Morgunblaðið - 29.03.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981
53
55 Þegar lögreglan vildi fá hana til að
upplýsa hvernig hún hefði orðið ólétt,
aftók hún með öllu að skýra frá því 5 5
Það tekur á
taugarnar að
þjóna Titan
í opinberri skýrslu, sem
varnamálaráðuneyti Banda-
ríkjanna hefur nýlega birt,
kemur fram, að óhugnanleg
aukning hefur orðið á slysum
vegna mannlegra mistaka i
Titan eldfiaugastöðvum.
I septembermánuði síðast-
liðnum fórst tæknimaður og 21
slasaðist og varð það til þess að
skýrslan var samin. í henni
kemur fram, að 21 „óhapp" átti
sér stað á síðasta ári í Titan
eldflaugastöðvum og þar af
áttu 12 rætur að rekja til
mannlegra mistaka. Árið 1979
urðu 18 óhöpp og þar af ollu
mannleg mistök helmingnum. í
skýrslunni er fullyrt, að mistök
starfsmanna í eldflaugastöðv-
unum hafi meiri hættu í för
með sér en bilanir í tækjabún-
aði.
Titan eldflaugin ber átta
megatonna kjarnaodd, sem er
hinn öflugasti í kjarnorku-
vopnabúri Bandaríkjanna á
Kjarnaoddurinn er „traustastur"
landi. Alls eru 54 slíkar eld-
flaugar í stöðvum neðanjarðar í
þremur ríkjum Bandaríkjanna.
Titan eldflaugarnar eru nú
orðnar 16 ára gamlar og menn
hafa síauknar áhyggjur af ör-
yggisbúnaði þeirra. Síðustu töl-
ur um slys og óhöpp í Titan
stöðvunum sýna berlega hina
óhugnanlegu þróun. Árið 1970
varð eitt slys, árið 1971 fjögur
slys, árið 1972 ekkert slys og
eitt árið 1973.
Nefndin sem samdi skýrsl-
una fékk það verkefni eftir
slysið i Damaskus i Arkansas
ríki, þegar sprenging þeytti
kjarnaoddinum 70 metra upp
úr neðanjarðarbyrginu og eyði-
lagði eldflaugina.
Kjarnaoddurinn sjálfur
skemmdist ekki. í skýrslunni
segir, að reynsluleysi margra
starfsmanna í eldflaugastöðv-
unum sé helzta ástæðan fyrir
síauknum fjölda slysa. Það
verði sífellt erfiðara fyrir her-
stjórnina að fá til starfa og
halda í hæft fólk.
Óvinsælustu störfin í eld-
flaugastöðvunum er að flytja
og skipta um eldsnéyti í Titan
flaugunum, sem er gífurlega
eldfimt. Þá segir í fyrrnefndri
skýrslu að mjög skorti á þjálf-
un starfsmanna og að ekki sé
farið eftir þeim þjálfunarregl-
um sem settar hafi verið. Á ári
hverju hefur reynzt nauðsyn-
legt að veita tímabundið leyfi
frá störfum um 150—180
starfsmönnum vegna andlegra
eða líkamlegra erfiðleika vegna
dvalar í byrgjunum.
Nefndin kemst samt að þeirri
niðurstöðu í skýrslunni, að Tit-
an eldflaugin sé mjög örugg að
allri gerð og að kjarnaoddurinn
sé traustasti hluti hennar.
- IAN MATHER.
ELDSNEYTI
Uppeldisfræðin
brenna best
Richard Booth, sjálfkrýnd-
ur „konungur“ Hay on Wye og
eigandi stærstu fornbókasölu
heims hefur gefið út yfirlýs-
ingu, sem vakið hefur bóka-
unnendum ugg í brjósti —
jafnvel svo mjög, að þeim gæti
komið til hugar, að steypa
kónginum af stóli.
