Morgunblaðið - 29.03.1981, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.03.1981, Qupperneq 1
Sunnudagur 29. marz 1981 Bls. 41-72 A myndinni að ofan er Bevin á verkalýðs- fundi 1 Rristol 1914. Á neðri myndinni faKnar hann kosninKasÍKri Verkamanna- flokksins 1945. _______________________ Efri myndin: Bevin ávarpar þinK verkalýðssamhandsins i NottinKham 1930. Neðri myndin: Bevin undirritar samninK sem utanrlkisráðherra. Neðst tii hæKri er Bevin ásamt Florence, konu sinni. skðmmu áður en hann lézt, 1951. Ernest Bevins, eins íremsta leiðtoga brezka Verkamannaílokksins, heíur verið minnzt sem eins aí pólitískum risum aldarinnar i tilefni af því að eitt hundrað ár voru liðin frá fæðingu hans 7. marz sl. Saga hans er merkileg. Þegar hann var verkamálaráðherra í síðari heimsstyrjöldinni stjórnaði hann vinnuafla Bretlands og var valdamesti ráðherrann í striðsstjórninni fyrir utan Churchill. Jack Jones, hinn kunni verkalýðsleiðtogi, leiðir að því rök, að staða verkamanna hafi stórhatnað fyrir tilverkan Bevins og hann hafi haft forystu um breytingar, sem hafi jafngilt þjtiðfélagsbyltingu. Síðan var Bevin utanríkisráðherra i stjórn Attlees frá 1945 þar tii nokkrum vikum fyrir andlát sitt 1951 og mótaði grundvöll þeirrar stefnu, sem utanrikisráðherrar Bretlands hafa fylgt út í æsar allar götur siðan. Hann hafði forgöngu um stofnun Atlantshafsbandalagsins, beitti sér fyrir Marshall-áætluninni, sem kom til leiðar efnaahagsbata Evrópu, og sameinaði hinn frjálsa heim gegn stalinisma, öllum öðrum mönnum fremur. Eins og Christopher Mayhew, starfsbróðir hans í utanrikisráðuneytinu á þessum dögum, orðar það: „Þetta var stærsta starf í heiminum á þessum tíma. Starfið hæfði honum og hann leysti það af hendi.“ eftir PETER BATTY Ibúar þorpsins Winsford í Somerset þar sem Bevin fæddist í tveggja hæða verkamannskofa fá hroll þegar nafn hans er nefnt nú og segja: „Við erum allir íhaldsmenn hér“. Margt hefur breytzt í Wins- ford síðan á dögum Bevins. Þæg- indi og velsæld ráða þar ríkjum nú orðið. Þorpið er á ferðamannaleið- inni í Exmoor. Skrautklæddir veiðimenn ríða velkembdum hest- um sínum fram hjá snyrtilegum sveitahúsum og þetta er heimur sem Bevin þekkti aldrei.Stundum koma hestamennirnir við í þorpskránni Royal Oak þar sem móðir Bevins skúraði gólf á hverj- um degi til að sjá fjölskyldu sinni farborða. Bevin var sjöunda barn hennar og Diana Bevin (eða Mercy Bevin eins og hún var oftast kölluð) hafði skilið við eiginmann sinn. Raunar vissi Ernest aldrei hver faðir hans var. Hann fæddist óskilgetinn og áður en hann komst á þann aldur að hann færi að spyrja móður sína nærgöngulla spurninga dó móðir hans. Hann var þá tæplega átta ára gamall og var sendur til sveitarinnar Morc- hard Bishop í Devonshire til að búa hjá hálfsystur sinni, sem hafði gifzt járnbrautarstarfs- manni. Þar vill heldur enginn kannast við Bevin. En einn kennaranna í barnaskólanum á staðnum gat dregið fram bekkjarkladdann frá þessum tíma og þar mátti auðvit- að sjá nafn Bevins — seip var ranglega og háðulega stafsett Bev- an. Þegar fósturfaðir hans var hækkaður í tign færði hann sig um set niður eftir járnbrautarlín- unni í átt tii Exeter, til þorpsins Copplestone. Þar þurfti hann að ganga fjóra kílómetra í skólann, sem nú hefur verið lokað. Áður en eitt ár var liðið var hann settur í annan og stærri skóla í Crediton, markaðsbæ héraðsins í átta kíió- metra fjarlægð, og þangað fór hann á hverjum degi með lest og fékk ókeypis far þar sem hann var á framfæri járnbrautarstarfs- manns. Þegar Bevin var aðeins 11 ára og varla læs var hann látinn vinna landbúnaðarstörf í sveitinni um- hverfis Copplestone. Á fyrsta býl- inu fékk hann sex pens á viku og ókeypis fæði og húsnæði. Þar sem enginn annar á heimilinu var læs kom það í hans hlut á hverju kvöldi að lesa sögur úr þorpsblað- inu. Á næsta sveitabænum fékk Ernest sérherbergi í einu útihús- anna. Hann hafði það starf að hreinsa grjót af ökrunum, reka nautgripi, taka upp rófur og svo framvegis. En þegar Bevin var orðinn rúmlega 13 ára fluttist hann úr héraðinu til hálfbræðra sinna í Bristol. Hann kunni enga iðn og þekkti aðeins undirstöðuatriði í lestri, Sjá bls. 44 og 45.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.