Morgunblaðið - 23.04.1981, Qupperneq 1
48 SIÐUR
90. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Miðstjórnin á
fund í Varsiá
Varsjá. 22. apríl. AP.
MIÐSTJÓRN pólska kommúnista-
flokksins mun koma saman til
fundar á miðvikudaKÍnn i næstu
viku til að fjalia um reglur
flokksins OK önnur mál i tengslum
við fyrirhujtað flokksþinK í júli að
sögn Varsjár-sjónvarpsins í daj?.
Enn á eftir að samþykkja form-
lega breytingar á kosningareglum,
sem tillaga var gerð um á hinum
stormasama fundi miðstjórnarinn-
ar í marzlok, þegar flokksleiðtogar
voru sakaðir um að hafa slitnað úr
tengslum við óbreytta flokksmenn.
Kommúnistamálgagnið Trybuna
Ludu sakaði Vesturveldin í dag um
að nota nýlegar heræfingar Var-
sjárbandalagsins í pólitísku skyni.
Fulltrúi í sovézka stjórnmála-
ráðinu, Konstantin Chernenko,
sakaði í dag Vesturveldin í sjón-
varpi á afmæli Leníns um að fylgja
„hræsnisfullri ævintýrastefnu"
gagnvart Póllandi, en bætti því við
að Pólverjar ættu „sanna vini sem
þeir gætu treyst". í gær sagði
sendiherra Sovétríkjanna, Boris
Aristov, að ráðamenn í Kreml
treystu því að Pólverjar gætu leyst
vandamál sín.
Dómstóll í Varsjá frestaði í dag
réttarhöldum gegn fjórum hægri-
sinnuðum andófsmönnum, sem eru
ákærðir fyrir starfsemi fjandsam-
lega ríkinu og eru félagar úr
samtökunum „Bandalag sjálfstæðs
Póllands" (KPN).
Tugir bygginga
í logum í Beirút
Beirút. 22. apríl. AP.
SÝRLENZKIR hermenn og
kristnir hægrimenn börðust með
stórskotavopnum i miðborg Beir-
út i dag og eldar loga i tugum
bygginga að sögn sjónarvotta.
Árás var gerð með skriðdreka-
failbyssum á skýjakljúf sem er á
valdi Sýrlendinga og kallast
Murr-turninn.
Elias Sarkis forseti víggirti höll
sína og skipaði öllum aðilum að
hætta skotbardögum kl. 18.30 að
staðartíma, en ekkert lát varð á
fallbyssu- og eldflaugaskothríð
meðfram græna beltinu milli
hverfa kristinna manna og múha-
meðstrúarmanna.
Eldar sáust loga í sjúkrahúsi
sem Frakkar reka í hverfi krist-
inna manna. „Eldkúlum rignir
yfir öll hverfi kristinna manna,"
sagði útvarpsstöð hægri manna og
sagði að algert skotæði ríkti í
borginni.
Bjargar páfi
lífi Sands?
Bolfast. 22. april. AP.
RÓSTUR færðust i aukana í Bel-
fast og Londonderry í dag samtim-
is þvi sem fulltrúi páfa á Írlandi.
Gaetano Aliibrandi, tilkynnti að
hann mundi reyna að fá að hitta
Bobby Sands, sem er að dauða
kominn vegna mótmælasveltis. og
Jóhannes Páll páfi II kynni að
skerast i leikinn.
í Londonderry fleygðu kaþólskir
unglingar benzínsprengjum í lög-
reglu og hermenn. Seinna breiddust
óeirðirnar til Belfast, þar sem
plastsprengjum var beitt til að
dreifa óeirðaseggjum, sem stálu
fjórum bílum og kveiktu í einum
þeirra.
Sinn Fein, stjórnmálahreyfing
írska lýðveldishersins (IRA), sagði
að Bobby Sands væri nær dauða en
lífi, 53 dögum eftir að fasta hans
hófst.
Mótmælendum til mikillar reiði
ákvað brezka stjórnin í dag að
sleppa úr haldi IRA-konunni Dol-
oures Price, sem var dæmd í 20 ára
fangelsi fyrir þátttöku í bíla-
sprengjutilræðum í London 1973 og
er alvarlega veik.
ísraelskar þotur flugu yfir höf-
uðborgina og lentu í skothríð frá
stöðvum palestínskra skæruliða.
Árásir voru gerðar í allan dag á
kristnu borgina Zahle og 200.000
íbúar borgarinnar urðu að leita
hælis í kjöllurum og sprengjuskýl-
um. Sýrlendingar og falangistar
heyja harða baráttu um tvær
hæðir fyrir ofan Zahle.
Chirac
sækir á
París. 22. april. AP.
JACQUES CHIRAC. forseta-
efni gaullista. dregur stöðugt
á aðra frambjóðendur i fyrri
umferð forsetakosninganna i
Frakklandi á sunnudaginn og
reyndi i dag að auka meðbyr-
inn með þvi að hræða dálitið
þá kjósendur sem eru andvig-
ir kommúnistum.
