Morgunblaðið - 29.03.1981, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981
67
I STUTTU MALI
Gamla bíó: RADDIR (,,Voices“)
Raddir fjalla um efni sem býður uppá væmna meöferð,
vandmeðfarið vægast sagt. Samruna ungs og heilbrigös
tónlistarmanns og heyrnar- og mállausrar stúlku.
Þökk sé fyrst og fremst ágætum leik ungra og efnilegra
leikara, Amy Irving og einkanlega Michael Ontkean, að
ekki verður slys. Handritið er glompótt, en á stundum
bregður fyrir raunsæjum og grátfyndnum lýsingum á basli
hinna lítilsmegandi í fátækrahverfum stórborganna.
Orrustan um
Oscarinn ’81
Á morgun, þann 30. þ.m.,
verða frægustu verðlaun
skemmtiiðnaðarins, Oscars-
verðlaunin, afhent í 53.
skifti, vestur í Santa Mon-
ica. Með tilheyrandi pomp
og pragt, sem minnir á
gullöld Hollywood borgar,
þegar stjörnurnar voru
stjörnur og almenningur
barðist um á hæl og hnakka
að fá að berja augum, þó
ekki væri nema augnablik,
þegar þessum dæmalausu
fyrirbrigðum brá fyrir á
rauða dreglinum úr límús-
íninum á leið inní kvik-
myndahús á frumsýningu,
eða við ámóta merkilegt
tækifæri.
Frá fyrstu tíð hafa þessi
heimsfrægu verðlaun, og
örlagavaldar í lífi manna,
verið ærið umdeild. Mörg-
um þykir sem valið á verð-
launahöfunum hafi ekki
alltaf einkennst af listrænu
framlagi þeirra, heldur
önnur sjónarmið látin ráða.
Þá hefur bein og óbein
auglýsingastarfsemi hinna
tilnefndu sjálfsagt all nokk-
ur áhrif á skoðanir meðlima
Bandarísku kvikmyndaaka-
demíunnar.
En hvað um það. Eftir
öðrum fréttum úr kvik-
myndaheiminum er ekki
beðið með meiri óþreyju í
hinum vestræna heimi, en
hinni árlegu afhendingu
Oscarsverðlaunanna, hvort
sem mönnum líkar betur
eða verr. Og víst er það að
engin önnur verðlaun
skipta hina útvöldu jafn-
■ miklu máli og óskarinn —
hann er alþjoðlegt tákn
velgengni sem hvarvetna
greiðir götu verðlaunaþeg-
ans. Og frá fjárhagslegu
sjónarmiði er hann sann-
kallaður galdragripur —
myndirnar taka mikinn
fjörkipp ef þær hljóta ein-
hver af hinum umtalsverð-
ari verðlauna og listamenn-
irnir hækka taxtann ...
Það má segja að fátt hafi
valdið furðu manna hvað
snertir tilnefningarnar í ár,
nema það helst að tvær af
hinum mest tilnefndu eru
teknar í svart/hvítu — The
Elephant Man og Raging
Bull. En allar götur síðan
1960, er Thc Apartment
hlaut Oscarinn sem besta
mynd ársins, hafa verð-
launin fallið litmyndum í
skaut.
Líkt og undanfarin ár
gerir undirr. sér það að leik
að giska á líklegustu sigur-
vegarana í hverri grein.
Standandi mun betur að
vígi en oft áður, þar sem
hann hefur séð velflestar
þær myndir sem mestu
máli skifta við útnefning-
una í ár.
En lítum nú á tilnefn-
ingarnar. Líkiegasta sigur-
vegarann set ég efstan, síð-
an koll af kolli...
BEZTA MYND ÁRSINS
Þetta eru þau verðlaun
sem jafnan vekja mesta
eftirtekt. Fáum kemur á
óvart að sjá Ordinary
People og Raging Bull á
meðal þeirra tilnefndu,
ýmsir furðuðu sig aftur á
móti að Coal Miner's
Daughter, Tess og The Ele-
phant Man, þar sem þær
höfðu ekki hlotið jafn ein-
róma lof gagnrýnenda eins
og t.d. The Stunt Man og
Meland Iloward. Allir virð-
ast búnir að gleyma Star-
dust Memories, að maður
tali ekki um The Shining, e.
meistara Kubrick, sem hef-
ur reyndar aldrei verið hátt
skrifaður í Hollywood.
Sama máli gegnir með
Scorsese, en samt lítur list-
inn þannig út:
1. Raging Bull, U.A.
2. Ordinary People, Para-
mount
3. The Elephant Man,
Paramont.
4. Tess, Columbia
5. Coal Miner’ Daughter,
Universal.
BESTA ERLENDA MYND
ÁRSINS
Hér fer Akademían eftir
ákaflega furðulegum leið-
um, en aðeins ein mynd
hlýtur tilnefningu frá
hverju landi! Margir eru
t.d. þeirra skoðunar að í ár
hafi Frakkar átt þrjár
myndir sem til greina
kæmu, Mon Oncle d’Amer-
ique, Every Man for Him-
self, e. Godard og The Last
Metro e. Truffaut, en sam-
kvæmt kvótanum furðulega
hlaut aðeins sú síðast-
nefnda tilnefningu. Hins-
vegar skjóta upp kollinum á
listanum, nöfn sem fáir
þekkja og því síður hafa
séð, eins og hin Rússneska
Moscow Does Not Believe
in Tears og hin Spánska
The Nest. Af myndunum
fimm koma aðeins tvær
sterklegar til greina —
Meistaraverk Kurosawa,
Kagemusha og The Last
Metro. Hinar má afskrifa.
