Morgunblaðið - 23.04.1981, Page 17

Morgunblaðið - 23.04.1981, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981 17 reynsluleysi í þessum efnum, en sumar nágrannaþjóða okkar hafa stundað lyfjagerð og lyfja- rannsóknir af kappi í heila öld. Ég held því, að ekki sé hægt að gera mikið úr þeirri samkeppni, sem innlendur lyfjaiðnaður geti veitt erlendum til þess að halda verðlagi innan sanngjarnra marka, enda sýnir reynslan, að framleiðendur verðleggja sam- bærilega vöru á sambærilegu verði, hversu breytilegur, sem framleiðslukostnaður kann að vera. Auk þess eru ákvæði í núgildandi lyfjalögum þar sem kveðið er á um að taka skuli tillit til verðs lyfs, þegar það er metið til skráningar. Lyfjanefnd er því í lófa lagið að leggja til við ráðherra að hafna skráningu og meira að segja að taka skráð lyf af skrá, ef verð er óhóflegt. A hinn bóginn er verð lyfs aðeins eitt af mörgum matsatriðum þess og því kann að virðast sem svo, að mati á'verði lyfs hafi ekki alltaf verið beitt sem skyldi. Lokaorð Vegna þess, að lyfjaiðnaður notar tiltölulega ódýr hráefni í litlu magni og vinnsla þeirra í fullunna vöru leiðir til mikillar verðmætaaukningar, er talið, að lyfjaiðnaður í merkingunni framleiðsla lyfjaforma geti hentað íslendingum mjög vel á hliðstæðan hátt og hann hentar vel mörgum fámennum þjóðum, sem framleiða ekki aðeins veru- legan hluta þeirra lyfja, sem þær nota, heldur einnig mikið til útflutnings svo að þessi þáttur iðnaðar er mikilvægur þáttur í efnahagskerfi þeirra. Má í þessu sambandi nefna lönd eins og Sviss, Danmörku, þar sem flestir íslenzkir lyfjafræðingar hafa stundað nám, Holland og Sví- þjóð. Þessar þjóðir hafa einnig gert sér grein fyrir því, að þessi iðnaður verður að hafa vel menntað starfsfólk og góðar kennslu- og rannsóknarstofnan- ir í lyfjafræði að bakhjarli. Það væri einmitt verðugt verkefni fyrir friðelskandi þjóð eins og Islendinga að beita sér meira en hingað til fyrir rannsóknum og þróun, sem stuðlar að bættu heilsufari og þar af leiðandi að meiri lífshamingju og minnast orða Goethe, er hann sagði: „Það er ekkert til, sem heitir þjóðleg list og ekkert, sem heitir þjóðleg vísindi. Hvort tveggja tilheyrir öllu mannkyni eins og allt, sem er göfugt og gott.“ Á slysstað Ljósmynd Mbl.: SiicurKfir Fjögur ungmenni slösuðust í Eyjum ALVARLEGT umferðarslys varð í Vestmannaeyjum síðla aðfaranæt- ur skírdags, er fjögur ungmenni slösuðust alvarlega, þegar jeppabif- reið, sem þau voru i, valt á miklum hraða að talið er. t bifreiðinni voru tveir piitar og tvær stúlkur og slösuðust tvö ungmennanna mest, en ekki lifshættulega og eru þau á batavegi í dag. Amælis- Hrókur Tafl- félagsins IIRÓKURINN. fréttablaö Tafl- félags Reykjavíkur. er kominn út og er hlaðið að þessu sinni tileinkað 80 ára afmæli félags- ins. I tilefni af komu heiðurs- gestsins Viktors Korchnois skrifar Þráinn Guðmundsson grein um Korchnoi, þar sem hann rekur skákferil hans. Auk venjulegra greina og frétta er í blaðinu allmikið efni úr sögu Taflfélags Reykjavíkur og segir í inngangsorðum að í næsta fréttablaði verði haldið áfram birtingu slíks efnis, en síðan verði því safnað saman og aukið við það í sérstaka bók um 80 ára sögu félagsins. Skíðamenn áttu næturstað á Þeistareykjum Ilúsavík. 