Morgunblaðið - 23.04.1981, Síða 19
> Lítið v
sýnishorn
af lágu
vöruverði
byltingunni, hernum, lífi hermanna,
en nánast aldrei frá örlögum þeirra
Frakka, sem þar voru búsettir,
sumir mann fram af manni. Nar-
boni-fjölskyldan kemur til Frakk-
lands, sem hún lítur á næstum sem
framandi land og þekkir ekki. Þessa
mynd gerði Alexandre Arcady.
Beislið fjallar um það hvernig á að
eyðileggja stjórnmálamann með því
að veita honum tækifæri til að
skipuleggja svindl, sem aftur er að
engu gert fyrir skemmdarverka-
starfsemi annars staðar frá. Þar
blandar leikstjórinn saman veðreið-
um og pólitísku ráðabruggi, sem
fjallar um reikningsuppgjör innan
valdamikils flokks.
Meðeigandinn eftir Rene Grain-
ville segir frá Julien Pardot sem
vænti sér fjár og frama og býr sér til
ímyndaðan meðeiganda „Monsiur
Davis", sem verður brátt einum of
fyrirferðarmikill í lífi hans. Boð-
skapur sogunnar virðist vera sá, að
menn skuli fara sér hægt, er þeir
byrja að víkja frá sannleikanum, eða
þá að búa sér til hjáguð, þá verði
þeir að gjöra svo vel og trúa á hann.
„Eyðimörk tataranna“, mynd Val-
erie Zurlini er gerð eftir bók landa
hans, rithöfundarins Dino Buzzati
og þykir magnað verk. Það segir frá
afskekktu virki við landamæri ein-
hvers óþekkts lands, þar sem setuiið
vakir yfir að ekki sé gerð innrás.
Árum saman hefur enginn ráðist inn
í þetta fjarlæga virki. Það er hin
langdregna bið á undan erfiðum
bardögum, sem Buzatti lýsir í dæmi-
sögukenndri skáldsögu sinni. Og
kvikmyndagerðarmaðurinn leggur
ekki síður áherslu á fánýti mannlífs-
ins.
Loks er myndin „Tveir menn“ eftir
Jose Giovanni, þar sem hinn gam-
alkunni og frægi leikari Frakka Jean
Gabin leikur kennara, sem lítur til
með Gino (Alan Delon) eftir að hann
kemur úr 10 ára fangelsi og ákveður
að taka upp reglubundið líferni og
kynni hans við ensku stúlkuna Lucy.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981
dreyra lækir dundu og flóðu
um drottins líf og krossins tré,
nægð af lausnargjaldi.góðu
guðsson fyrir mig lét í té ...
og
Lífsins dyr á síðu sinni
setur Jesús opnar hér,
svo angruð sála aðstoð finni
öll þá mannleg hjálpin þver,
hver sem hefur þar athvarf inni
frá eilífum dauða leystur er ...
Þvílík er ganga Hallgríms Pét-
urssonar á krossinn með Kristi:
hún er hjálpræðisganga. Sú eina
heilsubótarganga sem mönnum
horfinna alda var hugstæð —
heilsubótarganga sálar í heimin-
um, sjúkum mannheimi. Krafta-
verk þessa kvæðis, Passíusálma,
er upprisa þess úr guðspjöllunum,
er kraftbirting þess utan við
tímann: að kunngjöra að sannleik-
ur i gær er sannleikur í dag og
sannleikur á morgun.
Ef píslargangan væri ekki sann-
leikur, innri og æðri sannleikur,
færi engum sögum af henni, allra
sízt í dag. Maður hefði verið
drepinn — á krossi — annað eins
hefur gerzt, án þess að hrykkti í
heimsbyggðinni. Hvað þá að
brestirnir bærust fram á sautj-
ándu öld, bærust fram á okkar öld
og guð einn veit, hve langt þeir
berast í tíma og eilífð.