Þar sem að sýningar á The
Last Metro eru nýhafnar,
og hún gengur í dag við
mikla aðsókn í stórborgun-
um vestra, álít ég hana
örlítið sigurstranglegri.
1. The Last Metro, U.A.
Classics. Frakkland.
2. Kagemusha (The
Shadow Warrior),
20th Century — Fox.
Japan.
3.-5. Confidendence, New
Yorker Films. Ung-
verjaland.
3.-5. Moscow Does Not
Believe in Tears,
Mosfilm. USSR.
3.-5. The Nest, A. Punto
E.L. S.A. Spánn.
BESTI LEIKSTJÓRI
ÁRSINS
Hér verður um erfiðustu
ágiskunina að ræða, hér
getur allt gerst. Sjálfsagt
finnst akademíumeðlimum
það full mikið örlæti að
veita hinum vinsæla Robert
Redford verðlaunin fyrir
sína fyrstu mynd sem leik-
stjóri, en það hefur aðeins
gerst einu sinni áður, er
Delbert Mann hlaut þau
fyrir Marty, (1955). Scor-
sese er langlíklegastur fyrir
meistaraverk sitt, Raging
Bull, en það má ekki
gleyma Polanski. Þrátt
fyrir hneykslismálin og
landflóttann sem þeim
fylgdu, á hann fjölda fylg-
ismanna vestan hafs og
flestir telja Tess hans lang-
bestu mynd. Þá má engan
vegin afskrifa hina marg-
slungnu mynd David Lynch,
The Elephant Man, hér er
svo sannarlega úr vöndu að
ráða.
1. Raging Bull, Martin
Scorsese
2. The Elephant Man, Da-
vid Lynch
3. Ordinary People, Robert
Redford
4. Tess, Roman Polanski
5. The Stunt Man, 20th
Century — Fox, Richard
Rush.
BESTI KARL-
LEIKARINN
Hér tel ég Robert De Niro
öruggan, en það vekur
furðu hversvegna Akademí-
an gekk framhjá stórleik
Donalds Sutherland í
Ordinary People.
1. Robert De Niro, Raging
Bull
2. Jack Lemmon, Tribute,
20th Century — Fox
3. John Hurt, The Ele-
phant Man
4. Robert Duvall, The
Great Santini,
Orion/WB
5. Peter O’TooIe, The Stunt
Man.
BESTA LEIKKONA
ÁRSINS
Hér ætti Sissy Spacek að
vera á grænni grein, þó
Mary Tyler Moore geti gert
henni skráveifu sökum
góðrar frammistöðu sinnar.
1. Sissy Spacek, Coal Min-
er’s Daughter
2. Mary Tyler Moore.
Ordinary People
3. Goldie Ilawn, private
Benjamin, W.B.
4. Gena Rowlands. Gloria,
Columbia
5. Ellen Burstyn, Resur-
rection, Universal
BESTI KARLLEIKARI í
AUKAHLUTVERKI
Þar sem nú eru upptaldir
allir veigamestu þættirnir,
verður farið fljótt yfir sögu.
1. Joe Pesci. Raging Bull
2. Jason Robards, Melvin
and Howard
3. Timothy Hutton, Ordi-
nary People
4. Judd Hirsch, Ordinary
People
5. Michael O’Keefe, The
Great Sántini.
BESTI KVENLEIKARI í
AUKAHLUTVERKI
1. Cathy Moriarty, Raging
Bull
2. Mary Steenburgen,
Melvin and Howard
3. Eileen Brennan, Private
Benjamin
4. Eva Le Gallienne, Res-
urrection
5. Diana Scarwid, Inside
Moves, AFD.
BESTA KVIKMYNDA-
TAKAN
(Hví gleymdist kvik-
myndatökumaðurinn The
Elephant Man?)
1. The Blue Lagoon. Nes-
tor Almendros
2. Raging Bull, Michael
Chapman
3. Tess, Geoffrey Unsworth
og Chislain Cloquet
BESTA KVIKMYNDA-
TÓNLIST
A) FRUMSAMIN
Altered States, W.B., John
Corrigliano.
BESTA KVIKMYNDA-
TÓNLIST
B) FRUMSAMIÐ LAG
On the Road Again, úr
Honeysuckle Rose. WB
BESTA HUÓÐUPP
TAKAN
Altered States, A. Pianta-
dosi, L. Fresholz, M. Mink-
ler, W.D. Burton.
Og þar læt ég staðar
numið, minnugur þess að
allt getur gerst á Oscars-
verðlaunaafhendingu, rétt
eins og í fótboltanum. Síðan
er að þessu sinni skreytt
myndum af sögufrægum
hápunktum Orcarsverð-
launamynda.