Morgunblaðið - 29.03.1981, Síða 5

Morgunblaðið - 29.03.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981 4 5 sjálfs hefði orðið allt öðru vísi, því að hann og Morrison þoldu ekki hvor annan, en hins vegar mynd- uðust fljótt sterk tengsl milli hans og Attlees. Lífið var ekki dans á rósum hjá Bevin. Hann eignaðist marga óvini í félagi sínu vegna þess hvernig hann hélt á vinnudeilu strætisvagnastjóra í London skömmu fyrir stríð — verkalýðs- leiðtogum, sem stóðu að öðru leyti með honum, svíður enn afstaða hans til þeirra þá. Hann var í og með dálítill einfari að dómi Sir Vincent Tewsons. Tewson, sem var næstráðandi Citrines í TUC á þessu tímabili, segir að ljósið í skrifstofu Bevins hafi nær alltaf logað fram á kvöld. Þegar Tewson bauð fram aðstoð hafnaði Bevin venjulega boðinu. Ivy Saunders, ritari hans á þeim dögum, segir að hann hafi aldrei hlíft sér — eða öðrum ef út í það er farið — en seiglazt við það sem hann var að vinna hverju sinni unz hann rak smiðshöggið á það. Vinnudagur hans var langur, menn komu í viðtöl til hans með 10 mínútna millibili, hann sat óteljandi nefndarfundi, varð að lesa ótal skjöl og lesa fyrir ótal greinargerðir, hann fór aldrei frá skrifstofunni fyrr en kl. 7. 30 á kvöldin og hafði jafnan heim með sér fulla tösku af skjölum sem hann hafði myndað sér skoðun á þegar hann kom aftur kl. 9 morguninn eftir. Flestar helgar sat hann á fundum eða ávarpaði ráðstefnur. Þá sjaldan hann gat um frjálst höfuð strokið á laugar- dagseftirmiðdögum fór hann helzt í tyrkneskt bað í Northumberland Avenue og borðaði síðan úti með konu sinni og Queenie dóttur sinni, en á eftir var kannski farið í söngleikahús. Hann fór sjaldan í leikhús. „On with my motley" var uppáhaldslagið hans, að því er hann sagði Queenie. Heilsa Bevins varð óhjákvæmi- lega fyrir áfalli og hann var að hugsa um að leggja niður störf þegar hann var sextugur 1941. Ef hann hefði sagt af sér þá hefði hans samt verið minnzt sem eins af risum verkalýðshreyfingarinn- ar. En í maí 1940, þegar Churchill varð forsætisráðherra, hóf Bevin nýjan feril — sem verkalýðsmála- ráðherra. Verkefni hans var að kalla karla og konur Bretlands til starfa í þágu stríðsrekstursins og þetta útkall átti sér enga hlið- stæðu. Ekki aðeins í heraflann, heldur einnig í skotfæraverk- smiðjurnar. Til þess að gera þetta var honum veitt gífurlega mikil völd — meiri völd en nokkrum öðrum manni fram til þessa: til þess að kalla menn í herinn, til þess að beina verkamönnum úr einni atvinnugrein í aðra, til þess að flytja verkamenn úr einum bæ í annan. Þrátt fyrir lögregluríki og orðlagða skipulagsgáfu komst stríðsviðbúnaður Þjóðverja aldrei í hálfkvisti við viðbúnað Breta undir forystu Ernest Bevins. „Stór- kostlegt" var dómur margra brezkra embættismanna um frammistöðu Bevins á þessum tíma. Frá sumum heyrðust óánægjuraddir, aðallega af því þeim þótti hann hranalegur við þá sem gerðu axarsköft eða voru seinir á sér. En Sir Frederick Leggett, sem er 96 ára gamall og varð staðgengill Bevins í ráðu- neytinu, segir að Ernest hafi staðið sig vel vegna þess að hann hafi alltaf tekið tillit til mann- legra hliða allra vandamála og aldrei gleymt að hann var að fást við fólk. Ef til vill var erfiðasta vanda- mál Bevins að kolaframleiðsla minnkaði og aðferð hann til að leysa það — þvingað útboð manna til að vinna í námunum eins og menn eru kvaddir til herþjónustu — var kannski umdeildasta ákvörðunin í ráðherratíð hans, að minnsta kosti loðuðu óvinsældir hennar lengi við hann. Mikil reiði ríkti gegn áætlun hans um „Bev- in-drengina“ og hún tókst ekki sérlega vel. Að margra dómi verður Bevins frekar minnzt fyrir að koma til leiðar umbótum sem lengi hafði verið þörf á í verksmiðjum, svo sem hvíldarheimili fyrir verka- konur, heimili handa einhleypum stúlkum, dagvistarstofnanir handa útivinnandi húsmæðrum, atvinnu handa fötluðum, betri matstofur, bætt samgöngukerfi og bætta læknisaðstöðu o. sv. frv. — sem nú þykja sjálfsagðir hlutir í atvinnulífinu, en voru taldir bylt- ingargjarnir í stríðinu. Jafnvel á árinu 1942, þegar stríðið gekk sérstaklega illa fyrir Bandamenn, minnast margir samstarfsmenn hans þess að hann hugsaði upp- hátt um heiminn eins og hann ætti að verða þegar sigur ynnist. Uppáhalds orðtæki hans á þessum tíma var: „Þetta er alþýðustríð: það verður að leiða til alþýðufrið- ar.