Morgunblaðið - 23.04.1981, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 23.04.1981, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981 Ingimar Erl. Sigurðsson: Píslargangan og aðrar göngur Nútímamenn eru lítt fyrir Köngur, allra sízt píslargönK- ur — nema þá óafvitandi; helzt að þeir séu píndir til aö stunda heilsubótaríjöniíur, reknir á fætur af feinðarboðum línurita, þessum drottnurum daf'lei's nútímalífs, sem á sviði heilsuxæzlu óspart hræða hjörtu manna: að þau hætti að slá af Ketuleysi; ekki því l'etuleysi sem áfellur þann er stöðuijt ber of þunua byrði 0|{ fellir hann til foldar, farinn að kröftum — heldur því Ketuleysi sem aflvanar þann er ávallt ber of létta byrði, sjálfur borinn á sam- félaKshöndum, loftar ekki lífi sínu, lenijur jafnvel frá sér á bezta aldri byrðar þess, leKKst útaf við hlið þeirra, með ei|{in hjartsiátt í hlustum o|< óttast. Forfeður okkar stunduðu ekki slíkar Köniíur, heilsubótari'öni'ur, þeir hlustuðu ekki hjarta sitt hunsjúkir af ótta; sláttur þess var þeim ómeðvitaður jafnt sem and- ardráttur, af því hann var sjálf- sanður, eins ou lífið — eins og dauðinn: að honum lyki hvenær sem ('æzlueniíli hjartans þóknað- ist 0)? |{uð setti yfir KanKverk þess, en nútímamenn trúa að línurit hafi leyst af hólmi. Að undan- skildum fjárKönKum ástunduðu forfeður — aðeins lífsKönKuna, þreyttu hana með þunga byrði á baki, ástunduðu hana ábyrKÍr KaKnvart almætti, gagnvart skyldu, KaKnvart sálu; ástunduðu hana eins ok trúarbröKÖ: lífsKanKa þeirra var bænaKanKa — hið innra, bæn um endurlausn. Hið ytra báru þeir skyldubyrð- ar, Krjót, mold, Kras, lóð, fisk, línu — skyldubyrðar brauðstrits, auk þess sem hver ok einn bar þær byrðar sem heildin ber í dag, samfélagsbyrðar: örorku, sjúk- dóma, ellidrep, menntun, uppeldi, menninKu; allar þær manndóms- byrðar sem nútímasamfélög hafa svikið af mönnum — í nafni velferðar — og neyðir þá til ábyrKðarleysis, afmönnunar, sjálfsleysis; afsals verðmæta er aðeins vaxa upp af því sem til er unnið og ávaxtað, þar sem sáð er viljaþreki og sjálfstæði og upp- skorið þakklæti og auðmýkt — uppistöður kærleika, guðdóms með mönnum. Ekkert samfélag, ekkert þjóð- félag, sinnir kærleika sálar, þörf- um til að gefa og þiggja, hvað þá fórnfýsi hennar; ekkert kær- leiksmálaráðuneyti hefur verið stofnað, aðeins kirkjumálaráðu- neyti, kærleiksráðin eru enn hjá guði, sem á innangegnt í sálir. Mannleg kærleiksþörf er kær- leiksskylda við guð, skuld við gjafara ailífs og verður aðeins með hans uppáskrift goldin öðr- um; almætti skrifar á kærleiks- víxla þeirra manna er taka þá handa öðrum, albúnir að gjalda þá með lífi sínu — samþykkta af sálu þeirra; manna sem aldrei lögðu frá sér lífsbyrðar sínar, bættu heldur byrðum lémagna og lítil- magna ofan á, enda ekki hvotsjúk- ir eins og heilsubótar-göngumenn nútímans. Þvílíkrar gerðar voru þeir menn, hinir gengnu menn, forfeð- ur okkar; menn sem gerðu sér fulla grein fyrir, að grunntónn lífsins er þjáning, að lífsgangan er — píslarganga; píslarganga frá eigingirni, hinum kvalda kærleika hjartans, til alástar — til guðs; þeir voru nógu heilskyggnir til að sjá það, nógu heillyndir til að viðurkenna það. Þjáning er grunntónn þeirra trúarbragða, kristindóms og búdd- isma, sem telja verður hvað gegn- ust sálum manna; þjáning og þjáningarlausn — fyrir -náð og nirvana. Báðum