Morgunblaðið - 29.03.1981, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981
58
Sjötugur á morgun:
Böðvar Bjarnason
húsasmíðameistari
Á morgun, mánudaginn 30.
mars, verður sjötugur Böðvar
Bjarnason, byggingameistari í
Ólafsvík á Snæfellsnesi. Mér kom
í hug að senda honum stutta
afmæliskveðju í tilefni dagsins.
Elís Böðvar Bjarnason er fædd-
ur í Böðvarsholti í Staðarsveit 30.
marz 1911. Foreldrar hans voru
Bjarni Nikulásson, bóndi þar, og
kona hans Bjarnveig Vigfúsdóttir.
Þeim hjónum varð sjö barna
auðið. Þau eru þessi, auk Böðvars:
Karl, búsettur í Reykjavík, kvænt-
ur Kristrúnu Þórarinsdóttur; Sól-
veig, ekkja Bjarna Guðbjörnsson-
ar, búsett í Reykjavík; Vigfús.
Þráinn, bóndi í Hlíðarholti í Stað-
arsveit, kvæntur Kristjönu Sig-
urðardóttur frá Hrísdal; Ólöf gift
Jóni Egilssyni, bónda á Selalæk á
Rangárvöllum; Guðjón bifvéla-
virki í Ólafsvík, kvæntur Kristínu
Jónsdóttur; Gunnar hreppstjóri í
Böðvarsholti, kvæntur Áslaugu
Þorsteinsdóttur.
Með þeim systkinum í Böðvars-
holti ólst upp fóstbróðir þeirra
Friðrik Lindberg, starfsmaður hjá
Pósti og síma í Reykjavík.
Á sextánda ári fór Böðvar til
sjóróðra á Suðurnesjum. Reri
hann fimm vertíðir frá Sandgerði
og var eftirsóttur sjómaður sökum
atorku og dugnaðar. Þá ákvað
hann að hefja iðnnám. Lærði hann
húsasmíði hjá Vigfúsi Jónssyni
húsasmið í Gimli á Hellissandi.
Stundaði síðan byggingarvinnu í
Reykjavík og á Snæfellsnesi, m.a.
hjá Alexander Valentínussyni,
sem var orðlagður völundur. Bók-
legt nám stundaði Böðvar í Iðn-
skólanum í Reykjavík og lauk
þaðan prófi með góðum vitnis-
burði. Síðan stofnaði hann tré-
smiðju í Ólafsvík og hóf sjálfstæð-
an rekstur, sem hann hefur unnið
við fram á þennan dag. Hann
hefur haft fasta búsetu í Ólafsvík
frá 1938. Segja má með sanni, að
enginn hafi átt stærri hlut að
raunverulegri uppbyggingu Ólafs-
víkurkauptúns en Böðvar, þar sem
hann mun hafa staðið fyrir bygg-
ingu flestra húsa, sem þar voru
reist fram undir 1960. Eitt er það
hús öðrum fremur, sem vitni ber
um verk hans sem húsasmíða-
meistara. Það er Ólafsvíkurkirkja.
Hún var vígð 1967, en bygging
hennar hófst 1961. Því verki helg-
aði hann krafta sína umfram allt
annað þau ár sem hún var í
smíðum. Það var honum heilög
skylda og hugþekk að vanda til
þeirrar smíði eftir fremstu föng-
um.
Böðvar á langa og merka sögu
að baki á sviði hrepps- og hér-
aðsmála. Fyrsta byggingarnefnd í
Ólafsvík var sett á laggirnar um
1940 og fyrsti fundur þeirrar
nefndar haldinn á heimili hans.
