Morgunblaðið - 29.03.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981
51
Fimmtugur:
Foreldrasamtök stofnuð á Akureyri:
Stefán S. Tryggvason
lögregluflokksstjóri
Skora á bæjarstjórn að gera
átak í dagvistarmálum
Fimmtugur er í dag, 29. mars,
Stefán S. Tryggvason lögreglu-
flokksstjóri. Ég veit að honum er
lítt að skapi að um hann sé
skrifað, en hann verður þó að
sætta sig við afmæliskveðju frá
gömlum starfsfélaga.
Stefán er Eyfirðingur, fæddur í
Sæborg í Glerárþorpi sem nú er
hluti af Akureyri. Foreldrar hans
voru hjónin Tryggvi Ólafsson vél-
stjóri og Guðlaug Stefánsdóttir.
Stefán missti föður sinn 5 ára og
ólst upp eftir það hjá móðurfor-
eldrum sínum þar nyrðra til 16
ára aldurs.
Hugur hans stefndi fljótt til
sjósóknar og var hann á fiskibát-
um og togurum frá unglingsaldri
til 24 ára aldurs, fyrst á Norður-
landi en síðast í Vestmannaeyjum,
þar sem hann var stýrimaður eina
vertíð. Á miðju ári 1955 hætti
hann sjómennsku og fluttist til
Reykjavíkur. í byrjun árs 1957
byrjar hann lögreglustörf. Var
hann fyrst hálft ár í Ólafsvík en
lauk þvínæst lögregluskólanámi
og hefur starfað í lögreglunni í
Reykjavík síðan. í tómstundum
sínum hefur hann stundum ekið
leigubifreið, en auk þess verið
ökukennari í u.þ.b. 20 ár. Einnig
hefur hann gaman af að safna og
fást við gamlar myntir, stunda
ferðalög utan lands og innan.
Þetta er stuttleg lýsing á lífs-
hlaupi Stefáns, því maðurinn er
allur mikillar gerðar. Hann hefur
löngum sett svip á lögreglu
Reykjavíkur og sem vaktfélagi
hans í nær tvo áratugi tel ég mig
geta sagt að hann hefur þar
mörgum aðstoð veitt. Hann er
góður félagi og öruggur í sjón og
reynd. Jafnframt því að vera
ákveðinn og sterkur eins og sagt
er hefur Stefán að mínum dómi
góða hæfileika til að umgangast
fólk með ólíkustu skapeinkenni og
léttur húmor hans oft komið sér
vel í lögreglustarfinu. Var oft
Samísk sýn-
ing á ferð um
Norðurlönd
NORRÆNA listamiðstöðin opnaði
i Karasjok 20. mars á þessu ári
eina umfangsmestu sýningu á sam-
ískri list, sem nokkurn tfmann
hefur verið skipulögð, Sámi dá-
idda. Sýningin er skipulögð i sam-
vinnu við Norræna safnið f Stokk-
hólmi og nokkrar < a- stofnanir
og samtök og er tilgai. gurinn að
kynna samiska list allt frá sögu-
legri alþýðulist og seinni tima
myndum hennar til nútima mynd-
listar innan Samasvæðisins.
Áhersla er lögð — á þessari
sýningu eins og í samískri list
yfirleitt — á hina hefðbundnu
alþýðulist. Meirihluti sýningargrip-
anna kemur frá ýmsum söfnum,
einkum Norræna safninu, sem m.a.
lánar alveg einstaka galdratrommu
og skreyttan brúðarsleða. Samískt
listhandverk nútímans er einkum í
horni og textíl, frá öllum Samalönd-
unum þrem, Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi.
Sýningin fer til allra Norðurland-
anna. Upphaf ferðarinnar var í
húsnæði félags Sama í Karasjok í
N-Noregi, þar sem sýningin var
opnuð af umhverfismálaráðherra
Noregs, Rolf Hansen, þann 20. mars.
Sýningin verður opin í Karasjok til
7. apríl. Frá Karasjok fer sýningin
til Listasafns Ábo, 15.4.—17.5. 1981,
til Listasafnsins í Gautaborg 4.6.—
23.8. 1981, til Listamiðstöðvar
Henie-Onstad í Noregi október og
nóvember 1981, til Listasafns
Norður-Jótlands í janúar 1982, til
Norræna hússins í Reykjavík í
febrúar og mars 1982, og til Nor-
ræna safnsins í Stokkhólmi í apríl
og júní 1982.
gaman að starfa með Stefáni því
hann var fljótur að átta sig á
hlutunum og þegar þurfti að tala
menn til eins og kallað er var
hann manna snjallastur. Hann er
því eins og sagt er réttur maður á
réttum stað, því hjartað er gott
sem undir slær.
Það væri hægt að segja að
Stefán væri sinnar eigin gæfu
smiður. Það er þó ekki að öllu rétt.
Lífsförunauturinn á þar sinn hlut.
Stefán er kvæntur dugnaðar- og
myndarkonu, Rannveigu Krist-
jánsdóttur, ættaðri úr Bolungar-
vík og sameiginlega hafa þau
byggt upp traust heimili þar sem
börn þeirra eiga öruggt skjól.
Börn þeirra eru Rannveig Kristín,
Guðlaugur Tryggvi og Sigríður
Halla.
Til hamingju með áfangann.
Allt er fimmtugum fært. Stefán
og Rannveig taka á móti gestum
sinum í dag kl. 15—19 að Lauga-
læk 24.
Þórður Kárason varðstjóri
STOFNFUNDUR Foreldra-
samtakanna á Akureyri var
haldinn í Alþýöuhúsinu,
þriðjudaginn 24. mars sl. Um
eitthundrað manns sóttu fund-
inn. Á fundinum var flutt
ávarp undirbúningshóps og
kynnt starfsemi foreldrafé-
laga viðs vegar að.
Umræðuhópar ræddu mark-
mið og starfshætti samtak-
anna, baráttumál þeirra og
drög að lögum. Ennfremur var
rædd þátttaka samtakanna í
væntanlegum landssamtökum
foreldra, sem stofna á þann 26.
mars. Fundarmenn voru þeirr-
ar skoðunar að eitt brýnasta
baráttumál samtakanna væri
dagvistarmál, en mikill skortur
er á dagvistarrýmum á Akur-
eyri. Var af því tilefni undirrit-
að bænaskjal til bæjarstjórnar,
þar sem skorað er á bæjar-
stjórn við afgreiðslu fjárhags-
áætlunar, sem nú stendur yfir,
að gera verulegt átak í þeim
málum. Annað brýnt verkefni
er að beita sér fyrir stofnun
fleiri foreldrafélaga við skóla
og dagvistir og stuðla að aukn-
um tengslum milli heimila,
skóla og dagvista.
Á fundinum var kosið í stjórn
og samþykkt lög félagsins.
(F rétUtllkynninc)
Nýtt frá GKÐA
hádegispylsa
reykt, soðin og sérlega ljúffeng!
Hádegispylsan frá Goða er enn ein
skemmtileg nýjung - kryddaðri, bragð-
meiri og pattaralegri en gengur og gerist!
Gerðu þér góðan mat úr hádegispylsum,
berðu þær t.d. fram með hvítu brauði eða
grófu, grænmeti, ávöxtum, hrærðum
kartöflum eða öðru því sem til fellur og
hugurinn girnist.
Láttu
GKÐA
koma þér enn einu sinni á óvart