þessum trúar- brögðum er brigzluð lífsafneitun af nútímamönnum, sem sjálfir eru lífsflóttamenn — og kemur úr hörðustu átt. Þeir hljóta að líta á kærleika sem lífsafneitun: þján- ingarlausn verður fyrir tilverknað kærleika, sem auðvitað er lífsást — lífsfylling. Postuli kristindóms samvizk- unnar og þar með samvizkubitsins — Páll — var jafnframt kröftug- asti postuli kærleika sem nokkru sinni hefur prédikað í ljóði. Kepp- ið eftir kærleikanum, segir Páll, er hann hefur kunngjört kærleika með orðum þessum — ódauðleg- um: Þótt eg talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, yrði eg hljómandi málmur eða hvell- andi bjalla. Og þótt eg hefði spádómsgáfu og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking, og þótt eg hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað, en hefði eg ekki kærleika, væri eg ekki neitt. Og þótt eg deildi út öllum eigum mínum, og þótt eg framseldi líkama minn, til þess að eg yrði brendur, en hefði ekki kærleika, væri eg engu bættari. Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður; kærleikurinn öfundar ekki; kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp; hann hegðar sér .ekki ósæmi- lega.leitar ekki síns eigin; hann reiðist ekki, tilreiknar ekki hið illa; hann gleðst ekki yfir óréttvís- inni, en samgleðst sannleikanum; hann breiðir yfir alt, trúir öllu, vonar alt, umber alt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi, en hvort sem það nú eru spádómsKáfur, þá munu þær líða undir lok, eða tungur.þær munu hætta, eða þekking, þá mun hún líða undir lok. því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum; en þegar hið fullkomna kemur, þá líður það undir lok, sem er í molum. þegar eg var barn, talaði eg eins og barn, hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn; þegar eg var orðinn fulltíða maður, lagði eg niður barnaskapinn. því að nú sjáum vér svo sem í skuggsjá í óljósri mynd, en þá augliti til auglitis. Nú er þekking mín í molum, en þá mun eg gjörþekkja, eins og eg er sjálfur gjörþekktur orðinn. en nú varir trú, von og kærleik- ur, þetta þrent, en þeirra er kærleikurinn mestur. Svo kveður píslarvottur kær- leika: maður sem þreytt hefur innri píslargöngu til enda; geng- inn frá syndum og girndum sín- um, frá veizluborði og veraldar- hyggju, hverju því sem blekking að vitum ber sem lífsins vatn til svölunar göngumæddum. Genginn af vitinu, gætu ein- hverjir hugsað: maður sem öllu afsalar fyrir hugarburð, óraun- hæft hugtak eins og kærleika, afneitar þekkingu, vísindum. Slík- ir hugsuðir — og af þeim á heimurinn yfrið nóg — gera sér ekki grein fyrir: að heimur þeirra er hugarburður, sá heimur sem þeir burðast með í höfðinu; að veruleikinn býr í vitund manna, bústað sálar þeirra. Alvizka heilagrar einfeldni, sem yrkir kvæði Páls um yfirburð kærleika, skírir menn til skilnings á lögmálum eilífs lífs — guðsvit- undar. Undanfari slíkrar opinber- unar, slíks skilnings, er skírn píslarvættis: hreinsun sálar á písl- argöngu manns — með poka á baki fulla af hugarburði: ofbeldi, hatur, öfund, girnd, reiði, græðgi og aðrar heimsfylgjur mannlegrar eigingirni. Á skjatta hennar skrif- að stendur skírum stöfum: hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn og fyrirgjöra sálu sinni; höldnum augum heimsins er það hulinsletur. Því þyngri byrði sem maður ber, fyllri