“ Enginn ráðherra naut eins mik- ils álits í stríðslok nema Churchill. A sama hatt og herútboð hans hafði verið meistaralegt var af- vopnun hersins vel framkvæmd og mannúðleg. Winston vildi sæma hann heiðursmerki, en hann hafn- aði því á sama hátt og hann hafnaði boði Ramsay MacDonalds um aðalstign á árunum eftir 1930. Vegtyllur skiptu hann ekki máli og auður ekki heldur. Árið 1946 var hann 64 ára gamall og hjartaveill. Margir gerðu ráð fyrir að hann mundi segja af sér. En hann var staðráðinn í að hafa áhrif á viðreisnina eftir stryjöldina og var tregur til að fá það starf í hendur manna eins og Herbert Morrisons. Uppi var hreyfing um að skipa Morrison leiðtoga Verkamannaflokksins í stað Attlees og það gerði Ernest heitt í hamsi. Butler lávarður, samráðherra Bevins í stríðinu, heldur því fram að Bevin hafi verið þannig skapi farinn, að þegar hann hafði veðjað á hest veðjaði hann alltaf á hann eftir það — og þannig var það með hann og Attlee. Ef Bevin hefði sjálfur mátt ráða eftir stórsigur Verkamanna- flokksins hefði hann kosið að taka við fjármálaráðuneytinu. En þá hefði hann komizt í snertingu — og illdeilur — við Morrison, sem Attlee hafði lofað að hafa yfir- umsjón með innanrikismálum. Þegar Bevin var sagt að hann ætti að verða utanríkisráðherra varð hann fyrst fyrir vonbrigðum. Það hafði líka áhrif á næstu persónu- legu fyrirætlun hans, því að hann og kona hans höfðu pantað sumar- leyfisdvöl í Devon.í þess stað steig hann upp í flugvél daginn eftir ásamt Attlee og fór til Berlínar til að koma fram fyrir hönd Bret- lands á Potsdam-ráðstefnunni ásamt Stalín og Truman. Þriðji — og að mörgu leyti afdrifaríkasti — kafli ferils hans var hafinn. Starfsmenn utanríkisráðuneyt- isins biðu komu Bevins á vettvang utanríkismálanna með varúð og sömuleiðis Rússar og Ameríku- menn. Að sögn Sir Roderick Barc- lay, sem var helzti aðstoðarmaður hans 1949 til 1951, hófst samvinn- an skínandi vel. Starfsmenn ráðu- neytisins komust að raun um að Bevin las skjöl þeirra, hlustaði á það sem þeir höfðú að segja og tók síðan ákvörðun. Þetta var ákveðni sem þeir kunnu vel að meta. Hann einsetti sér að læra tökin á Rússum, því að hann hélt að utanríkisráðherra Verkamanna- flokksins væri betur í stakk búinn til þess vegna hugmyndafræðilegs skyldleika vinstrimanna. En eftir margra mánaða ferðalög varð hann stöðugt vondaufari, eins og hörkulegur svipur hans á frétta- myndum frá þessum tíma sýnir alltof vel. Herská og ósveigjanleg afstaða Stalíns olli honum von- brigðum, einkum þegar boð hans um að framlengja vináttusamning Breta og Rússa úr stríðinu til 50 ára var virt að vettugi. Hann varð beiskur andstæðingur stalinista og kommunista. Sir Frank Roberts, helzti ráðu- nautur Bevins á undan Sir Roder- ick Barclay, spurði eitt sinn Bevin hvenær hann hefði fyrst lært tökin á Rússum. Hann svaraði því til, að það hefði verið á Bristol- sigur. Og færa má að því rök að gefa megi henni nafnið Bevin- áætlunin eins og George-Brown lávarður heldur eindregið fram, þar sem hún var aðeins óljóst loforð um hjálp til að endurreisa skipulag atvinnumála í Evrópu sem kom fram í Harvard-ræðu Marshalls hershöfðingja, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, í júní 1947, en það var aftur á móti Bevin sem greip þetta tilboð á lofti og