Chirac sagði á blaðamanna-
fundi að eina örugga leiðin til
að koma í veg fyrir sigur
vinstrisinna væri að greiða sér
atkvæði á sunnudaginn, þannig
að jafnaðarmaðurinn Francois
Mitterand yrði úr leik.
Ef það gerðist yrði síðari
umferð kosninganna 10. maí
sennilega einvígi milli Chirac
og Valery Giscard d’Estaing
forseta og áhrif þess helmings
kjósenda, sem venjulega kýs
vinstriflokkana, yrðu útilokuð.
Birting skoðanakannana er
bönnuð síðustu vikuna fyrir
kosningar, en stjórnmála-
fréttaritarar segjast sjá merki
þess að Chirac sæki stöðugt á í
kjölfar kannana, sem sýndu að
munurinn á honum og Mitter-
and væri mjög lítill.
En eins og staðan er nú er þó
enn talið að Giscard og Mitter-
and sigri á sunnudaginn og
heyi tvísýna baráttu í síöari
umferð, en Chirac og kommún-
istinn Georges Marchais fái
litlu minna fylgi eða 15—20 af
hundraði atkvæða hvor.
Israel mótmælir
sölu flugvélanna
Tel Aviv. 22. apríl. AP.
ÍSRAELSSTJÓRN lýsti þvi yfir í
dag að hún mundi berjast gegn sölu
handariskra ratsjárflugvéla til
Saudi-Arahíu, kvaðst harma
ákvörðunina og vera eindregið á
móti henni, og hélt þvi fram að
þessar alsjáandi þotur yrðu óþol-
andi byrði á varnargetu lsraels.
Mordechai Zippori aðstoöarland-
varnaráðherra kvað þetta mjög leiða
ákvörðun, sem ísraelsstjórn mundi
berjast gegn með því að höfða til
ríkisstjórnar Reagans forseta og
almenningsálitsins í Bandaríkjun-
um.
Stjórnin virðist hafa ákveðið að
láta til skarar skríða eftir langar
umræður um viturleika árekstra við
bandarísku stjórnina rétt fyrir kosn-
ingarnar í Israel. Úrslitum mun
hafa ráðið að tilkynnt var í Hvíta
húsinu að mátið yrði ekki lagt fyrir
öldungadeildina fyrr en eftir kosn-
ingarnar 30. júní.
Israelskir hernaðarsérfræðingar
hafa ekki miklar áhyggjur af bar-
dagagetu saudi-arabíska hersins, en
telja ratsjárflugvélarnar „fljúgandi
martröð", sem muni að engu gera
kenningarnar sem varnir ísraels
byggjast á.
Utanríkisráðherra Egypta fagnaði
sölunni í dag. I Bonn var sagt að
Helmut Schmidt kanzlari hefði enn
ekki tekið afstöðu til beiðni Saudi-
Araba um hergögn, en hann fer til
Riyadh í næstu viku.
I Abu Dhabi fullvissaði forsætis-
ráðherra Breta, Margaret Thatcher,
leiðtoga Araba um að vestrænu
herliði austan Súez-skurðar yrði
ekki beitt án samþykkis þeirra.
í Nýju Delhi sagði embættismaður
að tvær bandarískar herþotur hefðu
veitt sovézkri farþegaflugvél eftirför
nálægt Bahrain fyrr í mánuðinum. í
Moskvu var tilkynnt að forseti
sovézka herráðsins, Nikolai Garkov
marskálkur, færi í opinbera heim-
sókn til Indlands í lok mánaðarins.
Reagan-stjórnin hefur heitið Pakist-
önum fimm ára efnahags- og hern-
aðaraðstoð.
Reagan spjallar
um banatilræðið
WashinKton. 22. apríl. AP.
RONALD REAGAN forseti sagði
í dag i fyrsta viótalinu síðan hann
særðist að tilræðið „virtist ennþá
óraunverulegt” og hann fyndi
ennþá fyrir miklum sársauka.
Hann kvaðst vona að tilræðismað-
urinn „næði sér líka“. Hann
kvaðst ennþá andvigur byssueft-
irliti.
Hann sagði að hann hefði gert
sér grein fyrir því að skotum hefði
verið hleypt af og fyrsta hugsun
sín hefði verið að gá hvað væri á
seyði, þótt öryggisvörður hefði
verið á öðru máli. Hann kvaðst
hafa fundið fyrir „lamandi sárs-
auka, eins og einhver hefði barið
mig með hamri“.
Hann lýsti því hvernig hann
hefði reynt að ná andanum á
leiðinni í sjúkrahúsið og sagði: því
meir sem ég reyndi að ná andan-
um, því erfiðara gekk það.
Aðspurður um tilræðismanninn
kvaðst hann vona að hann fyndi
svar við vandamáli sínu og hann
lét í ljós samúð með fjölskyldu
hans.