sem skjatti hans er af eigingirnis-skartgripum — grjóti í dulargervi — fátæklegri sem bróðurbyrði hans er, því fremur þreytir burðarmaður píslargöngu til einskis; þessa skyldugöngu mannlegra skapa að fótskör skap- arans, þar sem grjótburður af eigingirni er ekki gjaldgeng mynt sem greiðsla — upp í eilíft líf. Píslarganga er æviganga hvers einasta manns á jörðu; sú var lífsskoðun hinna liðnu og lífs- skyggnu manna: óhjákvæmleg píslarganga — hið innra. Ef til vill lykjur á þeirri leið, en undan- ganga engin; þótt svo gæti virzt að menn er lifðu í vellystingum praktuglega hefðu prettað al- mættið. Hið innra háðu þeir sömu heimsstyrjöld og öreigar heims- ins: það stríð sem enginn vinnur — lífsstríðið — utan sá er um- breytir í kærleika eigingirni, sinni og annarra; sinni við ævilangar fæðingarhríðir og annarra með því að fórna þeim lífi sínu. Enginn var — né er — undanþeginn innri þjáningu, vitnist hún ekki utanfrá vitnar hún innanfrá, óboðin að því er virðist; venjulega um víxláhrif að ræða, innri og ytri. Hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því; en hver sem týnir lífi sínu mín vegna og fagnaðarer- indisins mun bjarga því — þessi orð Krists eru lykilorð í lífsins bók; þau lausnarorð sem byggja biblíu eftirbreytni og einkum písl- arvottar liðins tíma voru læsir á — þeirra lífsletur, fyrirmynd þeirra, meistarinn frá Nasaret, mannssonur og guðssonur, sem gekk þá pislargöngu er allar píslargöngur eiga spor sín í — upphafsspor og andaspor. Fyrri píslargöngur á jörðu stefndu í fótspor hans, voru sporlausar og fengu ekki spor, fyrr en með hans sporum; öðluðust þá fyrst endan- lega merkingu, fórnarmerkingu: fyrirheit um mannkynsfrelsun fyrir píslarvætti Krists. Svo hefur verið allar götur síðan, þótt nútímamenn þverskall- ist, neiti boðun náðar og ásælist frelsi — án frelsunar, sem er sambærilegt því að krefjast sól- skins án sólar, krefjast góðverka án kærleika — guðdóms án guðs: Stalíns í stað Krists, Hitlers í stað heilags anda o.s.frv. eins og dæmi sanna. Hallgrímur Pétursson virti Brynjólf biskup, en guðaði hann ekki, var hann þó ekki glæpamað- ur eins og fyrrnefndir andskotar; það er einkenni nútímamanna, hve gjarnt þeim er að guða menn, einkum glæpamenn — jafnvel gegn betri vitund. Slíkt er ein- kenni sálsýki, sem ætti fremur að fella undir mannsýki, sektarkennd ófullnægðra manna er svikizt hafa undan kærleiksskyldu, kasta sér að fótum karlmenna, sem virðast ekki kunna að kenna til og engan bera krossinn; falin sjónum flís í sálu þeirra — og á fyrir sér að vaxa og verða tré í öðrum tíma, krosstré. Nútímamenn kasta sér að fótum krosssnauðra í frávita von um göngufrest: að innri píslarganga eigri fyrir órofa fylgispekt við þá; uppgjör kærleika og eigingirni, góðs og ills, farist jafnvel fyrir: stefnumót guðs og manns í sál- inni. Hinir gegnu menn, forfeður okkar, gengust undir kvöl sína; gengu möglunarlaust sína mann- legu píslargöngu, gengust sjálf- viljugir undir dóm: gengu á kross- inn með meistara sínum — hið innra. Hallgrímur Pétursson gekk í Passíusálmum píslargöngu frels- ara síns; gekk hana af þvílíkri innlifun að þjóðin, sautjándu ald- ar þjáningarþjóð íslenzk, gekk kveðandi á krossinn — með hon- um og Kristi. I sálmum þessum innblásnum, af Herrans pínu og dauða, eygði hún sálina nakta frammi fyrir guði sínum og þekkti eigin