Morgunblaðið - 29.03.1981, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 29.03.1981, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981 63 íA * '' if' W ^ 1 f 4 „Jakobb og agaspursmálið44 í Flensborg: „F áránlegt og erfitt að fóta Nokkurt fjaðrafok varð hér á ritstjórn Morgunblaðsins eftir há- degi siðastliðinn miðvikudaK er allfjölskrúðugur hópur stormaði inn með trommuslaKara í broddi fylkinKar. Reyndust þetta vera leikendur i leikritinu „Jakobb ok aKaspursmálið" eftir EuKéne Ion- esco, er nemendur í FlensborK i Hafnarfirði hafa sýnt nú um skeið. Ekki voru leikararnir einir á ferð heldur fyi^du þeim nokkrir oddvitar, — eða svo nefndu þeir aðstoðarmenn sina ok hjálpar- kokka. Blaöamaður Morgunblaðsins tók einn leikaranna tali, — Helga Má Jónsson sem leikur Jakobb, þann er agaspursmálið snýst um. Um efni leikritsins og söguþráð sagði Helgi Már að það væri absúrd — fáránleiki. Það fjallaði um tog- streitu innan fjölskyldu nokkurrar um soninn Jakobb. Foreldrar hans og aðstandendur eru sífellt að reyna að fá Jakobb á sitt band en Jakobb spyrnir lengi við fótum. Um þetta fjallar leikurinn og svo um gleðina þegar Jakobb loks er yfirunninn. „Annars er fráleitt Rætt við Helga Má Jónsson sem fer með hlutverk Jakobbs auðvelt að lýsa þessu, þetta er eitthvað svo furðulegur söguþráð- ur og margt sem grípur inní,“ sagði Helgi Már. „Við erum níu sem leikum í þessu. Fyrsta sýningin verður í Flensborg á fimmtudag og svo verða einnig sýningar á laugardag 28. og sunnudag 29. þ.m. Þessar sýningar eru kl. 21 og við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta. Það getur svo vel verið að við bætum einhverjum sýningum við ef að- sókn verður góð.“ Hvað um boðskapinn — hver er hann? „Það verður hver að finna út fyrir sig — ég vil ekkert um það Atriði úr ieikritinu „Jakohh og aga- spursmálið“. Móðir Jakohhs (t.h.) stend- ur yfir honum og reynir allt hvað hún getur til að fá hann til að giftast Ró- bertu en Jakobb þrjóskast við. Til vinstri standa móðir og faðir Róbertu og fylgjast með milli vonar og ótta. Laddi á sólóplötu: „Ætli hún heiti ekki bara Laddi — því frumlega nafniu „Já, það mætti kalla þetta sólóplötu. ég sem flest lögin og textana — ég hef auðvitað aðstoð til að spila inná, en svona plötur eru nú samt kallaðar sólóplötur. Hitt hefur maður samt lengst af haldið, að á sólóplötum væri það einn og sami maðurinn sem Kerði allt. Og það cru reyndar nokkrir sem hafa gert það, t.d. hann Paul McCartney. En ég treysti mér nú varla til að leika það eftir honum.“ Það er Laddi, Þórhallur Sig- urðsson, sem hefur orðið, en umræðuefnið er breiðskífa sem hann er að vinna að í Hljóðrita hf. í Hafnarfirði. Platan kemur væntanlega út í byrjun maí en ekki var búið að gefa henni neitt sérstakt nafn „ætli hún heiti ekki bara Laddi — því frumlega nafni,“ sagði Laddi í samtali við Morgunblaðið. Hverskonar músik verður á þessari plötu? „Ja, þetta eru margskonar lög en það mætti ef til vill flokka þau undir rokk — nema tvö tvistlög sem á henni eru. Textarnir draga svo dám af músikinni. Nei, það verður ekkert pönk. Nema ég tek sennilega annað lagið af litlu plötunni yfir á þessa — litla platan var eiginlega hugs- uð sem einskonar fyrirrennari þessarar. Ég er ánægður með þær viðtökur er hún hefur fengið. Rætt við Ladda um breiðskífu er hann vinnur að Það getur verið stressandi að setja saman sólóplötu — alla- vega virðist Laddi stressaður á þessari mynd. Nema hann lifi sig svona mikið inn i rokkið, sé reiður eða I ástarsorg — eða hver veit hvað. Myndin var tekin i Illjóðrita hf. i Ilafnar- firði þar sem Laddi er nú að störfum. Ég hef mjög gaman af þessu, að semja músik og flytja hana. En það er gífurleg vinna sem liggur að baki svona plötu. Gunnar Þórðarson hefur sett lögin út fyrir mig og mér finnst þau koma mjög vel út þó platan sé langt frá því að vera fullunnin". Hvað er mesta verkið við að gera svona plötu? „Mesta vinnan er náttúrulega að syngja og spila þetta inn. Maður spilar fyrst grunnið inn en svo er lagið sungið. Síðan er skreytt með alls konar hljóðfær- um — það tekur nokkurn tíma að gera það þannig að maður verði ánægður. Þá er það mixið — það er mikil vinna að hljóðblanda. Þannig er þetta allt vinna — hvorki meira né minna. Þegar maður er í stúdíóinu er maður yfirleitt allan daginn að undirbúa það sem maður er að gera á kvöldin og er svo fram á nótt að taka upp. Þannig vinnur maður stundum hátt í heilan sólarhring í einu.