sneri því, að sjálfsögðu með aðstoð Bandaríkjamanna, upp í áætlun um efnahagsbata Evrópu. Starf hans náði hámarki árið 1949 með stofnun Atlantshafsbanda- lagsins, sem Sherfield lávarður, þáverandi aðstoðarutanríkisráð- herra, segir að hafi verið mesta afrek Bevins á sviði utanríkis- mála. Roy Jenkins og Butler lávarður taka í sama streng. Allt þetta afrekaði Bevin þegar hann var kominn undir sjötugt og þegar hann fékk óhugnanlega tíð hjartaáföll. Sir Roderick Barclay minnist þess að læknir Bevins sagði eitt sinn að eini heilbrigði hluti líkama hans væru fæturnir og þar sem hann vóg um 270 pund þurftu þeir að bera mikla byrði. Hann átti líka fullt í fangi með að beygja sig og þurfti stundum hjálp við að hnýta skóreimarnar. En hjartað olli honum mestum erfið- leikum. Hann gat átt von á áfalli hvenær sem var: í diplómataboði eða við undirritun samninga eða jafnvel þegar hann steig um borð í Queen Mary að viðstöddum full- trúm heimsblaðanna. Sem betur fór stóðu þau stutt og hann hafði pillur á sér til vonar og vara, ef neyðin kallaði. Lífvörður Bevins og ritari hans höfðu alltaf auka- birgðir við höndina og höfðu æft sig í því að skjóta þeim að Ernest án þess að nokkur tæki eftir. Bevin fékk lítið hrós í flokki sínum fyrir að standa upp í hárinu á Rúissum, því að hann átti alltaf í útistöðum við félaga sína iengst til vinstri í flokknum. Þetta olli því, að hann fjarlægðist þingið. Shinwell lávarður, samráðherra hans á þessum dögum, heldur því fram, að Bevin hafi eiginlega aldrei notið sín í Neðri málstof- unni, ekki verið mikill þingmaður, að hann hafi ekki þolað gagnrýni, honum hafi alltaf þótt mótstaða grunsamleg í meira lagi og gram- izt hún og hann hafi litið á hana sem persónulega móðgun, talið að þeir sem væru honum ósammála dögunum þegar hann varð að semja í eigin persónu um ferm- ingu og affermingu hvers skips við hvern skipstjóra fyrir sig. Flestir þeirra vildu bjóða honum í glas þegar þeir ræddu skilmálana. En í samningum við rússnesku skipin lærði hann fljótt að semja um skilmálana fyrst og þiggja í glas á eftir. Barclay sagði að Bevin hefði þybbazt eins lengi við og hann gat á alþjóðlegum ráðstefnum þegar Rússar voru sérstaklega þreytandi á þeirri forsendu að þolinmæði væri ómetanleg og að lokum hlyti einhver að gefast upp. Gladwyn lávarður minnist þess að þegar Bevin þurfti að slaka á á kvöldin, þegar ýfir stóð sérstak- lega erfið ráðstefna með Rússum í París, hafi Bevin gjarnan skipu- lagt samsöng meðal brezku full- trúanna í hótelíbúð sinni. Einu sinni truflaði hótelstjórinn söng- inn til að kvarta yfir of miklum hávaða. Gladwyn telur óhugsandi að Molotov, hinn rússneski starfs- bróðir Bevins, og ráðunautar hans hefðu getað slakað á með þessum hætti — þetta var það sem gerði Ernest Bevin dálítið einstakan á vettvangi utanríkismálanna eftir stríðið. Þegar Rússar höfðu lagt stein í götu hans reyndi hann að tryggja öryggi hins frjálsa heims með stuðningi við Sameinuðu þjóðirn- ar. Það hafði í för með sér enn fleiri erfið ferðalög og enn fleiri vonlausar ráðstefnur. Það hafði líka í för með sér ótal ræður. Þegar litið er á gamlar frétta- myndir og horft á Bevin flytja þessar ræður og hlustað á hann vekur athygli sá einlægi áhugi sem hann hafði á málstað SÞ — áhugi sem fáir vestrænir stjórn- málamenn mundu fyllilega deila með honum nú í dag, stolt hans af afrekum Breta í síðari heimsstyrj- öldinni og gremja hans í garð Rússa vegna sýnilegs skilnings- leysis þeirra á þessum afrekum. Slíkar tilfinningar virðast ekki njóta nógu mikils stuðnings nú í dag. Þegar Bevin hafði mistekizt að fá Rússa til samstarfs við endur- reisn Evrópu hófst hann handa um að reisa hana við sjálfur, í hverju landinu á fætur öðrum, með hverjum samningnum á fæt- ur öðrum. En stærsta afrek hans í embætti utanríkisráðherra var að skuldbinda Bandaríkin til þátt- töku í vörnum Vestur-Evrópu. Marshall-áætlunin var líka mikill væru í raun réttri að reka rýting í bakið á sér. George-Brown lávarð- ur heldur því fram, að Bevin hafi litið niður á stjórnmálamenn og talið þá óæðri mannverur. Sér- staklega fannst honum Herbert Morrison háll og reikull og ótrúr. Þegar félagi hans gaf í skyn, að Morrison væri mesti óvinur hans hreytti Bevin út úr sér: „Ekki meðan ég lifi.