Þeir krossbrestir boðuðu og
kunngjörðu sálum manna á písl-
argöngu sannleika lausnarans,
þess er krossfestur var, sannleika
lausnarorða: frelsun frá þjáningu
fyrir píslarvættir. Með upprisu frá
dauðum staðfesti frelsari mann-
kyns, hvert sitt fororð, hvert sitt
boðunarorð; því öll er píslargang-
an fyrirhuguð frá upphafi vega.
Kynslóðir genginna manna
heyrðu sannleikshljóm þeirra
dýru orða — ódauðleikans orða,
heyrðu þau í sálu: hún var sá
hljómbotn er bar þau að hlustum
heims; grunnur þeirra guðshúsa er
hljómbera orð Krists enn í dag,
þeim er hlusta, þeim sem hlýða:
kirkja Krists, kirkja kærleika —
hins krossfesta kærleiks á jörðu; í
húsi því messaði meistari Passíu-
sálma, séra Hallgrímur Pétursson,
hinn líkþrái píslargöngumaður —
í lífi og ljóði.
Hin mannlega píslarganga, hin
mannlega krossganga, felst í því
að ganga í fótspor Krists hið
innra, krossfesta eigingirni sína,
er sýnist mönnum sárast á jörðu,
umbreyta henni í kærleika. Hin
guðlega píslarganga, hin guðlega
krossganga, felst í því að taka á
sig misgerðir allra manna, eins og
Kristur gerði, gjörast miðlari guðs
og manna, frelsari þeirra fyrir
jarðneskan fórnardauða, fram-
kvæmdan af þeim er frelsast.
Enginn getur borið á jarðnesk-
um líkama byrði þyngri en þann
kærleikskross er Kristur bar,
krossbyrði allra manna; enda varð
mönnum ljóst sem þeir höfðu
krossfest hann: að þeir höfðu
krossfest kærleikann, holdtekju
hans — sjálfan guðdóminn. Hinir
gengnu menn, forfeður okkar, iðr-
uðust af alhug þessa verks og
gerðu sér jafnframt grein fyrir: að
þeir endurtóku þetta voðaverk, að
allir menn á öllum tímum endur-
tækju þetta voðaverk, hvert sinn
er þeir í lífi sínu brygðust —
kærleiksskyldu; því varð lífsganga
þeirra í senn píslarganga, yfir-
bótaganga, hjálpræðisganga.
Nútímamönnum er heilsubót-
arganga hugstæðari; heilsugæzlu-
menn prédika í fjölmiðlum af
postullegum fjálgleik gildi slíkrar
göngu fyrir menn: trimm, trimm
— er eitt af töfraorðum nútímans,
tilbiðjendum líkamans sem trúar-
brögð; enda hefur ríkið ekki undan
að reisa spítala fyrir iðkendur
hinna ýmsu menningarsjúkdóma:
hóglífi, ofát, lungnareyking,
áfengisþamb, pilluát, ofreynsla,
heiladómur o.s.frv.
Ekkert er þjóðfélögum óviðkom-
andi, velferðarþjóðfélögum, ekkert
er varðar þegnana, jafnvel einka-
líf manna er undir velferðarsmá-
sjá valdhafa þeirra. Sálir manna
væru óðar teknar og ríkisreknar,
ef ríkinu tækist að staðsetja þær
og kyrrseta í kerfinu, þótt ekki
væri nema í líkamskerfinu.
Menn eru gegntryggðir öllu —
nema sálartjóni; einmitt því tjóni
sem augljóslega tröllríður velferð-
arþegnum og tröllið velferðarþjóð-
félagið sjálft. Það tjón áfellur
menn sem ábyrgð af þeim er tekin
— lífsábyrgðin: sjálfsábyrgð,
bróðurábyrgð, samábyrgð, sálar
gagnvart sál, sálna á píslargöngu
sömu; engin töfrabrögð eru til sem
tryKgja mönnum þjáningarlaust
líf, ekkert tryggingarfélag er í
trúnaðarsambandi við guð.
