Morgunblaðið - 29.03.1981, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981
57
Fyrir hálfum mánuði las ég í
Morgunblaðinu, að gamall vinur
Vísnaleiks, Margrét Ólafsdóttir,
saknaði þess að hann skyldi ekki
haldast vakandi og birtast reglu-
lega eins og áður. Af þeim sökum
og líka vegna þess að daginn
lengir skal nú brugðið á leik á
ný. Fyrir nokkru þegar sólin fór
aftur að skína og Margrét sá
vorlaukana sína gægjast upp úr
moldinni, sagði hún:
Sólarljósið logar skært,
lyftir brúnum mínum.
Veika anga vorsins kært
vefur geislum sínum.
Næsta vísa Margrétar er af
svipuðum toga og er fram kveðin
í fyrsta og þriðja vísuorði (tjóð-
ur — gróður). Þvílíkar vísur eru
oft sléttubönd eins og þessi:
Tjóður vetrar bráðum býst
brjóta sólarkraftur.
Gróöur jarðar vaknar víst.
Voriö kemur aftur.
Þessi staka minnir á sinn hátt
á söguna af Sigurði bónda á
Hólsseli á Fjöllum. Eitt harð-
indavorið spurði vegfarandi
hann, hversu kindurnar hefðu
gengið fram og hvort sauðburð-
urinn hefði ekki verið erfiður.
— Næsta vor verður gott,
svaraði Sigurður að bragði, þar
sem hann stóð í skafrenningnum
á hlaðinu í Hólsseli, — og komið
fram í júní.
í þingveizlu á dögunum fór ég
með þessar vísur í tilefni af
miklum umræðum á Alþingi um
leynisamninginn, sem kommún-
istar halda dauðahaldi í og
varaþingmaður Framsóknar-
flokksins fyrir vestan, en ráð-
herrar gera ýmist ekkert með
eða tala um í gátum. Séra Helgi
Sigurðsson segir, að viðkunnan-
legast sé að kalla háttinn Stuðla-
fall og eins og hann er hér
kveðinn, er hann frárímaður og
frumoddhentur ofan í kaupið.
Fyrsta og síðasta vísan er síð-
hringhend og sú þriðja auk
heldur siðhringhend — og rím-
samhent (sama sem síðtvíþætt):
Kommum óar Óli Jóh. í sýsli,
svo þá langar suö’rá Völl.
Sendist þangaö nefndin öll.
Sprengjubúr er þar og skúr og
skemma.
Innan skamms rís ðnnur slík.
Olíutankur í Helguvík.
Ólafur Ragnar ekki þagnar síðan.
Er meö jagg og nudd og nagg:
Núna gagni leyniplagg.
Óli glottir, gjörir spott og leyni-
plaggiö hverfur blaö viö blaö.
bolsivíkkar átu það.
Suö’rá Melum fugl í felum kúrir.
Ekki breytist Óli Jóh.
Aldrei þreytast kommar nóg.
Fyrir tæpu ári sendi Elín
Pálmadóttir mér afrit af bréfi,
sem henni hafði borist frá Krist-
jáni Eldjárn af því tilefni að hún
hafði birt í Gárum litla ljóða-
þýðingu eftir forsetann þáver-
andi. Eg vona að mér fyrirgefist
þótt ég birti hér kafla úr bréfinu:
„Það eru víst býsna margir,
sem einhverntíma hafa gripið í
Náttúran er vor milda móðir
að þýða smávísur Piets Hein.
Einu sinni þýddi ég dálitla syrpu
af þessu fyrir sjálfan mig. Eina
þessa þýðingu notaði ég í árá-
mótaávarpi, held ég. Mín þýðing
var svona:
Náttúran er
vor milda móðir
sem dýrar gjafir
gaf oss,
en ríkiö er
vor eldri bróöir
sem tók þær allar
af oss.
Ég sendi þér þetta til gamans,
það eru áreiðanlega til fleiri
þýðingar af vísunni, einhvers-
staðar niðri í skúffum manna."
Ég ætla að ljúka þessum
Vísnaleik með fyrri hluta, sem
ég vænti að birtist eftir hálfan
mánuð með botnum, ef borist
hafa:
Oft í vafstri veraldar
veröur tafsamt smátt að gera.
Ekki verður meira kveðið að
sinni.
Halldór Blöndal
AÐEINS ÞAÐ BESTA - ÍBUÐAGISTING Á SJÁLFRI MAGALUF-STRÖNDINNI
ÞAÐ ER STAÐURINN!
Komdu með til
loyal Magaluf — Magaluf. Staö-
»ett á miöri Magalufströndinni
neö glæsilegum sundlaugum,
reitingastööum og verslunum.
Royal Torre Nova — Magalut.
íbúöir í mjög háum gæðaflokki,
austast á ströndinni. Aöstaöa öll
mjög góö.
Trianon — Magaluf. Allar íbúöir
snúa út aö sjó. Staösett aiveg á
ströndinni. Góð sundlaugaraö-
staöa (sér barnalaug).
Freus — Figueretas. Um 500 m
frá Rialto, ódýrt en snyrtllegt. Engin
sundiaug en stutt á strönd.
Ponta Club — 5 km frá San Antonio.
Allar stæröir af íbúöum og smáhýsum.
Á staönum er ailt sem feröamaöurinn
getur óskaö.
iotel Pax — Magalut. Rólegt og
ikemmtilega steösett hótel, stutt á
itrönd. Mjög góö herbergi. Hálft
æöi innifaliö.
Banatica — Magaluf. Rúmgóöar
tveggja svefnherbergja íbúöir í
kyrrlátu umhverfi austast á Maga-
lufströndinni.
Hotel Pionero — Santa Ponaa. Rialto — Figueretas. Nýjar, glæsi- Hotel Ibiza Playa. — Figueretas. Rúm-
Um 200 m frá strönd. Inni- og legar íbúðir, alveg á ströndinni. QÓÖ herbergi meö baöi, sima, hita og
útisundlaugar, rúmgóö herbergi Stór sundlaug (sér barnalaug). svölum. Góð sundlaug og stutt á
með baöi og svölum. strönd.
Fyrsta flokks gístistaðir á Úrvals-verðum með Úrvals-kjörum.
mrURVAL vió Austurvöll simi 26900