“ Hann hélt einkalífi sínu alltaf aðskildu. Vinir hans halda því fram, að hann hafi ekki átt auðvelt með að kynnast fólki, ekki verið félagslyndur að eðlisfari, og honum hafi ekki fundizt auðvelt að slaka á með öðru fólki og vera í félagsskap, nema hann hefði þekkt það lengi. Roy Jenkins heldur, að Bevin hafi átt sárafáa nána vini nema Florence konu sína. Alex- ander Frere, sem var blaðafulltrúi Bevins í stríðinu og varð seinna stjórnarformaður bókaforlagsins Heinemann, segir að mjög kært hafi verið með þeim hjónum og hún hafi ekki farið með honum í hinar mörgu ráðherraferðir hans einfaldlega vegna þess, að hún var feimin og hefði ekki vitað sitt rjúkandi ráð. Þó kom fyrir, að hún lét í ljós afbrýðisemi í garð hins stóra kunningjahóps eiginmanns síns. Sumum þeirra fannst hún heim- óttarleg og vera eins og smá- bóndakona að skapferli. Meira að segja þegar Ernest var orðinn verkalýðsmálaráðherra var hún ekki yfir það hafin að trufla hann á mikilvægri ráðstefnu til að kvarta yfir því að öskukarlarnir væru seint á ferðinni heima hjá þeim. Sir Roderick Barclay minn- ist þess, að hún hringdi eitt sinn í Bevin í utanríkisráðuneytið til að spyrja hann ráða um, hvernig hún ætti að meðhöndla erfiðan steik- arbita, sem hún var að matreiða. Hjónabandið hefur greinilega ekki verið auðvelt fyrir hana, því að vegna vinnunnar kom Ernest alltaf seint heim á kvöldin og hann var oft lengi fjarverandi að heiman. Hann harmaði það oft í samræðum við vini sína, að hann gæti ekki verið oftar með Queenie fósturdóttur þeirra. Þegar hún var lítil hafði hann gaman af því að fara með hana í langar gönguferð- ir úti í sveit um helgar og í ökuferðir í opnum bifreiðum niður að ströndinni í Sussex. Seinna, þegar hann var utanríkisráðherra, reyndi hann að sjá svo um, að henni og eiginmanni hennar væri boðið öðru hverju í diplómata- veizlur, svo að hann gæti verið með þeim smástund. Queenie er enn á lífi og er ákaflega feimin, treg að ræða um foreldra sína, að minnsta kosti opinberlega. Þau voru aldrei rík, því að föður hennar var aldrei sýnt um að heimta kauphækkun handa sjálfum sér og seinna gaf hann drjúgan hluta af ráðherra- laununum. Hann gat lítið lagt fyrir og þegar hann var látinn seldi móðir Queenie marga hjart- fólgna gripi til að sjá sér farborða, þangað til vinir þeirra komust að því og hjálpuðu henni. Bevin taiaði talsvert um móður sína og hafði ljósmynd af henni á borðinu hjá sér alla tíð. Þótt hún létist þegar hann var lítill drengur hafði hún samt mikil áhrif á hann. Hann unni henni greinilega mjög og honum fannst hann standa í mikilli þakkarskuld við hana. Þeg- ar hann var að því spurðúr seinna á lífsleiðinni, hvers vegna hann væri eins og hann væri, svaraði hann alltaf: „vegna móður minn- ar.“ Bevin lézt 14. apríl 1951. Hann var án vafa mikilmenni og við munum ekki aftur sjá hans líka. Eins og Roy Jenkins orðar það, „Enginn sem er fæddur 20, 30, 40, hvað þá 50 árum síðar en 1881, getur verið gæddur eins mikilli eðlisgreind og Bevin ,án þess að ryðja sér braut upp í gegnum menntakerfið." Þegar Georg VI spurði Bevin hvar hann hefði fengið menntun sína svaraði hann „í limgerðum lífsreynslunnar." Hann var einstakur maður, risi, einn af milljón. Dean Acheson áeamt Bevtn áriA YMO. Bevin ( Paría 1949 éaamt emlMettiabraaArum sínum Acheson, Vishinsky og Schuman.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.