Morgunblaðið - 23.04.1981, Page 20

Morgunblaðið - 23.04.1981, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981 Skák eftir Margeir Pétursson SJÓNVARPIÐ tók upp á þeirri skcmmtilojíu nýbrcytni á þriójudaKskvoldió að fá Viktor Korchnoi, áskorandann í hcims- mristarakcppninni, til að tcfla klukkufjöltcfli í sjónvarpssal viö átta valinkunna íslcnska skákmcnn. Ekki cr étf undirritaöur í aöstoöu til aö da'ma um hvcrsu vcl tókst aö ná til sjónvarps- áhorfcnda. því ck var á kcppnis- staönum sjálfum ojí sá því ckki útscndinKuna. I>aö vita hins vcsar allir scm fyljíst hafa mcð fjolmcnnum skákmótum þar scm marjíar skákir cru i j'anj'i aö vonlaust cr aö ætla scr að fyIjíjast mcö öllu scm jfcrist I cinu. scrstaklcj'a þcj;ar nær drcjjur tímamörkum oj? kcpp- cndur fara aö leika hratt. Það voru því óhjákvæmilej;a nokkur spennandi auj'nahlik sem fóru fyrir ofan garð oj; neðan hjá sjónvarpsáhorfendum, sem auðvitað j;átu ekki fenj;ið aliar skákirnar átta heim í stofu til sín. Öll úrslit voru hins vej;ar iAHFELAfi REYKJAVÍKUR -80ÁRA- Korchoi er þunj;t huj;si yfir skák sinni við Jóhann Hjartarson. Á klukkunum sést að Korchnoi hefur bctri tíma á öllum borðum. myndin var tekin er keppnin hafði staðið i 40 minútur. Korchnoi hlaut 6V2 vinning i 8 skákum, eða rúmlega 80%. Skák inn á hvert heimili tilkynnt um leið og þau bárust og áður en tímahrakið komst í algleyming voru þær skákir raktar sérstaklega sem voru þá þegar langt komnar. Areiðanlega hefur það ekki farið framhjá neinum hversu mikill afburðamaður Korchnoi er í skák. Hvergi lenti hann í taphættu og þótt hann hefði hlutfallslega átta sinnum minni tíma á hverja skák en hver andstæðinga sinna virtist það honum síður en svo neitt vanda- mál og þrátt fyrir hinn mikla tímamun áttu margir íslensku þátttakendanna um sárt að binda vegna tímahraks. Þeir sýndu honum þó allir harða mótspyrnu og greinilega mætti enginn til leiks með því hugarfari að viðureignin væri fyrirfram töpuð. Gangur skák- anna var í stuttu máli þessi: íslandsmeistarinn, Jóhann Hjartarson, hafði hvítt gegn Korchnoi og tefldi byrjunina, sem var Vængtafl, fremur ró- lega. Líklega hefur Korchnoi munað eftir Jóhanni frá Lone Pine-mótinu, a.m.k. tefldi hann ekki í tvísýnu. Skákin einfaldað- ist síðan smám saman og jafn- tefli voru rökrétt úrslit. Guðmundur Ágústsson, sem er 64 ára og því elsti þátttakand- inn, tefli Slavneska vörn með svörtu á þann hátt sem honum einum er lagið. Hann lét síðan af hendi peð, en í staðinn fyrir að þvinga síðan fram jafnteflislega stöðu lenti Guðmundur á villi- götum og Korchnoi var fljótur að notfæra sér það. Birni Þorsteinssyni, fyrrver- andi Islandsmeistara, urðu á afdrifarík mistök snemma tafls. Hann hafði hvítt, fórnaði peði, og ætlaði sér síðan að vinna það til baka, en varð að hætta við það er hann kom auga á öflugan millileik sem Korchnoi átti í pokahorninu. Björn varð því að tefla með peð undir það sem eftir var skákarinnar og hlaut því að lúta í lægra haldi. Gylfi Þórhallsson frá Akur- eyri réðist ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, því hann hafði hvítt og tefldi mjög flókið afbrigði gegn Franskri vörn, en í þeirri byrjun er Korchnoi svo mikill sérfræðingur að jafnvel Karpov hefur ekki tekist að klekkja á henni hjá honum. Fór svo að þekking og reynsla stór- meistarans reyndist þung á met- unum. Hann komst út í hagstæð- ara endatafl og Gylfi, sem var í heiftarlegu tímahraki, fékk ekki við neitt ráðið. Þetta var síðasta skákin