Morgunblaðið - 29.03.1981, Page 30

Morgunblaðið - 29.03.1981, Page 30
70 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981 Hinir makalausu ViA Tabra, vestanmetrin viA Genesaretvatn hafa verift Rrafnar upp riistir af kirkju sem reist var þar sem menn áiitu að mettunarundrið hefði átt aér stað. Á kirkjuKðlfinu var þessl mosaikmynd af fiskum og körfu með hrauði. „Ég er brauð lífdns“ Oftar en einu sinni hefur á þessari síðu verið fjallað um hjónabandið, gildi þess, ham- ingju sem það veitir og vanda- mál sem ógna því. En ekki eru allir sem lifa í hjónabandi. Fjöldi fólks lifir eitt gegn vilja sínum og eignast aldrei lífs- förunaut. Líklegt er, að vandi þessa hóps sé ekki minni en annarra. Nú verður reynt að drepa á fáein atriði til um- hugsunar, bæði þeim sem lifa einir og hinum sem umgangast þá. Öðruvísi Með flestu ungu fólki bærist þrá eftir maka. Fyrir flestum fer þannig að þeir finna hann. Ekki þó allir. Fólk þarf ekki að vera komið langt á þrítugsald- urinn þegar vinir og kunningj- ar fara að spyrja. „Ertu ekki enn komin(n) á fast?“ Flestir svara í léttum tón og snúa spurningunni upp í grín. En undir niðri býr um sig nagandi ótti og óánægja, sársauki og jafnvel biturleiki. Hvers vegna finn ég ekki þann eða þá sem ég get deilt lífinu með? Vinirn- ir stofna heimili einn af öðrum og eignast börn. Þar sem vinir eða fjölskyldan kemur saman er umræðuefnið börnin, heim- ilisstofnunin o.s.frv. Mörgum, sem ekki finna sér maka, reynist byrði að halda kunn- ingsskap við gifta vini sína af þessum sökum og draga sig i hlé. Þá er gjarnan farið að spjalla á bak. Er eitthvað að honum (henni)? Hún (hann) kemur bara aldrei nú orðið. Er hún (hann) að verða eitthvað skrýtinn? Vinátta Einn versti óvinur mannsins er einmanaleikinn. Þeim, sem ekki finna sér maka, er hætt- ara en öðrum að verða honum að bráð. Einsemdinni fylgir oft biturleiki. Það er því mikil- vægt að leggja talsvert að sér til að vera ekki einmanaleika og biturleika að bráð. Vinátta verður ekki til af sjálfri sér. Hana verður að rækta. Það kostar fyrirhöfn, elju, nær- gætni og fórnfýsi. Hinn ógifti hefur meira frelsi til að velja sér vini en þeir sem lifa í hjúskap. Hann þarf ekki að taka tillit til annarra en sjálfs sín. Þannig hefur hinn ógifti tækifæri til að stofna til og rækja vináttu sína við aðra á fyllri og frjórri hátt. En einnig hér eru rógtungurnar hvassar. Sé stofnað til vináttu með aðila af sama kyni, þykir það umræðuvert. „Skyidu þeir (þær) vera eitthvað hinsegin?" Sé stofnað til vináttu við aðila af hinu kyninu þykir það ekki síður „umræðuefni". Slíkt lýsir jafnan betur þeim sem róginn flytur en hinum sem fyrir honum verða. Heimilið í bók sinni „So You’re Single" segir Margaret Clark- son, einhleyp kennslukona, frá lífi sínu og reynslu. Þar fjallar hún m.a. um hverja þýðingu það hafði fyrir sig að stofna eigið heimili, þótt ein væri, og leggja við það rækt og alúð. Sumum finnst það ef til vill yfirlýsing um uppgjöf og von- leysi að fara að „koma sér fyrir" einn. Margaret Clarkson gerði þetta þó af fullri alvöru og gekk upp í því eins og aðrir „húsbyggjendur". Hún gekk meira að segja svo langt að kaupa sér sumarhús að auki. Af frásögn hennar er ljóst að þetta hefur auðgað líf hennar og gert henni kleift að koma til móts við vini sína, bæði gifta og ógifta. Hún hefur ekki aðeins notið gestrisni heldur einnig og ekki síður getað látið hana í té. Dæmi hennar er til eftirbreytni. Og hvers vegna skyldu þeir sem einir Súa þurfa að fara á mis við ánægj- una af vel búnu heimili? Samt sem áður hygg ég að þeim sem eru einir sé á ýmsan hátt gert óhægara um vik að eignast „þak yfir höfuðið" en fjöl- skyldufólki. Ymis fyrirgreiðsla af hendi hins opinbera er gjarnan háð fjölskyldustærð. Atvinna og tómstundir Sumum hættir til að tala um þá sem ekki