þjáningu; greindi lífsgöngu sína í píslargöngu Krists, lífs- göngu alira manna og hvers og eins; greindi að hún er samgöngu- leið milli eyðandi lífs og skapandi eilífðar — greindi hún samræmi milli ytri kjara og innri kvala. Það samræmi hafa nútímamenn misst úr lífi sínu, í velferðarþjóð- félögum Vesturlanda, og sitja uppi með naglfasta innri kvöl í miðjum vellystingum — og engan kross, að því er kennslubækur í sálarfræði og félagsvísindum kenna; að ekki sé minnst á fjölmiðla, þessa sund- urlausu fregnmiða mannlegrar firringar, alls ófróða um sálina og guð. Píslarskáld okkar pólitísku tíma, Solsenytzyn, er talinn af elskendum 3álvana alræðis: sál- sjúkur — af því hann boðar heimsstyrjöld sálarinnar gegn efnishyggju og guðleysi á meðan önnur nútímskáld eru kafin önnum — við að búa til bókmennt- ir. Hailgrímur Pétursson bjó ekki til bókmenntir, ekkert stórskáld hefur stefnt að því; list þeirra er lifuð, ekki skrifuð: vitnisburður á lífsgöngu — ætlaður lifendum og líðendum, ekki leikendum í bók- menntastofnunum. Bók eins og Passíusálmarnir hættir að verra bók, um leið og byrjað er að lesa hana, likt og Biblían verður hún lifandi — andi, hold, blóð; það blæðir úr síðum hennar, bókstaf- lega, blæðir úr orðunum: Allar Jesú æðar stóðu opnaðar í kvölinni, I Frönsk kvikmyndavika hefst um helgina FRÖNSK kvikmyndavika er að hefjast í Regnboganum. byrjar laugardaginn 2-r>. apríl. Þar vcrða sýndar 7 kvikmyndir. flestar frá sl. 2 árum. Þó er þar í hópi mynd frá 1973 með leikaranum Jean Gabin og Alan Delon. En myndaval er all fjölbreytt. Kvikmyndavikan er á vegum franska sendiráðsins og hefur einum kvikmyndastjóranum Charlotte Dubreul verið boðið til íslands af þvi tilefni. Með myndun- um eru textar. Mynd Charlotte Dubreul nefnist „Elskan mín“. Þessi orð komu leik- stjóranum í hug dag nokkurn er hún beið eftir neðanjarðarlestinni og hugsaði til dóttur sinnar Judith, sem þá var 15 ára gömul. „Þessi orð tjáðu alla þá hlýju, reiði, skilningsleysi og ást, sem á milli okkar var“, sagði Charlotte Dubreuil. Þessi orð urðu að kvikmynd, þar sem áhorfandinn fylgist með skilnaði tveKgja mann- eskja. Myndin segir í einfaldleik sínum og raunsæi frá sambandi móður og dóttur, sem rofnar eftir 17 ár. Við það verða umskipti í lífi beggja. Konurnar tvær eru frjálsari. Þær eru raunverulega þær sjáifar. Myndin er gerð 1979. Myndin „Horfin slóð“ eftir Patr- iciu Moraz segir frá Cecile, sem er hugmyndaríkt barn, sem flöktir milli tveggja heima, þess sem Leon Schwarz afi hennar og eldheitur baráttumaður kommúnismans lifir í og þess heims, sem foreldrar hennar hrærast í, auk þess sem hún er upptekin í eigin draumaheimi. Þá kemur Angelo fram á sjónarsviðið. Leiðir hennar og afans skilja, hún gerist sek um að selja klukku gamla mannsins, vill ekki vera andlegur arftaki hans. Þessi mynd er frá árinu 1980. Myndirnar Beislið, Heimþrá og Meðeigandinn eru líka frá 1979. Heimþrá gerist í lítilli kyrrlátri borg í Alsír, þar sem hin samhenta Narboni-fjölskylda býr, þar til brottflutningurinn dynur yfir þau vegna sjálfstæðisbaráttu Alsír. í kvikmyndum hefur verið greint frá Úr kvikmyndinni „Elskan mín“, sem gerð er af Charlotte Dubreul, sem kemur á hátíðina á íslandi. Hér eru mæðgurnar Jeanne (Marie Christine Barrault) og Sara (Bettrice Bruno).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.