Morgunblaðið - 29.03.1981, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981
69
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Samskipti við unglinga:
Tvö dæmi sem ættu að
vekia til umhugsunar
Ein gömul, en sem einu sinni
var lika unglingur skrifar:
„Margoft hef ég lesið og heyrt
um unglingana í dag, hversu
hugsunarleysi og óforskömmgheit
þeir hefðu í frammi við eldra fólk.
Jú, misjafn sauður er í mörgu fé,
en gildir það þá ekki um báða
aðila? Ég er ein af þeim eldri. Ég
hef aldrei orðið fyrir neinum
árásum eða óforskömmugheitum
af hálfu unglinga. Þvert á móti.
Hér fer á eftir lítil saga sem ég
sjálf hef upplifað.
Sáu mig liggja
þannig á götunni
Árið 1969 var ég svo óheppin að
hrasa um hellu í Austurstræti,
með þeim afleiðingum að ég féll
svo illa að ég handleggsbrotnaði
og fékk áverka á höfuð. Ég hef
verið mjög illa farin í fótum í
mörg ár og gat því ekki risið á
fætur af eigin rammleik. Ég lá
þarna hjálparvana í götunni og
bað hvern nálægan að hjálpa mér.
En hvað skeði? Tvær virðulegar
frúr (eldri) stóðu í dyrum einnar
virðulegrar verslunar og sáu mig
liggja þarna í götunni. Þær létu
sig hafa það að láta mig liggja
þarna í u.þ.b. 10 mín., en af hverju
veit ég ekki. Fólk gekk framhjá og
sinnti ekki beiðni minni um hjálp.
Þurfti hugarfar
unglingspilts
Þá kom að 15—16 ára gamall
piltur með fangið fullt af vörum
sem hann e.t.v. hefur verið sendur
eftir í næstu búð. Hann lagði
vörurnar frá sér og spurði mig
hvort hann gæti hjálpað mér.
Sagði ég já, ef hann vildi hjálpa
mér að standa á fætur, því það gat
ég ekki án hjálpar. Jú, ég fann að
ég var brotin og gleraugun mín
lágu skammt frá mér, þó óbrotin,
svo ég bað hann að rétta mér þau.
En ég var líka meidd í andliti. Er
ég var komin á fætur upp, komu
hinar virðulegu frúr og buðu mér
að setjast á stól í versluninni sem
ég þáði eftir að hinn ungi piltur
hafði hjálpað mér upp nokkrar
tröppur að versluninni. Ég bað því
næst þessar virðulegu frúr að
hringja á sjúkrabíl fyrir mig. Þá
hringdu þær í Bifreiðastöð Stein-
dórs og báðu um leigubíl, en í
hvaða tilgangi veit ég ekki. Þarna
sér maður að það þurfti hugarfar
unglingspilts til að hrista upp í
kærleikshugarfari hinna eldri.
önnur saga!
Annað dæmi
7. okt. sl. varð ég aftur fyrir því
óhappi að hreinlega fjúka um kpll
er ég var á leið í strætisvagn. Ég
slasaðist illa og enginn var nálæg-
ur. Þá kom bíll og í honum voru
þrjú ungmenni. Tveir piltar komu
til mín og spurðu hvort þeir gætu
eitthvað hjálpað mér. Jú, ef þeir
vildu hjáipa mér á fætur því ég
var illa handleggsbrotin, en fann
að ég var óbrotin á fótum. Þeir
hjálpuðu mér í bílinn svo ég væri
meira í hlýju, en er ég var komin í
bílinn spurði ég hvort þeir vildu
ekki bara keyra mig á slysavarð-
stofuna, sem þeir gerðu. Þess skal
getið að kona, sem kom þarna að,
fór og hringdi á sjúkrabíl, en það
dróst að hann kæmi. Hinir ungu
piltar hjálpuðu mér inn á slysa-
varðstofu. Annar pilturinn bað
mig vera óhrædda, því hann hefði
lært fyrstu hjálp.
Kastið ekki hnútum
Já, ég segi nú og spyr: Er það
Þessi seglbátur
RUFFIAN 23
er til sölu ef viðunandi
tilboö fæst. Báturinn var
smíðaður á irlandi 1976
og er vel útbúinn seglum
og tækjum, jafnframt
fyigir 6 manna björgun-
arbátur, léttbátur og
vagn. Nánari upplýsingar
í síma 43699 eöa síma
40286.