Hann hefur skýrt frá því að
„bærinn hans“ við landamæri
hafa þessar aðferðir verið lagðar
gersamlega fyrir róða og for-
dæmdar. Hér reyndum við að líta
hlutlægt á þær, og enda þótt
margt í þeim sé ef til vill argasta
vitleysa eru þarna ýmsir þættir,
sem hafa geysimikið gildi." Próf-
essorinn telur, að það eigi einkum
við um geðsjúkdóma svo sem í
tilviki Horufu. „Hér sem og í
öðrum menningarsamfélögum
hefur trú á lækningamáttinn mjög
mikla þýðingu. Þið á Vesturlönd-
um hafið pillurnar."
„Hvers svo sem ástæðan er hafa
sumar fornu lækningaaðferðirnar
borið miklu meiri árangur í þessu
þjóðfélagi við meðferð geðsjúk-
dóma heldur en sálarfræðin," bæt-
ir hann við.
STEPHEN TAYLOR
Englands og Wales, sem löng-
um hefur verið hið fyrirheitna
land bókaunnenda, muni taka
upp sölu á eldsneyti. Verði
hvert bílhlass af þessu elds-
neyti boðið fram á kr. 20, en þar
er um að ræða bækur, sem
kóngurinn ætlar fólki að
brenna í arninum heima hjá
sér.
Booth gaf þá skýringu á
þessu framferði sínu, að hann
væri orðinn mjög svo aðþrengd-
ur vegna plássleysis fyrir bæk-
urnar. Hann krýndi sjálfan sig
konung árið 1977 og lýsti Hay
on Wye sjálfstætt ríki!
Booth rekur fimm bókabúðir
í bænum, sem telur 1.400 íbúa.
Troðfullar bókahillurnar eru
samtals um 9 mílur að lengd.
Bækur streyma inn, allt að
tvær milljónir eintaka á ári.
Frá því að Booth krýndi sig
konung hefur fólkið í bænum
vanist uppátækjum hans. Eigi
að síður hefði fyrsta hugmynd
hans um að losna við bækur
komið þeim á óvart, hefði hún
verið framkvæmd.
— Eg var að hugsa um að
láta reisa turn úr bókum, og
síðan ætlaði ég að hljóta leg-
stað þar inni, segir hann. — En
það hefði orðið of mikið vesen
að skýra fólki frá því að þetta
væri bautasteinn en ekki lista-
verk úr bókum, sagði hann
nýlega við blaðamenn.
Þess í stað fékk hann hug-
myndina um að bjóða bækur
fram sem eldsneyti. Hann hef-
ur þegar gert tilraun með að
brenna bækur og segir að þær
séu heppilegastar fyrir ofna,
þar sem bruni sé hægur.
Hann segir, að bækur séu
talsvert ódýrara eldsneyti en
kol. Hins vegar náist beztur
árangur, sé bókunum blandað
saman við nokkur viðarsprek
inni í ofninn.
Efni bókarinnar hefur engin
áhrif á hitastigið, að sögn
Boothes. Þó segir hann að
bækur um latneska guðfræði,
löggiltar námsbækur, róman-
tískar skáldsögur og „afspyrnu-
lélegar bækur um uppeldis-
fræði" brenni best.
„Ef fólk sæi sumar náms-
bækurnar, sem samdar hafa
verið fyrir nýtízku háskóla,
myndi það álíta, að ég væri að
gera því greiða."
—PAUL KEEL
r^Fepðataska
ep tiIvallR
FepnrfRgap-
Húsgagna-
sýning
í nýrri húsgagnaverslun. í tilefni opnunar nýrrar
húsgagnaverslunar í Dúna-húsinu, sýnum viö í
dag frá 2 til 5, nýja gerö af unglingahúsgögnum
svo og ísiensk og sænsk vegghúsgögn.
Trésmiðjan Víðir,
Síöumúla 23.
S. 39700.
SELKO
SIGURÐUR
ELÍASSON HE
AUÐBREKKU 52. KÓPAVOGI. SlMI 41380
Hringið eða skritið eftir frekari upplýsingum
Ég óska eftir að fá ókeypis myndalista yfir SELKO hurðir
Nafn:
Heimili:__________________________________________________________
Sími:__________________________________________________________________________
Sendist til: Sigurðar Elíassonar h.f. Auöbrekku 52 — Kópavogi Sími 41380