Morgunblaðið - 23.04.1981, Page 23

Morgunblaðið - 23.04.1981, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981 23 Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða: „Verulegur árangur náðst í að minnka tapreksturinn44 Eigin fjárstaða Flugleiða jákvæð um 15—20 milljarða „IIEILDARTAP Flujfleiða á sl. ári samkvæmt reikningum er sjö milljarðar króna. en rekstr- artap hefur hins vegar lækkað um 65% milli síðustu tvoKtrja ára." saxði SÍKurður Helgason forstjóri FluKleiða i samtali við Mhl. i Ka*r. „TekjuaukninK hef ur orðið 25%. en rekstrarKjöld hafa ha'kkað um 13,6%. I>að sem Kerir hatann er það að tekjurnar hafa hækkað mun hraðar en útKjöldin ok þetta er afleiðinK aðhalds ok samdrátt- araðKerða fyrirtækisins. bað er hins ve^ar rétt að Keta þess að í þessari niðurstöðu með sjö milljarða tap er aðeins miðað við V* af styrk Islands ok LuxemborKar til Atlantshafs- fluKsins i dæminu þótt eðlileKra væri að miða við helminK styrksins. en það héfði lækkað þessa sjö milljarða i sex millj- arða tap.“ „Eigin fjárstaða félaRsins miðað við eignamat á vegum ríkisins sýnir jákvæða stöðu Flugleiða um 15—20 milljarða króna,“ sagði Sigurður Helga- son. „Um stöðuna í rekstrinum er það að segja að verulegur árang- ur hefur náðst í því að minnka tapreksturinn, en meginástæðan fyrir tapinu er verðbólgan, vext- ir hafa aldrei verið hærri, óhag- stæðar efnahagsaðstæður á Vesturlöndum, tap á innan- landsfluginu, sölutregða á ákveðnum flugvélum félagsins og mikið tap á Norður-Atlants- hafsfluginu þar sem fyrirtækið ber eitt tapið fyrstu 9 mánuði ársins 1980, en styrkur Islands og Luxemborgar miðast við tímabilið 1. október 1980 til 31. sept. 1981. Horfurnar í fluginu eru þær að á næstu mánuðum lítur til- tölulega vel út og við gerum ráð f.vrir farþegaaukningu í Evrópu- fluginu og reiknum með að ná þeim mörkum sem við höfum sett okkur í Norður-Atlantshafs- fluginu. Við stefnum að því að halda tapinu á Atlantshafsflug- inu innan þeirra marka sem styrkur Islands og Luxemborgar miðast við og vonum að það takist. Um framhald þess flugs liggur ekkert fyrir. Aætlanir miðast við 1. október, en verið er að gera úttekt á þessu flugi á vegum Islendinga og Luxemborgar- manna og sú úttekt er unnin af bandarískum sérfræðingum sem reikna með að skila skýrslu sinni um miðjan maí. Upp úr því skýrist væntanlega skjótt hvaða stefna verður tekin í framgangi þessara mála. Um hugmyndir varðandi end- urnýjun flugflotans er það að SÍKurður Helgason kynnir samanhurð á fargjöldum Flugleiða og annarra fluKfélaga í Evrópu miðað við gjald á hverja milu. en þar kom fargjald Flugleiða mjög hagstætt út. segja að við erum með í gangi athugun á því hver sé heppileg samsetning flugflotans, en stefnan er ekki fullmótuð ennþá. Ég tel hins vegar brýnt að fullmóta þá stefnu. í flugrekstrinum í dag er það eina virkilega jákvæða að elds- neytishækkanir hafa stöðvast og ástæðan fyrir því að sú alda hnígur er offramboð á olíu. Við höfum verið að fá örlitlar lækk- anir á olíuverði þar sem við tökum eldsneyti, en slíkt hefur ekki skeð í 4 ár. Að öðru leyti er um áframhaldandi verðstríð að ræða á Atlantshafinu og á það bæði við um farþegaflug og vöruflutninga, en hjá okkur hef- ur verið um líflega flutninga að ræða að undanförnu, en þegar á heildina er litið hafa flutn- ingarnir verið sarokvæmt okkar spá.