Þótt nútímamenn afneiti þján-
ingu í nafni velferðarsamfélags,
þá neita þeir jafnframt að af-
henda hana velferðarkerfi til um-
önnunar — og staðfesta þannig
tilvist hennar; þótt velferðin ræni
mennina vizku, þá vita þeir
ósjálfrátt að þeir mega ekki fram-
selja þjáningu sína vanhelgum
fingrum ytri félagshyggju, því
hún er veganesti þeirra — til guðs,
guðs Hallgríms Péturssonar.
Þess eru dæmi að menn í
velferðarþjóðfélagi hafi í dauða
hrakizt, vegna þess að of hart var
að þeim gengið: að afhenda þján-
ingu sína elsku þjóðfélaginu; að
ekki sé minnzt á menn er leiddist
svo mikið að þeir lögðust fyrir,
dauðþreyttir á lífsbaráttuleysi
velferðarþjóðfélags. Hinir stunda
heilsubótargöngur — og kröfu-
göngur, ímyndaðar píslargöngur, í
þjóðfélagi sem uppfyllt hefur allar
kröfur ytra lífs; heimta jafnvel
fæðingarorlof handa karlpeningi
— og ókeypis getnaðarverjur.
Vissulega hefur velferðarþjóðfé-
lag nútímans villt menn á vegi
píslargöngu, með því að taka af
þeim hinar ytri byrðar, ytri tákn
innri byrða, og þann veg leitt
ósamræmi inn í lífsvitund þeirra.
Þeir þreyta eigi að síður píslar-
gönguna — óvitandi, þar sem
gengnir menn þreyttu hana vit-
andi.
Á meðan krossfesta þeir kær-
leika: sinn, annarra, allra; kær-
leika guðs í mannssálinni. Á
meðan krossfesta þeir Krist, hver
á sínu krosstré. Sjá, hann hangir
þar enn; unz hann upprís í þeim.
Til þeirrar stundar, upprisunnar,
verður stopull friður; hvorki sálar-
friður né heimsfriður — guðsfrið-
ur, sem er kærleikur guðs með
mönnum.
Matvörumarkaður-
inn er opinn föstu-
daga kl. 9—22 og
laugardaga kl. 9—
12. ,#
★ Byggingavöru-
doild. húsgagnadeild.
teppadeild. rafdeild
opið til kl. 19 á föstu-
dögum og til hádeg-
is á laugardögum.
Jli
Jon Loftsson hf.
Hringbraut 121 sími 10600
Matvörumarkaöur sími 10600 — 28602.
WC pappír 8 rúllur
kr. 23.30.-
Eldhúsrúllur 2 stk.
kr. 9.80
Söltuð rúllupvlsa kg. verð
kr. 26.50.-
Franskar kart. (ísl) 2 kg.
kr. 32.00.-
Paprikusalat (Búlgaría)
kr. 9,80.-
Dixan þvottaefni 4,5 kg.
kr. 86,85,-
Cll þvottaefni 10 kg.
kr. 115.20.-
Snapp kornflögur 500 gr.
kr. 12.30.-
Kellogs Kornflögur 500 gr.
kr. 15.35.-
Trix áváxtakúlur 226 gr.
kr. 12.60.-
Kapa kókómalt 400 gr.
kr. 15.25.-
Ananas bitar 1/1 dós
kr. 10.30.-
Kaliforníu rúsínur Chaipin
on 250 gr.
kr. 8,05,-
Hunang 450 gr.
kr. 15.50.-
Krakus jarðaber1/1 dós
kr. 18.70-
Krakus jarðaber 1/2 dós
kr. 11.25.-
*we
3 tæki í einu.
Meiriháttar steríó samstæöa
meö hátölurum,
ívinsæla ,,silfur“ útlitinu.