“ Ertu ánægður með plötuna á þessu stigi? „Já, ég er nokkuð ánægður. Það hefur orðið mér nokkur uppörvun hversu litla platan hefur gengið vel. Maður veit nefnilega aldrei hvar maður stendur með svona plötur — maður rennir bara blint í sjóinn og vonar hið bezta." Leikararnir í „Jakobb eða aga- spursmálið“ ásamt fjórum að- stoðarmönnum sinum höfðu lagt undir sig ritstjórn Morgunblaðs- ins er Emilia tók þessa mynd. F.v. Þórarinn Þorsteinsson, Þorsteinn Aðalsteinsson, örn Þór Arnarson, Vilborg Guðnadóttir, Guðný Gestsdóttir, Lárus Vil- hjálmsson, Kristín Geirsdóttir, Kristinn Jen Sigurþórsson, Hall- ur Helgason og Margrét Karls- dóttir. Sitjandi: TryKKVÍ Jóhannesson og Anna Pálina Árnadóttir en Helgi Már Jónsson er fremstur á myndinni. sig í þvíu Garð- slangan skæðasta vopnið Guðmundur Daníelsson hræðir snjóinn með garð- slöngunni. segja. Þetta er allt svo fáránlegt og erfitt að fóta sig í því. Þessi höfundur, E. Ionesco, er töluvert þekktur og þykir hafa náð góðum tökum á leikhúsi fáránleikans. Það er Karl Guðmundsson sem þýddi leikritið en leikstjórinn er Jón Júlíusson." Hvers vegna völduð þið þetta leikrit? „Okkur þótti það forvitnilegt og óvenjulegt. Annars vorum við að velta nokkrum öðrum fyrir okkur en völdum svo þetta og ég held að ekkert okkar sjái eftir því. Ég held að allir ættu að hafa gaman af þessu leikriti — það er allavega ekki leiðinlegt. Það kemur eflaust mörgum spánskt fyrir sjón- ir og er töluvert frábrugðið þessum leikritum sem maður á að venjast," sagði Helgi Már að lokum. + Þessi skemmtilega mynd af Guðmundi Daníelssyni, rithöfundi, birtist nýlega á forsíðu Suðurlands en í stuttu viðtali við blaðið segir Guðmundur, sem er mikill áhugamaður um garðrækt, að snjórinn hefði oft valdið miklum skemmdum í garðinum hjá sér og bókstaflega hreins- að greinarnar af sumum trjánna. En eftir að hann vopnaðist garðslöngunni í baráttunni við snjóinn hefur honum tekist að komast í veg fyrir skemmdir af völdum skafla sem vaeru að síga saman. fclk í fréttum Jónatan Sveinbjörnsson verzlunarstjóri barði húöirnar en as Karelsson, rakari staðarins, þandi nikkuna. Af dansmennt í Bolungarvík: „Kristilega rakara tríóið“ sló í gegn BolunKarvik, 25. marz. UM SlÐUSTU helgi efndi Eldri- dansaklúbburinn hér i Bolung- arvik til dansleiks i félaKsheim- ili staðarins. Það útaf fyrir sig er nú varla svo fréttnæmt — öllu heldur hljómsveitin sem sá um að halda uppi fjörinu. en þar voru á ferð þrír músikantar héðan úr Bolungarvik. Fyrstan ber að nefna séra Gunnar Björnsson, sóknarprest- inn okkar, sem lék á píanó en er þekktari sem sellósnillingur. Jónatan Sveinbjörnsson lék á trommur, en hann er verzlunar- stjóri hjá Jóni Fr. Einarssyni og jafnframt meðhjálpari hjá séra Gunnari. Nikkuna þandi Matthí- as Karelsson, rakari staðarins. Hljómsveit þessi gekk undir nafninu „Kristilega rakaratríó- ið“. Þótti þeim félögum bara takast vel upp, ekki síz.t þegar Jónatan dró upp tvöföldu harmónikkuna sína og lék nokkra polka og valsa. Þá lifnaði nú heldur betur yfir eldri kynslóðinni og rifjuðust upp þeir gömlu góðu dagar þegar tvöfalda hnappanikkan var vin- sælasta hljóðfærið á dan'sleikj- um. Stutt hlé var gert á dansinum meðan formaður Eldridansa- klúbbsins, Hálfdán Ólafsson, kynnti næstu stjórn og gerði þá einnig grein fyrir nafni hljóm- sveitarinnar, sem hann sagði sprottið af því að Matthías rakar menn, Jónatan rakar saman pen- ingum fyrir Jón Fr. Einarsson og séra Gunnar rakar saman sálum. Gunnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.