Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 1
112 SIÐUR
89. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sigurförinni fagn-
að víða um heim
„Virðing umheimsins á Bandaríkja-
mönnum hefur verið endurvakin“
15. apríl. AP.
ÞJÓÐARLEIÐTOGAR um heim allan, að flestum kommúnistaríkjum þó
undanskildum. hafa óskað Bandaríkjamönnum til hamintrjo með tíla'sih'tra
ferð Keimferjunnar Kólumbíu. Á forsíðum allra dasblaða hins frjálsa
heims ok víðar var athurðinum fagnaö sem nýrri Keimöld ok sajft. að
Bandaríkjamenn hefðu nú endurheimt þann virðingarsess, sem tækni-
kunnátta þeirra hefði löngum skipað.
„Geimferjan Kólumbía er
„Stjörnustríð" og „Stjörnugnýr"
hvort tveggja í senn,“ sagði í breska
blaðinu The Guardian. „Hún er
stórkostleg framtíðarsýn og sann-
kallað þjóðarstolt Bandaríkjamanna
á þeim tímum, sem þeir hafa haft
yfir fáu að fagna."
„Sigurför Kólumbíu hefur endur-
vakið virðingu umheimsins á Banda-
ríkjamönnum," sagði hið vinstri
sinnaða, italska blað La Republica
og kínverska fréttastofan Hsinhua
kallaði hana „sögulega". Kurt Wald-
heim, aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna, sagði í skeyti til Reagans
forseta, að það væri „viðurkenning á
hugrekki geimfaranna og kunnáttu
bandarískra vísindamanna“.
„Lof sé Allah,“ sagði bakari nokk-
ur í Islamabad í Pakistan, „sem
hefur gert mönnum kleift að hugsa,
leggja á ráðin og stjórna slíkri
undravél sem geimferjunni." I
Moskvu var ánægjan hins vegar ekki
jafn áberandi og í frásögn Tass-
fréttastofunnar var lögð áhersla á
hernaðarlega þýðingu geimferjunn-
ar. Sama sinnis var „Rauði sannleik-
urinn“, málgagn tékkneska komm-
únistaflokksins, sem sagði, að skutl-
an stæði í skugga Pentagon.
Þjóðarleiðtogar og þjóðþing
margra landa hafa í gær og dag
samfagnað Bandaríkjamönnum með
þá miklu möguleika, sem nú hafa
opnast mannkyni með þessu tækni-
afreki. í leiðara blaðsins The Tor-
onto Globe and Mail sagði í dag,
undir fyrirsögninni „Heill sé þér
Kólumbía“, að „níutíu og átta tonna
völundarsmíð hafi í gær lent létt
sem fjöður á sólbökuðum leirsléttun-
um við Edwards-flugstöðina í Kali-
forníu og þar með hafi Bandaríkja-
menn með glæsilegum hætti tekið
aftur þátt í kapphlaupinu um him-
ingeiminn."
Pólland:
Óbreyttir flokks-
menn ræða umbætur
Torun. 15. apríl. AP.
UM 500 óhreyttir félagar í pólska kommúnistaflokknum sátu í dag á
rökstólum í borginni Torun og ra-ddu ýmsar nauðsynlegar umbætur í
polsku þjóðlífi. Ilermt er, að margar grundvallarkennisetningar marx-
leninismans hafi opinskátt verið gagnrýndar á þessum fundi, sem ekki á
sinn líka frá því að kommúnistar
heimsstyrjaldarinnar.
Búist var við, að fundurinn sam-
þykkti ályktun þar sem hvatt yrði til
breytinga á forystuliði flokksins, að
flokksþinginu yrði flýtt og að hætt
yrði að stinga undir stól fréttum af
stuðningi óbreyttra flokksmanna við
þjóðfélagsumbætur.
Það þykir til marks um þá
óánægju, sem ríkir meðal óbreyttra
flokksmanna í pólska kommúnista-
komust til valda í Póllandi i lok
flokknum, að einn fundarmanna
hvatti í dag til þess, að Stefan
Olszowski, fyrrv. utanríkisráðherra,
yrði rekinn úr stjórnmálaráðinu en
hann er harðlínumaður tryggur Sov-
étmönnum. „Við treystum ekki leið-
togunum. Pólska þjóðin mun komast
yfir alla erfiðleika svo fremi við
fáum að kjósa okkur stjórn,“ sagði
'einn fulltrúanna frá Bydgoszcz.
Aíganistan:
Nýjar jarð-
sprengjur
gera usla
Islamahad. 15. apríl. AP.
IIAFT er eítir vestrænum
heimildum í Kabúl. að aÍK-
anskir frelsissveitarmenn
hafi mjoK látið til sín taka
í höfuðbortíinni «jr öðrum
borgum í síðustu viku
þrátt fyrir að sovéskir
hermenn hafi nú tekið við
öryKKÍsKæslunni víðast
hvar.
Afgönsku frelsissveitarmenn-
irnir hafa einkum beint spjót-
um sínum að afgönsku öryggis-
lögreglunni og félögum í flokki
Babrak Karmals forseta en
einnig er sagt, að þeir hafi lagt
eld í ýmsar byggingar og vöru-
hús í eigu stjórnarinnar.
Ferðamenn, sem hafa komið
til Pakistan frá Afganistan,
segjast hafa séð 10 skriðdreka,
strætisvagna og a.m.k. 15 bryn-
varða bíla á þjóðveginum milli
Kabúl og Jalalabad og hafi þeir
augljóslega verið e.vðilagðir með
jarðsprengjum. Pravda, mál-
gagn sovéska kommúnista-
flokksins, sakaði í gær Banda-
ríkjamenn um að sjá skærulið-
um í Afganistan fyrir nýrri
gerð jarðsprengna, sem væru úr
plasti og því óhægt um vik fyrir
Rússa að finna þær með leitar-
tækjum.
Haft er eftir afgönskum emb-
ættismönnum, að Rússar hafi á
síðasta ári keypt 8,5 milljarða
rúmmetra af jarðgasi af Afgön-
um og aðeins greitt rúma 70
dali fyrir rúmmetrann. Sjálfir
selja Rússar Vestur-Þjóðverj-
um gas fyrir tæpa 100 dali
rúmm. Landflótta embættis-
menn afganskir segja, að mæl-
arnir, sem fylgjast með gas-
flutningunum, séu ekki í Afgan-
istan heldur innan landamæra
Sovétríkjanna.
Pálmi
Jónsson
Guðrún
Vigfúsdóttir
Jósep og
Anna
Ólafur Ó.
Johnson
Þórir
Jónsson
Asmundar-
st.bræður