Morgunblaðið - 13.03.1981, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.03.1981, Blaðsíða 32
Sírnirm á afgreiöslunni er 83033 2WerjjnnbInl>i& ttMHHMHMi Síminn á ritstjóm og skrifstofu: 10100 JHerfltwblnbib Sbhmhhhhhhhmhhmhm FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981 Benedikt fluKmaður tekinn af fiugvélarflakinu eftir nær tveggja stunda bið. blautur, kald- ur og slasaður. á þaki flugvélar- flaksins sem rétt skaut kolli upp úr Firðinum. Hrapaði í Hornaf jörð 2 km frá landi: Ljósmynd Skúli Wnldorfl. „Hrópaði hástöfum þegar ég heyrði til bátanna í þokunni“ „IJIÐIN á flakinu fór aðallega i það að berja sér til hita og halda sér uppi á flakinu. en mér var orðið anzi kalt f jökulvatninu,“ sagði Benedikt Snædal flugmaður í samtali við Morgunblaðið í gær. eftir að hafa bjargast er Piper-vél Flugfélags Austurlands fórst á firðinum við Höfn í Hornafirði, en hann beið björgunar í svartaþoku nær tvo km. frá landi uppi á þaki flugvélarinnar sem var aðeins um 25 sm. upp úr sjónum. Vélin brotnaði i tvennt við stjórnklef- ann þegar hún skall niður og komst Benedikt út um gatið á þakinu. „Ég náði fljótlega í bjargbelti sem var í sæti fyrir aftan mig,“ sagði hann, „og gat rifið mig upp um gatið sem opnaðist á þakinu, en að öðru leyti geri ég mér satt að segja ekki fyllilega grein fyrir atburðarásinni þegar slysið varð. Ég veit ekki hvað ég var búinn að vera lengi uppi á flakinu þegar ég heyrði til báta einhversstaðar í þokunni og þá hrópaði ég hástöfum eins og ég gat, en hvernig mér varð við þegar ég sá bátinn stefna til mín verð ég að hafa fyrir mig að sinni." Átta sæta Piper Navajo PA31- 310 farþegavél Élugfélags Austur- lands var í aðflugi að flugvellinum á Höfn í Hornafirði í mjög slæmu skyggni þegar samband við flug- vélina rofnaði skyndilega laust fyrir kl. 12, en skömmu áður hafði flugmaðurinn heyrst segja að að- stæður væru ískyggilegar. Nokkur töf varð á að björgunarsveitin á Höfn hæfi leit vegna biðar eftir fyrirmælum frá Flugmálastjórn, en það sem fyrst fannst úr flugvél- inni var eitt hjól hennar og sæti á reki niður Hornarfjarðarós um það bil 1V2 km frá þeim stað sem vélin fannst síðan á. Vélin skall niður í fjörðinn um það bil tvo km. frá landi vestan við höfn og komu leitarmenn_að flakinu um kl. 13.30. Að sögn eins björgunarsveitar- manna var það tilviljun að hitta á flakið, því þokan var niðadimm. Voru björgunarsveitarmenn á Zodiac gúmmítuðrum með utan- borðsmótor, en lóðsbáturinn á Höfn sem einnig leitaði komst ekki inn á fjörðinn þar sem flakið var. Flugmaðurinn var fluttur í skyndi í Heilsugæslustöðina á Höfn þar sem gert var að sárum hans, en hann fékk m.a. höfuðhögg og skurð á höfuð, en var þó ekki alvarlega slasaöur, sem þykir furðu sæta eins og aðkoman var á slysstað. Vélin var að koma frá Reykjavík með lítinn farangur. Fulltrúar Flugmálastjórnar fóru til Hafnar í gær til þess að kanna aðstæður, en björgunarsveitar- menn festu flakið þannig að það hyrfi ekki í firðinum. Þegar vélin brotlenti var nær háflóð. Starfs- maður á verkstæði við fjöruborð fjarðarins í Höfn heyrði hróp utan af firðinum skömmu eftir að vélin fórst, en hafði þá ekki heyrt um slysið og gerði sér ekki grein fyrir hvað um var að vera. Skreiðarsamlagið og Sambandið semja við Nígeríumenn um kaup á skreið: Samið um 180 þúsund pakka -10% verðhækkun í dollurum Jafnréttisráð: Átelur veitingu ráðherra „ÞEGAR allt þetta er virt verður tæpast annað séð en aö um mismun- un sé að ræða, hvort sem hún er vegna kynferðis eða af öðrum ástæð- um ... Jafnréttisráð átelur þvi þessa veitingu ráðherra og að hann skyldi ekki leita álits ráðsins áður en hann veitti lyfsöluleyfið," segir m.a. f greinargerð Jafnréttisráðs við afgreiðslu svonefnds Dalvikur- máls, sem varöar veitingu Svavars Gestssonar heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra i stöðu lyfsala á Dal- vik. Jafnréttisráð samþykkti grein- argerðina einróma á fundi sinum f gær. í greinargerðinni segir Jafnréttis- ráðið, að Svavar Gestsson hafi ekki farið rétt með, er hann fjallaði um fyrri lyfsöluleyfisveitingar ráðherra og vitnar ráðið í yfirlit ráðuneytisins þar sem fram kemur, að aðeins einu sinni í þau 23 skipti sem heilbrigðis- ráðherrar hafa skipað í slíkar stöður hafi verið skipaður aðili, sem hvorki umsagnarnefnd né landlæknir röð- uðu nr. 1 í hæfnisröð. Lokaorð greinargerðar Jafnréttis- ráðs eru: „Við umfjöllun þessa máls hefur Jafnréttisráði orðið enn ljós- ara en áður hve mikið vantar á að jafnréttislögin tryggi nægilega, að