Fyrst skýrir hann frá flokksforystunni. Og Gestapo skrifar frá sér numinn niður nöfn á aðskiljanlegum félög- um: Thorkild Holst, Alfred Jen- sen, Börge Houman, Björn Jensen, Holger Vivike og svo framvegis og svo framvegis ... „Því miður veit ég nú ekki um heimilisföng þeirra," bætir Aksel Larsen við afsakandi, „en það er trúlegt að Thorkild Holst hafi þau.“ Span sem stjórnar yfirheyrslun- um á móðurmáli sínu vill líka vita nöfn á því fólki, sem Aksei Larsen þekkir innan andspyrnuhreyf- ingarinnar. Og Aksel Larsen romsar upp nöfnum: Teit Kærn, læknir, Carl Jensen forstjóri, Mogens Fog, prófessor, Helge Kierulff arkitekt og Sörensen, arkitekt. Og hann gerir það ekki endasleppt heldur bætir ámóta runum við. Dulnefni sem margir andspyrnuhreyfingarmenn nota hafa vafizt fyrir Gestapo, en Aksel Larsen leysir einnig greið- lega úr því: „Mogens Fog er Herluf. Ib Nörlund er Winther, Lulu Zieger er Lulu og Anna er Anna Kirk.“ Mogens Fog, próíessor Thune Jacobsen, fyrrv. dómsmálaráðherra í næstu yfirheyrslu segir Aksel Larsen frá neðanjarðarblaði flokksins „Land og folk“ svo og öðrum slíkum blöðum, s.s. Ny Tid, sem var gefið út í Helsingör, Gry í Næstved, Ekko í Árósum og Folk- ets Kamp í Álaborg. í þessari yfirheyrslu fékk Span einnig í hendur nöfn á meira en 30 sendi- boðum og „hornsílum" í andspyrnuhreyfingunni. Þegar Gestapo hafði síðan pumpað Aksel Larsen nægilega mikið var hann fluttur til búðanna í Sachsenhaus- en og seinna til Neuengamme, þar sem hann var til stríðsloka. Það mun hafa verið Thune Jacobsen, sem var dómsmálaráðherra Dana á árunum 1941—1943, sem fékk fyrstu grunsemdirnar um upp- ljóstranir Aksel Larsens. Þegar Jacobsen varð þess vísari í október 1944, að Þjóðverjar vissu um samstarf hans við ensku leyni- þjónustuna flýði hann yfir til Svíþjóðar. í fórum sínum hafði hann tvö koffort full af skjölum. Þar á meðal voru útskriftir af yfirheyrslum Gestapo yfir Aksel Larsen og voru þau ljósprentuð af andspyrnufólki og skaut þeim síðan upp í skjalasafni Ebbe Muncks, þar sem Hans Kirchoff, dr. phil. fann þau síðar, en dr. Kirchoff hefur einna mesta þekk- ingu á sögu hernámsáranna í Danmörku. Þegar Aksel Larsen sneri heim úr fangabúðunum var honum fagnað sem hetju af flokksfélögum sínum, sem ekki höfðu neinn grun um uppljóstranir hans. Hann hélt síðan forystutaumum komm- únistaflokksins í sínum höndum fram til ársins 1956 þegar hann gagnrýndi innrás Sovétríkjanna í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.