Morgunblaðið - 16.04.1981, Síða 5

Morgunblaðið - 16.04.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981 5 Minnisblað lesenda MORGUNBLAÐIÐ heíur að venju leitað upplýsinga, sem handhægt er fyrir lesendur að grípa til um bænadagana og um páskahátíðina. SLYSADEILD Slysadeild Borgarspítalans er opin allan sólarhringinn og síminn þar er 81200. SLÖKKVILIÐIÐ Slökkviliðið í Reykjavík hefur síma 11100, Slökkviliðið í Hafnarfirði 51100 og Slökkviliðið á Akureyri 22222. LÖGREGLAN Lögreglan í Reykjavík hef- ur síma 11166, upplýsinga- sími 11110. Á Akureyri er síminn 23222, í Kópavogi 41200 og í Hafnarfirði er síminn 51166. SJÚKRABÍLAR Sjúkrabílar í Reykjavík hafa síma 11100, í Hafnar- firði 51100 og á Akureyri 22222 LÆKNAVARSLA Nætur- og helgidagavarsla er fram til klukkan 8 á þriðjudagsmorgun. Síminn er 21230. TANNLÆKNAVARSLA Neyðarvakt verður alla dagana í Heilsuverndarstöð- inni við Barónsstíg klukkan 14—15 nema laugardaginn 17—18. Síminn er 22417. LYFJAVARSLA Á skírdag er nætur- og helgidagavarsla í Reykjavík- ur- og Borgarapóteki, en frá föstudégi fram á þriðjudag er varslan í Laugavegs- og Holtsapóteki. GÖNGUDEILDIN Á skírdag er göngudeild Landspítalans opin klukkan 14—15 og einnig á annan í páskum, en á laugardag milli 14—16. Síminn á göngudeild er 21230. MESSUR Tilkynningar um messur, guðsþjónustur og fermingar eru birtar á öðrum stað í blaðinu. ÚTVARP OG SJÓNVARP Dagskrá útvarps og sjón- varps er einnig birt á öðrum stað í blaðinu. BILANIR Hitaveitu- og vatnsveitu- bilanir skal tilkynna til Véla- miðstöðvar Reykjavíkurborg- ar í síma 27311. Símabilanir tilkynnist í síma 05. SÖLUTURNAR OG VERZLANIR Söluturnar verða opnir eins og venjulega á skírdag, laug- ardag og annan páskadag, en lokaðir á föstudaginn langa og páskadag. Verzlanir verða lokaðar allan tímann nema hvað opið verður milli 9—12 á laugardag. BENZÍNAFGREIÐSLUR Benzínafgreiðslur verða opnar á skírdag frá klukkan 9.30 til 11.30 og 13-16. Lokað er á föstudaginn langa og á páskadag. Venjulegur opnun- artími er á laugardag og á annan páskadag er opið eins á skírdag frá 9.30—11.30 og 13-16. Kvöldsala á benzíni og öð- rum olíuvörum fer fram á benzínstöðinni við Umferð- armiðstöðina um páskahelg- ina. Á skírdag er opið 20— 23.30, lokað er föstudaginn langa, á laugardag er opið 21—23.00 og á páskadag er lokað. Annan í páskum er opið 20-23.30. STRÆTISV AGN AR - REYKJAVÍK - KÓPAVOGUR - IIAFNARFJÖRÐUR Á skírdag verður ekið sam- kvæmt tímatöflu sunnudaga á öllum leiðum. Á föstudag- inn langa verður ennfremur ekið eftir tímatöflu sunnu- daga, nema hvað aksturinn hefst ekki fyrr en eftir há- degi, eða milli 13—14. Á laugardag er ekið eftir venju- legri laugardagstímatöflu. Á páskadag verður ekið samkvæmt sunnudagstíma- töflu, en akstur hefst ekki fyrr en á bilinu 13—14. Á annan páskadag verður ekið eftir venjulegri sunnudags- tímatöflu. Sjö sæmdir fálkaorðum FORSETI íslands sæmdi i gær eftirtalda islenska ríkis- borgara riddarakrossi hinnar íslensku fáikaorðu: Adolf J. E. Petersen, verk- stjóra, fyrir félagsmálastörf, Einvarð Hallvarðsson, fv. starfsmannastjóra Lands- banka íslands, fyrir embætt- isstörf, Elsu E. Guðjónsson, safnvörð, fyrir rannsóknar- störf í textílfræðum, Gísla Andrésson, hreppstjóra, Hálsi í Kjós, fyrir félagsmálastörf, Gísla Konráðsson, fram- kvæmdastjóra Útgerðarfélags Akureyringa hf., fyrir störf að sjávarútvegsmálum, Sigurð Demetz Franzson, söngkenn- ara, fyrir störf að tónlistar- málum og frú Sigurveigu Sig- urðardóttur, Selfossi, fyrir fé- lagsmálastörf. Röng mynd- birting í Velvakanda Þau mistök urðu í Velvak- anda í Morgunblaðinu í gær, að með lesendabréfi, þar sem fjallað var um Samvinnuferðir og Rimini birtist mynd frá Lignano á Italíu, sem m.a. sýndi hótel, sem ferðaskrif- stofan Útsýn skiptir við. Morgunblaðið biðst afsökunar á þessum mistökum. Aðalfundur Flugleiða 24. apríl Aðalfundur Flugleiða fyrir árið 1980 verður haldinn í Kristalssal Hótels Loftleiða föstudaginn 24. apríl. MYNDAMOT HF. PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRETI • SlMAR: 17152- 17385 Við kynnum þér Kenwood SiumaDrive, turbo hlaðtö Hi-Fi. Það sem er turbo fyrir bíla, er Sigma Drive fynr Hi-Fi hljómburð. Petta er ný einstök Kenwood aðferð við að láta magnarann annast eftirlit með, og stjóma tónblæ hátalaranna. Aðferðin er í því fólgin, að á sama andartaki og magnarinn sendir frá sér rafboð til hátalaranna, nemur Sigma Drive hvemig þau birtast í þeim, gerir samanburð og knýr fram leiðréttingu til samræmis við upprunalega gerð þeirra. Pess vegna tengjast 4 leiðarar í hvem hátalara. ©KENWOOD T HIFI STEREO DRIVE NEWHhSPEED KENWOOD SIGMA DRIVE er algjör stökkbreyting í gerð hljómtækja FBEQUENCV CHARACTERISTIC AT SPEAKER INPUT SPEAKER SIGNAL INPUT SENSOR CORD FREOUENCY |M/| Distortion characteristic between 51 and normal drive. Simplified block diagram of 51 Drive. FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670 KA 1000: Sigma Drive system "hi-speed '-100 watts per channel-distortion—0.005%—Non magnetic construction—DC coupied—dual power suppiy—Zero switching

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.