jafnréttis sé gætt. Ráðið telur því nauðsynlegt að endurskoða lögin og leita leiða til þess að gera þau virkari." Sjá greinargerðir Jafnréttis- ráðs og ráðherra á bls. 18 og 19 og viðtal við Freyju V.M. Frisbæk á bls. 17. Sjálfstæðisflokkurinn: Landsfund- ur 29. okt. til 1. nóv. LANDSFUNDUR Sjálfstæðis- flokksins verður haldinn 29. október til 1. nóvember nk. Ákvörðun um fundartimann var tekin á fundi miðstjórnar flokks- ins i gær og tillaga þess efnis samþykkt með 15 atkvæðum gegn 2. Ekki eru nein ákvæði um hve- nær landsfund skuli halda í lögum flokksins og hefur landsfundur áður verið haldinn að hausti og má hér nefna árin 1961 og 1969. Síðustu ár hefur fundurinn þó verið haldinn að vori og spurði Mbl. Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks- ins, í gær hverju það sætti, að miðstjórn hefði tekið þessa ákvörðun nú. „Það er þá fyrst að geta þess,“ sagði Kjartan, „að miðstjórn telur þetta heppilegasta fundartímann. Þá er í dag almenn óvissa um stjórnmálaástandið og telja menn að línur skýrist með haustinu. Einnig er það ofarlega í hugum manna að nota megi tím- ann til haustsins til þess að ná á ný samstöðu með öllum sjálfstæð- ismönnum." Samþykkt ríkisstjórnar: Benzínhækkun ekki leyfð RÍKISSTJÓRNIN hafnaði á fundi sínum í gærmorgun samþykkt Verð- lagsráðs um 5% hækkun á benzíni, sem hefði þýtt hækkun á hverjum lítra úr 5,95 krónum í 6,25 krónur. SAMLAG skreiðarframleiðenda og Sambandið hafa gert samninga við nokkra aðila I Nigeriu um sölu á 180 þúsund pökkum af skreiö þang- að i ár, en samtals fluttu Íslend- ingar i fyrra út um 250 þúsund pakka af skreið til Nígeriu. Verð- mæti þessa samnings nemur 53,5 milljónum Bandarikjadollara eða 350 milljónum islenzkra króna (35 milljörðum gkróna) og náðist 10% meðaltalshækkun f erlendri mynt miðað við samninga á siðasta ári. Að auki hafa fyrirtækin gengið frá samningum um sölu á hertum þorskhausum. Morgunblaðið ræddi í gær við þá Magnús Friðgeirsson, sölustjóra sjávarafurðadeildar Sambandsins, og Braga Eiríksson, framkvæmda- stjóra Skreiðarsamlagsins. Þeir sögðu, að 180 þúsund pakkar af skreið jafngiltu 8.100 tonnum af skreið eða 56.700 tonnum af fiski upp úr sjó. Bankaábyrgðir hafa borizt fyrir fyrstu sendingunum héðan og er fyrsta skipið nú að safna saman skreið á ströndinni. Stefnt er að reglulegum afskipunum um leið og afurðir eru tilbúnar til afskipunar 98 tryggðir hafa verið flutningar frá íslandi til Nígeríu. Um verðhækkun- ina, sem náðst hefði í þessum samningum sögðu þeir, að hún vægi nokkuð upp á móti þeirri aðför, sem gerð hefði verið að skreiðarverkun hérlendis með breyttri verðlagningu á hráefni til skreiðarverkunar við fiskverðsákvörðun, greiðslum skreiðarverkenda í verðjöfnunarsjóð og frumvarpi til laga um aukin útflutningsgjöld á skreið. Nú selja Skreiðarsamlagið og Sambandiö beint til Nígeríu, en á síðasta ári var einnig um að ræöa sölu gegnum milliliði í Sviss og víðar. Er sendinefnd frá Nígeríu kom hingað til lands 17. janúar sl. lögðu Nígeríumenn ríka áherzlu á, að í ár yrðu þessi viðskipti milliliða- laust milli Islendinga og Nígeríu- manna. Einnig fóru þeir fram á verðlækkun miðað við hæstu ein- staka samninga síðasta árs. Mjög mikið hefur verið hengt upp af fiski í vetur, og er þeir Bragi og Magnús voru spurðir hversu mikil aukning væri í herzlu það sem af er árinu, sögðu þeir að erfitt væri um slíkt að segja og engar tölur væru fyrirliggjandi. Þeir bentu á, að í Noregi hefði orðið meira en þreföld- un skreiðarframleiðsiu í ár. Á síð- asta ári fóru 11,8% af bolfiskafla í skreiðarverkun og var þá um veru- lega aukningu að ræða, en hún er enn meiri í ár. Þeir sögðu að ætla mætti, að framleiðendur viðkomandi sölusamtaka myndu framleiða tals- vert fram yfir þá samninga sem Sambandið og Skreiðarsamlagið hafa nú gert. Þessi fyrirtæki fluttu út 145 þúsund pakka af skreiö til Nígeríu í fyrra, en einnig seldu fyrirtækin talsvert af hertum þorsk- hausum til Nígeríu og nokkuð af skreið til Ítalíu. Samtals seldu ís- lendingar um 250 þúsund pakka af skreið til Nígeríu á siðasta ári. Mest seldu íslendingar 800 þúsund pakka til Nígeríu árið 1957, en síðan hafa miklar sveiflur verið í skreiðarsölu til Nígeríu og sum árin síðan hefur ekkert verið selt þangað. Mikil aukning varð á framleiðslu hertra þorskhausa og sölu þeirra til Nígeríu á síðasta ári. Útlit er fyrir, að þessi framleiðsla aukist enn í ár, en Nígeríumenn vilja nú eingöngu fá þorskhausa, en ekki ýsu- og ufsa- hausa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.