Morgunblaðið - 29.03.1981, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981
71
Leikfélag Reykjavikur frumsýnir revíuna „Skornir skammtar4*:
„Ekki nema brot af þeirri revíu
sem fram fer í þjóðfélaginu“
Nokkur orð um revíuna og hvað höf-
undarnir Jón Hjartarson og Þórarinn
Eldjárn hafa um hana að segja
LEIKFÉLAG Reykjavikur frum-
sýnir i kvöld spánnýja reviu eftir
Jón Hjartarson og Þórarin Eld-
járn. Nefnist revian Skornir
skammtar. í henni er f jallað um
veitingahúsið Frón-grrill þar sem
Jón nokkur Sigurðsson áhuga-
vert ræður rikjum. Ýmsa gesti
ber að garði hjá honum og eru
sumir skritnir fuglar. Rekstur-
inn gengur fremur brösótt hjá
Jóni og hann verður sifellt að
vera að finna upp á einhverju
nýju til að halda veitingastofu
sinni fljótandi.
Eins og vera ber í revíu er
fjallað um kunnugleg atvik, menn
og málefni úr þjóðlífinu. Þar er
mikill fjöldi söngva við vinsæl lög,
bæði ný og gömul. Undirleikari er
Jóhann G. Jóhannsson en 11
leikarar koma fram í revíunni.
Þeir eru: Gísli Halldórsson, Kjart-
an Ragnarsson, Sigríður Hagalín,
Helga Þ. Stephensen, Guðmundur
Pálsson, Soffía Jakobsdóttir, Karl
Guðmundsson, Aðalsteinn Berg-
dal, Harald G. Haraldsson, Lilja
Þórisdóttir og Jón Júlíusson. Leik-
stjóri er Guðrún Ásmundsdóttir
en leikmynd er eftir ívar Török.
Nú er orðið nokkuð langt um
liðið síðan revía í þessum dúr —
að taka fyrir á leiksviðinu málefni
og menn sem eru efst á baugi —
hefur verið sýnd; en síðasta revían
af þessu tagi var sýnd um miðjan
fimmta áratuginn. Hér á árum
áður voru revíur af þessari tegund
hins vegar eitthvert vinsælasta
skemmtiefni er þekktist — enda
voru einstakir menn og gerðir
þeirra teknir þar fyrir svo sveið
undan og endaði ein slík revía með
málaferlum og lögbanni.
Þetta er í þriðja skipti sem
Leikfélag Reykjavíkur sýnir revíu,
hin fyrsta var sýnd 1969 —
Iðnó-revían undir stjórn Sveins
Einarssonar. Síðan komu íslend-
ingaspjöll 1974 undir stjórn Guð-
rúnar Ásmundsdóttur. Guðrún
hefur leikstýrt fjölmörgum sýn-
ingum á vegum Leikfélagsins og
má þar nefna vinsælar sýningar
eins og Spanskfluguna, íslend-
ingaspjöll og húsbyggingasjóðs-
skemmtanir þar sem flutt hafa
verið atriði úr gömlum revíum.
Höfundar revíunnar, Þórarinn
Eldjárn og Jón Hjartarson, hafa
báðir fengist áður við samningu
skemmtiefnis. Jón átti m.a. þátt í
Iðnó-revíunni og hefur samið
ýmsa skemmtiþætti svo og önnur
leikverk. Einþáttungur hans, Vals,
hlaut fyrstu verðlaun í leikrita-
samkeppni Menningar- og
fræðslusambands alþýðu.
Þórarinn átti á sínum tíma
aðild að útvarpsþáttunum frá út-
varpi Matthildi, sömuleiðis aðild
að viskustykkinu „Ég vil auðga
mitt Iand“, samdi alla söngtexta í
sýningar Þjóðleikhússins á Ösku-
Atrlði úr revíunni. Jón Sigurðsson áhugavert finnur upp á ýmsu til að
reyna að draga kúnna að Frón-grilli. Ein af hinum snjöllu
hugmyndum hans er að halda tizkusýningu sem þarna er i fullum
gangi. Það er Jóhann G. Jóhannsson sem er við pianóið, Guðmundur
Pálsson sýnir nýjasta stælinn, Lilja Þórisdóttir stjórnar tizkusýning-
unni en Gísli Halldórsson leikur gest, sem virðist ekki of áhugasamur
fyrir því sem er að gerast. Ljdsm. Emilia.
EFÞAÐER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al’GLVSINGA-
SI.MINN ER:
22480
Jón Hjartarson og Þórarinn Eldjárn, höfundar revíunnar „Skornir
skammtar". Ljósm. Emiiia.
busku og síðast en ekki síst er
hann höfundur söngleiksins
Grettis.
„Við náum auðvitað aldrei að
sýna nema brot af þeirri revíu sem
fram fer í þjóðfélaginu,“ sagði Jón
Hjartarson í spjalli við frétta-
menn á fimmtudag. „Við reyndum
eftir föngum að vera málefnalegir
við gerð revíunnar og forðast að
taka fyrir einstaka menn eins og
tíðkaðist hér áður.
Það var engin sérstök kveikja að
þessu verki. Við settumst niður
síðastliðið sumar og ruddum niður
á blað því sem okkur þótti eiga
heima í svona verki."
„Og það er búið að fara marga
hringi, við vorum lengi að endur-
skoða efnið og reyna að bæta það
og eins hefur því verið breytt í
samvinnu við leikstjóra," sagði
Þórarinn Eldjárn.
„Hefðbundin? Það er alltaf
nokkuð skýr söguþráður í þessum
gömlu revíum. Þessi er hinsvegar
eins konar smáskammtalækning
— dregur e.t.v. dám af kabarett."
Frumsýning á „Skornum
skömmtum" er sem fyrr segir á
sunnudagskvöldið og er uppselt á
hana, önnur sýning er á þriðju-
dagskvöld og þriðja á fimmtu-
dagskvöld.
Myndarlcgar
fcrmmgargjafir