21. april Veðurblíðunnar um bæna- daga og páska nutu menn hér eins og annars staðar, en færri gistu hótelið en til stoð vegna þess að snjór úr næstu brekk- um hvarf fyrr en menn höfðu áformað eftir kaldan hríðar- vetur. Þó var ein lyfta í gangi í stöllunum og göngubrautir þar í grennd og nokkrir hús- vískir skiðamenn gengu á Þeistareyki og höfðu þar næt- ursetu. En skíðaganga hefur farið hér mjög í vöxt. Ýmislegt var þó við að vera, leikfélagið hafði þrjár sýningar fyrir fullu húsi á sjónleiknum Hallelúja eftir Jónas Árnason og Ingvar Þorvaldsson hafði málverkasýningu í Safnahús- inu og sýndi þar 40 vatnslita- myndir. Sýninguna sóttu um 700 manns og seldist meira en helmingur listaverkanna. Ung- ir einsöngvarar, Katrín Sigurð- ardóttir, sópran, og Viðar Gunnarsson, bassi, héldu tón- leika í Húsavíkurkirkju með undirleik Jónínu Gísladóttur. Efnisskráin var fjölbreytt, ein- söngslög aríur og dúettar og var aðsókn að tónleikunum góð og undirtektir hinar ágætustu. Kunnáttumaður fortaldi mér að hér væru að koma fram á sjónarsviðið ungir söngvarar, sem ábyggilega ættu eftir að vekja eftirtekt og aðdáun á auðsýnni framabraut. í dag er áframhaldandi blíða, hiti um daga en frost um nætur. Fréttaritari. gÝSS^Kodak myndavélar ... í fallegum ff gjafaöskjum I Kodak Ektra 200: Falleg og stílhrein myndavéi með linsu f /11 — Ijósopi 22mm — Föstum fókus frá 1.2 m til óendanlegt. VerÖ kr. 274,- Kodak Ektrallte 400: Faileg og stílhrein myndavél með linsu f/6.8 -— Ijósopi 24 mm. — Innbyggðu flassi — Föstum fókus frá 1,2m til óendanlegt. Verö kr. 478,- Kodak Tele-Ektralite 600: Glæsileg myndavél með aðdráttarlinsu f/8 — Ijósopi 22mm. — Innbyggðu sjálfvirku flassi — Föstum fókus trá 1,2 m til óendanlegt — og fimm hraðastillingum. Verö kr. 697,- HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI S: 20313 GLÆSIBÆR S: 82590 AUSTURVER S: 36161 Umboðsmenn um allt land ferma skipin sem hér segir: AMERÍKA PORTSMOUTH Berglind 27. apríl Bakkafoss 4. maí Berglind 18. maí Bakkafoss 25. maí NEW YORK Bakkafoss 6. maí Bakkafoss 27. maí HALIFAX Hofsjökull 8. maí Goðafoss 1. júní BRETLAND/ MEGINLAND ROTTERDAM Eyrarfoss 27. apríl Álafoss 4. mái Eyrarfoss 11. maí Alafoss 18. maí FELIXSTOWE Eyrarfoss 28. apríl Álafoss 5. maí Eyrarfoss 12. maí Álafoss 19. maí ANTWERPEN Eyrarfoss 29. aprtl Álafoss 6. maí Eyrarfoss 13. maí Álafoss 20. maí HAMBORG Eyrarfoss 30. apríl Álafoss 7. maí Eyrarfoss 14. maí Álafoss 21. maí WESTON POINT Urriöafoss 6. maí Urriöafoss 20. maí Urrióafoss 3. júní Urrióafoss 17. júní LISBON Grundarfoss 28. apríl NORÐURLÖND/ EYSTRASALT BERGEN Dettifoss 4. mat Dettifoss 18. maí Dettifoss 1. júní KRISTIANSAND Mánafoss 27. apríl Mánafoss 11. maí Mánafoss 25. mat MOSS Dettifoss 22. apríl Mánafoss 28. apríl Dettifoss 5. maí Mánafoss 12. maí GAUTABORG Dettifoss 23. apríl Mánafoss 29. apríl Dettifoss 6. maí Mánafoss 13. maí KAUPMANNAHÖFN Dettifoss 24. apríl Mánafoss 30. apríl Dettifoss 7. mat Mánafoss 14. maí HELSINGBORG Dettifoss 25. apríl Mánafoss 2. mat Dettifoss 8. maí Mánafoss 15. maí HELSINKI Múlafoss 8. maí írafoss 18. maí VALKOM Múlafoss 9. maí írafoss 19. maí RIGA írafoss 11. maí GDYNIA írafoss 8. maí THORSHAVN Mánafoss frá Reykjavík 21 maí Frá REYKJAVÍK: á mánudögumtil AKUREYRAR ÍSAFJARÐAR _ EIMSKIP NÝTT: FRÁ ÍSAFIRÐI TIL AKUREYRAR OG REYKJAVÍKUR ALLA þRIÐJUDAGA. FRÁ AKUREYRI TIL REYKJAVIKUR ALLA FIMMTUUAGA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.