Morgunblaðið - 29.03.1981, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981
55
Tveir í Ný-
listarsafninu
Það er merkilega góð sýn-
ingaraðstaða, sem þeir er standa
að Nýlistarsafninu hafa komið
sér upp, þar sem áður voru
húsakynni Rydens-kaffibrennsl-
unnar og er að Vatnsstíg 3, og að
auki i sama húsaporti og Galleri
SÚM hafði aðsetur meðan það
var og hét.
Myndllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
Öll eru húsakynnin hin vistleg-
ustu og bjóða upp á mikla mögu-
leika á öllum sviðum myndlistar
og verður fróðlegt að fylgjast með
framvindu mála á þessum stað.
Hér þarf að koma til mikil atorka
og áræði til að hlutir gangi
farsællega fyrir sig og aðstand-
endur salarkynnanna eru minntir
á það, að þeir eru staddir á
íslandi, hvort sem þeim líkar
betur eða verr.
Fyrir skömmu voru listnemar
úr nýlistardeild Myndlista- og
handíðaskólans með gjörninga á
þessum stað ásamt kennara sínum
og nokkrum öðrum. Mjög vafa-
samt fyrirtæki óþroskaðra skóla-
nema og þótt aðsókn hafi verið
nokkur, var hún þó varla miklu
meiri en þegar t.d. Nonni treður
upp með frumsömdum dansi í
kringum myndir sínar. Sé samlík-
ingin viðkomandi ekki hugþekk,
má minna á fullyrðingar þeirra í
síbylju, að allt sé leyfilegt í
myndlist...
Hví skyldu íslenskir myndlist-
armenn yfirleitt til hópa marka
sér jafn níðþröngan skoðanabás
og raun er á, t.d. ef tekin eru mið
af viðtölum við þá í fjölmiðlum.
Þá hampa þeir yfirleitt skoðana-
bræðrum sínum og félögum ein-
vörðungu, en skilja ekkert annað,
skoða ekki sýningar annarra því
að þeir finna ekkert í verkum
þeirra er öðruvísi hugsa. Þetta
kemur ekki síður fyrir hjá hinum
eldri en þeim yngstu og getur
ekkert kallast annað en hreppa-
pólitík og útnesjamennska í list-
um. Er af nákvæmlega sama toga.
Mætti þannig halda því fram, að
hinir eldri og yngri séu eineggja
tvíburar í tíma og rúmi...
— Hér var annars ætlunin að
minnast dálítið á sýningu tveggja
þekktra nýlistarmanna, þeirra
Ólafs Lárussonar og Þórs Vig-
fússonar. Ég endurtek „dálítið",
því að gestir fá ekkert upp í
hendurnar um verkin á sýning-
unni og þannig mætti ætla, að
ungu mennirnir álíti sig vera að
sýna í miðborg Amsterdam og þó
fær maður jafnan eitthvað upp í
hendurnar á slíkum sýningum í
formi sýningarskrár eða jafnvel
heimspekilegra hugleiðinga.
Harðir jarð-
skjálftar í
Mólúkkahafi
llonK Konjc. Jakarta, 27. marz. — AP.
HARÐIR jarðskjálftakippir
urðu í dag í Hong Kong og
skömmu siðar i Mólúkkahafi
út af Indónesiu.
Mældist skjálftinn í Hong
Kong 6,2 stig á Richterkvarða,
en var ögn vægari í Mólúkka-
hafi 2.600 km norðaustur af
Jakarta eða 6,1 stig. Svo virð-
ist sem hvorki hafi orðið
manntjón né eignaskemmdir í
þessum skjálftum. Þeir áttu
upptök sín í Mólúkkahafi.
Það er einnig líkast því að
margt, sem sett er upp hér, t.d. á
þessum stað og í Gallerí Suður-
götu 7, sé frekar sett upp til
auglýsingar erlendis en kynningar
hérlendis og verður þessu fólki
furðanlega vel ágengt.
Hér heima hafa sýningarnar
verið óvandaðar, sýningarskrár
engar, en þegar hinum ungu
mönnum hefur tekist að koma ár
sinni fyrir borð, setja erlendir upp
sýningar þeirra og gefa út veglega
sýningarskrá og auglýsa þetta
sem rjóma íslenzkrar listar í dag,
enda er þetta bergmál þeirra eigin
skoðana og þeir himinlifandi að fá
það einnig frá íslandi, Grænlandi,
Svalbarða o.s.frv.
Því þarf ekki að bæta við, að
hinir erlendu þekkja ekki par til
íslenzkrar listar, enda hér óþarfi
að þekkja annað en sinn eiginn
nafla og dást að spegilmynd sinni,
líkt og Narkissos hinn gríski.
Árangurinn af þessum óvönd-
uðu sýningum hér heima er einnig
að vonum; örfáar hræður láta sjá
sig á sýningunum og þá oftast
félagar sýnenda, jafnvel frændur,
frænkur og skyldmenni hafa gef-
ist upp og hefur þó stuðningur
slíkra reynst mörgum drjúgt
veganesti er langt hafa komist.
— Á sýningu þeirri, er hér
skyldi til umræðu, þykir mér
mikill kraftur í myndum Ólafs
Lárussonar og finnst mér per-
sónulega þetta vera hans
sterkasta framlag til þessa á
myndlistarvettvangi. Fyrir sumt
minna myndirnar nokkuð á Arn-
ulf Rainer og myndhugsun hans,
nema að Ólafur afskræmir sjálfan
sig ekki líkt og Rainer. Það hefur
enga þýðingu að taka myndirnar
til rækilegrar meðferðar, þar sem
sýningarskrá, nöfn og númer
vanta og þvi útilokað að höfða til
einstakra mynda.
Þór Vigfússon á einungis tvö
verk á sýningunni og renna þau
saman sem eins konar environ-
ments. Við áhorfandanum blasir
stórt blátt málverk, einlitt, en með
greiniiegum pensilförum, órólegri
áferð. Sandhrúga er fyrir framan
máiverkið og mislitar ljósaperur
hanga í fleygboga þar yfir, svo sér
í gulan, einlitan léreftsrenning til
viðbótar þessu. Áhrifin eru þekki-
leg en ekki stórbrotin.
Ég hafði ánægju af innlitinu á
þessa sýningu, en óska eftir vand-
aðri vinnubrögðum með tilliti til
væntanlegra sýningargesta. Upp-
setningin er ágæt.
Kodak
myndavélar
... í fallegum
gjafaöskjum
Kodak Ektralite 400:
Falleg og stílhrein myndavél meö linsu f/6.8 — Ijósopi 24 mm.
— Innbyggðu flassi — Föstum fókus frá 1,2m til óendanlegt.
Verö kr. 478,-
Kodak Ektra 200:
Falleg og stílhrein myndavél með linsu f/11 —
Ijósopi 22mm — Föstum fókus frá 1,2 m til óendanlegt.
Verö kr. 274,-
Kodak Tele-Ektralite 600:
Glæsileg myndavél með aðdráttarlinsu f/8— Ijósopi 22mm.
— Innbyggðu sjálfvirku flassi — Föstum fókus frá 1,2 m til
óendanlegt— og fimm hraðastillingum.
Verö kr. 697,-
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI
S: 20313
GLÆSIBÆR
S: 82590
AUSTURVER
S:36161
Umboðsmenn
um allt land