eiga sé maka á Ííkan hátt og þeir væru fatlað- ir. Saga kennir okkur hins vegar að margir þeirra sem lengst hafa náð, t.d. á hinum ýmsu sviðum vísinda og lista, hafa verið einhleypir. I þessu felst ekki endilega að þeir hafi verið „að bæta sér upp“ ein- stæðingsskapinn með því að sökkva sér niður í sérgrein sína. Hitt er sönnu nær að þeir hafi kunnað að nota sér það frelsi og þá möguleika sem þeir höfðu til hins ítrasta. Sagan geymir einnig mörg dæmi af fólki sem hefur litið svo á að það hafi verið kallað til ákveðinnar þjónustu við Guð og náunga sinn og af þeim sökum orðið að neita sér um að stofna til hjúskapar. Samtíðin þekkir vel Móður Theresu, sem þannig er ástatt um. Margir líta á hjónabandið sem Guðs gjöf og þakka fyrir það. Aðrir líta á hið ógifta stand sem Guðs gjöf sér til handa. Hér er ekkert annað hvort eða. Gjafir Guðs eru margvíslegar. Liklegt er, að mörgum þyki þessi greinarstúfur líkastur því að verið sé að fleyta kerlingar. Tæpt á fáeinum atriðum en engum gerð skil. Rétt er það. Hér hafa fyrst og fremst verið nefnd umhugsun- arefni, bæði fyrir þá sem kunna að vera að glíma við vandamál þess sem ekki á sér maka en vildi gjarna eiga og eins hinna sem lifa í hjúskap. Verðugt líf ræðst ekki af stöðu okkar í mannlegu samfélagi heldur hinu með hverjum hætti við þjónum Guði og náunganum þar sem við erum sett. Fátt hefur meira verið rætt í heimsmálunum und- anfarin ár en hungur og neyð fólks og þá helst í þróunarlöndunum svo köll- uðu. Margar safnanir hafa farið fram til handa bág- stöddu sveltandi fólki og það af festum talið gott og sjálfsagt, þótt svo neyðin sé fjarlæg landfræðilega talað. m.ö.o. allur almenningur viðurkennir að hin líkam- lega fæða sé forsenda þess að fólk dragi fram lífið. Margir leggja til hliðar af nægtum sínum til þess að þetta umrædda fólk fái brauð og er það vel. Föstu- tíminn í kirkjunni er gjarn- an notaður til þess að safna peningum til líknarmála og til þess að vekja fólk til umhugsunar um neyð náungans. Og það má segja að á öllum tímum hafi það verið jafnviðurkennt að brauðið sé forsenda lífsins. Ef næringin kemst ekki til líkamans og líffæranna þá er dauðinn vís. Jesús Kristur þekkti þessa staðeynd mjög vel. í guðspjöllum þessa helgi- dags (Jóh. 6. kap.) er ein- mitt verið að fjalla um það, hvernig Jesús bregst við svöngu fólki. Hann gefur því að borða! En Jesús gerir meira. Hann notar þennan atburð þ.e. kraftaverkið er hann mettar 5000 manns í óbyggðinni til þess að benda ákveðið á hver hann í raun- inni sé. „Ég er brauð lífs- ins.“ Þ.e. ég er lífsnauðsyn á borð við hina líkamlegu fæðu. Ég er hið lifandi brauð sem kom niður af himnum til þess að gefa heiminum líf. Engum er þetta eins ljóst og kristnum mönnum, sem hafa tekið orð Jesú alvar- lega og nærast af því sem hann hefur að gefa. Margir eru til þess að vitna um það líf sem felst í samfélaginu við hinn upprisna Drottin. Þeir hafa komið auga á tilgangsleysið í tilveru án Guðs, hafa fundið til hung- urs og þorsta hið innra. Sumir reyna að friða óró- legt hjarta, reyna að svala þorsta sínum með ýmsum „andlegum æfingum" trú- ræns eðlis. En kristinn maður fullyrðir að hvergi sé að finna lind eilífs hjálp- ræðis nema í Jesú Kristi. Enda er það í samhljóm við allt sem Jesús sagði um sjálfan sig. Orðin: „Ég er brauð lífs- ins,“ eru því ekki töluð út í bláinn, þau eru rík af inni- haldi og benda skýrt til þess að Jesús býður það sem skiptir máli í lífi og dauða. Biblíulestur vikuna 29. mars — 4. apríl. Sunnudagur Mánudagur Þriöjudagur MiÖvikud. Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur 29. mars Jóh. 6. 1—15 30. mars Jóh. 6, 22—29 31. mars I. Kor. 19. 1—8 1. apríl Mark. 12, hl—hh 2. apríl Jóh. 6, h7—59 3. apríUóh. 12, 20—26 h. apríUóh. 8, 21—30

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.