“ Kór Menntaskólans við Ilamrahlíð á skólatónleikum i Keflavík 7. apríl sl. Sumri fagnað í Hamrahliðarskóla KÓR Menntaskólans við Hamra- hlíð heldur sumargleði i dag, sumardaginn fyrsta. i Mennta- skólanum við Ilamrahlið. Opið hús verður i skólanum fyrir horgarbúa þar sem boðið verður upp á fjölbreytt skemmtiatriði og veitinKar KOKn væKU verði. Sálfræðinemar halda málþing um sjúkdómshugtakið FÉLAG sálfræðinema við Ilá- skóla íslands genKst á laugar- daginn fyrir málþingi í Norræna húsinu og verður umrseðuefni þingsins sjúkdómshuKtakið. merking þess, notkun <>k tak- markanir i Keölæknis- <>g sálar- fræði. Málþingið hefst kl. 14. Fruromælendur á málþingi sál- fræðinema verða dr. Eiríkur Örn Arnarsson sálfræðineroi, Jakob Jónasson geðlæknir, Oddur Bjarnason læknir, dr. Páll Skúla- son prófessor og Sigurjón Björns- son prófessor. Að loknum erindum verða frjálsar uroræður og er þing þetta öllum opið og aðgangur ókeypis. Fer þar fram fjölþætt dagskrá með söng, veitingum, ýmsum skemmtiatriðum við hæfi fólks á öllum aldri. Þessi skemmtun á sumardaginn fyrsta fer fram með þeim hætti að dagskráin stendur yfir allan daginn en ekkert atriði verður endurflutt. Vill kórinn með þessum hætti bjóða borgarbúum, gestum og gangandi upp á til- breytingu með lífi og fjöri jafn- hliða því að dagar lengjast nú óðum. Skólinn verður sem sagt opinn og hvetur kórinn fólk til þess að líta inn sér til gagns og gamans. Sumargleðin fer fram með þeim hætti að Hamrahlíðarkórinn syngur mismunandi efnisskrá kl. 2, 4 og 6. Sungnir verða madrígal- ar, íslensk lög, þjóðlög, tónsmíðar eftir kunnustu meistarana, negra- sálmar og sitthvað fleira. Hver konsert tekur innan við klukku- tíma í Hátíðarsal Hamrahlíðar- skólans. Þá verða ýmis létt atriði í tilefni dagsins. Kórfélagar selja veit- ingar og á milli konserta kórsins verða skemmtiatriði eins og hljóð- færaleikur, Ijóðaupplestur, þjóð- lagatónlist, hlutavelta, einn hand- laginn kórfélagi mun klippa gesti. töfrabrögð og spilabrögð og blómasölustúlkur fara um. Það verður sem sagt sitt lítið af hverju til þess að lífga upp á mannlífið og tilveruna í sumarbyrjun. (Króttatilkynnin>í) Blómasala Þessi unga blómarós er nem- andi Garðyrkjuskóla ríkisins, en hún ásamt félögum sínum í skólanum halda blómasölu að Suðurgötu 7, til fjáröflunar vegna námsferðar til Finn- lands og Svíþjóðar í dag. Nemendur selja blóm sem þeir hafa ræktað í vetur og verður salan opin 09.00—20.00. Föstudagshádegi: Glcesileg Kl. 12.30 - 13.00 á morgun að Hótel Loftleiðum. íslenskur heimilisiðnaður og Rammagerðin sýna helstu nýjungar í bráðfallegum ullar-og skinnavörum ásamt, nýjustu hönnun íslenskra skartgripa í Blómasal hótelsins. Módelsamtökin sýna. Hótel Loftleiðir bjóða um leið upp á gómsæta rétti af hinu sívinsæla Víkingaskipi með köldu borði og völdum heitum réttum. Veríð velkomin, HÓTEL LOFTLEIÐIR _ L 3,5 milljóna styrkur til kolmunnaveiða: Verðið og uppbót in ákveðin í gær Á FUNDI VerðlaKsráðs sjávar- útvcKsins í Kær var ákveðið kolmunnaverð 24 Kamlar krónur <>K 50 aurar kílóið. Jafnframt var ákveðið að verðuppbót úr afla- j<>fnunarsjóði sjávarútveKsins skyldi vera 50% ofan á kolmunna- verðið. betta bíður nú staðfest- inKar ráðuneytisins <>k er reikn- að með henni á morgun. föstu- daK- Óskar Vigfússon, forseti Sjó- mannasambands íslands kvað sjó- menn vilja leggja sitt af mörkum til að gera kolmunnaveiðar að veruleika. Það væri sárt að horfa upp á annarra þjóða skip veiða kolmunna meðan við gætum það ekki. Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri LIU sagði útvegs- menn hafa átt viðræður við ráðu- neytið um tilhögun kolmunna- veiða í sumar, en útgerðarmenn telja þær gagnslitlar nema að minnsta kosti 6—7 skip stundi þær í eins og tvo mánuði. Þetta hefur ráðuneytið gengist inná og tilkynnti Steingrímur Her- mannsson það á fundi með blaða- mönnum, að ráðuneytið hygðist veita allt að 3,5 milljón króna styrk til þessara veiða í sumar. Kristján Ragnarsson kvað það góðan stuðning.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.