og lauk henni kl. 23.30. Korchnoi tefldi óvenjulegt af- brigði gegn Sikileyjarvörn Karls Þorstcins. Karl fann ekki beztu leiðina og Korchnoi vann með afar skemmtilega útfærðri sókn. Skák Daða Guðmundssonar, frá Bolungarvík, þróaðist fram- an af á svipaðan hátt og skák Karls. Eftir leikbrellu Korchnoi snemma tafls tókst Daða aldrei að þróa stöðu sína á nauðsyn- legan hátt og er hann féll á tíma var kóngur hans að deyja drottni sínum á miðborðinu. Korchnoi náði örlítið hag- stæðari stöðu gegn Elvari Guð- mundssyni, sem hafði svart, eftir byrjunina, sem var Nimzo- indversk vörn, en Elvar lét hvergi undan síga. Hann náði sóknarfærum á kóngsvæng og Korchnoi varð að gera sér það að góðu að ná miklum uppskiptum og þvinga þannig fram jafntefli. í lokastöðunni þótti jafnvel flestum sem Elvar stæði heldur betur, en hann hafði lakari tíma og tók því þá ákvörðun að þráskáka. Korchnoi virtist ná nokkru betri stöðu með hvítu gegn Gunnari Gunnarssyni og varð síðan peði yfir. Fyrir það fékk Gunnar hins vegar mótfæri sem hann nýtti sér hugvitsamlega og náði síðan þráleik. Ýmsum fannst sem Gunnar hefði átt að tefla áfram, en Korchnoi sann- færði áhorfendur eftir fjölteflið um það að Gunnar hefði ekki átt meira en jafntefli í stöðunni. Ilvitt: Björn Þorsteinsson Svart: Viktor Korchnoi Sikileyjarvörn 1. e4 - c5, 2. RÍ3 - a6,3. c4 - e6, 4. Rc3 - Rf6, 5. e5 - Rg8, 6. d4 — cxd4, 7. Dxd4 — Rc6,8. Dc4 - d6. 9. Bg5 - Dc7 10. 0-0-0? Þessi peðsfórn stenst ekki. Eftir 10. — dxe5 hafði Björn í huga að leika 11. Rxe5? og ef 11. — Rxe5 þá 12. Dxe5! — Dxe5,13. Hd8 mát. En Korchnoi opnar kóngi sínum útgönguleið með því að leika millileiknum 11. — f5 og vin’nur síðan mann. Miklu betra framhald var 10. exd6. 10. - dxe5, 11. g4 - RÍ6, 12. Bxí6 - gxí6, 13. Bg2 - Bd7, 14. Kbl — 0-0-0, og með sælu peði yfir var Korchnoi ekki i vandræðum með að vinna taflið. Ilvítt: Viktor Korchnoi Svart: Karl Þorsteins Sikileyjarvörn 1. e4 Þessum leik leikur Korch- noi næstum aldrei í kappskák. En í sjónvarpsfjölteflinu sýndi hann geysilega fjölhæfni og tefldi allar stöður jafn vel. 1. - c5, 2. Rí3 - d6, 3. d4 - cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — a6, 6. Bg5 - e6, 7. Df3!? Óvenjulegur leikur sem nýtur nú lítilla vinsælda. 7. - h6, 8. Bh4 - Be7, 9. 0-0-0 — Dc7,10. g4 — Rbd7,11. Bxf6 — Bxf6,12. h4 - Hb8,13. Kbl — Re5?! Hrekur drottninguna á góðan reit. Betra var 13. — b5. 14. Dg3 - b5. 15. g5! — hxg5, 16. hxg5 — Hxhl, 17. gxf6 - Hh8 Ef 17. - gxf6 þá 18. Dg8+ - Ke7,19. Rf5+ — exf5, 20. Rd5+. 17. — g6 er svarað með 18. Bxb5+ og siðast en ekki síst 17. — Hxfl er svarað með 18. fxg7! og hvítur fær nýja drottningu. 18. Bxb5+ - Bb7, 19. Dxg7 - Bxb5 Eini möguleikinn. Ef 19. — Hf8 þá 20. Rxe6! 20. Rcxb5 - axb5, 21. Dxh8+ - Kd7, 22. Dg7 - Kc8, 23. f4 - Dd7, 24. fxe5 - dxe5, 25. Df8+ - Kb7, 26. Dc5 - exd4, 27. IIxd4 - Dc6, 28. De7+ - Ka8. 29. Hd6 - Hh8, 30. b4 - Dc8, 31. Ild3 - Db7, 32. Ild8+ - Hxd8,33. Dxd8+ - Ka7, 34. De7 og svartur gafst upp. Ákaflega skemmtileg og léttleikandi skák af hálfu Korchnois, en Karl hefði e.t.v. átt að velja rólegri byrjun, því Korchnoi virðist jafnvígur á flækjur og rólega stöðubaráttu. TAflFÉLAG BEYKJAWKUR Frá sjónvarpsfjölteflinu. tslensku keppendurnir eru frá vinstri: Guðmundur Ágústsson, Björn Þorsteinsson og á bak við Korchnoi situr Gylfi Þórhallsson. Næstur ljósmyndaranum er Gunnar Gunnarsson, þá Elvar, Daði og Karl. . Ljósm. RAX

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.