WKt‘bT(rtr v/w
ter
OVb, VÚ tsIT A Xd
WTXA ilL 'Oe<bco
m bvm)A ví/ó og \ii
Ýiétt oaúimn.
%VNA, SKWA.
usnv\ mNí
% WÁTT £KK/
mM
NfMT
L\KA WLÍ6AN
/3-3
ekki eitthvað neikvætt hjá ykkur,
jafnaldrar mínir, sem orsakar að
unglingar bregðast illa við ykkar
samskiptum.
Ég hef aldrei hitt annað en
góða, hjálpsama og kurteisa ungl-
inga og vona að svo verði áfram
þessi kannski ekki mörgu ár sem
ég á eftir ólifað. Kastið ekki
hnútum í hina ungu nema þið
getið tekið við þeim aftur. Hér eru
tvö dæmi sem ættu að vekja til
umhugsunar."
í öllum lengdum
Þakjámið fæst í öllum lengdum upp að
10 metrum. Einnig í „standard" lengdum frá
6-13 fet. Höfum einnig fyrirliggjandi:
KJÖLJÁRN ÞAKPAPPA
RENNUBÖND ÞAKSAUM
B.B. fyrir þá sem byggja
RB.
BYGGINGAVÖRUR HE
Suðurlandsbraut 4.
Sími 33331. (H. Ben-húsið).
Þessir hringdu . . .
Fólk ætti að fá að
vera í friði heima
Húsmóðir í Illiðunum 6360—
5735 hringdi og sagði: Húsmóðir
á Högunum sem kallar sig svo,
virðist ekki skilja eðli málsins
varðandi reiðhjólaauglýsingar
sem bornar voru í hús til verð-
andi fermingarbarna. Auðvitað
er fólki í sjálfsvald sett hvort
það fer eftir þessum auglýsinga-
áróðri, en fólk ræður því hins
vegar ekki, hvort þessi áróður
berst því, e.t.v. í hrönnum. Þarna
er um að ræða kapphlaup í
væntanlega peninga fermingar-
barna og þar að auki hugsanlega
í buddu foreldranna. Aðalatriðið
er þó, að fólk ætti að fá að vera í
friði á heimilum sínum fyrir
auglýsingum af þessu tagi. Það
er lika alvarlegt íhugunarefni,
hvort nota skuli helga athöfn
eins og fermingu sem gróðalind.
Hvar er húfan mín?
5893 — 5963 hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — í ofsa-
roki seinni hluta janúar fauk
upp á tröppurnar hjá mér vönd-
uð kuldahúfa úr skinni, en sam-
sett með hekli og prjónaupp-
broti. Litinn tilgreini ég ekki,
það verður réttur eigandi að
gera. Húfan mín fauk líka frá
mér, þar sem ég átti leið um
Barónsstíg í áttina að Landspít-
ala. Það er rauðrefshúfa, sem ég
sé svo mikið eftir. Nánari upp-
lýsingar get ég veitt í síma
16917.
Veit einhver
hvar ÞORFINNUR HARALDUR ÍSFJÖRO, fæddur í Montreal, Quebec
22. des. 1881, er nlöurkomlnn, GUÐMUNDUR BJARNI (SFJÖRÐ,
fæddur í Winnipeg, Manitoba 1. ágúst 1889 og PETREA SIGRÍDUR
fSFJÖRÐ, fædd á íslandi 31. okt. 1887 börn ELÍNAR ÍSFJÖRD (f.
HELGADÓTTIR eöa MAGNÚSSON) OG HALLDÓRS ÍSFJÖRD eða
niöjar þeirra eöa ættingjar JÚLÍÖNU HALLDÓRU ÞRÚÐAR HALL-
SON (f. JOHNSON) fyrrum búsett í Kamloops, British Columbia. fædd
í Port Wing, Wisconsin U.S.A. 16. jan. 1897, dóttir ELÍNAR JOHNSON
(f. HELGADÓTTIR eöa MAGNÚSSON) og HARRY FLOVENT
JOHNSON? Vinsamlegast hafiö samband viö:
PUBLIC TRUSTEE, File 58122S,
Attention: Bob Sulentich, 800 Homby Street,
Vencouver, B.C. V8Z 2 E5.
S2P SIGGA V/öGA £ 1/LVtRAU