Hann átti sæti í nefndinni sam-
fellt til ársins 1974 og var lengst
af byggingafulltrúi. í hreppsnefnd
Ólafsvíkur og sýslunefnd Snæfell-
inga sat hann í mörg ár. Ennfrem-
ur var hann í sóknarnefnd og
safnaðarfulltrúi um árabil. Lengi í
stjórn Kaupfélags Ólafsvíkur og
stjórnarformaður, þar til félagið
hætti störfum. Formaður stjórnar
Sparisjóðs Ólafsvíkur hefur Böðv-
ar verið í mörg ár. Þá var hann í
fasteignamatsnefnd Snæfellsnes-
og Hnappadalssýslu, ásamt Gunn-
ari Jónatanssyni og Bjarna á
Berserkseyri. Loks má nefna, að
Böðvar hefur alla tíð starfað vel
og drengilega í Sjálfstæðisflokkn-
um. Mega þingmenn flokksins fyrr
og nú muna hann, er þeir heyra
góðs manns getið.
Kona Böðvars var Elínborg Ág-
ústsdóttir frá Mávahlíð í Fróðár-
hreppi, dóttir sæmdarhjónanna
Ágústs Ólasonar frá Stakkhamri
og Þuríðar Þorsteinsdóttur, er
bjuggu í Mávahlíð nær allan sinn
búskap. Börn Böðvars og Elín-
borgar eru þessi: Auður gift
Kristófer Jónassyni, vélstjóra í
Ólafsvík. — Sturla sveitarstjóri í
Stykkishólmi, kvæntur Hallgerði
Gunnarsdóttur frá Hjarðarfelli.
— Snorri rafveitustjóri í Ólafsvík,
kvæntur Guðlaugu Ámundadótt-
ur. Barnabörnin eru orðin tíu
talsins.
Hér hafa nokkrir þættir verið
nefndir úr ævistarfi hins sjötuga
sómamanns, en stiklað á stóru
eins og sjá má. Við hjónin sendum
afmælisbarninu beztu heillakveðj-
ur á þessum merkisdegi, innilegar
þakkir fyrir góð kynni og árnum
honum, ættfólki hans og skyldu-
liði alls hins bezta á komandi
árum.
Friðjón Þórðarson
Mér þykir rétt að senda afmæl-
isbarninu kveðju á þessum vett-
vangi, til þess að þeim fjölmörgu,
sem átt hafa samskipti við Böðvar
um dagana, megi vera kunnugt um
afmæli hans.
Fram að þeim tíma er Böðvar
fluttist til Olafsvíkur árið 1940,
hafði hann dvalið á æskuheimili
sínu að Böðvarsholti í Staðarsveit,
og stundaði lika þaðan ýmsa vinnu
er til féll utan heimilis. Stundaði
hann meðal annars sjóróðra í 10
vertíðir frá Sandgerði. Áhugi hans
á smíðum vaknaði fljótt og varð til
þess að hann kaus þær að ævi-
starfi og lauk meistaraprófi árið
1946.
Concondeflugið yfirAtlantshaf
kemur nú íslenskum bifieiða-
stjórum tilgóða með SUPER PLUS
Shell olíurnar hafa að baki sér ótrúlega
langan reynslutíma. Ein af fyrstu
reynsluferðunum, til að þrautreyna Shell
smurolíu við erfiðar aðstæður, var farin
árið 1907. Sextán þúsund kílómetra
akstur, frá Peking til Parísar.
Shell Suþer Plus, fékk eldskírn sína með
31/2 tíma flugi Concorde vélanna yfir Atl -
antshafið.
Verið var að kanna aðlögunarhæfni fjöl-
þykktarolíu við snöggar hitabreytingar —
frá 40° til 1250° Celcius.
í dag selur Shell þér ekki aðeins nýjar 1
lítra umbúðir heldur einnig nýja gerð af
olíu, Shell Suþer Plus. Shell Suþer Plus
fjölþykktarolía, sem hæfir öllum gerðum
bifreiða á öllum árstímum. Shell Super
Plus gerir gangsetningu auðvelda í kulda
og veitir hámarksvernd við mesta álags-
hita.
Shell Super Plus vinnur verk sitt betur og
lengur en nokkur önnur Shell olía hefur
gert áður.
Sem sagt: Sömu ,,Super" gæðin — að-
eins töluvert betri.
Olíufélagið Skeljungur h.f.
Einkaumboð fyrir „SHELL" vörur